Morgunblaðið - 21.01.1990, Blaðsíða 4
4 C
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. JANÚAR 1990
fram og áður voru eineggja tvíbur-
ar oft álitnir tvíeggja af þeim sök-
um. Nú á dögum kemur það varla
fyrir enda hægt að ganga úr skugga
um það með blóðrannsókn.
Eineggja tvíburar eru alltaf af
sama kyni og hafa fengið nákvæm-
lega sömu litninga frá foreldrum
sínum. Eins og maður nokkur orð-
aði eitt sinn á dramatískan hátt:
Þar hefur sama sálin búið um sig
í tveimur líkömum.
En nú kemur oft fyrir að ein-
eggja tvíburar eru ekki alveg eins,
þ.e. örlítill munur er á andlitsdrátt-
um, og annar ef til vill þyngri en
hinn. Jórunn segir að skýringin
geti ef til vill verið sú, að þroskaskil-
yrði hafi ekki verið hin sömu á fóst-
urstigi, staðsetning við fylgju önnur
og annar tvíburinn fengið meira
blóðstreymi en hinn. Einnig geti
orðið stökkbreyting eða litninga-
breyting í öðru fóstrinu, þótt það
sé reyndar fremur sjaldgæft.
Tvíeggja tvíburar eru alltaf í
tveimum sekkjum, hafa tvær fylgj-
ur, og þurfa ekki að líkjast hvor
öðrum meira en gengur og gerist
meðal systkina, því þeir hafa ekki
fengið sömu litningana frá foreldr-
um sínum.
í Bandaríkjunum og Þýskalandi
hafa verið gerðar rannsóknir á því
hversu mikil áhrif umhverfið hafi á
eineggja tvíbura, og kom í ljós að
umhverfisáhrif voru minnst hjá
þeim sem töldust hafa meðalgreind.
Þeir sem höfðu greind í minna lagi
voru háðari umhverfinu, og hinir
vel greindu áttu auðveldara með
að nýta sér hina ýmsu möguleika
sem umhverfið hafði upp á að bjóða.
Tvíburaleikir
En systkini eru oft ótrúlega lík
þótt ekki séu tviburar, og þekkjast
oft langar leiðir á hökunni eða
göngulaginu. Á ættarmótum kemur
oft margt skemmtilegt í ljós þegar
menn fara að bera saman bækur
sínar. í einni ættinni áttu t.d. karl-
mennirnir allir stóra skapið „og
bölvans nískuna" sameiginlega, og
í annarri kom í Ijós að kvenfólkið
varð allt ósköp svipað í útliti þegar
árin færðust yfir þær. Fengu allar
þetta mikla gráa hár og djúpu
drættina frá nefi að munnvikum.
Gölluðu genin
Því miður er það ekki einungis
ættarsvipurinn og skapmótið sem
erfast mann fram af manni, sjúk-
dómamir, eða gölluðu genin, fylgja
einnig með.
Gyðingar höfðu áttað sig á því
löngu fyrir Kristsburð, að ekki var
hægt að umskera alla drengi vegna
i sér þótt hún sjálf sé heil-
Meðferð dreyrasjúklinga er sú,
að gefa þeim reglulega blóðþætti
eða blóðhluta sem innihalda þann
storkuþátt sem vantar. Eftir að al-
næmissjúkdómurinn kom til sög-
unnar er nú með erfðafræðilegum
aðferðum farið að nota mannagen
til framleiðslu á hreinu próteini.
Erfðatækni
Mikið vatn er því runnið til sjáv-
ar frá því að austurríski munkurinn
Gregor Mendel vann að tilraunum
með plöntukynblöndun á árunum
1856 til 1864. En Mendel var frum-
kvöðull á sviði erfðarannsókna og
leiddi rök að því hvers kyns sér-
kenni erfast með ákveðnum erfða-
þáttum, og haldast óbreytt um
fjölda kynslóða.
Jórunn segir, að það hafi ekki
verið fyrr en árið 1955 sem menn
hættu á blæðingu, en vissu þó ekki
hvað olli þessum sjúkleika hjá sum-
um en öðrum ekki. Hér var um að
ræða dreyrasýkina, en henni veldur
galli í geni sem ákvarðar ákveðinn
storkuþátt.
Þessi sjúkdómur kom nokkuð við
sögu evrópskra konungsætta og
hafði Viktoría Bretadrottning í sér
dreyrasýkigen, sem væntanlegá var
tilkomið við stökkbreytingu, því
veikin var óþekkt í forfeðrum henn-
ar. Sjúkdómurinn erfist frá móður
til sonar, og getur því konan borið
í GENUNUM?
gátu fyrst talið litningana i mönn-
um, og upp úr 1970 fóru þær að-
ferðir að þróast sem nú eru notað-
ar. „Talið er,“ segir hún, „að í erfða-
efni mannsins séu u.þ.b. 100.000
gen, en aðeins lítill hluti þeirra er
þekktur enn sem komið er. Fram-
farir eru þó örar, og nýjar aðferðir
í erfðatækni gera mönnum kleift
að einangra erfðaefnið DNA, búta
það niður og einangra, og rannsaka
einstök gen. Nú eru m.a. uppi áform
um að kortleggja og raðgreina allt
erfðaefni mannsins."
Með þessari nýju tækni og að-
ferðum er nú stöðugt unnið að því
að rannsaka þau gen sem bera í
sér sjúkdóma, með það fyrir augum
að finna lyf gegn þeim sjúkdómum
og gera sjúkdómsgreiningu ná-
kvæmari þannig að meðferð verði
árangursríkari.
Hjá Krabbameinsfélaginu fer nú
fram erfðatæknileg rannsókn á
bijóstakrabbameini, bæði frumu-
og erfðararinsóknir, og á geðdeild
Borgarspítalans hefur í nokkur ár
staðið-yfir erfðatæknileg rannsókn
á sjúkdómnum „sehizophrenia“
(geðklofa).
En hvernig getur nú hinn venju-
legi maður nýtt sér upplýsingar
erfðafræðinnar?
Ef menn vita t.d. af hjarta- eða
krabbameinssjúkdómum í fjöl-
skyldu sinni, ættu þeir að geta var-
ast þá þætti sem auka líkur á sjúk-
dómnum með því að lifa heilbrigðu
lífi. Láta tóbakið og kaffið eiga sig,
gæta þess að fá nægan svefn, huga
að matarvenjum sínum, forðast
streituna og reyna að hreyfa sig
örlítið úti í góða loftinu. Það er svo
sem engin þörf á að „æsa“ gölluðu
genin upp. Hið sama ætti þá senni-
lega að gilda um geðræna sjúk-
dóma.
Til að þekkja sjálfan sig betur
er sennilega vænlegra að rýna í
genin og fjölskyldu sína, heldur en
að spá í stjörnurnar.
Enginn texti. Forsíða. Grunn-
grafíkmynd? Fjölskyldumynd á
bls.40-41 í bókinni I dagsins önn.
Enginn texti. Forsíða. Mynd úr
bókinni Scientifíc American, bls.
41.
Litningar í einni frumu.
Eineggja tvíburar hafa oft villt
um fyrir mönnum og fara margar
fróðlegar sögur af því. Oft eru þeir
svo líkir að jafnvel foreldrar geta
látið blekkjast á ákveðnum augna-
blikum. Og þótt tvíburamir sjálfir
séu ekki alltaf hrifnir af því að
vera eins — „það er svo pirrandi
að þessi manneskja skuli vera eins
og ég“, hafði einn þeirra á orði —
þá hafa þeir nú stundum notfært
sér aðstöðu sfna, samferðafólki til
mikillar mæðu.
Þeir hafa stundum tekið próf
hvor fyrir annan og gerðist það eitt
sinn að tvíburi var slæmur í fæti
daginn sem sundpróf átti að fara
fram og lét þá tvíburasystur sína
synda í tvígang. Enginn komst að
svindlinu, en að prófinu loknu sagði
sundkennarinn sposkur við tvíbu-
rann sem synti: Jæja góða mín,
þama er nú munur á ykkur systmn-
um, þótt eineggja séuð. Hún systir
þín náði helmingi betri. tíma áðan!“
Ekki fór það jafnvel hjá öðmm
tvíburum sem voru að taka stúd-
entspróf. Annar fór í prói fyrir hinn
og enginn komst að hine sanna.
En tvíbumnum sjálfum fann.’t þetta
svo sniðugt að þeir gátu ekkl stillt
sig um að segja einhveijum fra því
og fór svo að annar var felldur á
prófinu.
Tvíburar .unnu eitt sinn saman á
kaffiteríu og þar sem Iítið var að
gera tylltu þær sér niður hlið við
hlið innan við afgreiðsluborðið og
spjölluðu saman. Drukkinn maður
kom aðvífandi með frekju og
bægslagangi og heimtaði af-
greiðslu. Þá varð honum litið á
tvíburana og var brugðið. „Er ég
farinn að sjá tvöfalt?" tautaði hann
miður sín. Tvíburarnir leiðréttu ekki
þann misskilning og hvarf maður-
inn af brott niðurbrotinn yfir
ástandi sínu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
TVÍBURAR
EF ANNA er andvaka þá er Lolla það líka. Þá hittast þær á bað-
herberginu um hánótt og horfa með ásökun hvor á aðra. Viltu reyna
að sofna svo ég geti sofið líka, hugsa þær báðar en hafa um það
engin orð, því orð hafa alltaf verið óþörf i samskiptum þeirra.
Tvíburamir Anna Marta og Lovísa Guðbjörg Ásgeirs-
dætur, sem em að verða sautján ára, hafa aldrei verið
aðskildar.. En næsta sumar skilja leiðir þegar önnur fer út
á land að vinna og þá vandast málið.
Hvor fær bláu buxurnar? Hvor á að taka brúna jakkann?
Hvor fær að hafa bílinn sem þær ætla að kaupa sér saman?
„Við höfum alltaf skipt öllu á milli okkar,“ segja þær þar
sem þær sitja á móti mér. „Ef önnur fær meira kaup en hin
þá skiptum við því þannig að báðar fái jafnt. Við kaupum
okkur fatnað saman, og höfum því ekki hugmynd um hver á
hvað, ekki einu sinni þegar um undirfatnað er að ræða! En í
sumar verðum við í fyrsta sinn aðskiidar, og við emm strax
farnar að ræða um hver
eigi að hafa hvað,
hvernig við eigum að
skipta ilmvötnum og
snyrtivörum á milli okk-
ar, og bílnum, — þetta
verður nú meira vesen-
ið!“
Anna og Lolla, sem
em eineggja tvíburar,
era dætur Laufeyjar
Eyjólfsdóttur og Ás-
geirs Baldurssonar.
Anna er að læra að
verða þjónn og starfar
á veitingahúsinu Oð-
insvéum, en Lolla er í
almennu námi í Iðnskó-
lanum.
Frá því þær voru í
vöggu hafa þær verið
„Eins og einhver segull sé á
milli okkar.“ Anna Marta (t.v.)
og Lovísa Guðbjörg Ásgeirs-
dætur, eineggjatvíburar.