Morgunblaðið - 03.03.1990, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR LAUGARDAGÚR
3. MARZ 1990
HANDKNATTLEIKUR / HEIMSMEISTARAKEPPNIN
MS'90-£SSR
■ SIGURÐUR SVEINSSON
heldur upp á 31. afmælisdaginn
sinn á mánudag. Hann er eini
íslenski leikmaðurinn í hópnum sem
fagnar slíkum tímamótum í ferð-
inni.
H HSÍtók með sér 6.000 póstkort
og hefur sent þau héðan til allra,
sem fermast á Islandi á árinu,
starfsfólki Landsbanka Islands og
fleirum. Kortið var gert í samvinnu
HSÍ og Landsbankans sem styrkti
framtakið og það er áritað af
íslenska landsliðshópnum.
■ FARARSTJÓRNIN tók einnig
með sér upplýsingabæklinga um
Island, sem hún dreifir á allar mið-
stöðvar fréttamanna HM.
■ KRISTJÁN ARASON tognaði
á vinstri ökkla í leiknum gegn
Spánverjum í fyrrakvöld. Jakob
Gunnarsson, sjúkraþjálfari lands-
liðsins, skoðaði meiðslin í gær og
óttaðist að liðband væri slitið. „Ef
svo er þarf að skera,“ sagði hann.
„Nei, það er ekkert hægt að skera
á þessu ári,“ svaraði Kristján
H FYRIR leik íslands og Júgó-
slavíu í dag verða veitt verðlaun í
ritgerðarsamkeppni um ísland, sem
fór fram á meðal skólabarna hér í
Tékkóslóvakíu. 14 ára stúlka,
Klara Stebrova frá Otrokovice,
sem er skammt frá Zlín, fær fyrstu
verðlaun.
„Handboltaveis!a“
í sjónvarpinu
Handknattleikur ræður ríkjum í
Ríkissjónvarpinu í dag. Klukk-
an 14 hefst umræðuþáttur í sjón-
varpssal þar sem gestir verða Her-
mann Gunnarsson, Jón Ólafsson,
Ámi Indriðason og Guðríður Guð-
jónsdóttir. Kafli úr leik Júgóslava og
Spánveija verður sýndur áður en
bein útsending hefst frá leik íslands
og Júgóslava kl. 16.00.
Eftir leikinn, um kl. 17:15, verða
svipmyndir í vikulokin þar sem m.a.
verður sýnt úr knattspymulandsleik
Frakka og Vestur-Þjóðveija, sem
fram fór á miðvikudagskvöld. Kl.
17:30 verður aftur skipt yfír til
Tékkóslóvakíu þar sem Bjami Felix-
son tekur leikmenn tali í beinni út-
sendingu.
í hringsjá, sem hefst kl. 19.30,
verður enn handknattleikur á dag-
skrá því þá verður bein útsending frá
síðustu mínútunum í leik Kúbveija
og Spánveija.
„Það er okkar
að stjóma
leiknum"
- segir Alfreð Gíslason sem eróhræddurvið Júgóslava
ALFREÐ Gíslason er óhræddur
við leikinn gegn Júgóslövum í
dag. „Okkur hefur hingað til
gengið vel með þá. Það er okk-
ar að stjórna leiknum og með
góðri samvinnu tökum við
heimsmeistarana, þvi þeireru
eigingjarnir, leika ekki sem
heild og láta mótlætið fara með
sig.“
Iþróttamaður ársins 1989 stóð sig
vel gegn Spánveijum, skoraði
grimmt og var kjörinn besti maður
Islands. „Ég hef aldrei átt í vand-
ræðum með Rico
markvörð og hugsa
ekkert um hann. Ég
hef oft velt mark-
vörðum fyrir mér,
en það hefur reynst best að skjóta
þar sem ég er öruggastur hveiju
sinni. Hins vegar er ótrúlegt hvað
mér gengur alltaf illa gegn lakari
liðum, eins og Kúbu, en eftir þann
leik fékk ég á tilfínninguna að ég
Steinþór
Guðbjartsson
skrííar
fráZlín
myndi ekki skora í keppninni. Þetta
er sálrænt og sennilega þyrfti ég
að fara í meðferð!"
Alfreð sagði að leikmenn gerðu
sér grein fyrir mikilvægi leiksins í
dag. „Við höfum oft lent í þessari
stöðu áður, en við verðum að vinna
og til þess þurfum við að ná upp
sömu stemmningu og gegn Vestur-
Þjóðveijum í B-keppninni í Frakk-
landi. Júgóslavar hafa ekki verið
sannfærandi, en þeir eru óútreiijn-
anlegir. Þeir byijuðu illa á Ólympíu-
leikunum, en tóku sig á og eru
ekki hættir hér. Hins vegar munar
miklu fyrir okkur, ef Portner verður
ekki með, en ég tel engar líkur á
að hann spili.“
Alfreð sagði að aðalatriðið væri
að byija rólega og auka svo hrað-
ann. „Það hefur gengið vel. Eins
verðum við að nota hraðaupphlaup
og nýta þau, en Júgósiavarnir eru
seinir aftur. Svo er um að gera að
æsa þá upp, því þá fara þeir úr
sambandi.“
Morgunblaðið/Júllus
Davíð Sigurðsson sér um búninga
landsliðsins. Hér er hann að gera klárt
fyrir næsta leik, sem er gegn Júgóslöv-
um í dag.
Júlíus
meðgegn
Júgó-
slövum
ídag
JÚLÍUS Jónasson kemur inn í
tólf manna hópinn og leikur
gegn Júgóslövum í dag. Eins
er líklegt að Jakob Sigurðsson
fái tækifæri, en óvíst er með
aðrar breytingar.
Bogdan hefur teflt fram sama
liði í fyrstu tveimur leikjunum,
en hann sagði við Morgunblaðið í
gær að einhveijar breytingar yrðu
gerðar. Júíus yrði með og sennilega
Jakob. Líklegt er að þeir skipti við
Héðinn Gilsson og Guðmund Guð-
mundsson eða Valdimar Grímsson.
Laugardagur kl.14:55
9. LEIKVJKA- 3. mars 1990 1 m 121
Leikur 1 Charlton - Norwich
Leikur 2 Man. Utd. - Luton
Leikur 3 Nott. For. - Man. City
Leikur 4 Q.P.R. - Arsenal
Leikur 5 Sheff. Wed. - Derby
Leikur 6 Southampton- Chelsea
Leikur 7 Tottenham - C. Palace
Leikur 8 Wimbledon - Everton
Leikur 9 Blackburn - Woves
Leikur 10 Brighton - Oldham
Leikur 11 Middlesbro - West Ham
Leikur 12 Watford - Leeds
Allar upplýsingar um getraunir vikunnar hjá : LUKKULÍNUNNI s. 991002 hDCPAI nil DÁTTI ID 1 ■
Morgunblaðið/Júlíus
Júlíus Jónasson reyndi sig við glerblásturinn og hafði gaman af en sagðist
ekki ætla að leggja þessa grein fyrir sig.
Glerblástur ekki
sterkasta greinin!
Inær 200 ára gamalli verksmiðju
í Kvédna sem er um 60 km frá
Zlín, kom í ljós í gær að glerblástur
er ekki sterkasta grein Júiíusar
Jónassonar, landsliðsmanns í hand-
knattleik.
íslenska landsliðshópnum var
boðið í nokkurra tíma skoðunarferð
í gær og var verksmiðjan, sem
framleiðir krystalvörur, skoðuð.
Fylgst var með framleiðslunni frá
byijun til loka og þótti mönnum
mikið til koma en vinnubrögðin
voru frekar gamaldags.
Tæplega 600 manns starfa við
framleiðsluna og eru framleidd um
9.000 stykki á dag.
GETRAUNIR
Þrjár milljónir í pottinum
Þrefaldur pottur verður hjá íslenskum getraunum i dag, þar sem
enginn hefur haft tólf leiki rétta síðustu tvær vikurnar. Að sögn
Hákons Gunnarssonar, framkvæmdastjóra íslenskra getrauna, verður
potturinn ekki undir þremur milljónum króna. Leikirnir á seðlinum í
dag eru fiestir úr 1. deild ensku knattspyrnunnar.
Það er enginn sjónvarpsleikur að þessu sinni. í staðinn sýnir RÚV
beint frá heimsmeistarakeppninni í handknattleik og er það viðureign
íslands og Júgóslavíu, sem hefst kl. 16.00..
Sölukössum getrauna verður Iokað kl. 14.55 í dag.
Iþróttir
helgarinnar
Körfuknattleikur
Sunnudagur
Bikarkeppni KKÍ, undanúrslit:
Njarðvík UMFN —Haukar...kl. 16.00
Seltj. KR - Keflavík.....kl. 20.00
1. deild karla:
Bolungarv. UMFB-UMSB......14.00
Dingranes UBK-UMFL........kl. 14.00
Hagaskóli yíkveiji —ÍA...kl. 19.00
Kennarah. ÍS — Snæfell....kl. 20.00
Handknattleikur
Laugardagur
2. deild karla:
Keflavík ÍBK-UBK................kl. 18.00
2. deild kvenna:
Vestm. ÍBV-ÞórAk...........kl. 14.00
3. deild karla:
Húsav. Völs. — Ármann-b...kl. 14.00
Seltj. Grótta-b — Fylkir..kl. 14.00
Sunnudagur
1. deild kvenna:
Hafnarfj. FH — Stjaman.;..kl. 17.00
2. deild karla:
HafnarQ. Haukar —Valur-b....kl. 18.15
Hafnaríj. FH-b-UMFN......kl. 19.30
Selfoss Selfoss — Ármann.kl. 14.00
2. deild kvenna:
Vestm ÍBV — Þór Ak.........kl. 14.00
3. deild karla:
Digranes UBK-b — Ögri.....kl. 16.00
Hafnarfj. ÍH - Fram-b.....kl. 20.45
Kraftlyftingar
• ísiandsmótið í kraftlyftingum
verður haldið í íþróttahúsi
Njarðvíkur í dag, laugardag.
Keppni í 82,5 kg og léttari hefst
kl. 12.00, en í 90 kg flokki og
þyngri kl. 15.00. Meðal keppenda
verða Jón Páll Sigmarsson, Hjalti
„Úrsus" Árnason, Jón Gunnarsson
og Elín Ragnarsdóttir.
Blak
Laugardagur
Úrslitakeppni karla:
Akureyri KA —ÞrótturR...kl. 13.30
Úrslitakeppni kvenna:
Akureyri KA —UBK........kl. 14.45
Badminton
Norðurlandamót unglinga í bad-
minton hófst í Laugardalshöll í
gærkvöldi og stendur fram á
sunnudag. Einstaklingskeppnin
hefst kl. 10.00 í dag og verður þá
keppt í einliða, tvíliða og tvenndar-
Ieik. Urslitin hefjast síðan á morgun
kl. 13.30. Þátttakendur á mótinu
eru 18 ára og yngri og koma frá
Finnlandi, Noregi, Svíþjóð, Dan-
mörku og íslandi.
Borðtennis
fslandsmótið í borðtennis í flokk-
um bama, unglinga og „Old Boys“
fer fram í Ásgarði í Garðabæ um
helgina. Keppnin hefst í dag kl.
08.30 og lýkur kl. 16.00 á sunnu-
dag.
Sund
TVÖ sundmót eru á dagskrá um
helgina. Sundmót Vestra fer fram
á ísafirði og Unglingamót Ægis í
Sundhöll Reykjavíkur.