Morgunblaðið - 21.01.1990, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. JANÚAR 1990
C 15
B>Rauðn Ijóniö
.Casablanca
■BSportkiúbburinn
Keisarinn.
fe >1 Hóteí tsland
Holiywood f
^lBölver . .j
StaupasteinnB
BjórhöllinB
Fjðrðurinn
Strandgötu 30, Hafnarfj.
Tí
gengur í skemmtanalífinu,
alltaf skal „Hollý“ þrauka
og komast á tindinn á ný.
Svo er reyndar ekki komið
enn, en þess er vart langt
að bíða. Núna heitir staður-
inn (ef marka má auglýs-
ingar) Vaxmyndasafnið
Hollywood. Það voru Stuð-
menn, sem stóðu að stofnun-
„safnsins" — hverjir aðrir?
Auk vaxmynda valinkunn-
ustu höfðingja þjóðarinnar
frá fyrri áratugum gefur þar
að líta ekki ómerkilegri menn
en Björgvin Halldórsson og
fleiri ódauðleggoð íslenskrar
poppsögu. Fólkið er voða
skrýtið. Bæði aldurhnignir
popparar að stíga sín hinstu
spor á sviðinu og gjafvaxta
Reykjavíkurdætur að stíga
sín fyrstu á dansgólfinu.
Borgin
HÓTEL BORG svíkur
Pósthússtræti 10 aldrei.
Elsti skemmtistaður
Reykjavíkur hlýtur jafn-
framt að vera sá jafnvinsæl-
Skemmtiatriði Hótels íslands
eru í algerum sérflokki hér-
lendis og eru reyndar á
heimsmælikvarða.
■^■■■^^■1 Keisarinn
KEISARINN er hefð-
Við Hlemmtorg bundinn
bar í besta skilningi þeirra
orða. Tónlistin er ekki há-
vær, barþjónninn hefur ekki
samræður en heldur þeim
uppi ef gesturinn vill, það
er tölvuspil í horninu og alls
kyns fólk leitar inn til þess
að staupa sig í góðra vina
hópi eða fela sig í viskíglasi.
í Kjallara Keisarans er hip-
hop dansstaður, með áhuga-
verðri innréttingu. Þangað
kemur (stundum) afskaplega
frumlegt og framúrstefnu-
legt lið. Öðru hveiju eru
haldnir tónleikar í Kjallara
Keisarans og þá fyrst sprett-
ur flóran.
■■■■■■■ Hér safn-
KRINGLU- ' ast saman
KRÁIN einkenni-
Kringlunni 4 leg
blanda fólks. Vinnufélagar á
er ekkert fram úr hófi aðlað-
andi, en vegna staðsetning-
arinnar er hann vinsæll við-
komustaður, auk þess sem
hljómsveitir eiga þar vísan
samastað.
■■■■I^^H Fimman
FIMMAN fer rólega
Halharstræti 5 af Stað á
kvöldin, en þegar fer að halla
að miðnætti er sjoppan jafn-
an orðin full. Yfirleitt er þar
slangur af fólki, sem gafst
upp á röðinni við Gauk á
Stöng, enda virðast dyra-
verðir Fimmunnar mun af-
kastameiri en kollegar þeirra
handan við hornið (þ.e.a.s.
við að hleypa fólki inn).
Hægt er að setjast inn í reyk-
mettað bakherbergi ef menn
vilja ræða málin, en eiri-
hvernveginn fékk ég á til-
finninguna að umræðurnar
þar væru ámóta gáfulegar
og fyrir framan. Niðri í kjall-
ara er einatt lifandi tónlist,
en stundum eru tónlistar-
mennirnir allt of góðir, því
þá taka gestirnir að kytja
undir og sá söngur er ekki
leggjandi á nokkurn mú-
síkalskan mann.
■mBBBIBflH Eins og
FJÖRDURINN menn get-
Strandgötu 30 ur rennt
grun í áf nafninu, er Fjörður-
inn staðsettur í Hafnarfirði
og skal öllum aðkomumönn-
um ráðlagt að se'gja ekki orð
um Hauka, FH eða Stjörn-
una. Talsvert hefur verið lagt
í staðinn og ef gestirnir eru
alltaf jafnfjörugir og þegar
undirritaður lagði leið sína
þangað, á hann bjarta
framtíð. Gestirnir eru á öll-
um aldri, flestir þó eldri en
25 ára.
^■■■■■H Fógetinn
FÓGETINN státar af
Aðalstræti 10 því að
vera til húsa í elsta eða næst-
elsta húsi Reykjavíkur (um
það stendur lærð deila). Tals-
vert er um að þangað komi.
sama fólkið helgi eftir helgi,
en þó er ávallt nóg af nýju
blóði. Vegna aldurs hússins
er nokkuð lágt undir loft í
fremri sal Fógetans og hefur
greinarhöfundur grun um að
fremur lágvaxinn kunningi
hans stundi staðinn sérstak-
lega vegna þess.
kenderíi, starfsfólk úr
Kringlunni, fólk úr nágrenn-
inu, heilu handknattleiksliðin
og ég sá jafnvel hóp hag-
fræðinga skiptast á gaman-
sögum þar. Væntanlega
skrýtlur um kreppuna. Inn-
réttingin er í hefðbundnum
pöbbastíl og stemmningin er
yfirleitt í góðu samræmi við
hana, enda hljóma Dubliners
yfirleitt langar leiðir.
BHEEEEERIBHH Þegar ég
LEIKHÚS- kom í
KJALLARINN kjallarann
Við Hverfísgötu um dag-
inn hélt ég fyrst að ég væri
kominn á dvalarheimili aldr-
aðra kennara minna úr
Menntaskólanum. Áður en
yfir lauk, fannst mér þó
líklegra að ég væri kominn
á framhaldsaðalfund BHMR.
Þrátt fyrir það er ekki neinn
sérstakur gáfumannablær á
staðnum, enda fer fólk ekki
í Kjallarann með neinum
öðrum formerkjum en fasta-
gestir Rauða ljónsins, þ.e.a.s.
það skvettir í sig, daðrar
dansar og rífst.
■■■■■■■■■ Óperu-
ÓPERU- kjallarinn
KJALLARINN hefur 25
Hverfisgötu 8 ára ald-
urstakmark, þannig að
greinarhöfundur þurfti að
gera sig óskaplega fullorð-
inslegan í framan til þess að
sleppa inn. Það kom enda í
ljós að hann var yngsti gest-
urinn þegar inn i dýrðina var
komið. Þarna var saman-
Bókastofan í Casablanca,
en í baksýn má sjá sovéska
herhvöt um baráttu fyrir
Ródínu, rússnesku ætt-
jörðinni. Þrátt fyrir að
barinn sé kenndur við
Maxím Gorky fannst ekk-
ert verka hans í bókastof-
unni.
Sætu stelpurnar á Strætó.
Reykjavíkur fyrr en það hef-
ur stungið inn nefið á
Gaukn-
um. Það getur hins vegar
verið hægara sagt en gert
vegna hinnar þjóðkunnu
biðraðar fyrir utan staðinn,
sem er orðinn svo fastur
póstur i bæjarlifinu að gár-
ungar hvíslast á um að hún
verði senn falin borgarminja-
verði til varðveislu.
■■■■^■■M Gay-klúb-
GAY-KLÚBB- burinn
URINN eða
Laugavegi 22, eiri Homma-
klúbbur-
inn, eins og hann er oftar
nefndur, er — eins og lesend-
ur hefur e.t.v. þegar rennt
grun í — samkomustaður
homma og lesbía. Þrátt fyrir
það er yfirleitt slangur af
gagnkynhneigðu fólki þar,
sem er þar af forvitni, með-
vituðu frjálslyndi eða í hóp
með vinum. Stemmningin er
fremur róleg, en aðalaðdrátt-
arafl staðarins er „kabarett-
inn“, sem fer þannig fram
að karlar í kvengervi troða
upp með söng — gjarnan
gamlar dægurflugur eða lög
úr söngleikjum — og til-
heyrandi látbragði. Skemmst
er frá því að segja að „kaba-
rettinn“ getur verið feikilega
skemmtilegur, enda yfirleitt
góðir söngvarar á ferðinni,
sem þar að auki taka sjálfa
sig ekki of hátíðlega.
■■■■■■■■I Geirsbúð
GEIRSBÚÐ man sinn
Vesturgötu 8 í'ífil fegri,
en þar mátti um tíma finna
flestar sjálfskipuðar menn-
ingarspírur borgarinnar. Nú
hefur hins vegar fækkað
•verulega í þeim geira fasta-
gestahópsins, en fyrir vikið
er þar yfirleitt rólegra and-
rúmsloft en var til forna.
Þrátt fyrir að ekki sé lengur
hægt að ganga að ákveðnum
mönnum vísum á Geirsbúð,
er staðurinn vel sóttur og
nýr fastagestahópur að
myndast.
■EHIH Holly-
HOLLYWOOD wood er
Ármúla 5 ótrúlegur
staður. Það er sama á hveiju
asti, sem sést á því að þrír
ættliðir fjölskyldu greinar-
höfundar hafa sveiflast þar
um gólf. Það er Orator, félag
laganema, sem rekur
skemmtistaðinn, og reyndar
má sjá það endurspeglast í
viðskiptavinunum. Þar er
talsvert um góðglaða stúd-
enta. Borgin kann þó senn
að renna skeið sitt á enda,
en hverfur þó vart úr
skemmtanabransanum, því
Alþingi hefur sýnt húsinu
áhuga.
■■H■■ Hótel ís-
HÓTEL land er
ÍSLAND vægast
Ármúla 11 sagt
stærsti skemmtistaður á ís-
landi. Ekki er nóg með að
staðurinn rúmi 1% þjóðarinn-
ar, heldur er þetta 1% þar
öllum stundum og virðist í
ofanálag vera nokkuð raun-
sannur þverskurður. Það er
afskaplega einkennileg til-
finning að fara á Hótel ís-
.land og sjá 18 ára stúlkur
dansa við hlið gullbrúð-
kaupshjóna og það merki-
lega var, að greinarhöfundur
var sá eini, sem virtist veita
‘þessu athygli. Kynslóðabilið
virðist vera fyllilega brúað.
HVERTSKAL HALDA?
Áningarstaðir í næturlífi borgarinnar
■■EHB Eigendur
GAUKUR Á Gauksins
STÖNG hika ekki
Tryggvagötu 22 við að
auglýsa staðinn sem „elsta
pöbb Reykjavíkur“, a.m.k. á
útlensku. Hvað sem því líður
er engum blöðum um það
að fletta að Gaukurinn er
aðalbjórstofa Reykjavíkur og
fullt hús öll kvöld vikunnar,
enda fáir staðir betri til þess
að sýna sig og sjá aðra. Á
efri hæðinni er yfirleitt meira
andrými og hávaðaminna, en
neðri hæðin er tilvalin til
þess að kinkast á og komast
hjá samræðum. Á Gauknum
er fólk á öllum aldri og allra
þjóða kvikindi rekast þangað
inn, enda gefið mál að fólk
hefur ekki kynnst næturlífi
Dansstaðir
„Pöbbar"
■iGeirsbúö iiöbærinn
Duus- ilGaukuráStöng hús ■> llFimman . Hótel Borg/J “stíætó ^a'larínn
Ölkjallarinn® Liunglii; A Sl 1
VjWyjsSrit Gay-klúbburinn
Tjörnin MorgunblaM/ KC