Morgunblaðið - 29.12.1989, Qupperneq 4
4
MORGUNBLABIÐ FÖSTUÐAGUR 29. DESEMBER .1989
VEÐUR
Forsetinn vígir nýja skoðun-
arstöð Bifreiðaskoðunar hf.
. Fyrsti bíllinn sem fær skoðun í nýju stöðinni, embættisbíli forseta íslands nr.l.
á öryggi í umferðinni, þar sem hún
gefur kost á að skoða öryggisbúnað
bíla, sem enginn kostur var á að
skoða áður. Hægt er að taka inn
sex minni bíla samtímis og einn
vörubíl eða rútu.
í stöðinni er hægt að mæla út-
blástursmengun, kanna ítarlega
hjólabúnað bíla og mæla hemlun-
arátak hvers hjóls, svo eitthvað sé
nefnt.
Karl segir, að mest muni um
aðstöðuna varðandi skoðun vörubíla
og rútubíla. Hann segir yfirgnæf-
andi líkur á að bilanir, eins og þær
sem síðastliðið sumar ollu slysum
við akstur tveggja rútubíla, komi í
ljós við athugun í nýju stöðinni. Því
fylgi reyndar, að hans sögn, jafn-
framt að líkur séu á að allmargir
stórir bílar verði teknir úr umferð,
þar sem ekki hefur áður verið hægt
að kanna til hlítar ástand þeirra og
sitthvað muni efalaust koma í ljós.
Hin nýja skoðunarstöð kostaði
um 200 milljónir króna með öllum
tækjabúnaði. Hún verður opnuð til
almennrar skoðunar 2. janúar næst-
komandi. í dag verða bifreiðar
skoðaðar á gamla staðnum við
Bíldshöfða. Nýja skoðunarstöðin er
á Hestshálsi 6-8 í Reykjavík.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir, klippir á borðann og tekur þar
með hina nýju skoðunarstöð Bifreiðaskoðunar íslands hf. í notkun.
Við hlið Vigdísar stendur Karl Ragnars forstjóri Bifreiðaskoðunar.
FORSETI íslands, Vigdís Finn-
bogadóttir, vígði í gær nýja skoð-
unarstöð Bifreiðaskoðunar Is-
lands hf. Hún kom með bifreið
forsetaembættisins til skoðunar
og er það fyrsti bíllinn sem skoð-
aður er í hinni nýju stöð.
Karl Ragnars, forstjóri Bifreiða-
skoðunar, segir stöðina auka mjög
/ DAG kl. 12.00:
/ / / /
/ / / / /
/ Heimild: Veðurstofa l'slands
/ / (Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gær)
VEÐURHORFURIDAG, 29. DESEMBER
YFIRLIT í GÆR: Við Hvarf er 955 mb lægð sem þokast norðnorð-
austur, en víðáttumikil 1023 mb hæð yfir Suður-Skandinavíu. Veð-
ur fer heldur hlýnandi, einkum sunnan- og vestanlands.
SPÁ: Sunnan- og suðaustanátt, víða stinningskaldi eða allhvasst.
Skúrir eða slydduél á Suðvestur- og Vesturlandi, en rigning á Aust-
ur- og Suðausturlandi. Á Norðurlandi verður líklega úrkomulítið..
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á LAUGARDAG: Sunnan- og suðaustanátt og víðast frost-
laust. Slydda eða súld ó Suðvestur- og Vesturlandi, en annars þurrt.
HORFUR Á GAMLÁRSDAG: Suðaustanátt og milt veður um land
allt. Súld eða rigning við suður- og austurströndina, en víðast þurrt
annars staðar.
TÁKN:
Heiðskírt
Léttskyjaö
Hálfskýjað
Skyjað
Alskyjað
x Norðan, 4 vindstig:
" Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
•JQ Hitastig:
10 gráður á Celsíus
y Skúrir
*
V E'
== Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—|- Skafrenningur
[y Þrumuveður
Seyðisfjörður:
Bæjarbúar leitast við
að endurreisa atvinnulíf
Tfl, VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hiti veður Akureyri 1 alskýjað Reykjavík 4 slydda
Bergen vantar
Helsinki 0 þoka
Kaupmannah. 2 alskýjað
Narssarssuaq +2 úrkoma
Nuuk + 1 léttskýjað
Osló +3 skýjað
Stokkhólmur 1 þoka
Þórshöfn 7 skýjað
Algarve vantar
Amsterdam 2 súld
Barcelona 14 skýjað
Berlín +1 þokumóða
Chicago r4 alskýjað
Feneyjar 4 þokumóða
Frankfurt 1 alskýjað
Glasgow 4-1 þokumóða
Hamborg 1 þokumóða
Las Palmas 19 skýjað
London 7 alskýjað
Los Angeles 14 skýjað
Lúxemborg +2 hrímþoka
Madríd vantar
Malaga 16 Skýjað
Mallorca 14 skýjað
Montreal 4-21 snjókoma
New York +6 snjókoma
Orlando vantar
París vantar
Róm vantar
Vin vantar
Washington vantar
Winnipeg 4-11 snjókoma
Episstöðum.
A fjölmennum borgarafúndi á
Seyðisfirði slx fimmtudag kom
fram eindreginn vilji fundar-
manna til að leggja fram hlutafé
í nýtt almenningshlutafélag til
endurreisnar fiskvinnslu á staðn-
um. Gert er ráð fyrir að hlutafé í
þessu fyrirtæki þurfi að vera að
lágmarki 150 milljónir króna. Með
stofnun sliks fyrirtækis telja menn
að unnt verði að koma atvinnumál-
um Seyðfirðinga í fyrra horf.
Mikil óvissa hefur ríkt í atvinnu-
málum á Seyðisfirði í haust eftir að
Fiskvinnslan hf. varð gjaldþrota. Hjá
fyrirtækinu störfuðu um 120 manns
eða 30% vinnuafls í bænum. Megnið
fólkinu fékk stopula vinnu við síldar-
verkun hjá Gullbergi hf. sem hafði
eigur þrotabúsins á leigu til ára-
móta. Nú eru 74 atvinnulausir á
Seyðisfirði og ekki eru horfur á að
sá fjöldi minnki á næstunni takist
ekki að koma fiskvinnslunni af stað.
Nefndin, sem bæjarstjórn skipaði
til lausnar þessum vanda, vill beita
sér fyrir stofnun almenningshlutafé-
lags með 150 milljóna króna hlutafé.
Hlutafélag þetta kaupir togara á
staðinn ásamt hluta af eigum þrota-
bús Fiskvinnslunnar hf. en leigi aðr-
ar. Með þessu móti fáist nægur kvóti
til að halda uppi öflugri fiskvinnslu
í bænum. Á Seyðisfirði er nú 6.200
tonna kvóti í þorskígildum sem tveir
togarar hafa ásamt smábátum. Ann-
ar togarinn, Gullver, hefur eingöngu
landað afla heima, en hinn togarinn,
Otto Wathne, hefur eingöngu landað
erlendis. Fáist þriðja skipið til bæjar-
ins telja nefndarmenn að unnt verði
að fá um 5.000 tonn af bolfiski til
vinnslu i landi.
Á borgarafundinn sem nefndin
hélt mættu um 200 manns. Þar kom
fram eindreginn vilji bæjarbúa til að
leggja hlutafé í þetta nýja fyrirtæki
enda sé hér um líf eða dauða að tefla
fyrir íbúa Seyðisfjarðar.
- Björn
*
Isafjörður:
Flugleiðavél
hlekktist á
TF-FLM, Fokker skrúfúþotu Flug-
leiða, hiekktist á í lendingu á Isa-
Qarðarfiugvelli í gærmorgun. 38
farþegum sem í vélinni voru varð
ekki meint af. Stél flugvélarinnar
rakst niður á flugbrautina eftir
að klossi, sem á að taka við höggi
við lendingu, gaf sig.
Flugvélin er enn á Isafjarðarflug-
velli. Skemmdir voru ekki fullkann-
aðar fyrir myrkur en áætlað er að
fljúga vélinni til Reykjavíkur án far-
þega í dag.
Kópavogshæli:
Fyrrum starfsmaður
játar á sig fjárdrátt
FYRRUM gjaldkeri Kópavogs-
hælis hefur játað að hafá dregið
sér liluta vasapeninga sem vist-
menn frá greidda til eigin nota
úr almannatryggingakerfinu en
Kópavogshælið hefúr reiður á.
Hver vistmaður fær nálægt fimm
þúsund krónum mánaðarlega.
Halldór V. Sigurðsson ríkisend-
urskoðandi staðfesti þetta í gær-
kvöldi. Hann vildi ekki tjá sig
um hve miklar upphæðir starfs-
maðurinn hefði dregið sér.
Málið kom upp í tengslum við
innri endurskoðun á vegum skrif-
stofu Ríkisspítala. Ríkisendurskoð-
un tók við rannsókn bókhaldsins
að beiðni Ríkisspítala og liggur nú
fyrir að um fjárdrátt starfsmanns-
ins hafi verið að ræða. Að sögn
ríkisendurskoðanda verður málið
væntanlega sent RLR fljótlega.