Morgunblaðið - 11.04.1990, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 11.04.1990, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 1990 fclk í fréttum NUPSSKOLI Með varðskipi í skíðaferð REYKJAVÍK POPP John Taylortrúr fortíðinni John Taylor, hinn dísæti liðsmaður popp- sveitarinnar Duran Duran, sagði nýlega skilið við danska sambýliskonu sína Rene Toft Simonsen sem var og er fyrirsæta að atvinnu. Haft hafði verið að orði að tríóið væri orðið helst til heimilislegt, því hinir sveitai-meðlimirnir Simon Le Bon og Nick Rhodes eru harðgiftir og una hag sínum vel með konu og börnum. Er af sem áður var er Duran Duran voru liðfleiri og allir á lausu. Taylor er nú trúr fortíðinni og var aðeins fáeina daga maður einsamall. Hann sést nú ævinlega í fylgd 17 ára smástirnis að nafni Amanda De Cadenet. Fer heldur fáum sögum af því hvað hún gerir, en hún hefur verið tíður gestur í veislusölum og fínni næturklúbbum Lundúnaborgar. Sagt er að hún gorti sig mjög af barmi sínum , beri sig saman við Gitte Nielsen og Sabrinu, ítölsku poppsöngkonuna brjóstgóðu, og seg- ir þær mega vara sig! Morgunblaðið/Kári Jónsson Varðskip var fengið fyrir hópinn til Bolungarvíkur og hér sést þegar farangur var ferjaður í fjöru og út í varðskipið. Ungmennafélagið Gróandi, sem er félag nemenda í Héraðsskó- lanum á Núpi í Dýrafirði, hefur verið duglegt í fjáröflunum ýmis- konar til eflingar félagslífi innan skólans. Nú nýverið lagði félagið rúmlega 300.000 kr. í endurbætur á húsnæði í skólanum til notkunar undir félagsmiðstöð. Auk þess hafa verið lagðar umtalsverðar upphæðir í tækjakaup, s.s. átta feta billjard- borð, þrekþjálfunartæki og hljóm- flutningstæki. Félagið starfar í nokkrum deild- um, þar sem mest ber á íþróttum, leiklist og blaðaútgáfu. 1. desember sl. sýndi leikhópurinn Eitthvað leik- ritið „Smámyndir" eftir Helga Má Bárðarson. A árshátíðinni þann 30. mars var svo sýning á leikritinu „Betri er þjófur í húsi en snurða á þræði“ eftir Dario Fo. Nú nýverið bauð félagið svo öll- um félögum sínum til skíðaferða- lags á Seljalandsdaþsem tókst með miklum ágætum. í leiðinni stóð íþróttadeild félagsins fyrir keppni við Menntaskólann á ísafirði. Fór sú keppni fram í Bolungarvík í boði Gróanda. Vegna samgönguleysis á landi varð að fá varðskip undir hópinn til Bolungarvíkur á sunnu- dagsmorgni og keppt var eftir há- degi. Sigraði MÍ í 6 greinum á móti 3 sigrum Gróanda. Tveir af kennurum skólans þurftu að moka sig í gegnum snjó- flóð í Óshlíðinni til að koma far- angri nemendanna á IsaQörð. Varð það til þess að vegurinn hélst fær fyrir keppendur MÍ sem héldu til Bolungarvíkur. Á þriðjudegi var svo haldið heim aftur með varðskipi og þá teknar með matvörur og aðrar nauðsynjar fyrir skólann. - Kári John Taylor bassaleikari Duran Duran með hinni barmmiklu Amöndu De Cadenet. Morgunblaðið/Jón Sigurðsaon Þórunn Steindórsdóttir úr 9. bekk sigraði í „Blönduvision"- söngvakeppninni. Jakob Pétur Jóhannesson og Elísabet Helgadóttir sýndu tilþrif í þokkadansinum Lambada. ARSHATIÐ Feikna flör í Grunnskólanum á Blönduósi SALOT OG AÐALRETTIR Blackened Chicken kr. 1,50 Blönduð salatbl'óð m/vinaigrette og kjúklingakj'óti Blackened Quartet kr. 1390 Sýnishorn afkolakvartet, sem samanstendur affiski, nautakj'óti, kjúkl- ingi og rækjum m/djúþsteiktum kart'öflubátum oggufusoðnugrœnmeti. Barbecue Shrimp and Shrimp Creole kr. 990 Uthafsrœkjur, soónar t piparsmj'óri og úthafsrækjur soðnar í Creol'e tómatsósu. Cajun Surf and Turfkr. 1090 Kolasteikturfiskur, borinn fram meó karfóflubátum oggufusoðnu grænmeti Blaclcened Fish kr. 1090 Kolasteikturfiskur, borinn fram með kart'óflubátum oggufusoónu grœnmeti Blackened Prime Rib kr. 11,90 Kolasteikt Prime Ribsteik borin fram meó kart'óflubátum oggufusoðnu grœnmeti Eftirréttir 4ra laga Greole ostakaka kr. 520 Hlaut silfurverðlaun. Verio velkomm a Hard Bock Cafe Elskum alla -þjómmi öllum. Sími 689888 Framlengjum CREOLE matarkynninguna næstu tvo daga í dag og á morgun, frá kl. 18-23.30 Beint frá New Orleans Yves Ambroise yfirmatreiðslumaóur d Royal Orleans veitingahúsinu í • Orlando eldar CREOLE OG CAJUN mat, sem er engu líkur Arshátíð Grunnskólans á Blönduósi var haldin fyrir skömmu og tókst hún í alla staði mjög vel. Það eru þrjár elstu bekkj- ardeildirnar sem sjá um árshátíð hveiju sinni og nú sem fyrr buðu krakkarnir upp á fjölbreytta og vandaða skemmtidagskrá. Átriði úr leikritinu Grænjaxlar, dansýning og hin árlega „Blönduvision" söngva- keppni voru meðal skemmtiatriða á árshátíð skólans. Það var greinilegt að krakkarnir höfðu lagt mikla vinnu í skemmti- dagskránna því slík var framsetn- ingin á efninu. Það atriði sem vek- ur alltaf hvað mesta eftirvæntingu á árshátíð hveiju sinni er „Blöndu- vision" söngvakeppnin. Að þessu sinni voru flutt fimm lög og var sigurvegari keppninar í ár Þórunn Steindórsdóttir úr 9. bekk og söng hún bítlalagjð „A Hard Days Night“ Stemmningin á meðan keppnin stendur er gífurleg og vandfundin þau lýsingarorð sem hæfðu ríkjandi andrúmslofti. Undirleik í söngva- keppni önnuðust fjórir strákar úr áttunda bekk og stóðu þeir fyrir sínu. I stuttu máli sagt þá tókst árs- hátíð krakkanna í grunnskóla Blönduóss mjög vel og var kökkun- um til mikils sóma. Jón Sig

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.