Morgunblaðið - 03.03.1990, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 03.03.1990, Blaðsíða 32
'lÓEGtMfeiMÍÐ. k WÁMÍWéo hS2 Hjónaminning: Sigurbjörg Þórðar dóttir og Steindór R. Benediktsson Fædd 14. maí 1907 Dáin 19. janúar 1990 Fæddur 1. mars 1898 Dáinn 28. janúar 1971 Kvatt hefur jarðlífið roskin kona eftir langt sjúkdómsstríð. Þegar rifjuð eru upp æviatriði hennar og lífsstarf, er við hæfi að minnast mannsins sem hún deildi kjörum með í yfir fjóra áratugi. Líf sam- hentra hjóna rennur oft saman, það er eðlilegt og þannig á það raunar að vera. Bæði voru þau upprunnin í sveit og þar ólu þau aldur sinn að meginhluta, þar fæddust böm þeirra og ólust upp. Þau skiluðu þjóðinni mannvænlegum börnum, yrktu jörðina og reistu býli þar sem áður var aðeins beitarjörð. Ef þetta er ekki sjálf gæfan, þá veit ég ei, hvar hana er að finna. Auðvitað er lífíð ekki óslitin röð happa og sigra, einnig ósigrar. Skáldið frá Kirkju- bóli í Bjarnadal, Guðmundur Ingi, orðar það snilldarlega á þessa leið: Afrek í ósigrum lífsins er aldrei tilgangslaust. Hjónin sem hér er minnst áttu sér þann draum að gera landið Garður: Fjórtán í prófkjöri H-listans FJÓRTÁN manns óskuðu eftir að vera í framboði í prófkjöri H-list- ans, lista sjálfstæðismanna og annarra frjálslyndra, en frestur til að senda inn framboð rann út 1. marz. H-listinn hefir í dag þrjá menn í hreppsnefnd af fimm og eru allir meirihlutafúlltrúarnir meðal þátttakenda i prófkjörinu. Samkvæmt lögum frá 1986 ber að fjölga hreppsnefhdarmönnum úr 5 í 7 og var það ákveðið á hreppsnefhdarfúndi 14. febrúar sl. Eftírtaldir aðilar verða í framboði í prófkjörinu: Björn Vilhelmsson, Einvarður Albertsson, Finnbogi Bjömsson, Hulda Matthíásdóttir, Ingimundur Guðnason, Jón Hjálm- arsson, Karen Jónsdóttir, Kristinn H. Ólafsson, María Guðfinnsdóttir, Ólafur H. Kjartansson, Rafn Guð- bergsson, Sigurður Ingvarsson, Sig- uijón Skúlason og Þorsteinn Heið- arsson. Ákveðið hefír verið að prófkjörið fari fram sunnudaginn 18. marz, og verða fjögur efstu sætin bindandi. Formaður prófkjörsnefndar er Guð- rún Sveinbjamardóttir. í undanförnum hreppsnefndar- kosningum hafa aðeins verið tveir listar í framboði og virðist stefna í að svo verði einnig nú. Félag óháðra borgara boðaði til fundar í gær- kvöldi þar sem ræða átti frambbðs- mál I-lisans. byggilegra en það var, er þau hófu lífsstarfið saman á morgni ævinn- ar. Þeim tókst það. Hvað er það sem samhent hjón geta ekki? Eng- inn mannlegur félagsskapur er sig- urstranglegri en sá er maður og kona standa að af heilum hug, ást og eindrægni. Sigurbjörg og Steindór gengu í hjónaband 2. júní 1929. Hún fædd- ist í Galtanesi í Víðidal 14. maí árið 1907. Vom foreldrar hennar hjónin Þórður Hannesson (d. 1946) bóndi í Galtanesi og Dýmnn Jóns- dóttir (d. 1943), kona hans. Þau bjuggu saman í Galtanesi í 37 ár. Auk dótturinnar Sigurbjargar, sem hér er minnst, eignuðust þau soninn Hannes, sem tók við búi í Galta- nesi að föður sínum látnum. Hann varð skammlífur, lést aðeins 52 ára, 17. apríl 1967. Kona hans var Jósefína Bjömsdóttir, fædd 1924, nú búsett í Kópavogi. Eignuðust þau tvo syni og eina dóttur, sem komust til aldurs. Steindór Ragnar Benediktsson fæddist 1. mars 1898 á Torfustöð- um í Miðfirði. Vora foreldrar hans hjónin Ragnheiður Guðmundsdóttir og Benedikt Jóhannsson, sem þar bjuggu allan sinn búskap og áttu sex börn. Auk Steindórs voru börn- in þessi: 1. Jón, bjó lengi á Hvamm- stanga, einhleypur, 2. Ingibjörg, bjó á Ytri-Völlum í Kirkjuhvamms- hreppi, 3. Bjöm, bjó á Torfustöðum, 4. Jóhann, bjó á Hvammstanga, hann dó aðeins fímmtugur, 5. Guð- rún, hún var yngst af þeim systkin- um. Steindór og Sigurbjörg hófu bú- skap í Galtanesi, föðurleifð hennar eftir að þau giftu sig, sem fyrr er frá greint í þessari samantekt. En þau áttu sér þann draum að vera sjálfstæðar manneskjur. Þau fengu til eignar hluta úr landi Galtaness og nefndu Brautarland. Þar varð að byggja allt frá grunni. Landið varð einnig að rækta. Þetta var mikið verkefni ungum hjónum og tímarnir vora allt annað en hag- stæðir. Hin magnaða ijárhags- kreppa sem hófst 1929 lék marga grátt, ekki síst bændur þessa lands. Þá var mæðiveikin ekkert lamb að leika sér við. Á henni fengu þau að kenna svo að um munaði. En allt hélst þó í horfinu, því bæði vora dugleg, hagsýn og reglusöm. Steindór var að vísu lengst af frem- ur heilsutæpur, en var þó mjög duglegur verkmaður. í Brautarlandi. bjuggu þau öll sín bestu starfsár. Arið 1963 fékk Steindór hjarta- áfall. Var þá ekki um annað að gera en að hætta búskap. Fluttust þau þá til Reykjavíkur og festu þar kaup á íbúð í Ljósheimum 22. Steindór rétti við hvað heilsu snerti er suður var komið og tók upp störf. Vann hann til dauðadags að kalla hjá Ríkisútvarpinu. Sigurbjörg vann á Kleppsspítala meðan heilsan entist. En lífið var ekki eingöngu starf og strit hjá þeim hjónum. Þau höfðu bæði yndi af fögram tónum. Hann lék á harmóníum, sem raunar var aldrei nefnt annað en orgel í sveit- um þessa lands. Hann var kirkju- organisti í Víðidalstungu allan sinn búskap í Víðidal. Hann kenndi og nokkrum að leika á hljóðfæri, með- al annarra Hannesi mági sínum í Galtanesi, er síðar tók við starfi hans sem kirkjuorganisti. Heima í Brautarlandi vora kórar æfðir iðu- lega, þar var þá mikið sungið eins og að líkum lætur. Það fyrsta sem þau hjón keyptu, er flutt var að Brautarlandi, var harmóníum, er kostaði 700 kronur; stórfé árið 1936. Mörgum fannst það mögnuð óráðsía, en bóndinn í Galtanesi gat sagt eins og skáldið góða frá Fagra- skógi: „Hjartað heimtar meira en húsnæði og brauð.“ Þegar upp er gert ævistarf hjóna fer ekki hjá því að nefnt sé það sem þau lögðu dýrast fram, börnin þeirra. Við lifum að nokkra áfram í bömum okkar. Hér skal að lokum getið barna Sigurbjargar og Stein- dórs, er upp komust: 1. Þórunn, fædd 14. apríl 1932, gift Tryggva Kristjánssyni, þau búa á Akureyri, eiga þijá syni og eina dóttur. 2. Benedikt, fæddur 18. júlí 1939, búsettur í Garðabæ, kvæntur Þóreyju Eyjólfsdóttur, eiga tvær dætur og einn son. Þá er Einar Gestsson frændi minn fallinn frá. Hann fæddist í Bjarghúsum í Gargj 20. nóv. 1898. Foreldrar hans vora Gróa Bjamý Einarsdóttir, Jónssonar í Tjarnarkoti innra, síðar Endagerði í Miðnesi og Gestur Sig- urðsson, Þorsteinssonar í Bjarg- húsum í Garði. Þegar Einar var á öðru ári og átti systkini í vændum, drakknaði faðir hans. Lítil systir, Lísbet, fæddist í Bjarghúsum 3. júlí 1900. Nokkra síðar kom Gróa litlu stúlkunni fyrir hjá góðu fólki þar sem hún ólst upp til fullorðins ára. Er hún nú ein systkinanna á lífi. Einar fór með móður sinni suð- ur á Miðnes þar sem hún gerðist bústýra og síðar eiginkona Guð- mundar Gíslasonar bónda í Norður- koti. Ólst Einar þar upp hjá móður sinni og fóstra og eignaðist þijú systkini, föður minn Gísla Guðfrið, Sigurð Ragnar og Margréti. Um fermingaraldur fór hann að fara á sjóinn eins og ungra pilta var siður í þann tíð, en sjómennskan varð síðar hans aðalstarf. En hann lét sér ekki nægja að fljóta á báti. Hann lagði sig fram um að læra að halda sjálfum sér á floti. Til þess bjó hann sér til kút úr upp- blásnum sundmögum. Síðan æfði hann sundið í sjónum fyrir neðan bæinn. Bar þessi iðja hans góðan árangur og var hann vel syndur áður en almenningi þótti sjálfsagt að læra sund, sýndi jafnvel sund- afrek við hátíðleg tækifæri. Árið 1926 kvæntist Einar Val- gerði Guðrúnu Gísladóttur úr Ingólfur Arnar, fæddur 9. ágúst 1942, kvæntur Ingu Þyri Kjartans- dóttur, þau era búsett í Kópavogi og eiga eina dóttur. Með fýrri konu sinni, Ólöfu Haraldsdóttur, eignað- ist hann son, sem nú er tæplega tvítugur. Þau skildu. 4. Dýrunn Ragnheiður, fædd 4. ágúst 1945, búsett í Reykjavík, gift Sverri Halldórssyni. Eiga tvær dæt- ur. Hér hefur bama þeirra Sigur- bjargar og Steindórs, er upp kom- ust, verið getið. Fyrsta barn sitt, er fæddist 9. maí 1930 og hlaut i skírninni nafnið Þórunn Ragnhild- ur, misstu þau hjón tæplega árs- gamalt. Olli það þeim að vonum miklum harmi. En sem betur fór, eignuðust þau böm síðar, sem reyndust þeim vel, ekki síst henni, sem síðustu árin var vistkona í Hátúni, farin að heilsu og kröftum. Dauðinn var henni mikil líkn, eins og komið var heilsu hennar. Hún andaðist í Landspítalanum aðfara- nótt föstudagsins 19. janúar sl., tæplega 83 ára að aldri. Hún var lögð til hinstu hvíldar við hlið manns síns í Fossvogskirkjugarði. Hér hefur verið reynt að bregða nokkru ljósi á ævi hjóna, sem skil- uðu góðu dagsverki, vegna þess hversu samhent þau voru. Þau Reykjavík. Eignuðust þau tvö böm, Gest Hannes og Margréti Sigríði og var heimili þeirra í Laufási á Miðnesi. Er leiðir þeirra skildu flutti Valgerður með börnin til Reykjavík- ur en Einar bjó sér bólstað í Gilinu fyrir ofan Norðurkot. Þama virtist náttúrabarnið njóta sín við ræktun landsins, með gott útsýni til sjávar. Hann stækkaði graslendið, ræktaði tijálundinn sinn sem honum þótti svo vænt um, að ógleymdum kart- öflugarðinum sem var alveg sjálf- sagður. Þarna naut krían friðar og þariía sprattu beztu og stærstu ber sem við krakkarnir vissum um. Það var ekki ofsögum sagt af þessu gósenlandi hans Einsa frænda. Þarna var borin virðing fyrir öllu lífi og unnið gegn eyðingunni. Jafn- vel hagamýsnar voru vinir hans. En þrátt fyrir að Einar kynni vel við einveruna og kyrrðina, hafði hann gaman af samveru við fólk. Tók hann þátt í félagsmálum og samkomuhaldi alveg fram á síðustu ár og eignaðist marga góða vini og kunningja á Iífsleiðinni. Naut hann hlýju og umhyggju margra þeirra í svo ríkum mæli á efri árum ævinn- ar. Fyrir það skal þakkað. Tel ég ekki á neinn hallað þó ég nefni sérstaklega Norðurkotsbræður, Sigurð og Eirík, sem leyfðu honum að vera í Norðurkoti síðustu 20-25 árin, Didda í Nesjum, sem vitjaði hans reglulega og hló svolítið með honum og húshjálpina hans, hana Báru frá Nýlendu. Þessu fólki þakka ég af alhug framlag þess til að hann gæti lifað í ró og næði á t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför föður okkar, TRYGGVA KRISTJÁNSSONAR, sem andaðist 18. febrúar síðastliðinn. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki dvalarheimilanna Skjaldarvíkur og Hlíðar fyrir góða umönnun og hlýhug síðustu árin. Guð blessi ykkur öll. Laufey Valrós Tryggvadóttir, Friðrika Tryggvadóttir, Kristján T ryggvason, JónTryggvason og aðrir vandamenn. Minning: Einar Gestsson, Norðurkotí máttu vart af hvort öðru sjá. Líf þeirra var oft erfitt, en örðugleik- arnir þjöppuðu þeim saman. Bama- börn þeirra eru orðin 11 að tölu og barnabamabörnin 3. „Lífíð heldur áfram, Austurstræti“, yrkir Tónias Guðmundsson, og hann bætir við: „Og önnur kynslóð tekur við af hinni...“ Þessi sannleikur endurtekur sig sífellt. Mest er um vert að skila framtíðinni einhveiju. Það má telja að Sigurbjörg og Steindór hafí gert. Líf þeirra bar ríkulegan ávöxt. Blessuð sé minning þeirra og líf. A.B.S. Kveðja frá mágkonu Þegar Sigurbjörg frá Galtanesi er öll, langar mig til að kveðja hana með nokkram orðum. Er ég ung að árum giftist Hann- esi bróður hennar og stóð fyrir búi þar ásamt honum á föðurleifð hans, Galtanesi, urðu Sigurbjörg og Steindór, maður hennar, næstu nágrannar okkar. En þau vora meira en það. Þau vora hollvinir og hjálpendur. Fyrir mig sem óreynda, unga konu var mikils virði að geta leitað til Sigurbjargar um ráðgjöf í daglegum störfum hús- móðurinnar. Til þess var hún ætíð reiðubúin. Oft kom ég að Brautarlandi og við bæði þá tæpa tvo áratugi, sem þau vora nágrannar okkar, Sigur- björg og Steindór. Heimili þeirra var glaðvært. Hús- bóndinn lék á orgel og hafði yndi af tónlist. Sem unglingur í vist hjá séra Jóhanni Kr. Briem á Melstað nam hann orgelleik. Einnig hafði hann stundað nám í þessari list- grein í Reykjavík. Sigurbjörg eignaðist góðan eigin- mann, henni samboðinn. Enginn fær umflúið ellina og þá hrömun sem henni fýlgir, og nú er Sigurbjörg frá Galtanesi horfin frá okkur. Hinn efnislegi líkami hennar hefur verið lagður til hinstu hvfldar í skaut fóstuijarðarinnar, við hlið elskaðs eiginmanns. Eg geymi einungis Ijúfar minn- ingar um Sigurbjörgu mágkonu mína, og bið ég henni blessunar um tíma og eilífð. Jósefína Björnsdóttir frá Galtanesi. þeim stað sem hann helzt vildi svo að segja til æviloka, eða þar til síðasta haust. Það var okkur ætt- ingjunum svo mikils virði að vita af honum í þessu örugga skjóli. Margs er að minnast að leiðarlok- um. Allra góðu stundanna frá því ég var krakki. Þegar hann kom hjólandi til að láta klippa sig eða til að skera meðfram rabbagarðin- um hennar mömmu. Oh, hann var svo sterkur. Hversu oft ég bað hann að koma á loftið heima, ég var svo myrkfælin fyrir hans hönd að vera svona einn. Þá brosti hann bara að mér og sagði að það væri svo gott að vera einn, þá hefði maður svo gott næði. Ég þakka Einari frænda fyrir allt sem hann var mér, góðu stund- imar sem við áttum saman bæði til skemmtunar og fróðleiks. Guð blessi minningu hans. Iðunn Gróa Gísladóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.