Morgunblaðið - 23.01.1990, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 23.01.1990, Qupperneq 29
MORGÚNBLAÐIÐ VIÐSKIPTIAIVINNUIÍF ÞRIÐJUDAGÚR 23.i JANÚAR 1990 29 Efnahagsmál Gengislækkun krónunnar óhjákvæmileg á þessu ári — að mati breska ráðgjafarfyrirtækisins Corporate Treasury Consultants sem sent hefur frá sér álit um stöðu krónunnar Peningamál Þróun út- og inn- \ánn í betrajafhvægl SAMDRÁTTUR í efnahagslífiuu, erfiðleikar í sjávarútvegi g til- tölulega mikil verðbólga veldur því að áfram verður þrýst á um gengislækkun krónunnar. Þetta er mat breska ráðgjafarfyrirtæk- isins Corporate Treasury Con- sultants sem sendir reglulega frá sér mat á stöðu einstakra gjald- miðla. í nýlegri umfjöllun fyrir- tækisins um stöðu íslensku krón- unnar er bent á að samkeppnis- staða atvinnuveganna hér á landi hafi batnað til muna á árinu 1989. Gengislækkun krónunnar sé hins vegar óhjákvæmileg á árinu 1990 en hún verði mun minni en á árinu 1989. Corporate Treasury Consultants telur að vegna efnahagsástandsins muni raunvextir halda áfram að lækka á fyrri hluta þessa árs en áhrif gengislækkana á verðlag geti leitt til nafnvaxtahækkunar í skam- man tíma. Nafnvextir muni hins vegar lækka aftur um mitt árið. Varðandi stöðu efnahagsmála hér á iandi er bent á að verg lands- framleiðsla hafi dregist saman um nálægt 2,8% á síðasta ári vegna samsvarandi minni einkaneyslu og fjárfestingar. Vegna aukins at- vinnuleysis og minni kaupmáttar megi búast við frekari samdrætti á árinu 1990. Samdráttur í fjárfest- ingu verði viðvarandi en eygja megi uppsveiflu í lok ársins. Reiknað er með áframhaldandi samdrætti í þjóðarframleiðslu á þessu ári en að hann verði nokkru minni en verið hefur. Þá er því spáð að verðbólga verði 18-20% á þessu ári og að kaup- máttur muni halda áfram að minnka. Möguléiki sé á frekari lækkun raunvaxta á fyrri helmingi ársins en seinna á árinu megi búast við að þensla vegna fjárlagahallans og aukin eftirspurn valdi lítilháttar hækkun raunvaxta. Vegna minni verðbólgu muni nafnvextir ekki hækka. INNLÁN hjá innlánsstofnununi jukust samtals um 26,9% á síðasta ári eða 23,2 milljarða samkvæmt bráðabirgðatölum Seðlabankans. Útlán jukust um 21,8% eða 20,9 milljarða. Að meðtöldu erlendu endurlánuðu Iánsfé jukust útlán um 23,8% eða 29 milljarða. Til saman- burðar má neftia að innlán juk- ust um 24,3% á árinu 1988. Útl- án jukust þá um 31,2% en að meðtöldum erlendum endurlán- um varð aukningin 34,5%. Af þessum tölum má því ráða að betra samræmi var milli vaxtar útlána og innlána á síðasta ári en var árið áður. Innlán í árslok __ voru samtals 109,4 milljarðar. Útlán að með- töldu endurlánuðu erlendu lánsfé voru 150,9 milljarðar en að þvi frátöldu var staðan í árslok 116,4 milljarðar. Auk innlána hafa innlánsstofn- anir aflað verulegs ráðstöfunarfjár með útgáfu bankabréfa. Útistand- andi verðbréf sem útgefin voru af bönkum, sparisjóðum og veðdeild- um þeirra voru um síðustu áramót 12.702 milljónir. í ársbyijun var þessi tala 8.865 milljónir þannig að aukningin er 3.837 milljónir. Rétt er að benda á að hluti af þeirri aukningu er uppfærsla vegna verðbólgu. Samkvæmt nýlegri skýrslu frá Seðlabankanum var betra jafnvægi í peningamálum á síðasta ári en um nokkurt skeið þar sem þróun inn- og útlána var í betra samræmi innbyrðis og gagnvart tekju- og verðlagsbreytingum. Mikil aukn- ing innlána og verðbréfaútgáfu umfram vöxt útlána hefur endur- speglast í bættri lausafjárstöðu innlánsstofnana sem er um þessar mundir óvenjulega góð miðað við árstíma. Að mati Seðlabankans eru þó einhver merki um þensla sé að fara í gang nema brugðist sé við.' Eitt merki um það er meiri útlána- aukning á síðustu mánuðum ársins en næstu mánuði á undan. Markaðsmál Norrænir markaðsdagar PÓSTSTJÓRNIRNAR fimm á Norðurlöndum eftia 1. og 2. febrúar nk. í fyrsta sinn til Norr- ænna markaðsdaga, sem haldnir verða í Stokkhólmi. Með þessu sameiginlega framtaki vilja póst- stjórnirnar finna nýja farvegi fyrir markaðssetningu á Norð- urlöndum og leggja sitt af mörk- um til að Norðurlönd verði eitt markaðssvæði, en markviss markaðssetning er forsenda þess að fyrirtæki geti haslað sér völl á samnorrænum markaði. Slíku samstarfi verður haldið áfram og verða Norrænir markaðs- dagar framvegis haldnir til skipt- is í höfúðborgum Norðurland- anna á tveggja ára fresti. Á Norrænum markaðsdögum verður hvort tveggja, sýning og námstefna, þar sem meira en 65 viðurkenndir aðilar kynna nýjar hugmyndir um markaðssetningu og greina frá framvindu mála víða um lönd á því sviði. Meðal leiðbeinenda ' eru ýmsir sérfræðingar, auk þess sem ýmsir auglýsinga- og markaðs- menn skýra frá reynslu sinni og árangri og spá fyrir um þróun mála á næstu árum. Meðal fyrirles- ara er Ólafur Stephensen, en hann mun segja frá markaðssetningu á íslensku vodka í Bandaríkjunum. Kynntar verða nýjungar hvað varðar tölvuunnar auglýsingar og veittar upplýsingar um nám á sviði beinnar markaðssetningar. Síðast en ekki síst verða sýnd verk þeirra auglýsinga- og markaðsstofa, sem hafa komist í úrslit í samkeppninni um Gullstimpilinn, verðlaun sem verða veitt fyrir árangursríka sölu- og auglýsingaherferð á sviði beinn- ar markaðssetningar á Norðurlönd- unum. Þátttaka tilkynnist til markaðs- eða póstmáladeilar Pósts & síma fyrir 25. janúar nk., þar sem enn- fremur fást nánari upplýsingar. DETTU I LUKKUPOTTINN! SKYNDISALA VEGNA HAGSTÆÐRA SAMNINGA - ALLT AD 50% AFSLÁTTUR Á VATNSRÚMUM! Vegna hagstæðra samninga verður stórkostleg skyndisala - meðan birgðir endast. Þetta ereinstakt tækifæri, sem býðst vart aftur í bráð, til að eignast vatnsrúm fyrir Ittið. Eingöngu rúm með hitastillan- legum dýnum - og gott úrval af þeim. Dæmi um verð og afslættl: Verð áður: Verð nú: 118.770,- 59.395,- 72.695,- 58.160,- 99.500,- 49.750,- Það er vissara að hafa hraðann á. Fyrstir koma - fyrstir fá. <7- Vatnsrum hf SKEIFUNNI 11 ■ SlMI 688466

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.