Morgunblaðið - 03.03.1990, Page 22

Morgunblaðið - 03.03.1990, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MARZ 1990 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MARZ 1990 23 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, ÁrniJörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ÁgústlngiJónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift- argjald 1000 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 90 kr. eintakið. Aflamiðlun á hrakhólum Allri skömmtunarstjóm fylgir mikið vald, enda kemur oft til átaka milli hinna ólíklegustu aðila og um hin ólíklegustu mál, þegar slík stjóm er til umræðu. Þessu höfum við kynnst undanfarna daga og vikur í umræðum um svokallaða aflamiðlun, en með henni er vísað til þess, hvem- ig háttað skuli stjórn á sölu fisks á markaði í útlöndum, fisks sem ekki hefur verið unninn hér á landi. Ástæðumar fyrir því að þessi miðlun er starfrækt em þær, að mönnum fínnst reynslan hafa sýnt, að óheftur útflutningur á óunnum fiski, hvort heldur með veiðiskipum eða í gámum, leiddi í senn til verðfalls á mörkuðum erlendis og lítillar atvinnu hér. Eðlileg markaðslögmál hafa ekki náð eða ef til vill ekki fengið að þróast á þessu sviði. Á meðan ástandið er þannig er víðtæk samstaða um nauðsyn ein- hvers konar miðstýringar eða aflamiðlunar, þótt hart hafi verið deilt um hver hefði hana með höndum, í hvaða ráðu- neyti hún skyldi vistuð og nú síðast, hvar maðurinn við símann og skrifborðið eigi að hafa aðsetur. Við mat á mikilvægi hags- muna sem em í húfi þegar hart er deilt má oft fylgja þumalputtareglu. Ef deiluaðil- ar takast á um allt, efni máls- ins, form og heimilisfang er oftast mikið í húfí. Stórveldi hafa oft reynt að þreyta hvert annað fyrir viðræður um við- kvæm og vandasöm mál með því að rífast vikum og jafnvel mánuðum saman um það, hvemig fundarborð í viðræðu- salnum skuli vera, hvar menn ættu að sitja við borðið, svo að ekki sé minnst á deilur um fundarstað. Oft er þeim sem ekki eiga beina aðild að milliríkjadeilum nóg boðið og reyna þá að beita þrýstingi til að knýja fram niðurstöðu í þrætum um formsatriði, þannig hefur James Baker, utanríkisráðherra Banda- ríkjanna, nú sagt, að Banda- ríkjastjóm hætti fyrr en síðar að skipta sér af fyrirhugðum friðarviðræðum Israela og araba, ef ísraelsstjóm taki ekki af skarið og sætti sig við leið, sem vitað er, að liggi til slíkra viðræðna. Atvik af þessu tagi af tafl- borði alþjóðastjómmála koma upp í hugann, þegar rætt er um deiluna um aflamiðlunina. Undanfarið hefur útgáfa á útflutningsleyfum verið í höndum utanríkisráðuneytis- ins, ef til vill era það kynni manna þar af alþjóðlegri ref- skák, sem veldur því, hve flóknar leiðir hafa verið valdar að því marki að koma nýrri skipan á skömmtunarstjóm- ina. Líklegra er þó, að þarna sé tekist á um svo mikla hags- muni að jafnt stjómmála- mönnum sem forystumönnum hagmsunaaðila sé óljúft að sjá eftir valdinu í hendur annarra. Skömmtunarstjórn og valda- pólitík eiga ætíð samleið. Nú er hart tekist á um heimilisfang aflamiðlunarinn- ar eins og skýrt var frá á baksíðu Morgunblaðsins í gær, en þar sagði meðal ann- ars: „Morgunblaðið hefur upp- lýsingar um að átökin um það hvar aflamiðlunin verði stað- sett séu hörð: Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Verkamannasambands ís- lands, segir að VMSÍ taki ekki í mál að hún verði til húsa hjá LÍÚ [Landssambandi íslenskra útvegsmanna]. Sjáv- arútvegsráðuneytið hefur boðið fram húsnæði auk LÍÚ, svo og Fiskifélag íslands og Samtök fískvinnslustöðva. Sigurbjörn [Svavarsson, for- maður stjómar aflamiðlunar- innar] kvaðst éiga von á að því að ákvörðun um staðsetn- ingu aflamiðlunarinnar yrði tekin á fundinum á mánu- dag.“ Og enn segir í sömu frétt: „Málið er á viðkvæmu stigi, þar sem talið er að náist ekki sátt um staðsetriinguna muni Verkamannasambandið kalla fulltrúa sinn í stjórninni út. Slík ráðstöfun kallar svo að öllum líkindum á það að utanríkisráðherra afturkalli samþykki sitt.“ Um þessa deilu þarf ekki að hafa fleiri orð. Afíamiðlun- in er á hrakhólum vegna valdsins sem felst í skömmt- unarstjóminni. T Norrænt samstarf á vegamótum eftir Þorstein Pálsson Alla þessa viku hefur þing Norð- urlandaráðs staðið yfir í Reykjavík. Þessi þing Norðurlandaþjóðanna eru æði umfangsmikil enda koma hingað til lands af þessu tilefni um 1.000 manns; þingmenn, ráðherrar, embættismenn, sérfræðingar og blaðamenn. Mörgum fínnst sem umfang þessara þinga sé orðið af mikið og árangurinn ekki í réttu hlutfalli við ræðuhöld, pappírsframleiðslu og veislufagnað af ýmsu tagi sem jafn- an fylgir slíkum viðburðum. Ekkert er eðlilegra en skatt- borgarar velti því fyrir sér hvort forystumenn þjóðanna séu orðnir fastir í einhvetju fari, sem áður skilaði árangri, en sé nú við haldið vegna þess að aldrei megi neinu breyta. Ýmislegt bendir til að nor- rænt samstarf sé nú á tímamótum og því er ástæða til þess að hug- leiða spumingar af þessu tagi. Árangur norrænnar samvinnu Enginn dregur í efa að norrænt samstarf á sér djúpar og sterkar rætur. Þjóðirnar eiga í svo mörgu tilliti sameiginlegan menningararf og þær eru í málsamfélagi ef Finnar eru undanskildir. Þó að hver þjóðanna hafi sín sterku sérkenni hefur þjóðfélags- gerðin á þessari öld mótast með svipuðum hætti. Á það er einnig að líta að á mörgum sviðum gilda sömu meginreglur á stjórnarfari og löggjöf. Samstarfið á vettvangi Norður- landaráðs hefur með mjög ótvíræð- um hætti skilað miklum árangri, ekki síst á sviði menningar- og fé- lagsmála. Það hefur verið okkur til styrktar, sem fámennri, sjálfstæðri þjóð, og við höfum notið góðs af fjölmörgum sameiginlegum verk- efnum, sem ráðist hefur verið í að frumkvæði Norðurlandaráðs. Gagnrýni á veisluhöld á þessum vettvangi stafar fremur af því að menn hafa ekki fundið margt annað til þes’s að gagnrýna í störfum ráðs- ins. Hitt er alvarlegra ef menn fara að efast um frumkvæði og mögu- leika Norðurlandaráðs til þess að takast á við ný verkefni í heimi þeirra miklu breytinga sem við lif- um um þessar mundir. „Grasrótarsamvinna" Það er einnig vert að hafa það hugfast að Norðurlandasamstarfið byggir á miklu víðtækari samvinnu en á sér stað á vettvangi þing- mannasamkomu eins og Norður- landaráðið er eða ráðherranefnda og embættismannastarfshópa. Sé einhvers staðar hægt að tala um „grasrótarsamvinnu", þá er það veruleiki á Norðurlöndum. Það er tæplega hægt að nefna nokkur fé- lög, samtök eða stofnanir sem ekki eru þátttakendur í norrænu sam- starfi af einhveiju tagi. Segja má að þetta sé hinn fijósami akur nor- ræns samstarfs og hann þarfnast ekki pólitískra eftirlitsmanna. En þau nýju verkefni sem nú blasa við eru mörg hver þess eðlis að þau verða ekki leyst innan landa- mæra Norðurlandanna. Þau krefj- a’kt miklu víðtækari alþjóðlegrar samvinnu. Það er ekki síst í þessu ljósi sem nauðsyn endurskoðunar á störfum Norðurlandaráðs er nauð- synleg og óhjákvæmileg. Þar mega gamlar venjur og hefðir ekki útiloka breytingar sem nauðsynlegar eru í ljósi nýrra aðstæðna. Nauðsyn víðtækari samvinnu Á undanförnum þingum Norður- landaráðs hafa farið fram miklu meiri umræður um alþjóðamál en áður. Fyrrum voru slíkar umræður algerlega forboðinn ávöxtur. En þessar umræður hafa ekki leitt í ljós að ný alþjóðleg viðfangsefni verði leyst á vettvangi lýorðurlanda- ráðs. Þvert á móti hafa þær skýrt að ný viðfangsefni á þessu sviði kalla á víðtækara alþjóðlegt sam- starf. Hér má til að mynda nefna verk- efni á sviði umhverfismála. Að vísu er það svo að Norðurlöndin sjálf geta hvert fyrir sig og í samvinnu sín á milli tekið höndum saman um mörg mikilvæg verkefni. Stofnun sérstaks verkefnasjóðs í þessu skyni er ótvírætt merki um árangur í starfi ráðsins og um leið er hann viðleitni til þess að tengja verkefni á sviði umhverfismála við lönd utan Norðurlandanna. Á hinn bóginn má ljóst vera að Norðurlandaþjóð- Þorsteinn Pálsson „Þessi hljóðláta bylting hefur skapað nýja Evr- ópumynd. Norður- landaráð má ekki daga uppi sem nátttröll gagnvart þessum nýju breytingum eins og Al- þýðubandalagið hefur gert hér heima.“ irnar þurfa að leita miklu víðtækari alþjóðlegrar samvinnu ef þau ætla að vera virkir þátttakendur í að- gerðum til þess að stemma stigu við mengun. Hún gerir engan grein- armun á landamærum eða lögsögu- mörkum landhelgi og lofthelgi. Þá má nefna í þessu sambandi að Norðurlandaþjóðunum hefur ekki tekist að koma á virku efna- hagsbandalagi. Rétt er að hafa í huga að mikilvægustu markaðs- hagsmunir Norðurlandaþjóðanna- eru á öðrum markaðssvæðum. Eðli- legt er því, út frá þessu augljósu hagsmunum, að menn leiti lausna á þessu sviði í víðtæku, alþjóðlegu samhengi. Fjórar Norðurlandaþjóðanna eru aðilar að EFTA en Danir á hinn bóginn aðilar að Evrópubandalag- inu. Nú standa fýrir dyrum samn- ingaviðræður um sameiginlegt efnahagssvæði EFTA og Evrópu- bandalagsins. Markmiðið með þeim viðræðum er að tengja ríki EFTA við löggjöf Evrópubandalagsins um innri markað. Með því móti á að ryðja úr vegi hindrunum í viðskipt- um með vörur, þjónustu og fjár- magn. Vonandi leiða þessar viðræður fljótlega til niðurstöðu. En eins og sakir standa verður auðvitað ekkert fullyrt um að lausn fáist á þeim grundvelli sem rætt hefur verið um að undanförnu. Hugsanleg aðild Austurríkis að Evrópubandalaginu, sem nú er líklegri en áður var tal- ið, getur breytt miklu um stöðu EFTA. Þörf á nýjum vettvangi Ljóst er að Norðurlandaþjóðirnar þurfa að byggja upp vettvang fyrir pólitískt samráð og ákvarðanir í tengslum við þetta nýja efnahags- svæði sem nú er stefnt að. En það væri tvíverknaður að hafa slíkan vettvang bæði innan Norðurlanda- ráðs 'og innan þessa nýja efnahags- svæðis. Takist menn ekki á við verkefna- vanda og skipulagsvanda af þessu tagi er hætt við að fljótlega flæði undan Norðurlandaráði og það njóti ekki þeirrar virðingar og þess trún- aðar sem nauðsynlegur er. Þess vegna er nú rétti tíminn til þess að fjalla um breytingar á skipan og hlutverki Norðurlandaráðs sem augljóslega stendur á krossgötum. Einnig er ástæða til þess að sýna skattgreiðendum á Norðurlöndum meiri tillitssemi með því að kostnað- arreikna fyrirfram hugmyndir og tillögur um öll þau nýju, góðu verk- efni sem menn vilja hrinda í fram- kvæmd á þessum vettvangi. Það er eðlileg og sjálfsögð krafa með því að öll löndin standa frammi fyrir þeim vanda að ofvöxtur hefur hlaupið í ríkisumsvifin. Ný Evrópumynd Breytingarnar í Austur-Evrópu sýna einnig að viðfangsefni á sviði varnar- og öryggismála munu hér eftir sem hingað til byggjast á víðtækari samvinnu en getur átt sér stað innan Norðurlandaráðs. Sósíal- isminn er búinn að vera og ekki er ólíklegt að við fáum belti hlutlausra ríkja allt frá Svartahafi til Eystra- salts; ríkja sem leita nú að markaðs- lausnum í stað sósíalisma. Þessi hljóðláta bylting hefur skapað nýja Evrópumynd. Norðurlandaráð má ekki daga uppi sem nátttröll gagn- vart þessum nýju breytingum eins og Alþýðubandalagið hefur gert hér heima. Athygli hefur nýlega verið vakin á ræðu sem Svavar Gestsson, menntamálaráðherra, flutti á fundi róttæklinga fyrir tæpu ári og ný- lega var birt í tímaritinu Rétti. Svavar Gestsson sagði í þessari ræðu að stundum fyndist sér barátt- an fyrir sósíalismanum aðallega fara fram á stöðum eins og Afríku eða Nicaragua, en þangað kvaðst hann ætla að fara og beijast með félögum sínum strax og hann hefði tíma til. Aðeins ári seinna hefur fólkið í Nicaragua hrundið af sér sósíalism- anum í fijálsum kosningum. Svavar Gestsson fer þó vonandi sem fyrst til Nigaragua til þess að beijast hinni vonlausu baráttu fyrir sósíal- ismanum. En við kjósum ekki Norð- urlandaráði slík örlög. Höfiwdur er formaður Sjálfstæðisflokksins. Reglugerð firá sjávarútvegsráðuneytinu; Utflutning-ur á flöttum fiski aðeins heimill með flugi SJÁVARÚTVEGSRÁÐUNEYTIÐ heftir sett reglugerð, sem bannar út- flutning á flöttum, flökuðum eða hausuðum físki nema með flugi. I frétt frá ráðuneytinu segir að meginástæðan fyrir setningu reglugerðarinnar sé að koma í veg fyrir að fískur frá íslandi sé fluttur utan þannig frá- genginn til flutnings, að hann skemmist eða rýrni mjög að gæðum á leið á markað. Fyrsta grein reglugerðarinnar er svohljóðandi: „ÓheimUt er að hausa, fletja eða flaka fisk nema hann fari tafarlaust til frekari verkun- ar. Þannig unninn físk er þó heimilt að selja ferskan á markað innan lands og flytja með flugvél til sölu á erlendan markað.“ í greinargerð ráðuneytisins með reglugerðinni segir svo: „Undanfarið hefur færzt í vöxt að ferskur flattur fiskur hafi verið fluttur utan með skipum til frekari vinnslu. Flutning- urinn tekur marga sólarhringa og á leiðinni skemmist flattur fiskur mun hraðar en heill og óopnaður fiskur. Hætt er við að fiskur, sem hlotið hefur þessa meðferð, skaði það álit, sem íslenzkar sjávarafurðir njóta erlendis. Ráðuneytið óskaði eftir því við Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins og Ríkismat sjávarafurða að stofnan- irnar gæfu faglega umsögn um áhrif þessarar meðferðar á gæði afurð- anna. í áliti Rannsóknarstofnunar fiskiðnaðarins kemur meðal annars fram að tilraunir sýna að flattur eða flakaður fiskur geymist talsvert skemur en heill fiskur. Við flökun eða flatningu komist rotgerlar með skurðtækjum inn í fiskholdið og flýti fyrir skemmdum. Þá segir í umsögn stofnunarinnar að almenna reglan sé sú, að sem stytztur tími eigi að Sigurður Haraldsson: Saltfískverkendur styðja þessa ákvörðun „SALTFISKVERKENDUR styðja þessa ákvörðum Halldórs Ásgrímsson- ar. Við teljum hann sýna með henni mikla festu og skilning á markaðs- málum. Við verðum að hugsa til framtíðarinnar og getum ekki sætt okkur við vaxandi útflutning á hráefni til vinnslu, sem selt er í sam- keppni við físk unninn á íslandi," segir Sigurður Haraldsson, hjá SÍF. landi og Danmörku. Þá komast menn hjá því að greiða innflutningstolla til EB. Framhald á þessum útflutningi hefði einfaldlega leitt til samdráttar í söltun hér heima og lægra verðs til framleiðenda þegar til lengri tíma er litið, að ekki sé talað um atvinnu fiskverkafólks," sagði Sigurður Har- aldsson. „Sala á þessum fiski hefur spillt venilega fyrir okkur á mörkuðunum. Hann er boðinn til sölu sem íslenzk- ur fiskur, hvort sem hann er pækil- saltaður eða saltaður í öðrum lönd- um. Þessi fiskur hefur ekki verið seldur á hærra verði en fiskurinn frá okkur og stundum lægra, en það er hægt með því að salta hann í Bret- líða frá því fiskur sé flakaður og flatt- ur þar til hann sé lagður í salt, fryst- ur eða unninn á annan hátt. í bréfí stofnunarinnar segir orðrétt: „Að geyma flattan þorsk í marga daga fyrir söltun er fjarri því að vera í samræmi við almennt viðurkennd vinnubrögð í fiskvinnslu.“ Að lokum segir í bréfinu, að stofnunin hafí ekki tölulegar upplýsingar sem sýni hve mikil rýrnun verður þegar salt- fiskur er framleiddur úr fiski, sem geymdur hefur verið flattur í marga daga fyrir söltun. Til að leggja tölu- legt mat á þessa rýrnun þurfí að gera tilraunir er taki nokkra mán- uði. Ráðuneytið hefur óskað eftir því að stofnunin geri þessar tilraunir. Álit Ríkismats sjávarafurða er á sama veg og segir þar, að þessi meðferð á fiski rýri mjög gæði af- urða og bijótf einnig í bága við verk- lagsreglur, sem viðurkenndar eru á alþjóðlegum vettvangi. í bréfi Ríkis- matsins segir orðrétt: „Fiskur, sem hefur verið hausaður eða opnaður, hvort sem er með flökun eða flatn- ingu, skemmist hraðar en heill fisk- ur. Þetta kemur til af því, að í lif- andi fiski eru engir gerlar annars staðar en í meltingarvegi og utan á honum, á roði og tálknum. Þegar fiskur er hausaður, flakaður eða flattur er opnuð leið fyrir gerla, meltingarensím og súrefni að hold- inu. Allt þetta veldur hraðari skemmdum á fiskinum (hann brotnar niður og súmar) en ef hann hefði verið geymdur slægður en í heilu lagi.“ Þá leggur Ríkismatið til í bréf- inu að settar verði reglur sem hindri umrædda meðferð á fiski. Reglugerðinni er ætlað að koma í veg fyrir óþarfa rýrnun á gæðum fisks. Er lagt bann við að fiskur sé hausaður, flattur eða flakaður nema hann fari tafarlaust til vinnslu. Með orðalaginu tafarlaust til vinnslu er átt við að farið sé eftir eðlilegum og viðurkenndum verklagsreglum varð- andi vinnsluhraða. í 2. grein reglu- gerðarinnar er kveðið á um hvað teljist vera ferskur og frystur fiskur. Til að reyna að veija ferskan físk skemmdum hafa útflytjendur brugðizt við með því að léttsalta fisk- inn eða frysta hann lítillega. Með því að frysta fiskinn lítillega er nánast hægt að koma í veg fyrir frekari vöxt örvera og þar með lengja geymsluþolið nokkuð, en jafnframt eiga sér stað breytingar í fískhold- inu, sem rýra neyzluhæfni eða gera fiskinn óneyzluhæfan. Útflytjendur, sem léttsalta fiskinn, hafa flutt hann út sem ferskan fisk. _Það gæti skaðað verzlunarhagsmuni íslendinga ef út- flytjendur yrðu uppvísir að flytja út saltaðan fisk sem ferskan til að kom- ast hjá tollum Evrópubandalagsins. Ráðuneytið lagði reglugerðina fyr- ir Fiskmatsráð, sem skipað er fulltrú- um helztu hagsmunaaðila í sjávarút- vegi. Var reglugerðin til umfjöllunar á tveimur fundum þann 1. og 2. marz 1990. Meirihluti fiskmatsráðs tók undir þau sjónarmið, sem fram komu í umsögnum Rannsóknastofn- unar fiskiðnaðarins og Ríkismats sjávarafurða varðandi meðferð og geymsluþol á ferskum flökum og flöttum fiski. Meirihluti ráðsins mælti með setningu reglugerðarinn- ar. Reglugerðin verður endurskoðuð þegar niðurstöður Rannsóknastofn- unar fískiðnaðarins liggja fyrir.“ Reglugerðin tekur gildi 8. marz 1990, en helztu greinar hennar eru svo hljóðandi: 1. gr. Óheimilt er að hausa, fletja eða flaka fisk nema hann fari tafarlaust til frekari verkunar. Þann- ig unninn fisk er þó heimilt að selja ferskan á markað innan lands og flytja með flugvél til sölu á erlendan markað. 2. gr. Ferskur fískur, er sam- kvæmt reglugerð þessari, fiskur sem enga aðra meðhöndlun hefur hlotið, sem lengir geymsluþol hans, en kæl- ingu. Fiskur telst vera frystur ef hita- stig hans mínus 20 gráður á Celsíus eða lægra. Með verkun er átt við aðgerð er veldur efna- eða eðlis- fræðilegri breytingu á fiskholdinu svo sem með hitameðferð, frystingu, söltun eða þurrkun. 3. gr. Oheimilt er að flytja fisk eða geyma við þannig aðstæður að hitastig hans í geymslu sé á bilinu mínus 1 til mínus 20 gráður á Cels- íus. Jón Ásbjörnsson: Meiriháttar frelsissvipting’ „ÞETTA er meiriháttar frelsissvipting og að auki höfúm við engan tíma fengið til að aðlaga okkur að þessari breytingu. Við höfum fest verulegt fé í sölunarstöð í Bretlandi og gert bindandi samninga um sölu á salt- físki, en fyrirvaralaust er fótunum kiptt undan öllu saman," sagði Jón Ásbjörnsson, framkvæmdasljóri, i samtali við Morgunblaðið. Fyrirtæki Jóns hefúr verið mjög umsvifamikið í útflutningi á flöttum fiski til sölt- unar erlendis. „Ég vil í ljósi setningar þessarar reglugerðar, sem er til að vernda hagsmuni SÍF, meðal annars vísa til samþykktar síðasta aðalfundar SÍF þess efnis að fundurinn hafnaði ríkis- afskiptum af útflutningi á ferksum fiski, þrátt fyrir tillögu stjórnar um að fara þess á leit að stjómvöld stöðv- uðu þennan útflutning," sagði Jón. „Svona viðskiptahömlur eru hvergi til í Vestur-Evrópu, en kunna að hafa tíðkazt í Rúmeníu undir stjóm Ceausescu. Engin haldbær rök fyrir reglugerðinni eru sjáanleg. Fyr- ir þennan físk er greitt á erlendu mörkuðunum mun hærra verð en gengur og gerist hjá öðrum svo ekki er gæðunum ábótavant. Saltfiskinn sel ég inn.á kröfuharðasta markað heims, svæðið umhverfis Barcelona og er það fyrst og fremst staðfesting á því að hann þyki með afbrigðum góður. Verði bannað að flytja út flattan fisk öðru vísi en saltaðan, fagna ég þeirri ráðstöfun, fái ég og allir aðrir, sem vilja, að flytja hann út fullunn- inn, ekki bara SIF. Fijálst kaupverð á hinum íslenzku fiskmörkuðum kall- ar á frjálst söluverð. Ég er formaður útflutningsráðs Félags íslenzkra stórkaupmanna, en um 20% af útflutningi sjávarafura er á vegum félagsmanna. Við munum ekki láta þetta þegjandi yfír okkur ganga og munum taka málið upp á erlendum vettvangi, meðal annars við Evrópubandalagið, en ég get ekki betur séð að mismunun af þessu tagi bijóti i bága við starfshætti EB og komi þannig í veg fyrir samninga okkar við það um tollívilnanir á inn- flutningi á sjávarafurðum. Þessi ráðstöfun hefur ennfremur í för með sér einhveija mestu tekju- skerðingu sem um getur fyrir sjó- menn, útgerð og verkafólk, því við höfum greitt hátt verð fyrir þennan fisk á mörkuðunum í ljósi þess að hátt verð fæst fyrir hann ytra. Nú fellur verðið á mörkuðunum og um leið tekjur sjómanna og útgerðar. Það gæti hins vegar bætt stöðuna fengist einokun SÍF afnumin. Ég trúi ekki að utanríkisráðherra, Jón Baldvin Hannibalsson, sem hefur með útflutningsleyfi að gera, muni stöðva þennan útflutning fyrirvara- laust. Hann, og starfsmenn við- skiptaskrifstofu ráðuneytisins, hafa sýnt fijálsræði í útflutningi, miklu meiri skilning en margir aðrir,“ sagði Jón Ásbjömsson. Skoðanakönnun Félagsvísindastofhun- ar um fylgi stjórnmálaflokkanna; Sjálfstæðisflokk- urinn fengi 45,5% Alþýðubandalagið vinnur á en Framsókn- arflokkur og Alþýðuflokkur tapa fylgi 45,5% KJÓSENDA myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn ef gengið yrði til alþingiskosninga nú, samkvæmt skoðanakönnun sem Félagsvísinda- stofnun hefúr gert fyrir Morgunblaðið. Er þetta nokkuð minna fylgi en flokkurinn fékk í siðustu könnun Félagsvísindastofnunar, sem fram- kvæmd var í október. Þá sögðust 47,6 ætla að kjósa Sjálfstæðisflokk- inn. Flokkurinn fékk 27,2% atkvæða i siðustu alþingiskosningum árið 1987. Alþýðubandalagið bætir einn þriggja stærstu stjórnarflokkanna við sig nokkru fylgi miðað við síðustu könnun, fengi 11,9% atkvæða miðað við 8,3% í október. Alþýðuflokkur tapar enn fylgi samkvæmt könnuninni, fengi 8,1% miðað við 8,3% í október. Fram- sóknarflokkurinn lækkar úr 17,6% í október niður í 16,4% nú. Kvenna- listinn tapar 0,3%, fengi 14,5% ef kosið væri nú en fékk 14,8% sam- kvæmt könnuninni sem gerð var í október. Aðrir flokkar fá verulega minna fylgi samkvæmt könnun Félagsvísindastofnunar. Flokkur mannsins fengi 0,6%, Bandalag jafnaðarmanna 0,3%, Samtök um jafnrétti og félagshyggju 0,4%, Þjóðarflokkur 1,0%, Borgaraflokk- ur 0,6% og Fijálslyndir hægrimenn 0,0%. Þijár spumingar voru lagðar fyr- ir svarendur. Fyrst voru menn spurðir: „Ef alþingiskosningar væru haldnar á morgun, hvaða flokk eða lista heldurðu að þú myndir kjósa?“. Þeir sem svöruðu „veit ekki“ voru spurðir áfram: „En hvaða flokk eða lista heldurðu að líklegast sé að þú myndir kjósa?“. Segðu menn enn „veit ekki“ voru þeir loks spurðir: „En hvort heldurðu að sé líklegra að þú kjósir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern annan flokk eða lista?“. Með þessu fór hlutfall óráðinna nið- ur í 5,3% eftir þriðju spurninguna. Einnig var spurt hvort menn væru stuðningsmenn ríkisstjórnar- innar eða andstæðingar. 45,2% sögðust vera andstæðingar ríkis- stjórnarinnar og 33,3% stuðnings- menn. 20,0% sögðust vera hlutlaus- ir í garð ríkisstjómarinnar. Fylgi ríkisstjórnarinnar var mest í röðum Framsóknarflokksins. 79,8% þeirra sem sögðust ætla að kjósa þann flokk voru jafnframt stuðningsmenn ríkisstjórnarinnar. 76,4% þeirra sem ætla að kjósa Alþýðubandalagið töldu sig vera stuðningsmenn stjórnarinnar, 69,4% þeirra sem ætla að kjósa Alþýðuflokkinn, 34,5% þeirra sem ætla að kjósa Kvennalistann og 5,7% þeirra sem ætla að kjósa Sjálf- stæðisflokkinn. Andstaða við stjórnina var mest í röðum þeirra sem sögðust ætla að kjósa Sjálfstæðisflokkinn. 83,1% þess -bóps töldu sig andstæðinga stjómarinnar. Þátöldu 39,1% þeirra sem ætla að kjósa Kvennalistann, 14,3% þeirra sem ætla að kjósa Alþýðuflokkinn, 9,7% þeirra sem ætla að kjósa Alþýðubandalagið og 4,0% þeirra sem ætla að kjósa Framsóknarflokkinn sig vera and- stæðinga ríkisstjómarinnar. Stuðningur við stjómina var meiri meðal karla (38,4%) en kvenna (29,5%). Þá var stuðningur _ við stjórnina meiri á landsbyggðinni (42,3%) en í Reykjavík (29,5%) og á Reykjanesi (27,0%). Stuðningur við stjórnina var mestur í aldurs- hópnum 60-75 ára (43,5%) en and- staða við stjórnina var mest í ald- urshópnum 25-39 ára (51,3%). Könnunin var framkvæmd dag- ana 23.-27. febrúar. Leitað var til 1500 manna á aldrinum 18-75 ára af landinu öllu. Alls fengust svör frá 1047 manns eða um 70% úrtaks- ins. Fullnægjandi samræmi var á milli skiptingar úrtaksins og þjóðar- innar allrar eftir aldri kyni og bú- setu og má því ætla að úrtakið endurspegli þjóðina, 18-75 ára, vel. Skoðanakönnun á fylgi stjórnmálaflokkanna Hér fara á eftir helstu niðurstöð- ur skoðanakönnunar þeirrar sem Félagsvísindastofnun fram- kvæmdi fyrir Morgunblaðið dag- ana 23.-27. febrúar. Spurt var um afstöðuna til ríkisstjórnarinn- ar og hvaða stjórnmálaflokk við- komandi myndi kjósa ef alþingis- kosningar færu fram nú. Hvort ert þú frekar stuðningsmaður ríkisstjórnarinnar eða andstæðingur? Fjöldi Hlutfall Stuðningsmaður 349 33,3 Hlutlaus/óviss , 209 20,0 Andstæðingur 473 45,2 Neitar að svara 16 1,5 Samtals 1.047 100% Hvað myndu menn kjósa í alþingiskosningunum nú? Samanburður við fyrri kannanir og alþingiskosningar Þeir sem tóku afstöðu. 1987. Fjöldi Kjósa nú Okt. 1989 % Sept. 1989 % Júní 1989 % Kosningai 1987 Alþýðuflokkur 63 8,1 8,3 8,9 11,3 15,2 Framsóknarflokkur 127 16,4 17,6 17,6 20,3 18,9 Sjálfstæðisflokkur 352 45,5 47,6 44,0 39,3 27,2 Alþýðubandalag 92 11,9 8,3 12,6 8,6 13,4 BandaJag jafnaðarmanna 2 0,3 — — 0,2 Kvennalisti 112 14,5 14,8 13,4 15,2 10,1 Flokkur mannsins 5 0,6 0,8 0,7 1,1 1,6 Samt. jafnr. og félagsh. 3 0,4 0,7 0,5 0,9 1,2 Þjóðarflokkur 8 1,0 0,7 0,5 1,1 1,3 Borgaraflokkur 5 0,6 0,3 1,4 1,8 10,9 Fijálsl. hægrimenn 0 0,0 0,7 0,1 0,4 Aðrir 5 0,6 0,1 0,3 — — Samtals 774 99,9 100% 100% 100% 100%

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.