Morgunblaðið - 11.04.1990, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 11.04.1990, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 1990 1 Þjóðleikhúsið: Stefiit er að útboði framkvæmda í dag B Y GGIN G ANEFND Þjóðleik- hússins steftiir að því að í dag, * Afram norð- anátt og kalt Vorið lætur bíða eftir sér, því samkvæmt spá Veðurstofunnar verður norðanátt og fremur kalt veður um allt land á morgun, skírdag, og á föstudaginn langa. Skákmótið í Lyon: Margeir með 3 '/2 vinning af 4 MARGEIR Pétursson er með 3 'h vinning af fjórum á opnu skák- móti í Lyon í Frakklandi og er efstur ásamt 6 öðrum. Karl Þor- steins og Lárus Jóhannesson eru með 3 vinninga. miðvikudag, verði boðnar út viðgerðir og endurbætur á Þjóðleikhúsinu samkvæmt til- lögum bygginganefhdarinnar. Aætlað er að útboðsgögn vegna framkvæmdanna fari til fjög- urra fyrirtækja, sem þátt tóku í forvali verktaka. Leyfi til framkvæmda sam- kvæmt fjáriagaafgreiðslu Alþingis er háð samþykki Samstarfsnefnd- ar um opinberar framkvæmdir. Nefndin hélt lokafund um málið í gær. þriðjudag. Reiknað er með samþykki hennar til handa bygg- inganefndinni, þar sem mennta- málaráðherr'a og fjármálaráðherra voru búnir að uppfylla ákveðin skilyrði, sem Samstarfsnefndin setti fyrir því að framkvæmdir við Þjóðleikhúsið gætu hafist. Niður- staða samstarfsnefndarinnar mun liggja formlega fyrir á hádegi í dag. Þeir fjórir verktakar, sem ætlað er að muni bjóða í endurbyggingu Þjóðleikhússins, samkvæmt þeim verkþætti sem fyrir liggur nú, eru Ármannsfell, Byggðaverk, Hag- virki og Istak. Morgunblaðið/Björn Blöndal Vél Oasis International, MD-83 arftaki DC9 frá MC Donnell Douglas, við komuna til Keflavíkurflug- vallar i gær, en þessar vélar hafa ekki verið mikið í förum til Islands. Spænsk flugvél í leiguflugi Keflavík. LEIGUFLUGVÉL frá spænska flugfélaginu Oasis Internatio- nal fór í gær með ftilla vél frá ferðaskrifstofunni Veröld-Pól- aris til Benedorm og Costa del Sol á Spáni. „Samningur okkar við Oasis markar ákveðin tíma- mót, því með honum er Islend- ingum í fyrsta skipti boðið uppá reglulegt leiguflug beint til Spánar með erlendu flugfé- lagi,“ sagði Andri Már Ingólfs- son framkvæmdastjóri hjá Ver- öld-Pólaris við þetta tækifæri. Andri Már sagði að mikill áhugi væri fyrir þessum ferðum og það hefðu færri komist með í þessa fyrstu ferð en vildu, en meðal farþega voru nemendur Verkmenntaskólans á Akur- eyri. Spænskar flugfreyjur buðu starfsfólki Veraldar-Pólaris upp á veislufong í tileftii af fluginu og hér bjóða þær þeim Andra Má Ingólfssyni og Halldóri Sigurðssyni umboðsmanni flugfélagsins uppá kræsingar. Andri Már Ingólfsson sagði að næsta ferð yrði farinn eftir hálfan mánuð og síðan vikulega til 22. maí, en þá yrði flogið tvisvar í viku til 31. október. Flogið yrði með MD-83 sem er ný vél frá MC Donnell Douglas sem tæki 163 farþega í sæti. í fyrstu yrði flogið til Benedorm og Costa del Sol og síðan til Ibiza og Mallorka þegar ferðum yrði fjölgað í tvær í viku. BB Karl sagði við Morgunblaðið að skákmótið væri ekki eins sterkt og þeir þremenningar hefðu búist við, þrátt fyrir að verðlaun væru há. Áðeins tveir stórmeistarar eru meðal þátttakenda, Margeir og Mikhai Suba. Ung kona fannst látin TÆPLEGA þrítug kona fannst látin síðdegis í gær á Mosfellsheiði, nokkru austan við afleggjarann að Skála- felli. Konan fannst nokkur hundruð metra utan vegar þar sem bíll hennar stóð skammt frá læknum Bugðu. Björgun- arsveitir fundu konuna en þar til í gær hamlaði veður leit- inni, sem hófst á mánudag. Dómsmálaráðherra leggur fram lagafrumvarp á næstu dögum: Sakadómur í ávana- og fíkni- e&iamálum verði lagður niður DÓMSMÁLARÁÐHERRA mun á næstunni leggja fram á Alþingi frumvarp til laga sem gerir ráð fyrir því að embætti sérstaks saka- dómara í ávana- og fíkniefhamálum verði lagt niður og Ásgeir Frið- jónsson sakadómari, sem farið hefur með fíkniefnamál, verði almenn- ur dómari við Sakadóm Reykjavíkur, að sögn Hjalta Zóphaníassonar skrifstofustjóra í dómsmálaráðuneytinu. Dómsmálaráðherra hafði áður farið þess á leit við allsheijarnefnd Alþingis að hún flytti frum- varp þessa efiiis, en að sögn Jóns Helgasonar, formanns nefndarinn- ar, vísaði hún því firá sér og taldi eðlilegra að ráðherra flytti málið sjálfur. Til stóð að þessi breyting tæki gildi 1992 með nýjum lögum um aðskilnað dóms- og umboðsvalds en í kjölfar þess að Hæstiréttur hefur ítrekað gert sakadómara að víkja sæti við dómsmeðferð mála Bjarni P. Magnússon: Ekki ákveðinn í að taka sæti á lista Nýs vettvangs BJARNI P. Magnússon borgarfulltrúi Alþýðuflokksins segist ekki vera ákveðinn í að taka 3. sætið á framboðslista Nýs vettvangs fyr- ir borgarstjórnarkosningarnar í Reykjavík. Hann segir að fyrir próf- kjör Nýs vettvangs um síðustu helgi hafi formaður og varaformaður Alþýðuflokksins skipulega hvatt alþýðuflokksfólk að styðja Ólínu Þorvarðardóttur í efsta sæti listans og einnig hafi aðrir frambjóðend- ur eða stuðningsmenn þeirra myndað kosningabandalög. Bjarni P. Magnússon stefndi á 1. sætið í prófkjörinu en endaði í því þriðja. Bjami sagði við Morgun- blaðið að margt af því alþýðuflokks- fólki, sem hann hefði haft samband við fyrir prófkjörið, hefði sagt sér að það vildi ekki taka þátt í því, vegna þess að hringt hefði verið frá Jóni Baldvin Hannibalssyni for- manni Alþýðuflokksins og Jóhönnu Sigurðardóttur varaformanni, með þau skilaboð að kjósa ætti óflokks- bundna konu í fyrsta sætið. Jón Baldvin Hannibalsson for- maður Alþýðuflokksins sagði við Morgunblaðið, að sinn hlutur í þessu prófkjöri hefði ekki verið annar en sá, að fá alþýðuflokksfólk til þess að hvetja annað alþýðu- flokksfólk til að taka þátt í prófkjör- inu. Jóhanna Sigurðardóttir vara- formaður Alþýðuflokksins vildi ekk- ert segja um málið. Bjarni sagði ennfremur, að al- þýðuflokksmenn í prófkjörinu hefðu litið svo á, að um það væri sam- komulag að engin kosningabanda- lög yrðu mynduð eða áróðursher- ferðir yrðu farnar fyrir prófkjörið. Því hefðu ekki verið opnaðar kosn- ingaskrifstofur eða sköpuð stemmning í kringum frambjóðend- ur Alþýðuflokksins, sem þátttakan í prófkjörinu hefði svo endurspegl- að. En þegar kjörseðlamir væru skoðaðir væri augljóst að félagar í Nýjum vettvangi hefðu myndað bandalag með félagi Ásgeirs Hann- esar Eiríkssonar um að kjósa fram- bjóðendur hvor annars. „Svo maður fer að velta því fyrir sér, me'ð hvers konar fólki maður er að hefja samstarf. Og það er best að skoða það aðeins betur áður en maður tekur ákvörðun," sagði Bjarni P. Magnússon. Samkvæmt prófkjörsreglum mynda átta efstu frambjóðendurnir í prófkjörinu uppstillingarnefnd ásamt þremur fulltrúum frá þeim samtökum sem að framboðinu standa, og raðar í sæti 9-30. Sam- kvæmt upplýsingum frá Nýjum vettvangi mun skipan uppstillingar- nefndar væntanlega liggja fyrir í dag. hefur verið ákveðið að fá breyting- unni flýtt og er stefnt að því að frumvarp þetta verði að lögum á þessu þingi. Með úrskurði Hæstaréttar á dög- unum var hnekkt úrskurði Ásgeirs og honum gert að víkja sæti við meðferð máls sem snýst um ætlað- an innflutning manns og konu á tæpum þremur kílóum af hassi. Fólkið var handtekið þann 21. júní 1986. í úrskurði Hæstaréttar segir að samkvæmt þágildandi laga- ákvæði, um að við embætti dómara í ávana- og fíkniefnamálum skyldi starfa undir hans stjórn sérstök deild lögreglumanna, hefðu hin ákærðu haft ástæðu til að ætla að ávana- og fíkniefnadeild starfaði undir stjórn dómarans og þau hafi ekki getað vitað að samkvæmt starfsskiptingu milli hans og lög- reglunnar í Reykjavík annaðist lög- reglustjóri starfrækslu lögreglu- deildarinnar. Bæði dómstóllinn og lögregludeildin eru til húsa í lög- reglustöðinni við Hverfisgötu. Þá segir.í úrskurði hæstaréttardómar- anna Hjartar Torfasonar, Hrafns Bragasonar og Gunnars M. Guð- mundssonar, setts hæstaréttardóm- ara, að Hæstiréttur hafi með dómi þann 9. janúar síðastliðinn komist að þeirri niðurstöðu að skýra beri lög svo að sá sem vinni að lögreglu- rannsókn í máli geti ekki verið dóm- ari í því. Þetta er í þriðja skipti frá ára- mótum sem Ásgeiri Friðjónssyni er gert að víkja sæti. Hæstiréttur stað- festi úrskurð hans um frávikningu í máli því sem kallað hefur verið stóra kókaínmálið í janúar, þar sem andstætt væri mannréttindasátt- mála Evrópu að dómari, í þágu rannsóknar, úrskurðaði mann í gæsluvarðhald á grundvelli þess að hann hefði gerst sekur um brot sem varðaði að minnsta kosti tveggja ára fangelsi og legði síðan efnisdóm á málið. Skömmu síðar var dómur ómerktur í Hæstarétti og vísað heim í hérað í máli annars manns sem dæmdur hafði verið í fjögurra ára fangelsi vegna smygls á kóka- íni. Próíkjör Nýs vettvangs: Fangar á Litla-Hrauni kusu með hjálp kjörbíls FANGAR á Litla-Hrauni og í Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg kusu í prófkjöri Nýs vettvangs um síðustu helgi með aðstoð kjörbíls. Kristján Ari Arason starfsmaður Nýs vettvangs sagði við Morgun- blaðið að komið hefði beiðni frá föngum um að fá að taka þátt í prófkjörinu og sjálfsagt hefði þótt að verða við henni. Dómsmálaráð- herra hefði gefið sérstakt leyfi og fulltrúi kjörstjórnar hefði farið á staðinn með kjörkassa, og kjörið hefði farið fram með aðstoð fanga- varða. Kristján Ari sagði þetta vera í fyrsta sinn sem föngum hefði gefíst kostur á að kjósa í prófkjöri stjórnmálaflokka. Kristján sagði að kjörbíllinn hefði einnig farið á elliheimili þar sem fólk hefði óskað eftir að kjósa, og heim til eldra fólks sem átti ekki heimangengt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.