Morgunblaðið - 11.04.1990, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 11.04.1990, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. APRIL 1990 AKUREYRI Loðdýrabændur: Óskað eftir fundi með Byggðastoftiun LOÐDÝRABÆNDUR á svæði Fóðurstöðvarinnar á Dalvík ætla að óska eftir því að fá fimd með forráðamönnum Byggðastoftiunar fljót- lega eftir páska til að ræða hvernig fóðurmálum verði best háttað. Jón Hjaltason, formaður félags loðdýrabænda í Eyjafírði, sagði að ekki hefði verið tekin um það ákvörðun á fundinum að farga loð- dýrastofninum, það væri ákvörðun sem menn tæku sjálfir hver fyrir sig. Ákveðið hefði verið að fá áfram fóður hjá Melrakka á Sauðárkróki, en bændur vildu fá svör við því hvernig flutningum yrði háttað í framtíðinni. Fóðurbíll frá Fóður- stöðinni á Dalvík var leystur út og hefur hann sótt fóður vestur í Skagafjörð, en samið hefur verið um hveija ferð fyrir sig. Þá sagði Jón að bændur vildu fá á hreint hvort gengið yrði að þeim yrði Fóðurstöðin lýst gjaldþrota, en til þess bentu allar líkur. Bændur skulduðu talsverðar fjárhæðir til stöðvarinnar og einnig væru stjórn- armenn í persónulegum ábyrgðum. Morgunblaðið/Rúnar Þór Richard Lowell við tjaldið í Qöruborðinu fyrir neðan Strandgötu. Á myndinni til hægri er hann í kajaknum, sem hann ætlar að fara á til ÓlafsQarð- ar og víðar, ef veður leyiír. Þegar ég á frí vil ég vera þar sem snjór mætir sjó - segir Richard Lowell, bandarískur tannlæknir sem kynn- ir sér aðstæður til siglinga á kajak á norðlægum slóðum RICHARD Lowell, rösklega fertugur tannlæknir frá Monroe, sem er skammt frá Seattle í Bandaríkjunum, reyndi í gær að fara frá Akur- eyri og út með fírði á kajak, en stefnuna hafði hann sett á að komast til ÓlafsQarðar eða jaftivel lengra ef veður yrði gott. Þar sem vindátt var óhag- stæð komst hann hvergi. Low- ell hefur segl á kajaknum og beið hann í gær eftir að vindur snérist að sunnan svo hann gæti látið úr höfn. Richard Lowell sagðist hafa komið til Akureyrar til að kynna sér aðstæður á norðlægum slóð- um, en hann hyggur á siglingu á kajak sínum frá Lofoten í Noregi á næsta ári. Lowell er hagvanur um borð í farkosti sínum, en hann hefur siglt honum við strendur Alaska og á Mexíkóflóa svo dæmi séu tekin. Þegar Lowell tekur sér frí frá tannlæknastörfum sagðist hann helst „vilja vera þar sem snjór mætir _sjó“, eins og hann orðaði það. „Ég kann vel við mig í kaj- aknum, ég vil vera ftjáls og þegar ekki viðrar til róðra fer ég á skíði, eða les inni í tjaldi, sem ég kem fyrir í fjöruborðinu," sagði Ric- hard Lowell. Richard hafði hug á að komast í nokkrum áföngum til Ólafsijarð- ar og ef veðrið yrði honum hag- stætt ætlaði hann að reyna að komast til Siglufjarðar og jafnvel til Skagafjarðar. Þar sem Lowell komst ekki frá Akureyri í gær, sló hann upp tjaldi í ijörunni skammt norðan við Torfunefs- ' bryggju. Flugleiðatrimm verð- ur haldið í Hlíðarfjalli Flugleiðatrimm verður að borgar og til baka þar sem allir venju haldið í Illíðarfjalli um þátttakendur eru í pottinum. páskana. Tveggjabrautakeppni (Frcttatiikynning) verður á laugardag og úrslit á mánudag, en skíðagangan verð- * * * ur á páskadag. Ólafsflörður: Framboðslisti Sjálfstæðis- flokks birtur Undankeppni í tveggjabrauta- keppni Flugleiða hefst kl. 12 á hádegi næsta laugardag fyrir 13 ára og eldri, sem ekki hafa keppn- isrétt í fullorðinsflokki SKÍ. Úrslit- in verða á annan dag páska, mánu- dag, og hefjast kl. 12. Verðlaun í karla- og kvennaflokki eru flugfar til Luxemborgar. Flugleiðatrimm á gönguskíðum verður á páskadag. Dagskráin hefst kl. 13 með útimessu við Skíðastaði, þar sem sr. Pétur Þór- arinsson flytur ávarp. Brautin verður opnuð kl. 10 og er opin til 16, en tímataka hefst kl. 14. Tvær vegalengdir eru í boði, 4 og 8 kíló- metrar. Veitt verða verðlaun fyrir þátttöku í tímatöku á báðum vega- lengdum, en einnig verður dreginn út farmiði til Reykjavíkur fyrir hvora vegalengd um sig og að lok- um er dregið út flugfar til Luxem- KEA selt hlutafé Dalvíkurbæj- ar í Útgerðarfélagi Dalvíkmga Einstaklingar og fyrirtæki óska eftir að ganga inn í til- boð Samheija á kaupum á hlut KEA í söltunarfélaginu BÆJARSTJÓRN Dalvíkur sam- þykkti á fundi í gær að fela bæjar- stjóra að ganga endanlega frá samningi um sölu hlutabréfa bæj- arins í Utgerðarfélagi Dalvíkinga. Þá haftiaði meirihluti bæjar- stjórnar tillögu um einhliða hluta- íjáraukningu KEA í ÚD. Kaupfé- lag Eyfirðinga mun leggja tveim- ur skipa sinna, Sólfelli EA sem gert hefur verið út frá Hrísey og Baldri EA sem gerður er út frá Dalvík, og leggja kvóta þeirra við togarana Björgvin og Björgúlf sem Útgerðarfélag Dalvíkinga gerir út. Á fundi bæjarstjórnar var lesin upp viljayfirlýsing frá einstaklingum og fyrirtækjum í bænum sem send var stjórn Kaupfélags Eyfirðinga um að þessir aðilar fara þess á leit við félagið, að þeir fái að ganga inn í tilboð Samheija á kaupum á hluta- bréfum KEA í Söltunarfélagi Dalvík- ur. KEA á 64% hlut í SFD. Fulltrúar minnihlutans í bæjar- stjóm lögðu fram á fundinum tillögu um að haldinn yrði almennur borg- arafundur til að kynna hugmyndir bæjarins með sölu hlutabréfanna og fá fram viðhorf bæjarbúa í þessu máli og einnig lögðu þeir fram til- lögu um að heimaaðilum yrði gefín kostur á að kaupa hlut Kaupfélags Eyfírðinga í SFD. Tillögur minni- hlutans voru felldar á bæjarstjórnar- fundinum. í tillögum meirihlutans sem fram komu á fundinum kom fram að það bæjarins í ÚD yrði notað til upp- byggingar atvinnulífs á staðnum og þeir Trausti Þorsteinsson forseti bæjarstjórnar og Kristján Þór Júlí- usson bæjarstjóri lýstu yfir því að bæjarstjórn væri tilbúin til viðræðna við þá aðila sem reiðubúnir væru til að kaupa hlut KEA í söltunarfélag- inu um stofnun nýs fyrirtækis eða ný atvinnutækifæri á staðnum. Á fundinum var lesið upp skeyti frá áhöfn Björgúlfs EA, en þar hvetja þeir til þess að bærinn selji ekki hlutafé sitt í útgerðarfélaginu, hagsmunum sjómanna væri best borgið með því að reka fyrirtækið sjálfstætt áfram. Eftir að gengið hefur verið frá samningum um sölu hiutabréfa Dalvíkurbæjar í ÚD á KEA 97,4% hlut í útgerðarfélaginu. Björgvin Jónsson útgerðarmaður sem á 2,6% hlut í ÚD hefur óskað eftir því að verða leystur út úr félaginu. FRAMBOÐSLISTI Sjálfstæðis- flokksins í Ólafsfirði fyrir bæjar- sljórnarkosningarnar 26. maí n.k. var einróma samþykktur á fundi Sjálfstæðisfélaganna í .01- afsfirði sl. sunnudag. Sjálfstæðis- menn hafa 4 bæjarfulltrúa af 7 í bæjarstjórn Ólafsfjarðar. Listinn er þannig skipaður: í 1. sæti Óskar Þór Sigurbjörnsson for- seti bæjarstjórnar, 2. Kristín Trampe lyfjatæknir, 3. Sigurður Björnsson _bæjarfulltrúi, 4. Þor- steinn Ásgeirsson bæjarfulltrúi, 5. Guðrún Jónsdóttir hárgreiðslu- meistari, 6. Haukur Sigurðsson byggingameistari, 7. Anna María Elíasdóttir húsmóðir, 8. Gunnlaug- ur J. Magnússon rafvirki, 9. Anna María Sigurgeirsdóttir húsmóðir, 10. Ómar Aðalbjörnsson sjómaður, 11. Aðaheiður Jóhannsdóttir hús- móðir, 12. Guðmundur Þór Guð- jónsson skrifstofumaður, 13. Ingi- björg Guðmundsdóttir verkakona og í 14. Birna Friðgeirsdóttir bæjar- fulltrúi. SB Lyftur opnar um páska AÐSÓKN að skíðasvæði Dalvík- inga hefur verið mjög góð í vetur og jókst áhuginn á skíðaíþrótt- inni eftir að haldið var þar alþjóð- legt skíðamót á vetraríþróttahá- tíðinni fyrir skömmu. fé sem losnað við sölu j hlutabréfa __Sveinbjörn___?ingTrímsson____í_ Skíðafélagi Dalvíkur sagði að Dalvíkingar væru tilbúnir að taka á móti gestum um páskana, en lyft- ur á skíðasvæðinu eru opnar frá kl. 10 til kl. 18 og jafnvel lengur ef veður er gott. Skákmót hald- in um páskana SKÁKFÉLAG Akureyrar heldur tíu mínútna mót á morgun, skírdag, og hefst það kl. 20 og á laugardag er skákmót fyrir börn og unglinga, sem hefst kl. 13.30. Á annan í páskum verður Páska- hraðskákmótið haldið og hefst það kl. 14. Skákfélagið efnir til helgarskák- móts í félagsheimili sínu við Þing- vallastræti um aðra helgi, eða dag- ana 19.-22. apríl. Tefldar verða 7 umferðir eftir Monrad-kerfi, nor- ræna afbrigðinu, og er umhugsun- artími 1 'h klst. á 36 leiki á kepp- anda og síðan hálftími til að Ijúka skákinni. Þátttökutilkynningar þurfa að berast fyrir 18. apríl og er m.a. hægt að skrá sig í félagsheimilinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.