Morgunblaðið - 23.01.1990, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 23.01.1990, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 1990 Mongólar krefjast lýð- ræðis í stað kommúnisma Her Rúmeníu nýtur víðtæks stuðnings — ekki kóngurinn - samkvæmt fyrstu skoöanakönnuninni sem gerð er eftir M1 Ceausescus 60.000 manns innan sinna vébanda að sögn talsmanna þess eða aðeins 30.000 færri en kommúnistaflokk- urinn. Hafa stjórnvöld viðurkennt hreyfinguna en þó með því skil- yrði, að hún fari í öllu eftir stjómar- skránni. A-Þýskaland: Sendiráðum lokað í sparn- aðarskyni Pans. Reuter. 97% íbúa Rúmeníu styðja her landsins og 91% rúmensku þjóðarinn- ar hefúr hafnað kommúnismanum, ef marka má fyrstu skoðanakönn- unina sem gerð er í landinu frá því að Nicolae Ceausescu var steypt af stóli í desembermánuði síðastliðnum. Það var franska fyrirtækið BVA sem gerði þessa könnun fyrir tíma- ritið París Match. Samkvæmt niður- stöðum könnunarinnar eru 78% Rúmena á móti því að Michael, fyrr- um konungur, taki við ríkiserfðum á ný og 96% eru fullviss um að lýðræði sé það stjómarfar sem ríkja muni í Rúmeníu í framtíðinni. Fulltrúar BVA sögðust hafa spurt 817 manns í Búkarest 11. og 12. janúar. „Fólkið var tekið tali á göt- um úti í höfuðborginni, en ekki heima hjá sér, þar sem slíkt hefði getað vakið tortryggni,“ sagði í fréttatilkynningu BVA. í könnuninni kom enn fremur fram að 54% aðspurðra vildu fresta kosningunum sem ákveðið hefur verið að halda í aprílmánuði næst- komandi. Aðeins örlítill minnihluti trúði fréttum um að uppreisnin gegn Ceausescu hefði verið undir- búin og nærri 90% voru sánnfærð um að atburðarásin hefði verið sjálfsprottin. Um 60% aðspurðra sögðust hafa fundið á sér í nokkurn tíma að hverju stefndi og uppreisnin því ekki komið þeim algjörlega á óvart. Nærri tveir þriðju hlutar trúðu því að enn stafaði ógn af öryggisiög- reglunni. 84% aðspurðra vom samþykk skyndiréttarhöldunum yfir Ceaus- escu og eiginkonu hans og aftöku þeirra. Málsmeðferð sú var gagn- rýnd víða utan Rúmeníu og sam- kvæmt skoðanakönnuninni voru 14% Rúmena einnig andstæðir henni. Aðeins 3% aðspurðra sögðu að þeir treystu enn rúmenska komm- únistaflokknum, en 97% kváðust styðja Þjóðarráðið sem nú fer með stjórn í landinu, að sögn BVA. Flestir aðspurðra aðhylltust fjálst markaðskerfi, en örlítill minnihluti kvaðst vilja að Rúmenía yrði áfram í Varsjárbandalaginu. Stjórnmálakreppan vex í Austur-Þýskalandi: Fanjasuren Zorig, leiðtogi Mongólska lýðræðisbandalagsins, talar til fólksins á fundinum á sunnudag. Sinntu fúndarmenn hvorki banni yfirvalda né grimmdargaddi og kröfðust þess, að lýðræði yrði komið á og sannleikurinn um blóði drifha sögu kommúnismans í landinu sagður. X Dætur Michaels, fyrrum Rúmeníukonungs, þær Margarita og Sophie komu til Búkarest á fimmtudag og var myndin tekin á Otopeni- flugvelli þar í borg. Þetta er í fyrsta skipti frá árinu 1947 sem ein- hver úr konungsfjölskyldunni heimsækir ættlandið. Ulan Bator. Reuter. UM 7.000 Mongólar virtu að vettugi bann yfirvalda við útifúndum og söfnuðust saman á aðaltorginu í Ulan Bator á sunnudag. Var þess krafist, að landsmenn fengju að njóta lýðræðis eftir að hafa verið undir kommúnisma í 69 ár. Leiðtogi andófshreyfingarinnar, háskólakennarinn Fanjasuren Zor- ig, sagði á fréttamannafundi að fundinum loknum, að hreyfingin berðist fyfir fjölf lokkakerfi og sjálf- stæðu efnahagslífi og fyrir því, að sannleikurinn um blóði drifna sögu kommúnismans í landinu yrði sagð- ur. Fundarmenn létu ekkert á sig fá þótt frostið væri hart og fögnuðu ákaflega þegar Zorig og aðrir ræðumenn fordæmdu stjórnina. „Forsætisráðherrann og aðstoðar- forsæti'sráðherrann bera mesta ábyrgð á þvf skelfilega ástandi, sem hér ríkir,“ sagði Zorig og fundar- menn kröfðust þess, að hinn kom- múníski aðall yrði sviptur forrétt- indunum. Mongólska lýðræðisbandalagið, aem Zorig er í forystu fyfir, hefur Hef undir höndum upplýsing- ar um valdaránsáform Stasi segir þingmaður á vestur-þýska þinginu í samtali við Bild VESTUR-þýski stjórnmálamaðurinn Eduard Lintner, talsmaður þing- flokks kristilegra demókrata og Kristilega sósialsambandsins í mál- efnum Þýskalands, sagði í gær að hann hefði upplýsingar undir höndum um valdaránsáform í Austur-Þýskalandi. Kom þetta fram í samtali við vestur-þýska dagblaðið Bild í gær, sem birtist í blaðinu í dag, þriðjudag. í gærmorgun höfðu ráðamenn í Austur-Þýskalandi vísað frétt Bild þessa efnis á bug. Lintner segir að fyrrum félagar í Stasi hafi hist reglulega til að undirbúa valdarán og hafi þeir vopn undir höndum sem yfirvöldum sé ekki kunnugt um. Við upphaf hringborðsviðræðna stjómar og stjómarandstöðu í Aust- ur-Þýskalandi í gær vísaði Hans Modrow forsætisráðherra á bug fréttum í Bild þess efnis að úrvals- sveitir öryggislögreglunnar (Stasi) og liðsmenn úr hemum undirbyggju nú valdarán. Theodor Hoffmann, vamarmálaráðherra landsins, lét svo ummælt að fréttin væri alger- lega úr'lausu lofti gripin. Hans Modrow hvatti stjórnarand- stöðuna til að setjast í ríkisstjóm í gær, að sögn Reuíers-fréttastof- unnar. Ríkisstjórn Modrows varð fyrir enn einu áfallinu í gær þegar fjármálaráðherra landsins sagði af sér vegna fjármálahneykslis. Ibrahim Böhme, leiðtogi jafnað- armanna í Austur-Þýskalandi, sagði að þjóðstjóm kæmi til greina fram að kosningunum 6. maí til að að glíma við neyðarástandið í landinu. Best væri að aðilar að hringborðsviðræðunum tækju við stjórn landsins því langar stjórnar- myndunarviðræður gerðu bara illt verra. Jafnaðarmannaflokknum bættist liðsauki um helgina þegar Wolf- gang Berghofer, Dresden, og 39 borgarstjóri í stuðningsmenn hans sögðu sig úr kommúnista- flokki landsins og gengu til liðs við jafnaðarmenn. Berghofer, sem nýt- ur almennra vinsælda í heimalandi sínu, hafði verið nefndur sem hugs- anlegur arftaki Gregors Gysis, formanns kommúnistaflokksins. Berghofer segist ósáttur við að kommúnistaflokkurinn hafi ekki verið leystur upp þjóðinni til góða og til að þess að axla ábyrgð á stalínískri fortíð sinni. Berghofer segist þó ekki ætla að bjóða sig fram fyrir jafnaðarmenn. Flokksforysta kommúnista þing- aði um helgina og ákvað að víkja Egon Krenz og 13 öðrum sam- starfsmönnum Erichs Honeckers, fyrrum leiðtoga landsins, úr flokkn- um. Krenz sem tók við flokksforys- tunni af Honecker mótmælti þess- ari ákvörðun og sagðist hafa af- stýrt blóðugum átökum á sex vikna valdaferli sínum. Austur-Berlín. Reuter. OSKAR Fischer, utanríkisráð- herra Austur-Þýskalands, sagði í gær að loka ætti 18 austur- þýskum sendiráðum og ræðis- mannsskrifstofúm erlendis í sparnaðarskyni. Að sögn Fischers eru 16 af þess- um 18 sendiráðum og ræðismanns- skrifstofum í Þriðjaheims-ríkjum. Heinz-Dieter Winter, aðstoðarut- anríkisráðherra Austur-Þýska- lands, sagði í samtali við dagblaðið Neue Zeit, sem birtist í gær, að einungis yrði lokað skrifstofum í ríkjum þar sem stjórnmálaleg sam- skipti væru lítil. Starfsmaður sendiráðs Austur- Þýskalands á íslandi sem leitað var til í gær hafði ekki heyrt um þessa ákvörðun og í pósti sem barst til sendiráðsins í gær var ekki minnst á hana. Borgarstjóri Washington hyg’g’st leita sér lækninga Washington. Reuter. MARION Barry, borgarstjóri Washington, höfúðborgar Bandarikjanna, lýsti yfir því á sunnudag að hann hygðist leita sér lækninga en Barry var handtekinn á fimmtudag, grunaður um fikniefnamisfcrli. Barry staðfesti ekki að hann hefði neytt eiturlyfja og lét ekkert uppi um hvort hann hygðist segja af sér borgarstjóraembættinu. Reut«r Marion Barry, borgarstjóri Washington, heldur í hönd konu sinnar, Effi, skömmu eftir að hann hafði lýst yfir því að hugur hans væri sjúkur sem og líkami hans og sál og því hefði hann afráðið að leita sér lækninga. Barry lét þessi orð falla í kirkju einni í borginni á sunnudag. Hann sagðist hafa afráðið að leita sér lækninga og kvað huga sinn sjúkan sem og sálu sína og líkama. Hefði hann ákveðið að horfast í augu við mannlegan veikleika sinn. Hann minntist hins vegar ekki á hvort rót þeirra meinsemda sem hann htjáðu væri neysla eiturlyfja. Barry sagði m.a. í ávarpi sínu að hann hefði eink- um beint kröftum sínum að því að hjálpa öðrum og ekki hugsað nóg um sjálfan sig. í gærkvöldi barst síðan sú frétt að Barry hefði haldið í meðferð fyrr um daginn. Barry var handtekinn á hóteli í vafasömu hverfi í Washington seint á fimmtudagskvöld að staðartíma. Talsmaður ákæruvaldsins sagði að tekið hefði verið upp á myndband er borgarstjórinn keypti eiturlyfið hættulega „krakk“ af dulbúnum starfsmanni alríkislögreglunnar, FBI og þá hefði það einnig verið fest á band er hann neytti eitursins. Hartford Brookings biskup í Was- hington sagði fréttamönnum að borgarstjórinn hefði tjáð sér að hann hygðist leita sér lækninga því hann væri háður áfengi og eiturlyfjum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.