Morgunblaðið - 29.12.1989, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 1989
Margeir
gerðijafti-
tefli á Ítalíu
MARGEIR Pétursson gerði jafn-
tefli í 36 leikjum við bandaríska
stórmeistarann DeFirmian í fyrstu
umferð stórmótsins í Reggio Emil-
ia á Italíu í gær. Margeir hafði
svart. Mótið er jþriðja sterkasta
mót ársins og er það í 16. styrk-
leikaflokki Alþjóðaskáksam-
bandsins, FIDE. Ellefti stórmeist-
arar leiða þar saman hesta sína
og er meðaltal skákstiga þeirra
2.620.
Önnur úrslit í fyrstu umferð urðu
sem hér segir:
Önnur úrslit urðu þau að Ehlvest
vann Gurevich. Skák Anatolíjs
Karpovs, og Ulf Andersons fór í bið.
Karpov er með peð yfir en Anderson
á jafnteflismöguleika. Jafntefli
gerðu Portiseh og Georgiev, Ribli og
Ivantsjúk. Beljavskíj sat yfir í fyrstu
umferð.
Önnur umferð verður tefld í dag
og situr Margeir yfir. Á morgun
hefur hann hvítt gegn Ivantsjúk.
Minnkandi
kostnaður
vegna tjóna
Teikning af Hvaleyrarskóla
fullbyggðum.
Hafiiarfj örður;
Kostnaður við fyrsta
áfanga Hvaleyrarskóla
er 76,6 millj. króna
TVÖ flmm ára börn tóku fyrstu skóflustungumar að Hvaleyrar-
skóla í Hafharfirði í gær. Fullbyggður verður skólinn 3.360 fer-
metrar og er áætlað að í honum verði um 550 nemendur. Tvær
bekkjardeildir í árgangi frá forskóla til níunda bekkjar.
Fyrsti áfangi skólans, sem er
níu kennslustofur, verður að hluta
tekinn í notkun næsta haust. Er
um að ræða 1.261 fermetrar.
Áætlað er að þá hefji um 150 bön
nám við skólann, frá forskóla til
fjórða bekkjar.
Skólahverfi Hvaleyrarskóla er
öll núverandi byggð sunnnan Ás-
brautar og nýbyggingarsvæði á
Suður-Hvaleyrarholti. í þessu
hverfi er nú um 1.220 íbúar, þar
af u.þ.b. 230 á grunnskólaaldri. Á
næstu árum mun íbúafjöldi þre-
faldast og verður um 3.600 manns
þegar hverfið er fullbyggt.
Efnt var til alútboðs í ágúst og
voru sex verktakar valdir til þátt-
töku. Fyrir valinu varð tillaga
Ormars Þórs Guðmundssonar,
arkitekts. Verktaki er ístak hf.
Kostnaður við fyrsta áfanga er
76,6 millj. króna og er áætlað að
unnið verði fyrir 55 milljónir á
næsta ári.
Morgunblaðið/Sverrir
Guðmundur Árni Stefánsson, bæjarsljóri í Hafnarfirði, t.v., horfír
á tvo tilvonandi nemendur Hvaleyrarskóla, Ólaf Hilmarsson og
Aðalheiði Sigfúsdóttir, fímm ára, taka fyrstu skóflustungurnar.
á skipum
„KOSTNAÐUR vegna tjóna á
skipum hefur minnkað hlutfalls-
lega á undanförnum árum, þannig
að iðgjöld, sem hlutfall af vátrygg-
ingarverðmæti skipanna, hafa far-
ið Iækkandi,“ sagði Bjarni Þórðar-
son, framkvæmdastjóri íslenskrar
endurtryggingar, í samtali við
Morgunblaðið.
„Svokallaðir alskaðar hafa verið
fáir á undanfömum árum. Einungis
einn slíkur var á þessu ári, tveir í
fyrra, einn árið 1987 en enginn 1986
og sem betur fer hafa þetta verið
frekar ódýr skip,“ sagði Bjami Þórð-
arson. Hann sagði að fyrstu skuttog-
ararnir hefðu verið keyptir hingað
fyrir um 20 árum en einungis einn
þeirra, Sjóli, hefði verið úrskurðaður
ónýtur og bættur sem alskaði en
hann brann árið 1985.
„Fyrstu nýsköpunartogararnir
komu hingað árið 1947 en margir
þeirra strönduðu eða sukku. Tjónum
vegna veðurs hefur hins vegar fækk-
að. Kvótakerfið hefur áhrif á það
hvemig menn sækja á miðin, þannig
að menn draga úr úthaldi skipa á
þeim tíma, sem er óhagstæðastur
veðurfarslega. Þó varð eitt slæmt
ístjón í fyrra, þegar Þorsteinn EA
lenti í ís,“ sagði Bjami.
Trúnaðarmál má aðeins
ræða á bankaráðsfundum
- segir Þórður Ólafsson forstöðumaður bankaeftirlits um fyrirætlan
Kvennalista að skipa ráð til að starfa með bankaráðsfulltrúa
ÞÓRÐUR Ólafsson, forstöðumað-
ur bankaeftirlits Seðlabankans,
telur engan vafa á því að það
bijóti í bága við ákvæði banka-
laga um bankaleynd ræði einstak-
ir meðlimir bánkaráða málefiii
banka og viðskiptavina hans utan
ráðsins. Það kom fram í frétt
Morgunblaðsins í gær að ráð á
vegum Kvennalistans muni vinna
með fulltrúa sínum í bankaráði
Landsbankans að stefiiumótun
varðandi afstöðu fiilltrúans í
bankaráðinu. Slíkt verði gert án
þess að ijúfa bankaleynd.
„Ákvæði bankalaga em mjög skýr
að þessu leyti; bankaráðsmönnum
ber eins og starfsmönnum banka að
gæta fyllsta trúnaðar varðandi þau
Morgunblaðið/Sverrir
Steinbarn
Nýtt íslenskt sjónvarpsleikrit,
Steinbarn verður fmmsýnt í Sjón-
varpinu á nýársdag, 1. janúar
1990. Handritið að myndinni
hlaut verðlaun í samkeppni Evróp-
skra sjónvarpsstöðva fyrir tæpum
tveimur árum, en höfundar þess
erú Vilborg Einarsdóttir og Kristj-
án Friðriksson. Þau eru á með-
fylgjandi mynd, sem tekin var við
forsýningu á Steinbami í gær,
ásamt leikstjóranum Agli Eðvars-
syni.
málefni sem fjallað er um í bankar-
áðinu og sem eðli sínu samkvæmt
eiga að fara leynt,“ sagði Þórður
Ólafsson. „Reyndar er það svo að
ekki era öll viðfangsefni bankaráð-
anna trúnaðarmál, en um þau mál
sem era trúnaðarmál og rætt er um
á bankaráðsfundum má ekki fjalla
um annars staðar og skiptir þar
engu hvort um er að ræða trúnaðar-
ráð á vegum þess aðila er skipar
bankaráðsmanninn. Bankaleynd
væri rofin um leið og trúnaðarmál
væru borin upp í slíku trúnaðarráði."
25. gr. laga um viðskiptabanka
fjallar um bankaleynd en þar segir
að bankaráðsmenn, bankastjórar og
starfsmenn banka séu bundnir þagn-
arskyldu um allt það sem varði hagi
viðskiptamanna bankans og um önn-
ur atriði sem þeir fái vitneskju um
í starfi sfnu og leynt skuli fara sam-
kvæmt lögum, fyrirmælum yfirboð-
ara eða eðli máls samkvæmt. Þagn-
arskylda helst þótt látið sé af starf i.
Um málefni bankaráðs Lands-
bankans og fulltrúa Kvennalistans
þar sagði Þórður að engin beiðni
hefði komið til bankaeftirlitsins um
athugun, né heldur hefðu menn þar
á bæ farið náið ofan í lagaleg atriði
varðandi það. Sagði Þórður málið
háð vissum túlkunarerfiðleikum, þar
sem engin skýr ákvæði væru í
bankalögum um hæfiskröfur bank-
aráðsmanna.
í 2.mgr. 33.gr. bankalaganna eins
og þau líta út eftir breytingu með
lögum 32/1989, segir að bankaráðs-
menn skuli ekki taka þátt í meðferð
máls er varði viðskipti þeirra sjálfra
eða fyrirtækja sem þeir eiga hlut í,
sitja í stjórn hjá, era fyrirsvarsmenn
fyrir eða að öðru leyti verulegra
hagsmuna að gæta í. Sama gildir
um þátttöku bankaráðsmanna í með-
ferð máls er varðar aðila sem þeim
eru tengdir, persónulega eða fjár-
hagslega.
I greinargerð með lögunum frá
1989 er á það bent að ekki séu al-
mennt lögfestar í íslenskum stjórn-
arfarsrétti reglur til að koma í veg
fyrir hagsmunaárekstra, gagnstætt
því sem eigi við um dómstóla. Rétt
þyki nú að gera í lögum strangari
kröfur um svo mikilvægar stofnanir
sem banka, þar sem hagsmunaá-
rekstrar geti haft meiri afleiðingar
en oft endranær og því mikilvægt
að tryggja óháðar ákvarðanir. Þórð-
ur Ólafsson taldi ekki útilokað skoða
mætti skipan Kristínar Sigurðar-
dóttur í bankaráð Landsbankans
með hliðsjón af þessu ákvæði eða
almennum reglum stjórnarfarsrétt-
arins.
Aðspurður um hvort varamennska
Davíðs Björnssonar, deildarstjóra í
Landsbréfum, verðbréfafyrirtækis
Landsbankans, í banka-ráði Seðla-
bankans bryti í bága við lög, sagði
Þórður að skoða mætti af þessu til-
efni hvort meintir sambærilegir
hagsmunaárekstrar kynnu að vera
víðar í skipan bankaráða. „Að
mínum dómi þarf að beita sömu
mælistiku á önnur hugsanleg tilvik."
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins sat Davíð fundi bankaráðs
Seðlabankans á síðasta ári, en hætti
að mæta á fundi þess á þessu ári
vegna gagnrýni samflokksmanna
hans í Alþýðuflokknum á hugsan-
lega hagsmunaárekstra. Enginn hef-
ur þó verið skipaður í hans stað.
Þess ber að geta að við ákvörðun
um peningastefnu er bankaráð
Seðlabankans fremur valdalítið í
samanburði við bankaráð viðskipta-
bankanna, er það í raun aðeins ráð-
gefandi aðili. Ákvarðanir eru í hönd-
um bankastjórnar, en ákvarðanir í
öllum mikilvægum málum er haft
samráð við bankaráðið. Banka-
stjórnin er mun háðari viðskiptaráð-
herra í ákvörðunum sínum.
Ný Vestmannaeyjaferja:
Smíði á minna
skipi í athugun
RÍKISSTJÓRNIN hefur nú til skoðunar tillögur samgönguráðherra
um smíði nýrrar Vestmannaeyjaferju. Ráðherra segir að kannaðir
hafí verið möguleikar á að smíða minna skip, en núverandi áætlan-
ir eru um. Slíkt skip fengist á talsvert hagstæðara verði, og einnig
væri raunhæfara að skoða möguleika á smíði þess innanlands.
Vestmannaeyingar hafa látið
teikna um 80 metra langa feiju og
á grandvelli þeirra teikninga hafa
þeir leitað tilboða í smíði feijunnar.
Kostnaður við smíði skipsins er
áætlaður 1,2 milljarðar króna.
Steingrímur Sigfússon sam-
gönguráðherra sagði við Morgun-
blaðið, að gera mætti sér raun-
hæfar vonir um að smíðaverð lækki
um 300 milljónir króna, ef skipið
væri um 10 metrum styttra.
„Minna sjcip væri einnig raun-
f
hæfara hvað það snertir, að minnsta
kosti kanna möguleika á smíði hér
innanlands. Það eru ákveðnar tíl-
lögur frá mér, á þessum grund-
velli, til skoðunar í ríkisstjórninni,“
sagði Steingrímur.
Hann sagði að það væru allir
sammála um að taka þyrfti ákvörð-
un fljótlega um að endurnýja Vest-
mannaeyjafeijuna. „Ég mun fylgja
því fast eftir að sú ákvörðun verði
tekin sem allra fyrst,“ sagði
Steingrímur Sigfússon.