Morgunblaðið - 21.01.1990, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ VELVAKANDI SUNNUDAGUR 21. JANÚAR 1990
C 29
f,Ég vissi nánast ekkert um
landið og þekkti engan sem
hafði komið hingað. Það var
kait í Keflavík en það þurfti
ekki að koma mér á óvart;
nafnið á landinu gefur það til
kynna.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Michael Holiins, handlangari frá London.
Joakim Eriksson Morgunblaðið/Sverrir
Alain Roos
Morgunblaðið/Sverrir
fiskur væri dýr. Annars væri útilok-
að meta af nokkru viti lífskjör í
löndum nema viðkomandi hefði
búið þar og starfað um hríð. Þann-
ig væri hægt að kynnast meira en
yfirborðinu sem margir ferðalangar
létu sér nægja. Michael er spurður
hvort hann muni mæla með því við
kunningja sína að heimsækja ísland
að vetrariagi. „Bara þá sem mér
er illa við,“ svarar hann hlæjandi
en bætir við að eitt sé afbragðsgott
hér; allar sundlaugarnar og aðstað-
an þar. Hins vegar hafi hann sann-
færst um að sumarið sé rétti ferð-
atíminn á íslandi.
Þorsteinn Magnússon og Hulda
Jónsdóttir hafa unnið árum saman
á heimilinu þar sem gestir leigja
I ódýr svefnpláss í kojum. Veitingar
eru engar, nema morgunverður á
sumrin, en gestir geta fengið að
matbúa í eldhúsinu og nýta sér það
margir. „Eldhúsið er samkomustað-
urinn,“ segir Þorsteinn. „Þar er
stundum fjöldi fólks á morgnana,
alls staðar að úr heiminum, og
meðan beðið er eftir að vatnið sjóði
er tilvalið að rabba saman. Oft
sjáum við allan hópinn síðan halda
af stað í gönguferð um borgina eins
og þetta séu allir vinir frá barn-
æsku. Aðstæður hér auka sam-
kennd á hjá fólki, enginn getur
verið alveg út af fyrir sig.“ Þor-
steinn man eftir 87 ára gömlum
ferðalang frá Bandaríkjunum. Sá
var alveg eldhress og fannst ekkert
mál að vinda sér upp í efri koju!
Myrkrið er þrúgandi
Á Hernum voru tveir dæmigerðir
túrhestar auk annarra gesta. Alain
Roos er 19 ára gamall, frá Brussel
í Belgíu, og ætlar að vera hér í
tvær vikur. Hann sagði að skemmti-
legast væri að kynna sér ólíkar og
fjarlægar þjóðir og hann þekkti
engan sem hefði verið á íslandi.
Satt að segja væri kaldara en hann
hefði vænst. Það hlyti að vera vind-
urinn sem yki á ónotin. Annars
væru þessar löngu nætur verri en
kuldinn, myrkrið væri þrúgandi og
auk þess gæfist lítill tími til að
skoða sig um á daginn. Dýrtíðin
væri líka mikil hérna.
„Ég reyni yfirleitt að ferðast utan
aðal-ferðatímans, þá er ekki eins
mikið af fólki alls staðar. Um dág-
inn fór ég austur á Kirkjubæjar-
klaustur og svaf eina nótt á venju-
legum sveitabæ. í Belgíu er alls
staðar byggð og bílar, þess vegna
eru það óskapleg viðbrigði að sjá
öll þessi auðu svæði héma, hraun-
breiður og eyðimerkur svo langt
sem augað eygir. Líklega er best
að koma til íslands á sumrin."
Joakim Eriksson frá Svíþjóð er
heimspekistúdent við Uppsalahá-
skóla. Hann sagðist hafa séð mynd
um landið í sjónvarpinu þegar hann
var tíu ára, lesið síðar Gísla sögu
Súrssonar og séð kvikmynd Ágústs
Guðmundssonar, lesið fleiri íslend-
ingasögur og hafa mikiiin áhuga á
öllum norrænum málum. Veturinn
1986 vann hann nokkrar vikur í
frystihúsi á ísafirði. „Það er tilviljun
að ég kem aftur að vetrarlagi, ég
átti smáfn' og farmiðarnir eru ódýr-
ir núna. Ég er búinn að skoða Þjóð-
minjasafnið, Háskólann, Norræna
húsið og Landsbókasafnið. Í dag fór
ég í Bláa lónið, það var stórkost-
legt! Á morgun fer ég að sjá Gull-
foss,“ sagði Joakim og bætti við
að lokum að hann vonaðist til að
koma næst að sumarlagi svo að
hann gæti skoðað sig betur um og
heimsótt sögustaði Njálu og Eglu.
Margt smátt gerir eitt stórt
Til Velvakanda.
• •
Ollum þeim, sem stutt hafa
kirkjubygginguna, með gjöf-
um, áheitum eða á annan hátt færi
ég innilegustu þakkir. Ég veit að
Guð mun launa það ríkulega og
blessa þinn hag, því „Guð elskar
glaðan gjafara“ 2. Kor. 9:7. Ég
lofa og vegsama Guð fýrir það sem
unnist hefir. Verkinu miðar örugg-
lega framávið, þó mikið sé eftir.
Því minnum við alla velunnara á
að reikningsnúmer kirkjunnar er
5782 í Landsbankanum á ísafirði.
Þar er tekið á móti áheitum og gjöf-
um einstakiinga, skipshafna eða
félagasamtaka. Það er markmið
vort að þarna rísi veglegt Guðshús
við hæfi þessa bæjar til blessunar
fyrir marga yngri sem eldri. Kjör-
orð okkar er „Enginn getur séð
guðsríki nema hann endurfæðist“,
Jóh. 3:3, og „En í því er hið eilífa
líf fólgið, að þeir þekki þig, hinn
eina sanna Guð, og þann sem þú
sendir Jesúm Krist“, Jóh. 17:3.
„Því svo elskaði Guð heiminn, að
hann gaf son sinn eingetinn, til
þess að hver, sem á hann trúir,
glatist ekki, heldur hafi eilíft líf“,
Jóh 3:16. (Lúther kallaði þetta vers
Litlu Biblíuna.)
Svo er það hin sígilda bæn
Hallgríms Péturssonar, er við ger-
um að okkar bæn.
Gefðu að móðurmálið mitt,
minn Jesú þess ég beiði,
frá allri villu klárt og kvitt,
krossins orð þitt út breiði.
Um landið hér, til heiðurs þér,
helst mun það blessun valda.
Meðan þín náð, lætur vort láð,
lýði og byggðum halda.
Athugið að við tökum á móti öll-
um öl- og gosdrykkjaumbúðum, úr
gleri, plasti og áli, fyrir kirkjubygg-
inguna. „Margt smátt gjörir eitt
stórt.“
Sigfiis B. Valdimarsson
Þorrablót
félagsins
verður haldið í Skútunni, Dalshrauni 15,
Hafnarfirði, laugardaginn 27. janúar.
Miðasala í Skútunni fimmtudaginn 25. janúar
frá kl. 17.00-19.00.
Mætum sem flest.
Stjórnin.
ifandi tónlist
í kvöld
Dansaðtil kl. 1
NAOST
RESTAURANT
S í M I 1 7 75 9
Ávallt
úrvalsréttir
á matseðlinum
BORGARKRADI
Taktu þátt og láttu einn góðan fjúka og
fáðu dómnefnd til að brosa.
& & \e> &
\S~- .
& &
Fyrstu verðlaun; Fyrir að ná fullbros-
andi dómnefnd er öl fyrir alla.
Önnur verðlaun: Fyrir að ná tveimur
dómurum í fullt bros er öl fyrir allar stúlkur
í húsinu.
Aðgangseyrir aðeins kr. ÍOO,-
Ath. Nýr matseðill frá kl. 18-21.
Arshátíðir eru okkarfagJ
Þríréttaður árshátíðarmatur kr. 2.700,-
eða úrvals þorramatur kr. 1.700,-
Dansleikur að hætti Óperukjallarans
fyrir smærri fyrirtæki og hópa.
f
(f)p6rukjallútrmn
Sími18833
• •
- Oðruvísi staður