Morgunblaðið - 29.12.1989, Síða 32
HaaMagaa js íiuoAauTsöa aiöAjaMUDaoM
'MORGUNBLAÐIÐ' PÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 1989
88
32
Amalía Líndal
Webb — Minning
Nýlega lést í Guelph, Ontario í
Kanada, frú Amalía Líndal Webb.
Hún var fædd í Cambridge, Mass-
achussetts, 19. maí 1926, dóttir
Edwards Gourdins, hæstaréttar-
dómara og Amalíu Ponce Gourdins.
Amalía var áður gift Baldri Líndal,
efnaverkfræðingi, en þau kynntust
er hann stundaði nám í heimabæ
hennar. Árið 1949 fluttu þau til
Islands. Þá var miklu meiri munur
á aðstæðum og lifnaðarháttum í
Bandaríkjunum og á íslandi, heldur
en nú er. Það hlýtur að hafa verið
erfitt að koma úr fjölmennu borg-
arasamfélagi og setjast að í litlu
ættarsamfélagi sem var fyrst og
fremst fiskveiða- og landbúnaðar-
þjóðfélag, en Amalía var kona sem
ávallt tókst á við örðugleika ef ein-
hveijir voru, og yfirsteig þá. Hér
settist hún að.
Þau Baldur eignuðust fimm börn.
Voru það Tryggvi Valtýr, Ríkharð-
ur, Eiríkur, Jakob og Ánna. Öll
gengu þau menntaveginn og eru
fjögur þeirra búsett hérlendis, en
Ánna býr í Kanada.
Amalía var lærður blaðamaður.
Á meðan börnin voru að vaxa úr
grasi var hún heimavinnandi, en
jafnframt fréttaritari Christian
Science Monitor og skrifaði oft
greinar um ísland í það og önnur
blöð. Þá skrifaði hún einnig bók sem
bar titilinn ^Ripples from Iceland"
(Gárur frá Islandi). Lýsti hún þar
reynslu sinni af að koma til lands-
ins og setjast að hér. Ennfremur
lífsháttum og hvernig þeir og þjóð-
in komu henni fyrir sjónir. Sú bók
opnaði augu margra fyrir því, að
sjá mátti íslenskt þjóðfélag frá öðr-
um sjónarhól en þeim hefðbundna.
Enn þann dag í dag hefur bókin
gildi, og þá einkum til að sýna það
Island sem var fyrir fjörutíu árum,
og hve margt hefur breyst.
Nokkrum árum síðar, árið 1967,
hóf Amalía útgáfu kynningartíma-
rits um íslands, á enskri tungu.
Heiti þess skírskotaði til legu lands-
ins og hét það „65 Degrees".
Fræddi það margan erlendan les-
anda um land og þjóð og er ekki
ólíklegt að þó nokkur fjöldi ferða-
manna hafi lagt leið sína hingað
þessvegna. Engu að síður var
áskrifendafjöldi tímaritsins ekki
■ nægur til þess að það bæri sig og
varð Amalía að hætta útgáfu þess
um 1970. Um líkt leyti slitu hún
og Baldur samvistum. Vann Amalía
þá áfram á íslandi um tveggja ára
skeið, meðal annars á Hagstofunni.
Þó fór svo að hún flutti sig enn
um set og fór til Kanada með yngri
börnin. Enn þurfti hún að byija
nýtt líf í nýju landi. Hún tókst á
við vandann sem fyrr. í Kanada
vann hún ýmis störf og var síðast
í fastastarfí sem blaðafulltrúi Sam-
bands sykursjúkra í Kanada. Þá
kenndi hún námsgreinar um smá-
sagnagerð við háskólann í Toronto
og háskólann í Guelph. Ennfremur
fór hún að nýju að gefa út tímarit
sem hét „Readers Choice". Þá gift-
ist hún aftur í Kanada og var Fred-
erick W. Webb seinni eiginmaður
hennar.
í sumar sem leið kom Amalía í
heimsókn hingað til lands og heils-
aði upp á gamla vini og kunningja.
Var hún þá komin með þann sjúk-
dóm sem varð hennar banamein,
en ræddi um hann með stillingu og
æðruleysi sem hveija aðra stað-
reynd. Hún lést 29. nóvember
síðastliðinn.
Amalía var dugmikil kona með
sterkan persónuleika. Hún skilur
eftir sig spor í þremur löndum.
Ágúst Valfells
Mig langar að minnast tengda-
móður minnar með örfáum orðum.
Okkar kynni voru stutt og eftir-
læt ég öðrum að lýsa lífshlaupi
hennar. Ég man þegar við hittumst
fyrst fyrir átta árum. Þá kom hún
hingað til lands frá Kanada til að
vera við brúðkaup sona sinna Eiríks
og Jakobs. Ég man hvað óörugg
og kvíðin ég var að hitta tilvonandi
tengdamóður í fyrsta skipti, en sá
kvíði var ástæðulaus. Amalía var
ekki nein hversdagsleg kona með
lífið í föstum skorðum, heldur
lífsglöð og viljasterk kona sem
ávallt hafði valið þá leið í lífinu er
hún taldi vera rétta þrátt fyrir að
þær gætu kostað hana erfiði. Hún
var ávallt viss um að framtíðin
kæmi með ný og spennandi verk-
efni að glíma við. Maður fylltist
bjartsýni í návist hennar.
Ég vil minnast yndislegs sumars
1987 er við dvöldum á heimili
Amalíu og eiginmanns hennar í
Toronto. Þar var allt gert til að
okkur liði sem best.
Þegar Amalía kom til íslands í
sumar hefðu fáir trúað því að hún
ætti skammt eftir ólifað. Amalía
var alltaf vongóð á að framtíðin
gæfi henni tíma til að fullvinna þau
verk er ólokin voru.
Ég er þakklát fyrir að hafa feng-
ið að kynnast henni. En það er erf-
itt að sætta sig við að hún sem
trúði á morgundaginn skuli ekki
vakna fleiri morgna.
Ég votta börnum hennar og eig-
inmanni samúð mína.
Dóra
í byijun aðventu drögum við
gjarnan upp penna og skrifum vin-
um okkar og-vandamönnum erlend-
is nokkrar línur um leið og við ósk-
um þeim árs og friðar. Ég var ein-
mitt að heíjast handa við þessar
skriftir, þegar mér barst sú fregn,
að ein af þeim vinkonum mínum,
sem ég hef sent jólabréf, Amalía
Líndal-Webb væri látin. Illkynja
sjúkdómur, sem hún gekk með og
tekist hafði að halda í skefjum um
hríð, tók sig upp og varð ekki leng-
ur við hann ráðið.
Amalía fæddist þann 19. maí
1926 í Massachussetts, Banda-
ríkjunum og ólst þar upp. Foreldrar
hennar voru Edward 0. Gourdin,
hæstaréttardómari og kona hans,
Amalía fædd Ponce. Hún gekk í
menntaskóla og háskóla í Boston
og lauk prófi í blaðamennsku frá
Boston University 1949. Um þenn-
an hluta ævi hennar er mér fátt
kunnugt annað en það, að á há-
skólaárunum kynntist hún fyrri eig-
inmanni sínum, Baldri Líndal,
íslenskum námsmanni, sem farið
hafði út í heim að afla sér og landi
sínu þekkingar á sviði efnaverk-
fræði. Þegar þau höfðu lokið há-
skólaprófum sínum héldu þau til
íslands árið 1949 og stofnuðu þar
heimili.
Ég kynntist Amalíu ekki fyrr en
eftir 1960. Þau hjón bjuggu þá í
Kópavogi og höfðu eignast fimm
mannvænleg börn, fjóra syni og
eina dóttur. En Amalía átti sér
draum um sjálfstæðari tilveru en
annir við barnauppeldi og heimilis-
störf gátu veitt henni. Hún ætlað
sér að nýta hæfileika sína og
menntun til ritstarfa. Henni tókst
líka með ótrúlegri elju að fást við
ritstörf af og til þrátt fyrir heimilis-
annir og árið 1961 kom út bók eft-
ir hana, Ripples from Iceland, sem
nýlega var endurútgefin. í þessari
bók lýsir hún á hreinskilinn hátt
ýmsu í íslensku" þjóðlífi, sem kom
henni á óvart. Sjálfsagt hefur flutn-
ingur milli svo ólíkra þjóðfélaga sem
Bandaríkin og Island voru þá, orðið
henni allsár reynsla. Hún fann líka
alla tíð fyrir þeirri féiagslegu ein-
angrun, sem konur hér bjuggu við,
ef þær reyndu að hasla sér völl á
hefðbundnu starfsviði karlmanna.
Á sviði ritstarfa gerði það henni
að sjálfsögðu erfíðara fyrir, að hún
náði ekki nægilegu valdi á málinu
til að geta skrifað á íslensku, þó
að hún talaði hana ágætlega. Hins
vegar tókst henni á árunum
1970-’72 að gefa út tímarit á ensku,
65 gráður, sem fjallaði aðallega um
ísland og íslenskt þjóðlíf. Loks
ákvað hún árið 1972 að flytjast til
enskumælandi lands og varð
Kanada fyrir valinu. Þau Baldur
höfðu þá slitið samvistum. í Kanada
biðu hennar enn erfíðleikar innflytj-
andans. Með sömu óþijótandi elj-
unni og fyrr tókst henni að fá vinnu
við ýmiss konar störf til að fram-
fleyta sér og aðstoða böm sín við
nám. Alltaf voru ritstörfin með og
þar kom upp úr 1980 að henni tókst
á ný að hefja útgáfu tímarits í þetta
sinn með smásögum, sem hún safn-
aði frá öðru fólki. Var þetta mjög
mikil vinna og fjárfrekt fyrirtæki,
og fór svo, að hún hætti útgáfu
þessa tímrits eftir 3 ár. Um þetta
leyti hafði hún kynnst seinni eigin-
manni sínum, Fred Webb, sem er
af ensku bergi brotinn. Settu þau
saman heimili í Toronto og studdi
hann hana með ráðum og dáð við
útgáfu tímaritsins. Síðustu tvö áíin
hafa þau búið í eigin húsi í Guelph,
lítilli borg í nánd við Toronto.
Amalía hefur undanfarin ár kénnt
smásagnagerð fyrst við háskólann
í Toronto og nú síðast í Guelph.
Þegar hér var komið sögu, börnin
öll uppkominn og háskólamenntuð
og hún búin að eignast notalegt
heimili og lífsförunaut, kom váboð-
inn í febrúar 1987, krabbamein,
aðgerð, langvinn meðferð. Hún
skrifaði mér langt bréf þetta vor,
eins konar uppgjör við fortíðina og
greinilega nokkuð áleitnar hugleið-
ingar um möguleika á því, að þau
hjón gætu flust til Islands. Hér
höfðu þá þijú börn hennar sest að:
Tryggvi, þjóðfélagsfræðingur,
Eiríkur, sálfræðingur, kváentur
Halldóru Gísladóttur kennara, og
Jakob, arkitekt, kvæntur Sigríði
Nönnu Sveinsdóttur, skrifstofu-
manni og hjá þeim komið fyrsta
barnabarnið. I Kanada eru Ríkharð-
ur, sálfræðingur og Anna, tal-
meinafræðingur.
í síðasta jólabréfi Amalíu til mín
fyrir ári kemur enn skýrt fram, að
Island átti .mikil ítök í henni, eigin-
lega eins og henni finnist, að þar
eigi hún helst heima. Henni auðnað-
ist að koma hingað í stutta heim-
sókn í sumar og átti ég með henni
ánægjulega stund einn eftirmiðdag
í júlí. Hugrekki hennar gagnvart
sjúkdómnum virtist óbilandi, þó að
hún vissi, að hann væri farinn að
breiðast út. Tilfínningar hennar til
íslands hafa vafalaust ráðið því, að
hún bað um að verða jarðsett hér,
þegar hún fann að hveiju fór. Þetta
land, sem bæði veitti henni gleði
og olli henni sárindum, tekur nú á
móti henni til hinstu hvfldar. Hvíli
hún í friði og hafí hún þökk fyrir
allt sem hún gaf þessu fósturlandi
sínu. Megi minningin um merka
konu, sem stöðugt hafði þrek og
þor til að synda á móti straumnum
ylja aðstendendum hennar um
ókomna tíð.
Kristín Jónsdóttir
Látin er í vesturheimi Amalía
Líndal Webb, fyrrum húsfreyja og
ritstjóri á íslandi. Hún fæddist 19.
maí 1926 í borginni Cambridge í
Bandaríkjum Norður-Ameríku.
Foreldrar hennar voru Edward
Gourdin hæstaréttardómari og
kona hans Amalía fædd Ponce.
Amalía yngri, sem hér er minnst,
sótti menntaskóla í Boston og lauk
síðar námi í blaðamennsku frá há-
skóla sömu borgar.
Þar urðu þau atvik í lífi hennar
að á fundi i alþjóðlega stúdentafé-
laginu hitti hún ungan ágætan ís-
lending, sem bar mjög fyrir bijósti
hag lands síns og þjóðar. Þetta var
skylt áhugamálum hennar og varð
meðal annars til þess að leiða hugi
þeirra saman. Svo réðst að hún
ákvað samkvæmt helgri bók —
hvert sem þú ferð, þangað fer ég
— að fylgja honum til íjarlægs
ættlands hans, lands, sem hún hafði
hvorki séð né heyrt.
í ritum Amalíu má sjá að henni
er frá upphafi ljós vandinn við að
yfírgefa átthaga og gerast þegn
nýs lands. Hún lýsir reynslu þess
sem kemur frá alls ólíku heims-
horni til dvalar á íslandi. Hún ber
nokkum kvíðboga fyrir umskiptun-
um. „Það er eins og að fæðast í
annað sinn.“ Hún vitnar í orð skáld-
konu sem dvalið hafði í nítján ár í
Kína, og hugleiddi hvernig fínna
mætti samastað í tilverunni. Efnis-
lega svo: Til þess að festa rætur í
nýju umhverfi verður að finna sér
hlutverk, finna stað þar sem verða
megi meðbræðrum að liði. Öllu
máli skiptir að hæfileikar manns
séu metnir, teknir gildir og þegnir
í nýja samfélaginu.
Ámalía gerist nú húsfreyja og
móðir á íslandi, en fínnur sér auk
þess nýtt hlutverk — gerist frétta-
ritari Christian Science Monitor.
Hún ritar greinar einkum um ísland
og íslensk málefni. Síðar leggur hún
þetta til hliðar og tekur til við nýj-
ung á íslandi: Hún hefur útgáfu
ársfjórðungsrits á ensku til kynn-
ingar á íslensku landi, lýð, atvinnu-
háttum og bókmenntum. Ritið nefn-
ir hún 65°, með vísan til hnattstöðu
íslands.
Forseti landsins Ásgeir Ásgeirs-
son ritar ávarpsorð og árnaðar-
óskir. Honum er ljóst að í mikið er
ráðist. Hér var brautryðjandi að
verki. Höfundanöfnin vekja athygli.
Sigurður Nordal prófessor,_ Jón
Magnússon fréttastjóri, Olafur
Jensson læknir, Kristján Bersi síðar
skólastjóri. Sigurður A. Magnússon
rithöfundur, Róbert Arnfínnsson
leikari. Auk útgáfu þessa rits lýkur
Amalía við a.m.k. þijár bækur,
blaðagreinar um ýmis efni og smá-
sögur. í öllu þessu birtist hin kapp-
samlega leit hennar að eigin hlut-
verkí á sviði samtímans.
Orð mér af orði
orðs leitaði
verk mér af verki
verks leitaði.
Svo er lýst í fornu kvæði þroska-
sögu hins leitandi, starfandi manns.
Þótt nokkur starfi sé nú upptalinn
verður barnmargt heimili samt aðal
vettvangur hennar á nýja landinu.
Hún eignast fímm mjög svo mann-
vænleg börn, sem öll hafa lokið
háskólanámi: Elstur er Tryggvi fé-
t Hjartkaar móðir mín,
SIGRÍÐUR LÁRA JÓHANNSDÓTTIR,
Kleppsvegi 6,
lést í Vífilsstaðaspítala 26. desember. Lára Jóhannsdóttir.
t
JÓHANNES KRISTINN STEINSSON,
Silfurtúni 18,
Garði,
lést 24. desember. Lltför fer fram frá Útskálakirkju laugardaginn
30. desember kl. 14.00.
Kristfn Ingólfsdóttir.
t
Eiginmaður minn og faðir okkar,
JÓN INGJALOUR JÚLÍUSSON,
Grensásvegi 60,
lést 27. desember.
Sigrfður Sölvadóttir
og börn.
t
Systir min,
MARY A. ERIÐRIKSDÓTTIR
frá Gröf,
Vestmannaeyjum,
sem andaðist á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja 23. desember verður
jarðsungin frá Landakirkju, Vestmannaeyjum, föstudaginn 5. jan-
úar.
Fanný Friðriksdóttir og aðrir vandamenn.
t
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
MAGNÚS MAGNÚSSON
blikksmiður,
Skólagerði 44,
Kópavogi,
sem lést að morgni 23. desember verður jarðsunginn frá Kópa-
vogskirkju þann 29. desember kl. 10.30.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á systrasjóð St. Jósepsspít-
ala í Hafnarfirði.
Margrét Karlsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.