Morgunblaðið - 21.01.1990, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 21.01.1990, Qupperneq 22
22 C MORGUNBLAÐIÐ MENNINGARSTRAUMAR SUNNUDAGUR 21. JANÚAR 1990 GRIPINIVIGLÓÐVOLGUR ■ VESTFIRSKAR rokk- sveitir hafa ekki verið áber- andi síðan Grafík lagði upp laupana snemma á síðasta ári. Þar lifir þó rokkið eins og annars staðar og til að minna á það gaf Bjartsýni nýverið út breiðskífuna Vestan vindar með tíu vest- firskum hljómsveitum og flytjendum. Aðstandandi plötunnar, Herbert Guðmundsson söngvari, sagði að enga tímamótatónlist vera á plöt- unni, „þetta er bara venju- legt rokk með tilbrigðum". Hljómsveitir og f lytjendur sem lög eiga á plötunni eru Æðruleysi frá Patreks- firði, Dolby, RúnarÞór, Reynir Guðmundsson og Sigurgeir Sverrisson frá ísafirði, Siggi Björns frá Flateyri, Septa, Edda Borg og Kan frá Bolung- arvík og Rokkbændur frá Ingjaldssandi. ■ELDRI söngkonur virð- ast eiga upp á pallborðið hjá tölvupoppurunum þessa dagana. Mönnum er enn í fersku minni samvinna Pet Shop Boys o g þeirra Dusty Springfield og Lisu Minelli, að ógleymdum þeim Stock, Aitken og Waterman, sem sömdu fyrir Diönu Ross. Nú hefur J.J. Jeczalik úr The Art of Noise, tekið höndum saman við Erthu Kitt og hljóðritað hennar nýasta lag, Primitive Man, sem verður á væntanlegri plötu hennar, I’m still here. Geislabowie DAVID Bowie sneri aftur í sviðsljósið á síðasta ári með sveit sinni Tin Machine og hlaut blendnar við- tökur. Hann þráast þó við og tók upp 25 lög með sveitinni í Astralíu fyrir stuttu. Ahugi fyrir eldri hljómplötum Bówies virðist öllu meiri en á því sem Tin Machine er að gera og búast menn við miklum handagangi þegar gömlu Bowie-plötumar koma út á geisladiskum á næstunni. Forsmekkur að þein-i útgáfu, sem verður í höndum bandaríska fyrirtækisins Rykodisc, var kassinn Sound and Vision, sem út kom fyrir jól og í voru söfn af bestu lögum Bowies og óút- gefnum lögum á þremur geisladiskum og eitt lag á mynddisk. Fyrstu plöturnar þijár verða síðan gefnar út á diskum í þessum mánuði. A hveijum disk verða fjögur aukalög sem mörg hver hafa aldrei heyrst áður. Þess má svo geta að fyrir stuttu stóðu yfir samningar um að fá Bowie og blik- kvélina hingað til lands til tónleika- halds, en það getur sett strik í reikning- inn að hann ku vera að velta fyrir sér að fara einn í tónleikferð um heiminn í hai Ásgeir Óskarsson trommuleikari og söngvari á tónleikum Blámakvartettsins í Kjallara keisarans 11. janúar. Asgeir Oskarsson hefur um árabil verið einn fremsti rokktrymbill landsins og barið húðir með mörgum af vinsælustu sveitum lands- ins, s.s. Pelican, Stuðmönn- um og Þursaflokknum; yfir- leitt með fleiri en einni sveit í einu. Ein af þeim sveitum sem hann starfar með núna er Blámakvartettinn, sem hann skipar með Björgvin Gíslasyni, Haraldi Þorsteins- syni og Pétri Hjaltested. Ás- geir er traustur á trommurn- ar í þeirri sveit, sem vonlegt er, en líklega kemur það sumum á óvart að hann syngur líka með sveitinni. Þetta kvöld í Kjallara keisar- ans söng hann ein þijú eða fjögur lög, þar á meðal Zepp- elin-slagarann Dazed and Confused, og fórst það eink- ar vel. DÆGURTONLIST Til hvers eru tónlistarmyndbönd't LEIKINLOG ÞAÐ fer varla framhjá neinum að tónlistarmyndbönd hafa sótt mikið í sig veðrið seinni ár og ekki er gefin út plata á íslandi án þess að myndband (eða mynd- bönd) sé gert við eitthvert laganna. Sú tíð virðist þó liðin þegar það eitt að komast í sjónvarpið dugði til að selja plötur í þúsundatali. Gott myndband, þegar gert er leikið lag sem undirstrikar boðskap texta (ef einhver er) og dregur fram hughrif í tóniistinni, ^mmmm^mmm er meira en góð auglýs- ing. Þannig mynd- bönd eru sjaldséð, því eins og alltaf eftir Áma Matthíasson þegar mikið fé er í húfi sigla menn milli skers og báru og velja þrautreynda formúlur sem allir þekkja: depurð og sorg vegna þess að stúlkan/pilturinn hefur fundið sér annan/aðra — dularfull aðlaðandi stúlka í fjarska sem söngvarinn eltist við og fær að lokum — töffarar á tónleikum. Á árum áður var nóg að bandmynd með tónlistar- manni væri sýnd í sjón- varpi til að salan tæki kipp og kannski er besta dæmið um það plata Meatloafs, Bat out of Hell, sem til er á hverju heimili á landinu Meatloaf Fyrsta „mynd- bandsplatan". eða þar um bil. Áhrifamátt- ur sjónvarpsins hefur þó minnkað mikið því nú eru slíkar myndir alvanalegar og úti í heimi eru sjón- varpsrásir sem sýna slíkt allan sólarhringinn. Það kostar sitt að setja saman gott myndband, því ekki er hægt að fara af stað fyrir minna en 200— 300.000 krónur og ef gera á myndband af metnaði þarf sjö stafa tölur. í ný- legu vali á besta mynd- bandi ársins innlendu í Sjónvarpinu varð efst myndbandið við Plánetu Sykurmolanna, sem gert er fyrir erlendan markað og kostaði líklegajafn mik- ið að gera og öll hin mynd- böndin sem sýnd voru í þættinum. Þetta þykir mik- ið á íslandi, en úti í heimi kveikja menn víst varla á upptökuvélum fyrir slíka smáaura. (í þessu sam- hengi má benda á að heils- íða f lit kostar uppí 275.000 krónur í dagblaði (með vsk.).) Sá sem gefur út plötu þarf því að gera ráð fyrir í það minnsta 200.000 krónum til myndbanda- gerðar; um 10% af heildar- kostnaði. Fyrir síðustu jól var mik- ið sýnt af myndböndum með íslenskum plötum, en ekki er gott að segja hvað þau myndbönd höfðu að segja þegar viðskiptavinur- inn kom í plötubúðina til að kaupa jólagjöfina. Sölu- hæsta platan varð plata Bubba Morthens, Nóttin langa; fyrir þá plötu var gert eitt myndband. Neðar á sölulistanum voru plötur sem höfðu fleiri myndbönd til kynningar og við eina voru gerð fjögur (sem reyndar voru ekki öll sýnd fyrir jól). Sú plata varð sjötta söluhæsta plata árs- ins. Það er því ekki nóg að gera myndband; tónlist- in skiptir mestu máli. Ekk- ert myndband getur selt f . , ‘ J ^ y ,| .j (i ' ! * sýjÍ -j\ ■ , '/w'j'm- LJó3mynd/Björg Sveinsdóttir Sykurmolarnir Besta og dýrasta innlenda myndband ársins. lélega plötu, sama hve vel það er gert, en því er ekki að neita að gott myndband getur aukið sölu á vinsælli plötu, líkt og vinsælt lag. Eftir nokkur ár verða líklega flestir geislaspilar- ar einnig búnir til að spila mynddiska, sem eru jafn- stórir og venjulegir geisla- diskar. Þegar er nokkuð framboð af slíkum diskum ytra og nokkrir hafa sést hér á landi. Það bendir því flest til þess að mynd- bandagerð verði æ snarari þáttur í plötuútgáfu hér á landi sem og annars staðar. ENIM HRELLIR JERRY LEE JERRY Lee Lewis er kominn af léttasta skeiði, orðinn 54 ára gamall, en áhugi á tónlist hans hefur ekki ver- ið meiri í langan tíma. Keppast fyrirtæki um að gefa út gamlar upptökur með kappanum og hann er hvar- vetna eftirsóttur til tónleikahalds. Brasilíubyrne Ekki fyrir löngu átti að taka upp tónleika Jerr- ys í Bretlandi á myndband og var ætlunin að ýmsar poppstjörnur kæmu á svið til skrauts. Nokkurn tíma tók fyrir Jerry að koma sér til Bretlands, en þegar hann gekk inn á svið og sá kvik- myndatökuvélarnar, breytti hann. tónleikdagskránni óforvarandis og hóf tónleik- ana á sveitatónlistarlagi sem enginn í stuðnings- sveitinni virtist kunna. Stjörnurnar streymdu á svið, Dave Davies, Brian May, John Lodge og Stuart Jerry Lee Lewis; dráparinn Adamson, en komu allar af fjöllum þegar Jerry viðraði gömul Hank Williams-lög og ámóta. Ekki bætti úr skák að þegar þeir voru búnir að fóta sig í einhverju lagi breyttist það í annað lag í miðju kafi, líkt og Whole Lotta Shakin’ sem varð að Me and Bobby McGee. Jerry átti það líka til að hætta í miðju lagi til að skamma meðspilarana; hætti í miðj- um einleikskafla ef honum leiddist og lék sum lög á tvöföldum hraða. Þegar Brian May flýtti sér á svið til að taka sóló hrasaði hann um hljóðnemastand og varð frá að hverfa að sinni, en Jerry endurtók lagið til að gefa honum annað tæki- færi. DAVID Byrne úr Talking Heads hefiir sent firá sér enn eina sólóplötuna og eins og fyrri daginn leitar hann fanga í fjarlægum löndum. Rei Momo nefnist gripurinn og inniheldur fimmtán lög sem öll eru samin í suður-amerískum anda og ákaflega vel til þess fallin að stíga dans við. David Byrne til aðstoðar er fjöldi brasilískra og bandarískra tónlistarmanna og texstasmiða, þar sem hluti plötunnar er sunginn á portúgölsku. Upptöku- stjóri er Steve Lillywhite (U2, Simple Minds) en hann tók einnig upp síðustu plötu Talking Heads, Naked. Þá syngur eiginkona Lillyw- hites, söngkonan Kirsty MacColl, bakraddir á Rei Momo.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.