Morgunblaðið - 11.04.1990, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 1990
Ljóðrænir fletir
Myndlist
Bragi Ásgeirsson
Það má til sanns vegar færa,
að Guðmunda Andrésdóttir hafi
skapað sér nokkra sérstöðu í
íslenzkri myndlist.
Fyrir hið fyrsta þá er ferill
hennar óvenju staðfastur,. hvað
viðfangsefni snertir, þótt skipta
megi honum í nokkur afmörkuð
tímabil, en það fer ekki á milli
mála, að hið ljóðræna í strangfla-
talistinni hafi alltaf höfðað til
hennar.
Ásýnd strangflatalistarinnar
svonefndu, eða geometriunnar,
svo sem alþjóðlega heitið er og
nær athöfninni mun altækar, er
sem sagt margþætt og því fer
víðs fjarri, að listastefnan sé jafn-
an eitthvað ískalt og útreiknað,
eins og margur vill álíta.
Og þannig eru til menn, sem
eru einlægir aðdáendur vissra
þátta í liststefnunni, en hafna
öðrum, nákvæmlega einsog menn
líta á landslagsmálverkið mörg-
um augum og viðurkenna ekki
allt einungis vegna þess, að það
er af þekkjanlegum hlutum. Ef
sú er ekki raunin, er ekki um list-
skoðun að ræða heldur trúar-
brögð og því miður verður að
segja einsog er, að þau og ein-
strengni eru full algeng innan
myndlistarinnar.
Guðmunda er og eina konan
sem hefur sýnt með Septem-
hópnum svonefnda, og er það
ekki vegna þess að viðkomandi
séu tiltakanlega á móti konum í
listinni, heldur vegna þess að hér
er um nokkra sérstöðu Guðmundu
að ræða og kemur þar kyngrein-
ingarálit hvergi nærri.
Einfaldlega máluðu ekki fleiri
konur óhlutlægt á landinu í þann
tíma, er Guðmunda kom fram,
ef Nína Tryggvadóttir er undan-
skilin, en hún var fallin frá, er
Septem-hópurinn var stofnaður.
Til viðbótar þá tók Guðmunda
þátt í síðustu Septembersýning-
unni árið 1952, og taldist þar
eftir jafnan til innsta hrings hóps-
ins, sem myndaði kjarna hreyf-
ingarinnar.
En hér er hvorki tími né rými
til nokkurra vangaveltna um slík
mál og snúum okkur að því að
rýna í sýningu verka Guðmundu
Andrésdóttur, sem menningar-
málanefnd Reykjavíkurborgar
stendur fyrir í vestari sal Kjarv-
alsstaða fram til 25. apríl.
Hið fyrsta er að bera lof á
menningarmálanefndina fyrir að
hafa stofnað til sýningarinnar,
því að þetta er óvenju heildstæð
sýning, er gefur góða hugmynd
um þróun listar Guðmundu. Þá
hefur líf listakonunnar ekki ávallt
verið dans á rósum, og á tímabili
var það nánast í tízku að hnýta
í framlag hennar á árlegum sýn-
ingum Septem-hópsins viðkom-
andi til takmarkaðs sóma.
Kannski var ástæðan helst sú,
hve opin og augljós list Guð-
mundu hefur jafnan verið, en það
reynist, er svo er komið, einmitt
vera styrkur hennar. Myndir Guð-
mundu tóku sig þannig ekki jafn-
an út sem skyldi í þessum hópi
karlaveldisins, því að þær voru
fíngerðari og höfðuðu til allt ann-
arra kennda hjá skoðendunum.
En svo kom það merkilega fram,
þegar nokkrar myndir hennar
sáust í stærra samhengi á Ab-
strakt-sýningunni í samanlögðu
húsinu fyrir nokkrum árum, að
þá blómstraði framlag hennar í
öllu -kraðakinu og einmitt fyrir
einfaldleika sinn og skýrleika.
Tel ég að þá hafi augu margra
loks opnast fyrir styrk listar Guð-
mundu, og þótti mér þá sérstakt
tilefni til að benda á þetta, svo
augljóst ssem það var.
Tveir meginþættir eru yfir-
gnæfandi á ferli listakonunnar,
hinn fyrsti er hið svokallaða net-
form, en hinn seinni er hringafor-
mið ásamt mjúkum dansandi
línum, sem á ýmsa vegu hlykkj-
ast um myndflötinn, sem hún
bindur með láréttum eða lóðrétt-
um línum og misbreiðum ræmum,
er skera hann þveran. Flest ann-
að, sem hún hefur tekið sér fyrir
hendur, virkar við hlið þessara
þátta sem tímabundnar æfíngar
og rannsóknir á þanþoli myndfl-
atarins, en ávallt með hrynjandi
og hið ljóðræna að leiðarljósi.
Á síðustu tímum mikilla
stærða, grófleika, frekju og nán-
ast ruddaskapar í myndsköpun
virkar slík list vafalítið næsta
pempíuleg á köflum, en það gerir
mörg önnur mjög verðmæt list-
sköpun í óhlutlæga geiranum
einnig — öll ljóðræn og djúp list,
allt frá hárfínum myndum ftjálsr-
ar mótunar svo sem hjá Jean
Fautrier, og til litsterkra en
djúpra og mettaðra mynda
Gustavs Singiers. Hinn síðast-
nefndi var og lærimeistari Guð-
mundu á Parísarárum hennar og
má segja, að hún hafí verið trú
menntun sinni og upplagi, því að
Ijóðræna abstraktsjónin átti
drjúgu fylgi að fagna á þeim árum
í París og víðar.
En þetta er einnig samofíð
skapgerð Guðmundu, því að hún
á fátt sameiginlegt með þessum
tveimur fyrirrennurum sínum
annað en viðhorfíð til listarinnar.
Sýningin á Kjarvalsstöðum
skilar vel hlutverki sínu, hvað það
snertir að bregða upp skýru Ijósi
á þessa meginþætti og henni er
sérlega vel komið fyrir í salar-
kynnunum.
Hið hvassa netform, sem iðu-
lega er mýkt upp af ótal tilbrigð-
um jarðlita og lífgað með nokkr-
um hreinum og ljósmiklum frum-
litum, er af sumum álitinn há-
punkturinn á listferli Guðmundu,
en ég álít að hinar bestu myndir
hringformanna taki þeim fram.
Hringformsmyndirnar eru hreinni
og afdráttarlausri málverk, þar
sem aftur á móti eitthvað mjög
efniskennt, sem gæti minnt á
vefnað, einkennir á stundum net-
formsmyndirnar.
En það mikilvægasta er að ein-
faldar og hljóðlátar myndir Guð-
mundu Andrésdóttur vinna á í
tímans rás og eins og kvikna til
áleitinna lífsmagna. Slíkt er aðall
allrar sannrar listar, á meðan
hrópin og ærslaköllin deyja út og
samsamast óminninu, — líkt og
rokinn eimur.
Bil á milli atburða
Myndlíst
Bragi Ásgeirsson
í listhomi klæðaverzlunar Sæv-
ars Karls Olasonar eru nokkur
blönduð verk eftir Helga Þorgils
Friðjónsson til sýnis þessa dagana
og fram til 20. apríl.
Það er mun léttara yfir þessari
sýningu en mörgum öðrum sem
hafa verið settar upp á þessum
stað og hafa verið háalvarlegar í
smæð sinni, því að rýmið leyfir
ekki stórbrotin tilþrif.
Ekki þarf að kynna Helga Þor-
gils sem er einn mest kynnti lista-
maður hinnar yngri kynslóðar
enda eru sýningar hans orðnar
a.m.k. 30 og þar af margar er-
lendis.
Það kennir furðu margra grasa
í þessum fáu myndum, og jafnvel
er Helgi farinn að fást við skúlpt-
úr og getur að líta einn slíkan á
miðju sýningargólfinu.
Á veggjunum sér svo i málverk
og vatnslitamyndir af ýmsu tagi,
en að öllu samanlögðu eru þau
með sterkum einkennum skapara
síns, sem virðist lifa og hrærast
í íslenzkum veruleika í hugsunar-
hætti, taki maður mið af ágætlega
ritaðri stuttri frásögn í sýningar-
skrá af labbi listamannsins frá
Kolviðarhóli, upp á Hengil og að
Þingvöllum. En hins vegar sækir
hann sum form sín út fyrir land-
helgi íslands eins og fleiri skoð-
anabræður hans, og er það full
komlega meinlaust, sé það borið
uppi af listrænum tilþrifum.
Vafalítið hafa margir ánægju
af að skoða þessar myndir, og vek
ég því athygli á sýningunni, en í
sjálfu sér gefur hún ekki tilefni
til nákvæmrar krufningar, því að
Helgi Þorgils Friðjónsson
flest þetta ber skýr einkenni höf-
undarins og eins og hefur sést
áður.
GIMLIGIMLI
Þorsgata 26 2 hæö Smu 25099 ^ Þorsgat.i 26 2 hæd Sirni 26099
VANTAR EINBÝLISHÚS
Höfum kaupendurað góðum einbýlishúsum á Reykjavíkur-
svæðinu.
® 25099
Stórar eignir
MIÐHÚS - EINB.
Fallegt ca 183 fm einbús á þremur pöllum
m/fokh., innb. bílsk. Húsið afh. fokh. að
innan ófrág. að utan með útihurðum.
Glæsil. útsýni yfir borgina. Verð 7,2 millj.
LINDARBYGGÐ - MOSBÆ
- LAUST STRAX
Fallegt, nýtt ca 160 fm parh. á einni hæð
ásamt bílskýli. Skipti mögul. Áhv. 1800
þús. lífeyrissj. Verð 9,5 millj.
ENGJASEL - RAÐH.
- HAGSTÆÐ LÁN
Falleg ca 140 fm raðh. á tveimur hæðum
ásamt stæði í bílskýli. 4 svefnherb. Hús
í góðu standi. Áhv. 3,4 millj. hagst. lán.
Verð 9,3 millj.
KLAPPARBERG
Fullb. ca 200 fm einb. á tveimur hæðum
ásamt 35 fm bílsk. 5 rúmg. svefnherb.
Skipti mögul. á 4ra-5 herb. íb. í Hóla-
hverfi m/bílsk. Verð 12,5 millj.
SELTJARNARNES
- EINB. Á EINNI HÆÐ
Fallegt ca 153 fm einbhús á einni hæð
ásamt ca 33 fm bílsk. 4 svefnherb., nýl.
glæsil. eldhús. Parket. Fallegur ræktaður
garður. Skipti mögul. á 4ra-5 herb. íb. á
Seltjarnarnesi eða [ Vesturbæ. Teikn. á
skrifst.
KEILUFELL - EINB.
Ca 150 fm timbureinb., hæð og
ris, ásamt bílsk. 4 svefnherb. Eign
f góðu standi, vel viðhaldið. Ákv.
sala. Verð 9,5 millj.
AUSTURBERG - BÍLSK.
Falleg 4ra herb. íb. á 3. hæð ásamt fullb.
bilsk. 3 rúmg. svefnherb. Ákv. sala. Verð
6,2 millj.
HÓFGERÐI - BÍLSK.
Góð 100 fm íb. á 1. hæð í tvíb. ásamt
góðum 31 fm bílsk. 3 svefnherb. Parket.
Nýtt rafmagn og ofnar. Verð 6,8 millj.
KLEPPSVEGUR
Falleg 4ra herb. íb. á 1. hæð. Eign í góðu
standi. Verð 5,5 millj.
ENGJASEL - BÍLSK.
Falleg 4ra herb. 102 fm nettó íb. á 3. hæð
ásamt stæði í bílskýli. Sérþvottah. Ákv.
sala. Verð 6,2 millj.
EIÐISTORG
Falleg 4ra herb. íb. á 2. hæð. Glæsil. út-
sýni. Vönduð sameign. Verð 7,5 millj.
3ja herb. íbúðir
HJARÐARHAGI - 3JA
Rúmg. 3ja herb. íb. á 4. hæð. Glæsil. út-
sýni. Áhv. 2,2 millj. veðdeild.
ÆSUFELL - RÚMG.
Falleg 87 fm íb. á 1. hæð í lyftuh. Góöar
innr. Verð 5,1 millj.
HAMRABORG
Glæsil. 93 fm nettó íb. á 4. hæð. Nýtt
eldh. og skápar. Glæsil. útsýni. bílskýli.
VESTURBERG
Glæsil. 3ja herb. íb. á 3. hæð. Nýtt par-
ket. Verð 4,9 millj.
OFANLEITI - 3JA
Nýl. ca 90,8 fm 3ja herb. íb. á 2. hæð.
Skipti mögul. á góðri sérhæð eða litlu húsi
í Smáíbúðahverfi, Hlíðum, Háaleitishverfi,
Fossvogi, Vesturbæ eða Seltjnesi.
VÍKURÁS - SELÁS
Ný glæsil. 83 fm nettó íb. á 2. hæð ásamt
bílskýli. Beykiinnr. Parket. Áhv. 1700 þús.
veðdeild.
DVERGABAKKI
Falleg 84,5 fm 3ja herb. íb. á 3. hæð.
Áhv. 2,3 millj. hagst. lán. Sérþvottah.
Endurn. bað. Verð 5,5 millj.
2ja herb. íbúðir
HVERAFOLD - EINB.
Mjög fallegt ca 140 fm einb. á einni hæð
ásamt 35 fm bílsk. og nýrri 28 fm sól-
stofu. Eignin er fullb. með frág. lóð. Hiti
í bílaplani. Stórglæsil. útsýni yfir borgina.
Ákv. sala. Teikn. á skrifst.
I' SMÍÐUM
Höfum fjölda einbhúsa, par- og
raðhúsa á hinum ýmsu byggstig-
um. Teikn. á skrifst. Peir sem hafa
áhuga geta komið við fenglð eintak
af teikn.
5-7 herb. íbúðir
KAMBSVEGUR
- HAGSTÆÐ LÁN
Falleg 6 herb. sérhæð á 1. hæö m/sér-
inng. Öll endurn. í hólf og gólf. Laus fljótl.
Áhv. ca 2,7 millj. veöd. ca 1,0 millj. lífeyr-
issj. Ákv. sala.
EIÐISTORG
Glæsil. ca 138 fm íb. á 2. hæð í vönduðu
fjölbhúsi. Tvennar svalir. Vandaöar innr.
Glæsil. útsýni.
VESTURBÆR - KÓP.
Falleg 6 herb. efri sérhæð ásamt bílsk.
Glæsil. útsýni. 4 svefnherb. Nýl. gler.
Parket. Ákv. sala.
LAUGARNESVEGUR
Falleg 126 fm neðri sérhæð á góðum
stað. 3 svefnherb. 2 stofur. Verð 6,950
þús.
RÁNARGATA
Glæsil. endurn. íb. í „klassískum", hlýl.
stíl. íb. er ca 130 fm á 1. hæö í þríb.
Stór garður og mikil sameign. Parket.
Laus í maí.
4ra herb. íbúðir
KRUMMAHÓLAR
Falleg 103 fm nettó íb. á 2. hæð í húsinu
nr. 10. Sérþvottah. Ákv. sala.
SÖRLASKJÓL
- GLÆSIL. ÚTSÝNI
Falleg 4ra herb. ib. á 2. hæð. 3 svefn-
herb. Glæsil. útsýni.
BOLLAGATA
3óð 103 fm nettó sérhæð á 1. hæð ásamt
25 fm bílsk. Sérinngangur. Skuldlaus.
l/erð 7,5 mlllj.
VESTURBERG - 4RA
ÁHV. 3,0 MILLJ.
Mjög falleg 4ra herb. íb. á 2. hæð. Áhv.
ca 3,0 millj. hagst. langtlán.
ENGIHJALLI
Falleg 4ra-5 herb. íbúð á 8. hæö. Stór-
glæsil. útsýni. Nýmál. Verð 6,2 millj.
EINSTAKLINGSÍBÚÐ
- SKIPTI - MÁLVERK
Höfum til sölu góða einstaklíb. á
3. hæð í lyftuh. i Hamarshúsinu
v/Tryggvagötu. Parket. Glæsil. út-
sýni yfir höfnina. Mögul. að greiða
eignina að hluta til eða alla m/isl.
málverkum. Áhv. 900 þús. Verð 2,6
millj.
STANGARHOLT
Glæsil. 2ja herb. fullbúin íb. á 2. hæð í
nýju, vönduðu fjölbhúsi. Suðursv. Parket.
Sérþvottah. Áhv. 1800 þús. veödeild.
Verð 5,3 millj.
VÍKURÁS
Mjög falleg 2ja herb. íb. á 1. hæð.
Parket. Ca 60 fm nettó. Áhv. ca
1250 þús. veödeild. Verð 4,4 mlllj.
REKAGRANDI - 2JA
Glæsil. 2ja herb. íb. á 1. hæð með litlum
nýstandsettum sérgarði. Áhv. ca 1900
þús. við veðdeild. Ákv. sala.
HRAUNBÆR
Falleg 2ja herb. íb. á 2. hæð með nýl.
eldhúsi ofarlega í Hraunbænum. Vest-
ursv. Góð aðstaða fyrir börn. V. 4,2 m.
PVERBREKKA - LYFTA
- HAGSTÆÐ LÁN
Falleg 2ja herb. íb. á 7. hæö í lyftuh.
Stórglæsil. útsýni. Áhv. ca 1700 þús.
Verð 3,9 millj.
HRAUNBÆR - LAUS
Falleg 2ja herb. endaíb. á 2. hæð. Nýtt
rafm. og ofnar. Ákv. sala. Verð 4050 þús.
VINDÁS - BÍLSK.
Falleg 2ja herb. íb. á 2. hæð. Suðursv.
Bílskýli. Verð 4,6 millj.
SKÓLAVÖRÐUSTÍGUR
Góð ca 50 fm nettó íb, í kj. Eign í mjög
góöu standi. Áhv. ca 1500 þús. langtíma-
lán. Verð 3,1 millj.
GRETTISGATA - RIS
- HAGSTÆÐ LÁN
Falleg nýstandsett 2ja herb. íb. 58,3 fm
nettó. Nýjar rafmagns- og ofnalagnir.
Áhv. 1600 þús. hagst. lán. Verð 3,7 millj.
VANTAR 2JA HERB.
- STAÐGREIÐSLA
Höfum fjárst. kaupanda aö góðri
2ja herb. íb. Staðgr. í boði fyrir
rétta eign.
Árni Stefánsson, viðskiptafr.
1 1 .urijmtil >1
Metsölublad á hverjum degi!