Morgunblaðið - 23.01.1990, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 1990
19
Skákmótið í Wijk
aan Zee:
Margeir vann
Hollending
MARGEIR Pétursson vann Hol-
lendinginn Nijboer í 7. umferð
skákmótsins í Wijk aan Zee, og á
síðan jafnteflislega biðskák við
Mikhaíl Gúreviljs úr 8. umferð.
Viktor Kortsjnoj er efstur á mót-
inu með 5 'A vinning og John Nunn
er í 2. sæti með 5 vinninga. Nigel
Short, Maxim Dlugy, Viswanathan
Anand og Lajos Portisch eru í 3.-6.
sæti með 4 ‘A vinning og Margeir er
í 7. sæti með 4 vinninga og biðskák.
Margeir teflir við Kortsjnoj í 9.
umferð í dag. Hann á svo eftir að
tefla við Short, Piket, Dokhojan og
Kujiv.
Virðisaukaskattur:
Umboðslaun
verðbréfasala
undanþegin
UMBOÐSLAUN í viðskiptum bera
virðisaukaskatt, ef undan eru skil-
in umboðslaun verðbréfasala og
erlend umboðslaun í innflutningi,
en þessi umboðslaun eru undan-
þegin skattinum samkvæmt virð-
isaukaskattslögum.
Umboðslaun fasteignasala báru
12% söluskatt fyrir áramót, en eftir
áramotin er lagður á þau 24,5% virð-
isaukaskattur.
Umboðslaun bílasala bera sömu-
leiðis 24,5% virðisaukaskatt frá
síðustu áramótum að telja.
Morgunblaðið/Þorkell
Bankastjórar og framkvæmdastjórar Islandsbanka hf. í skrifstofu
Vals Valssonar í nýju höfuðstöðvunum. Frá vinstri Ragnar Önundar-
son, Kristján Oddsson og Jóhannes Siggeirsson framkvæmdastjórar,
Björn Björnsson, Tryggvi Pálsson og Valur Valsson bankastjórar.
Einn framkvæmdastjóranna, Guðmundur Hauksson, var fjarstaddur.
Islandsbanki hf.:
Stjórnendur flytja í
Hús verslunarinnar
BANKASTJÓRAR og framkvæmdastjórar íslandsbanka hf. fluttu
í gær í nýjar höfuðstöðvar bankans sem eru í Húsi verslunarinn-
ar, Kringlunni 7, í Reykjavík. Stjórnendurnir voru áður staðsettir
í höfuðstöðvum bankanna sem sameinuðust í Islandsbanka, Al-
þýðubankanum Laugavegi 31, Iðnaðarbankanum Lækjargötu 12,
Útvegsbankanum Austurstræti 19 og Verslunarbankanum Banka-
stræti 5.
í hinum nýju höfuðstöðvum ís-
landsbanka verður aðsetur flestra
deilda bankans, en nokkrar deildir
verða þó á öðrum stöðum.
Þar verða tæknideild, lánadeild,
lögfræðideild, reikningshald, áætl-
anadeild, fjárreiðudeild, markaðs-
deild, þjónustudeild útibúatengsl
og gæðastjórnun.
í Ármúla 7 verða gjaldeyris-
deild, erlend samskipti, starfs-
mannahald og fræðsludeild.
í nýju höfuðstöðvunum verður
ennfremur rekið útibú bankans,
kallað Útibú Kringlunni 7, kennt
við staðsetningu eins og öll önnur
útibú íslandsbanka. Alls rekur
bankinn 37 útibú á öllu landinu,
þar af eru 23 í Reykjavík, Kópa-
vogi, Garðabæ, Hafnarfirði og
Seltjarnarnesi.
Að sögn Vals Valssonar banka-
stjóra eru um þessar mundir 853
stöðugildi við Islandsbanka og
gegna tæplega þúsund manns
þeim störfum.
Ungverjaland:
Hittir systur sína í
fyrsta skipti í 33 ár
ELÍSABET Alexandersdóttir er fædd og uppalin í Ungveijalandi
og kom hingað til lands ásamt fleiri löndum sínum er sovéski
herinn braut á bak aftur uppreisnina þar í landi 1956. Elísabet
er gift Jónasi Klimits Jónassyni og eiga þau eina dóttur, Evu.
Elísabet segir að breytingarnar í Ungveijalandi séu stórkostlegar
en að enn muni taka mörg ár fyrir þjóðina að jafna sig eftir al-
ræði kommúnista, jafnt í fjárhagslegu sem pólitísku tilliti.
Elísabet heldur til Ungveija-
lands á sunnudag og hefur hún
nýlega fengið leyfi ungverskra
stjómvalda til að heimsækja syst-
ur sína sem hún hefur ekki séð
frá því hún flutti til íslands fyrir
33 árum.
„Maður hennar heitinn var hátt-
settur í ungverska hernum og ég
hef ekki mátt hitta hana hingað
til. Nú er miklu auðveldara um
öll samskipti við vini og ættmenni
í gamla heimalandinu," sagði
Elísabet.
Ellsabet, sem starfaði áður sem
hjúkrunarkona I Búdapest, hefur
farið átta sinnum til Ungveija-
lands frá því hún flutti hingað.
Hún kvaðst alltaf hafa forðast að
ræða um stjórnmál í heimsóknum
sínum. „Ég var í Ungverjalandi
síðastliðið sumar og ég vissi varla
hvernig ég átti að bregðast við
þegar 'fólk ræddi opinskátt um
stjórnmál og framtíð landsins og
var bara hálfsmeyk. Það hefur
orðið gífurleg breyting á hugar-
fari almennings og stjórnvalda,"
sagði Elísabet.
Elísabet hitti ungverska sendi-
ráðsfulltrúa að máli er þeir voru
staddir í Reykjavík á síðasta ári
og eftir þann fund kvaðst hún
hafa séð að viðhorfin hefðu breyst
á meðal ráðamanna.
„Ég var einmitt úti þegar útför
Imre Nagys var gerð og ég á ekki
til orð til lýsa því hve vel mér leið
vegna breytinganna sem hafa átt
sér stað.“
„Ég verð aldrei hundrað prósent
íslendingur,“ sagði Elísabet en
bætti því síðan við hún matreiði
þó íslenskan mat og taki slátur.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Elísabet Alexandersdóttir er fyrir miðju. Með henni á myndinni
er eiginmaður hennar, Jónas Klimits Jónasson, og dóttir þeirra,
Eva Elísabet Jónasdóttir.
íeádéOilUsJ
HIQH-DESERT
BL0MAFRJÓK0RN
15%
afsláttur út febrúar
Myndatöhur frá kr. 6.500.-
Ljósmyndastofurnar:
Myndarfólk Keflavík,
sími: 92-14290
Mynd Hafnarfirði,
sími: 54207
Barna og Fjölskylduljósmyndir,
sími: 12644
Ljósmyndastofa Kópavogs,
sími: 43020
Öllum okkar tökum fylgja tvær
prufustækkanir 20x25 cm.
KYOLIC
Eini alveg lyktarlausi hvítlaukurinn.
2ja ára kælitæknivinnsla (20 mán.
+ 4 mán.) sem á engan sinn líka i
veröldinni.
Hefur meiri áhrif en hrár hvítlaukur.
Er gæðaprófaður 250 sinnum á
framleiðslutímanum.
Á að baki 30 ára stöðugar rann-
sóknir japanskra vísindamanna.
Lifrænt ræktaður í ómenguðum
jarðvegi án tilbúins áburðar eða
skordýraeiturs.
Öll önnur hvítlauksframleiðsla notar
hitameðferð.
Hiti eyðileggur hvata og virk efna-
sambönd í hvítlauk og ónýtir heilsu-
bætandi áhrif hans.
- KYOLIC DAGLEGA -
Það gerír gæfumuninn
KYOLIC fæst í heilsuvöru- og lyfja-
• verslunumogvíöar.
Heildsölubirgðir
L0GALAND,
heildverslun. Símar 1-28-04.