Morgunblaðið - 03.03.1990, Page 21

Morgunblaðið - 03.03.1990, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MARZ 1990 21 Panamaforseti sveltir um tíma Panamaborg. Reuter. GUILLERMO Endara, forseti Panama, hóf ótímabundið hungursvelti í gær til þess að sýna samstöðu með fátæku fólki í landinu. Skýrði hann frá þessu á þingi í íyrradag er þing var kvatt saman í fyrsta sinn stjórnarbyltinguna í desember sl. Endara sagði að Panama þyrfti Bandaríkjastjórn hafði samþykkt á skjótri erlendri aðstoð að halda að veita Panama efnahagsaðstoð til þess að reisa við efnahag lands- að upphæð einn milljarður dollara, ins. Neitaði hann því að hungur- jafnvirði 60 milljarða ísl. króna, en svelti sitt stæði í sambandi við taf- þingið hefur ekki afgreitt það mál ir sem orðið hafa á því að Panama að öllu leyti. bærist bandarísk aðstoð. Endara hyggst dvelja í dómkirkj- unni í Panamaborg meðan á fös- tunni stendur. Reuter Listin metin Listfenginn maður virðir fyrir sér frummynd af Jóhannesi skírara eft- ir Caravaggio í í Capitoline-sfninu í rómaborg. Til hægri er eftirlíking en í rúm tvö hundruð ár höfðu sérfræðingar árangurslaust brotið heil- an um hvor myndanna væri frumgerðin. Sú gáta leystist ekki fyrr en nú nýverið og þá með hjálp háþróaðra tölvutækja. Grænland: 107 hrefti- ur og21 langreyður Grænlenska hvalveiðikvótanum fyrir þetta ár hefur nú verið skipt upp á milli sveitarfélaganna en um er að ræða 107 hrefhur og 21 langreyði. Við skiptingu kvótans að þessu sinni var tekið tillit til íbúafjölda, fjölda báta, sem búnir eru til hval- veiða, og til atvinnuástandsins al- mennt á hveijum stað. Áð öðru leyti er skiptingin þannig, að 95 hrefnur og allar langreyðamar koma í hlut Vestur-Grænlendinga en Austur- Grænlendingar fá 12 hrefnur. Austur-Þýskaland: Reagan í kosninga- slaginn Austur-Bcrlín. Reuter. RONALD Reagan, fyrrum Banda- ríkjaforseti, ætlar að taka þátt í kosningabaráttunni í Austur- Þýskalandi að sögn austur-þýsku fréttastofúnnar ADN. Reagan ætlar að koma fram á kosningafundi Sambands frjálsra demókrata, bandalags þriggja aust- ur-þýskra miðflokka sem stofnað var fyrir nokkrum vikum. Fundurinn verður haldinn 16. mars næstkom- andi, tveimur dögum fyrir þing- kosningarnar í landinu. Að sögn ADN bað Reagan, sem er 79 ára gamall, sérstaklega um að fá að ávarpa fundinn. DagarGandhi sem foringja senn taldir? Nýju Dehlí. Reuter. DAGAR Rajivs Gandhi, fyrrum forsætisráðherra, sem leiðtogi Kongressflokksins verða líklega senn taldir. Flokkurinn galt af- hroð í kosningum í átta ríkjum og þykja úrslitin í Bíhar í norður- hluta landsins sýnu verst. Vestrænir stjórnarerindrekar töldu miklar líkur á því í gær að lagt yrði að Gandhi að láta af for- mennsku í Kongressflokknum vegna hrakfara flokksins í kosn- ingnuum til ríkisþinganna. Tapaði hann meirihluta í sex ríkjum af átta, hélt velli í smáríkinu Arunac- hal Pradesh og í flokksvíginu Ma- harasthra, en þar marði flokkurinn sigur. Talningu atkvæða var ekki að fullu lokið í gær en í Bíhar var þó ljóst að Kongressflokkurinn fengi ekki nema helming þess sætafjölda sem hindúaflokkurinn Janata Dal myndi hljóta. Ríkið er eitt hið fá- tækasta og fjölmennasta á Indlandi. Kosið var um 1.615 sæti í kosn- ingunum og voru 1.392 þeirra ráðin í gær. Hafði Janata-flokkurinn unn- ið 472 þeirra, Janata Dal, fiokkur Vishanaths Prataps Singhs forsæt- isráðherra 377 og Kongress-flökk- urinn 349. Fréttaskýrendur töldu líklegt í gær að Janataflokkurinn myndi notfæra sér góða útkomu í kosningunum til þess að reyna að hafa meiri áhrif á stefnu minni- hlutastjórnar Singhs. Kosningarnar einkenndust af of- beldi og biðu a.m.k. 90 manns bana er fylkingum stuðningsmanna frambjóðenda laust saman. Hörðust urðu átökin á kjörstöðum er flokkar manna reyndu að ryðjasat þar inn og troða sviknum atkvæðaseðlum ofan í kjörkassa. Aires 5 Nýi heimurinn heillar: PERLUR S-AMERÍKU UM PÁSKA Þrjú lönd - þrjár heillandi heimsborgir - Argentína - Brasilía 6. - 20. apríl - hægt að framlengja FERÐIN BÝÐUR EINSTAKT TÆKIFÆRITIL AÐ KYNN- AST MERKUSTU BORGUM SUÐUR-AMERÍKU í einni og sömu ferðinni á besta árstíma og nýta tímann til fulls. Flugleiðirnar innan S-Ameríku eru stuttar, svo að ferðin verður ekki erfið. Vegna sérstakra tilboða um flug og gist- ingu tókst að gera ferðina með ólíkindum ódýra, þótt búið sé á lúxusgististöðum. Þar hefur einnig notið við reynslu og kunnáttu Ingólfs Guðbrandssonar, en skipulag og stjórnun ferðarinnar er í hans höndum. TILHÖGUN: SANTIAGO 6. apríl - flug um London beint til Ríó de Janeiro og áfram til Santiago í Chile, sem er eitt náttúrufeg- ursta land heimsins og þróaðast af öllum löndum Suður-Ameríku. Dvalist 3 daga í Santiago, sem kemur á óvart með glæsilegum byggingum, fögrum görðum og minnismerkjum. Gist á Crowne Plaza. Ferð til Valparaiso og Vina del Mar. BUENOS AIRES í Buenos Aires er gist á hinu fræga Plaza hóteli í hjarta mestu menningarborgar á suðurhveli jarðar með glæsilegar byggingar, tísku, og listalíf að ógleymdum t a n g o - tákni lífstjáningar borgarbúa. Auk kynnisferðar um borgina verður farið á argentínskan búgarð. IGUAZU-FOSSAR Flogið til Iguazu, stærstu fossa heimsins á landamærum Argentinu, Paraguy og Brasilíu. Eitt mesta náttúruundur heimsins í miðjum þjóðgarði með hitabeltisgróðri. Gist á 5 stjörnu Hótel Bourbon. RÍÓ DE JANEIRO Á laugardag fyrir páska er komið til glað- ^ r værustu borgar heims og að margra dómi hinnar fegurstu og páskar haldnir í Ríó. Gist á nýjasta lúxushótelinu - Ríó Atlantica - á miðri Copacabana. SSSS'" AUSTURSTRÍT, ,7. ,0, REYKJAVÍK , SlMI: (9„ 622 01. 5 62 22 » Hægt að framlengja ferðina í Brasilíu og/eða London líftRI á heimleið. ln9ÓIÍUr,aröináogiSdur kyn^mSniyndasýningu.' NríHEIMUmNNSOO s 'íArstHak, 16.00. TnnnnX^umn°rðUrdyr'

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.