Morgunblaðið - 03.03.1990, Side 11
M0RGUNBL4ÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MARZ 1990
11
tH—
Blýantur og dúkrista
Myndlist
BragiÁsgeirsson
í Ásmundarsal getur að líta
ýmsar tilraunir ungrar listspíru
til að fóta sig á vettvangi listar-
innar.
Er hér um fyrstu svningu Hös-
kuldar Harra Gylfasonar að ræða
og stendur hún einungis fram að
vikulokum.
Höskuldur Harri lauk námi úr
grafíkdeild MHÍ, og stundaði
einnig um skeið nám í málunar-
deild, en myndirnar á sýningunni
eru afrakstur sjálfstæðrar vinnu,
eftir að hann hætti námi við
skólann.
Það er vafalítið rétti hátturinn
að nota listaskóla sem miðil til
að auka sem mest við alhliða
þroska sinn á listasviði og leggja
svo allan kraft í frjálsa listsköpun
er námi lýkur.
Þetta virðist Höskuldur Harri
hafa gert sér ljóst, enda sýnist
mér hann hafa tekið hlutina
fastari tökum utan skóla en inn-
an.
Að vísu er hann á margskiptu
tæknisviði og eðlilega dreifast þá
kraftamir. Á sýningunni eru
þannig allt í senn olíumálverk,
blýantsriss, myndir unnar í trélit,
túski og svo dúkristur.
Málverkin verða að teljast
veigamest á sýningunni, og í þeim
kemur fram viss litræn kennd á
umbúðum, sem um margt minnir
á nýbylgjumálverkið. En styrkur
Höskuldar virðist enn sem komið
er einna helst felast í blýantsriss-
unum og dúkristunum, og hefði
maður gjaman óskað þess, að öll
Höskuldur Harri Gylfason
sýningin væri undirlögð þeim til-
þrifum sem þar koma fram.
Það er kíminn og hreinn tónn,
sem er aðal þessara mynda og
skurðurinn í dúkristunum ein-
kennist af tilfinningu fyrir tækn-
inni og viðfangsefninu. Þó saknar
maður þess, að gerandinn skuli
ekki vinna sínar bestu myndir
gagngerðar í stærra formi.
Og hvað blýantsrissin tvö
snertir, er þeirra listræna vægi
öllu meiri að mínum dómi en allra
samanlagðra pennateikninganna.
Það verður fljótlega ljóst við
skoðun sýningarinnar, að mikið
og ónumið land virðist blasa við
hinum unga manni á vettvangi
þessa tveggja tæknisviða og ber
að óska þess, að honum takist
að rækta sinn garð með miklum
ágætum.
£& JOHNSON & WALES
^UNIVERSITY
Hyggur þú ú framhaldsnúm?
Fulltrúi frá Johnson og Wales verður með kynningarfund á
Hótel Holiday Inn, Sigtúni 38, þann 4. mars nk. kl. 15.00
Johnson og Wales er einn af virtustu viðskiptaháskólum Banda-
ríkjanna og býður m.a. upp á nám í eftirtöldum námsgreinum sem
allar teljast lánshæfar hjá LIN:
S
A. S. „HotehRestaurant Management“
B. S. „Hospitality Management“
B.S. „HotehRestaurant/Institutional Management“
B.S. „Travel-Tourism Management“
B.S. „Retail Mercandise Management“
M.S. „Hospitality Administration“
Æ JOHNSON &WALES
^ UIMIVERSITY
Providence, Rhode Island, USA
GALLERÍ BORG-Grafík og LISTINN, innrömmimarverkstæði
(áður til húsa í Brautarholti 16) opna sameiginlega nýtt, glæsi-
legt húsnæði að Síðumúla 32 í dag kl. 14.
Gallerí Borg - Grafík sýnir þar og selur grafíkverk, pastel- og
vatnslitamyndir í úrvali eftir landsþekkta listamenn.
LISTINN, innrömmunarverkstæði rammar inn allar gerðir mynda,
stórar sem smáar, einar sér og heilu sýningamar. Álrammar og trérammar í
miklu úrvali. Vönduð þjónusta.
í tilefiii opnunarinnar bjóðum við viðskiptavinum okkar og öðmm vinum að heim-
sækja okkur í dag milli kl. 14 og 16 og þiggja léttar veitingar.
Iistinn hf.
INNRÖMMUN
Sími 67 9025
Gerið svo veí, reynið viðskiptin í Síðumúla 32.
BORG
Sími67 9065