Morgunblaðið - 11.04.1990, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 11.04.1990, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 1990 45 Þýðingar í sjónvarpi Til Velvakanda. Félag kvikmyndagerðarmanna gagnrýndi nýlega þýðingar á er- lendum kvikmyndum í sjónvarpi. Um þetta segir Ellert Sigurbjöms- son yfirþýðandi sjónvarps í grein í Morgunblaðinu 10. mars, „að leit- að væri til góðra íslenskumanna sem nokkuð víst væri að skildu vel málið sem þýtt væri úr.“ Hér ætti því allt að vera í „nokkuð“ góðu lagi. En í annarri grein, „Kynlegar þýðingar í sjónvarpi“ þrem dögum síðar í sama blaði (Velvakanda), kveður við „nokkuð“ annan tón. Hefur mörgum sennilega brugðið í brún er þeir sáu þar svo herfileg dæmi um fáránlegar þýðingar að fírnum sætir. Jafnvel algengustu orð — sem sumir krakkar í grunn- skóla þekkja — svo sem attractive (aðlaðandi) eru þýdd yfrið an- kringilega eða ýmist eggjandi, lag- legur, myndarlegur en sjaldnast rétt (aðlaðandi). Hvað veldur slíkum ósköpum? Varla fáfræði. í fyrrnefndri grein frá 13. mars seg- ir að skólanemi hafí helst talið að hér væri um skemmdarstarfsemi að ræða í því skyni að torvelda sér og öðrum að auka málakunnáttu sína er horft væri á sjónvarp. Ef til vill vegna fjandskapar í garð enskrar tungu? En hafa þýðendur látið sér segj- ast við þessa svæsnu gagnrýni? Hinn 20. mars eða viku síðar horfði ég á mynd í sjónvarpi, „Að leikslokum". Þar nefndi einhver Home Office (innanríkisráðuneyti). Mér til mikillar furðu kallaði þýð- andi þessa stofnun utanríkisráðu- neyti. Ég hugði að hér væri einn hinna „góðu“ íslenskumanna á ferð og fletti upp nafni þýðanda í símskrá. En mér hafði skjátlast. Hér var að verki hvorki meira né minna en löggiltur dómtúlkur! Hvað veldur þvílíkum vinnubrögð- um þessa lærða manns? Hefur áðumefndur skólanemi ef til vill lög að mæla? Og þá vaknar sú spurning, hvort lögspekingar við hæstarétt, sem setja yrðu traust sitt á þýðingar af slíkum gæða- flokki, kynnu ekki að fella heldur kindarlega dóma. En sleppum öllu gamni. Spyija mætti hversu lengi eiga meinárar að ganga lausir í grasgörðum íslenskrar menningar? Er ekki mál til komið að æðsti páfi þýðenda í sjónvarpi stigi niður úr hásæti (hógsæti?) sínu, girði sig megin- gjörðum myndugleika og rögg- semi, keyri á kné sína öfugsnúnu undirsáta og veiti þeim löngu verð- skuldaða ráðningu? Dolfallinn. Af gefinu tilefiii Af gefnu tilefni er þess sér- staklega óskað að sem flestir skrifi í Velvakanda undir nafni. Ekki verða birt nafnlaus bréf sem eru gagnrýni, ádeilur eða árásir á nafngreint fólk. - Ritstj. HEILRÆÐI Foreldrar! Geymið öll hættuleg efni þar sem börnin ná ekki til. Þessir hringdu . . . Ullarkápa Dökkgrá ullarkápa var tekin í misgripum í Casablanca sl. laugardagskvöld. Sá sem tók úlpuna er beðinn að skila henni í fatageymsluna eða hingja í síma 32970. Eldhætta af reykingum Árni J. Jóhannsson hringdi: „Ég er algerlega á móti reykingum í flugvélum. Nú eru Flugleiðir að fá nýjar flugvélar, það væri hörmulegt ef það myndi kvikna í þeim vegna reykinga. Þeir sem ekki geta setið upp í flugvél í nokkra klukkutíma án þess að reykja verða að fínna sér aðra leið til að ferðast. Flugvélaeldneyti er eitthvað það eldfimasta sem til er og það er skelfileg tilhugsun ef það kviknaði í flugvél fullri af farþegum vegna þess að ein- hver missti niður neista.“ Undirbúningsvinna? Guðrún hringdi: „Hvernig stendur á því að kennarar sem taka nemendur í aukatíma reikna sér heilan tíma fyrir hveijar 40 mínútur. Þetta er ef til vill ekki svo óeðlilegt ef um 20 nemenda bekk er að ræða en hvernig er hægt að réttlæta þetta fyrir einn nem- anda, ekki skapar hann svona mikla undirbúningsvinnu. Hver er skýringin á því að kennarar komast upp með þetta?“ Segularmbönd Til Velvakanda. Vegna greinar sem birtist í Vel- vakanda 27. mars sl. um segularm- bönd og undirrituð var „Baugalín“ vil ég að það komi skýrt fram að ég er ekki höfundur þeirrar greinar þó svo að böndin gætu beinst að mér. Dýrun Ragnheiður Steindórs- dóttir ■ AÐALSTEINN Svanur Sig- fússon mun halda málverkasýningu um páskahelgina i sal Myndlista- skólans á Akureyri. Þetta er sjötta einkasýning Aðalsteins á Akureyri á jafnmörgum árum. Hann hefur einnig sýnt í Nýlistasaíhinu 1987 með Hlyni Helgasyni og Undir pilsfaldinum 1989 með Þórhalli Þráinssyni. Auk þessa hefur Aðal- steinn tekið þátt í allmörgum sam- sýningum. Aðalsteinn Svanur Sig- fússon nam myndlist við Myndlista- skólann á Akureyri og Myndlista- og handíðaskóla íslands 1982— 1986 og útskrifaðist úr málunar- deild. Á þessari sýningu verða ell- efu allstór olíumálverk gerð á síðustu tveimur árum. Sýningin verður opnuð miðvikudaginn 11. apríl kl. 20 en verður síðan opin alla páskahelgina kl. 14—20. ■ FRAMSÓKNARMENN í Grindavík hafa birt framboðslista fyrir sveitastjórnarkosningar í vor. Þijú efstu sætin eru óbreytt frá síðustu kosningum. Listinn er eftirfarandi: 1. Bjarni Andrésson bæjarfulltrúi, 2. Hall- dór Ingvason bæjarfulltrúi, 3. Valdís Kristinsdóttir kennari, 4.4 Jónas Þórhallsson skrifstofustjóri, 5. Kristrún Bragadóttir banka- starfsmaður, 6. Ása Fossdal skóla- ritari, 7. Hjálmar Hallgrímsson lögreglumaður, 8. Símon Alfreðs- son sjómaður, 9. Gunnar Vilbergs- son lögreglumaður, 10. Hrefha Björnsdóttir verslunarmaður, 11. Anna María Sigurðardóttir verkakona, 12. Bjarni Ágústsson sjómaður, 13. Salbjörg Jónsdóttir starfsstúlka og 14. Ragnheiður Bergmundsdóttir. Framsóknarmenn hafa tvo bæj-' arfulltrúa og mynda meirihluta með sjálfstæðismönnum. FÓ Soffío Ólöf Ketilsdóttir : ' Sigríður Stefónsdóttir Liodo Björk Bergsveinsdóttir Sigrún Eiríksdóttir Asto Siaríður Einorsdóttir 2 0 r ................... 1 »*■ ............... ....... ......—IMIHI—MI ; n M i ■ ............................ ........... Sigurrós Jónsdóttir Olga Björt Þórðardóttir Þorbjörg Bjarnadóttir Hugrún Ester Sígurðardóttir - Elin Ásvoldsdóttir ^ 7, Herdis Dröfn Eðvarðsdóttir Eygló Ólöf Birgisdóttir íris Eggertsdóttir Guðrún Voldii Guðrún Valdimorsdóttir Ragnhildur Magnúsdóttir Svava Rón Guðmundsdóttir Bertha Traustadóttir ! ~ Ásdis Birgisdóttir r Birgitto Róbertsdóttir Ingo Kristin Guólougsdóttir Beint úr Sjallanum, Akureyri! Hljófflsvcitin Eddi og fiskarair (Palmi Gunnarsson & co.) Kvöldverður frá kl. 20.00 Dansað til kl. 03. Þórdís Steinsdóttir Dís Sigurgeirsdóttir Snyrtilegur klæðnaður (gallaklæðnaður bannaður) n æ s í u n n i Fegurðarsamkeppni íslands úrslitakvöld 18. apríl Tom Jones 11. og 13. apríl 'ý Miðasala og borðapantanir í síma 687111 ^ t//////////////////////////////////^^^

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.