Morgunblaðið - 23.01.1990, Side 34
34
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 1990
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl) f?*$
Þér veitist létt að tjá skoðanir
þínar í dag, en sumum þeirra sem
þú umgengst hættir til að ýkja.
Taktu með fyrirvara því sem þér
berst til eyma. Reiddu þig aðeins
á heilbrigða skynsemi.
Naut
(20. apríl - 20. maí) M.
Annað hvort ykkar hjóna eyðir
of miklu fé í dag. Reyndu að forð-
ast óhófseyðslu. Einbeittu þér að
því að koma fjármálum þínum á
heilbrigðan grundvöll.
Tviburar
(21. maí - 20. júní)
Ef þú beitir þér of harkalega
núna gæti það sett einhvem út
af laginu. Þetta er ekki rétti
tíminn til að ýta fast á eftir mál-
um eða vera of kröfuharður.
Veittu öðru fólki svigrúm til að
sýna hvað í því býr.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí) HIS
Þú ert afkastamikill fyrri hluta
dags, en slakar á síðdegis.
Reyndu að hafa betra jafnvægi
á því hvemig þú notar tímann,
starfsorku þína og hæfileika.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Vinur sem er uppi í skýjunum
eins og stendur getur reynt svo-
lítið á þolrifin í þér. Þú ættir að
skemmta þér og sinna frístunda-
málunum. Rómantíkin er einnig
innan seilingar.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) éi
Sinntu verkefnum sem biða úr-
lausnar heima fyrir. Vertu raun-
sær. Haltu þig frá öllu glæfra-
spili eða með öðrum orðum: Láttu
hagsýnina ráða ferðinni.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Þú ert ákveðnari en venjulega.
Þú kannt að eiga við einhvern
sem á erfitt með að taka ákvörð-
un. Sýndu þolinmæði.
Sporödreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Þér geta áskotnast peningar í
dag, en þeir geta jafnframt horf-
ið samdægurs. Forðastu óhóflega
eyðslu og karpaðu ekki um pen-
inga við annað fólk.
Bogmaóur
(22. nóv. - 21. desember) m
Þú ert mikill fyrir þér.og fullyrð-
ingasamur núna. Þú verður að
gæta að þér ef þú óskar þess að
aðrir fylgi þér að málum. Einhver
lofar þér meiru en hann getur
staðið við.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar) **
Þér lætur best að vinna á bak
við tjöldin. Nú verður þú að
treysta á sjálfan þig og láta hend-
ur standa fram úr ermum ef þú
ætlar að koma einhveiju fram.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febi-úar) ðh
Þú hittir gamla vini. Forðastu
karp. Ýtni getur komið illa við
þig. Vertu hófsamur í selskapslíf-
inu.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Þú finnur hvöt hjá þér til að ná
árangri og ættir að fylgja því
eftir með atorku. Þú lætur eitt-
hvað sitja á hakanum heima við.
AFMÆLISBARNIÐ nýtur þess
að vera önnum kafið. Það hefur
góða athyglisgáfu og er ævinlega
að virða fyrir sér mannlífið. Það
hefur glöggan skilning á mann-
legu eðli og yrði því frábær ráð-
gjafi eða sálfræðingur. Það er
frumlegt og djarft og hneigist oft
til starfa við skriftir e<"a ieiklist.
Því verður að lærast að fylgja
málum eftir. Oft byijar það
frísklega á einhveiju verkefni, en
verður síðan óþolinmæðinni að
bráð ef árangur lætur á sér
standa.
Stjörnuspána á a<) tesa sem
dœgradvöl. Sþár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
visindalegra staóreynda.
GRETTIR
FERDINAND
i. 1I1
*
SMÁFÓLK
HEV, MANA6ER, I TH0U6HT
IT MI6HTINCREA5E ATTENPANCE
IF WE HAP A '"MA5KEP
marvel" on our team..
I can see tme
"MA5KER" BUT UUHAT
AB0UT THE "MARVEL"?.1
r^r
Heyrðu stjóri, ég hélt að það
gæti aukið aðsóknina ef við hefð-
um grímbúið undur í liðinu.
Ég sé grímuna en hvar er
undrið?
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Ekki er langt síðan rætt var
um „sniðglímu“ í þessum dálki;
þá spilamennsku að halda
hættulega mótheijanum úti í
kuldanum. Hér er fallegt dæmi:
Vestur gefur; allir á hættu.
Norður
♦ ÁK108
VKD952
♦ K42
♦ 2
Vestur Austur
♦ 5 4G9763
¥ÁG V 10864
♦ D9873 ♦ G10
♦ ÁK1097 ♦ 65
Suður
♦ D42
V73
♦ Á65
+ DG843
Vestur Norður Austur Suður
1 tígull 1 hjarta Pass 1 grand
Pass 2 spaðar Pass 2 grönd
Pass Pass 3 grönd Pass Pass
Útspil: lauftía.
Suður tekur fyrsta slaginn á
drottninguna heima og spilar
strax hjarta, gosinn frá vestri.
Það er á þessu andartaki sem
örlög samningsins ráðast. Sjáum
hvað gerist ef suður drepur á
drottningu blinds. Hann fer heim
á spaða og spilar hjarta aftur.
Vestur skilar tígli og þegar
hjartað brotnar 4-2 er engin leið
að sækja níu slagi — vörnin verð-
ur fyrri til að ná í fimm, þar eð
austur kemst inn á hjartatíu til
að spila laufi.
Lausnin er auðvitað sú að
dúkka hjartagosann og gefa
vestri tvo slagi á hjarta.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á stórmótinu í Reggio Emilia
á Ítalíu um áramótin kom þessi
staða upp í skák þeirra Kirils
Georgievs (2.590), Búlgaríu, sem
hafði hvítt og átti leik, og Ana-
tolíjs Karpovs (2.755), Sovétríkj-
um. Tveir hrókar eru yfirleitt
nokkru betri en drottning og Búlg-
arinn á því undir högg að sækja,
en hann tryggði sér jafntefli með
laglegum leik:
53. g6! (Hugmyndin er sú að eft-
ir 53. — fxg6 54. Dxg6-I— Hxg6
er hvítur patt!) 53. — HÍTi 54. De5
og hér var samið jafntefli, því
eftir 54. — fxg6 55. De7+ þrá-
skákar hvítur.