Morgunblaðið - 03.03.1990, Page 24
24
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGIÍR 3. MARZ 1990
Dalvík;
Jafiiaðarmamiafélag
formlega stofnað
Halldór Guðmundsson kjörinn formaður
STOFNFUNDUR Jafaaðarmannafélags Daívíkur var haldinn í fyrra-
kvöld og gengu 33 aðilar í félagið á fundinum. Félagið ætlar að bjóða
fram lista til bæjarstjórnarkosninganna í vor og er stefnt að því að
framboðslistinn verði tilbúinn um miðjan mars.
Halldór Guðmundsson var kjörinn Helga Árnadóttir, Símon Ellertsson
formaður félagsins á stofnfundinum,
en aðrir í stjóm eru Jón Gunnarsson,
Listasaín ASÍ:
Verk Signr-
jóns Jóhanns-
sonarsýnd
í Gamla Lundi
SÝNING á verkum Sigurjóns Jó-
hannssonar leikmyndateiknara
verður opnuð í Gamla Lundi á
Akureyri í dag, laugardaginn 3.
mars. Sýningin verður opin virka
daga klukkan 16-18 og um helgar
klukkan 14-18 en henni lýkur 11.
mars næstkomandi.
Siguijón Jóhannsson á að baki
langan listferil, fyrst sem málari en
síðan sem leikmyndateiknari hjá
Þjóðieikhúsinu. Sýningin í Gamla
Lundi er byggð á lífsreynslu Sigur-
jóns frá bemskuárunum en hann
fæddist og ólst upp á Siglufirði. Á
' sýningunni verður seld bókin Svartur
sjór af sfld eftir Birgi Sigurðsson,
segir í fréttatilkynningu frá Lista-
safni Alþýðusambands íslands, sem
stendur fyrir sýningunni.
og Ölafur Ámason.
Halldór Guðmundsson sagði að
markmið félagsins væri að efla
hreyfingu, samhug og samstöðu allra
þeirra Dalvíkinga sem aðhyllast jafn-
aðarstefnu í víðustu merkingu þess
orðs. Markmiði sínu hyggst félagið
ná með því að bjóða fram lista jafnað-
armanna til bæjarstjórnarkosning-
anna á Dalvík í vor, er hafi það að
meginstefnu að efla og bæta velferð
og uppbyggingu bæjarfélagsins.
Óskað hefur verið eftir því við
stofnfélaga og þá sem ganga í félag-
ið fyrir næstkomandi mánudag að
þeir skrifi niður á blað nöfn 5-7 að-
ila sem þeir helst vilja sjá á framboðs-
lista félagsins. Halldór sagði að ekki
væri einungis um að ræða fólk sem
væri í félaginu.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Fyrstu fjórir handhafar búseturéttar á Akureyri undirrituðu í gær samning um kaup búseturéttar í
íbúðum við Múlasíðu. Frá vinstri í neðri röð: Halldór Bachmann, Brynja Skarphéðinsdóttir, Sigurður
Eiríksson, Hafdis Pétursdóttir, búsetar, og Heimir Ingimarsson, formaður Búseta á Akureyri. í efri
röð: Ármann Helgason, Jónína Pálsdóttir, Guðný Gunnarsdóttir og Sveinn Brynjólfsson, en þau eru í
stjórn Búseta.
Samningur undirritaður um fyrstu
búseturéttaríbúðirnar á Akureyri
SAMNINGUR um kaup Ijögurra
aðila á búseturrétti í íbúðum við
Múlasíðu 9 var undirritaður í
gær. íbúðirnar eru tveggja til
fjögurra herbergja og verða þær
afhentar fúllbúnar í desember
næstkomandi. I húsnæðissam-
vinnufélaginu Búseta á Akureyri
eru nú tæplega 110 manns og
hefúr félagið sótt um lán til Hús-
Sextánda kirkjuvikan hefst í
Akureyrarkirkju á sunniidaginn
KIRKJUVIKA hefst í Akureyrarkirkju á sunnudaginn og er það í
sextánda sinn sem kirkjuvika er haldinn. Kirkjuvika er haldin annað
hvert ár. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá í kirkjunni þessa
viku, kvöldvöku, orgeltónleika, föstumessu og leiklestur úr Kaj Munk.
Vikunni lýkur með hátíðarguðsþjónustu þar sem herra Ólafur Skúla-
son biskup flytur predikun.
Æskulýðsguðsþjónusta verður i
kirkjunni á sunnudaginn kemur þar
sem Valgerður Hrólfsdóttir flytur
predikun, en eftir guðsþjónustu
verður nýja safnaðarheimilið til sýn-
is og boðið verður upp á kaffiveit-
ingar. Kirkjukórinn syngur í sal
nýja safnaðarheimilisins og verður
það í fyrsta sinn sem þar verður
sungið. Nú vantar herslumuninn á
að unnt verði að taka safnaðar-
heimilið í fulla notkun og verður
m.a. leitað eftir stuðningi almenn-
ings svo ljúka megi við bygginguna.
Á mánudagskvöld verður kvöld-
vaka þar sem flutt verður tónlist,
ávarp og ræða og þá verður helgi-
stund. A þriðjudagskvöld verða org-
eltónleikar Harðar Áskelssonar org-
anista í Hallgrímskirkju og föstu-
messa verður á miðvikudagskvöld.
Leiklestur úr Kaj Munk verður á
fimmtudagskvöld, en auk heima-
manna tekur Arnar Jónsson leikari
þátt í leiklestrinum. Kvöldvaka
verður á föstudagskvöld þar sem
fiutt verður tónlist og ræðumaður
kvöldsins verður Guðrún Agnars-
dóttir alþingismaður.
Kirkjuvikunni lýkur annan
sunnudag með hátíðarguðsþjónustu
þar sem herra Ólafur Skúlason
biskup predikar og er þetta þfyrsta
sinn sem biskupinn yfír Islandi
kemur til Akureyrar eftir að hann
tók við embætti.
næðisstofnunar ríkisins til kaupa
á 20 íbúðum, en svars er að vænta
í þessum mánuði um hversu
mörgum íbúðum félaginu verður
úthlutað.
Heimir Ingimarsson, formaður
Búseta á Akureyri, sagði við undir-
ritun samninganna að búsetaformið
væri frábrugðið öðrum húsnæðis-
formum, að því leyti að sá er bú-
seturéttinn hefur, eignast íbúðina
aldrei, en hefur ævarandi rétt til
að búa í henni. Búseturrétturinn
geti gengið í erfðir, en ef menn
vilja selja á félagið forkaupsrétt.
Félagar í Búseta á Akureyri eru
tæplega 110, en félagið var stofnað
árið 1984. Haustið 1988 sótti félag-
ið um lán hjá Byggingasjóði ríkisins
og í desember það ár var gerður
rammasamningur við Trésmiðjuna
Fjölni hf. um kaup á 12 íbúðum við
Múlasíðu 9. í júlí á síðasta ári
fékkst vilyrði fyrir láni vegna kaupa
á fjórum íbúðum.
Ibúðirnar við Múlasíðu eru nú
fokheldar og samkvæmt samningi
við verktaka verða þær tilbúnar til
afhendingar 15. desember. Minnstu
íbúðirnar eru tveggja herbergja, en
þær stærstu fjögurra herbergja og
greiða búsetarnir frá 22.500 krón-
um á mánuði fyrir minnstu íbúðirn-
ar og fyrir fjögurra herbergja íbúð
greiðir búsetinn 32 þúsund krónur.
Inni í þeirri tölu er allur kostnaður
innifalinn, s.s. tryggingar, viðhald
og fasteignagjald.
Félagar í Búseta á Akureyri eru
tæplega 110. Félagið hefur sótt um
lán til Húsnæðisstofnunar ríkisins
til byggingar 20 íbúða og er svars
um úthlutun til Búseta að vænta í
þessum mánuði.
366 manns atvinnulausir
Heilbrigðisfulltrúi
Heilbrigðiseftirlit Eyjafjarðar óskar að ráða
heilbrigðisfulltrúa, sem starfa skal að al-
mennu heilbrigðiseftirliti undir stjórn fram-
kvæmdastjóra.
Starfsréttindi heilbrigðisfulltrúa samkvæmt
reglugerð 150/1983 eru áskilin.
Umsóknarfrestur er til 31. mars 1990. Stað-
an veitist frá 1. júní 1990.
Umsóknir, er greini frá menntun og störfum-
umsækjanda, skal senda formanni svæðis-
nefndar, Ólafi H. Oddssyni, héraðs-
lækni,Heilsugæslustöðinni, 600 Akureyri, og
veitir hann og framkvæmdastjórinn, Valdi-
mar Brynjólfsson, nánari upplýsingar um
starflð' Svæðisnefnd Heilbrigðiseftirlits Eyjafjarðar.
ENN hefiir nokkuð fjölgað á
atvinnuleysisskrá á Akureyri.
Um mánaðamót voru 347 skráð-
ir atvinnulausir í bænum og
fyrstu tvo dagana í mars bætt-
ust 19 við. Hlutfallslega hefur
atvinnulausum mest íjölgað í
Félagi verslunar- og skrifstofu-
fólks, en helmingsfækkun hefiir
orðið á meðal atvinnulausra sjó-
manna.
Sigrún Björnsdóttir forstöðu-
maður Vinnumiðlunarskrifstofu
Akureyrar sagði að tíðarfarið und-
anfarið hefði haft mikið að segja,
framkvæmdir lægju mikið niðri og
fátt benti til þess að ástandið lagað-
ist fyrr en með vorinu.
AIls voru 347 einstaklingar
skráðir atvinnulausir síðasta dag
febrúarmánaðar og fyrstu tvo dag-
ana í mars komu 19 til nýskráning-
ar, þannig að alls eru nú 366 aðilar
skráðir atvinnulausir. Atvinnu-
lausar konur um síðustu mánaða-
mót voru 133 og karlar voru 214.
Mest hefur fjölgun atvinnulausra
orðið hjá Félagi verslunar- og skrif-
stofufólks á Akureyri, en þar eru
nú 26 karlar atvinnulausir og 39
konur, eða alls 65 félagsmenn. Úr
Verkalýðsfélaginu Einingu er 131
skráður atvinnulaus, 57 konur og
74 karlar. Úr Iðju, félagi verk-
smiðjufólks eru 54 skráðir atvinnu-
lausir, 28 konur og 26 karlar. Iðn-
aðarmenn án atvinnu eru 37 og eru
þeir úr fjórum starfsgreinum. At-
vinnulausir bflstjórar eru 24 og sjó-
menn 15, en sjómönnum á atvinnu-
leysisskrá hefur fækkað um helm-
ing, þeir voru 30 í lok febrúar.
Múlagöngin:
Um 100 metrar eftir
3130 metrar að baki 15. mars
UM 100 metrar eru eftir þar til búið verður að sprengja fyrir
Múlagöngunum, en áætlað er að komið verði í gegn Dalvíkurmeg-
in 15. mars næstkomandi.
Björn Harðarson staðaverk-
fræðingur Vegagerðarinnar sagði
að það yrði ágætis áfangi að korri-
ast í gegnum ijallið. „Þetta verður
nokkurs konar hálfleikur. Það er
geysimikil vinna eftir enn og hér
verður unnið af krafti í sumar við
innréttingu mannvirkisins," sagði
Björn.
Aðra hvora viku er einungis
unnið á einni vakt, en á tveimur
hina vikuna. „Menn eru ekkert að
æsa sig yfir þessu." Næsta sumar
verða um 40-50 manns við vinnu
í Múlagöngunum, en eftir er að
gera vegskála Dalvíkurmegin auk
allrar vinnu inni í göngunum.
Bergið hefur verið ágætt þessa
vikuna, en var frekar slæmt í fyrri
viku, en Björn bjóst við að síðasti
100 metra spetturinn yrði ágæt-
-ur.„Það bendir allt til þess að
berg-
ið verði í skárri kantinum," sagði
hann.
Daginn sem komið verður í
gegnum fjallið, 15. mars, ætla
Olafsfirðingar að gera sér daga-
mun, en ekki hefur að fullu verið
ákveðið hvernig dagskráin verður.
Allar líkur benda þó til að
Steingrímur J. Sigfússon sam-
gönguráðherra verði viðstaddur.