Morgunblaðið - 11.04.1990, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 11.04.1990, Blaðsíða 46
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 1990 46 "r FRÍSPORT 'Jtýian, afrtoci íajkníC Amerískir körfuboltabolir, aldrei meira úrval, ný módei. • Boston Celtics Verð kr. 1400,- • Barkley • NBA (All Star) 1990 • Dominique Wilkins • Chicago Bulls • Magic Johnson • Detroit • Isiah Thomas • Los Angeles Lakers • Joe Montana úr ameríska fótboltanum. Húfur, verð kr. 1.050,- (Jordan, Magic, Isiah Thom- as, Dominique Wilkins). Veifur, verð kr. 370,- (Jordan, Magic, Isiah Thomas) Límmiöar, verð kr. 150,- (Jordan, Isiah Thomas, Dominique Wilkins, Larry Bird, Charles Barkley) Maður aprílmánaðar: Magic Johnson All Star leikmaður 1990 Allar Magic Johnson vörurmeð 10% afslætti. Amerískir íþróttagallar fyrir börnin, framtíöarleik- mennina. 'V.< íþróttagallar frá 6 mánaða. Mikið úrval, gott verð. Gott úrval affótboltum. Verð kr. 950.- KNATTSPYRNA Gunnlaugur til Grindavíkur Gunnlaugur Einarsson miðvörð- ur Vals í 1. deildinni í knatt- spyrnu, hefur ákveðið að leika með Grindavík í 2. deild í sumar. Hann er þegar farinn að FráFrímanni æfa og fer með lið- Ólafssyni jnu í æfingabúðir til i Grindavík Vestur-Þýskalands um páskana. Gunnlaugur, sem er tvítugur að aldri, lék sjö leiki með Val í fyrra og gerði eitt mark. Honum er ætlað að koma í stað Siguróla Kristjáns- sonar á miðjunni í liði Grindavíkur en Siguróli er farinn aftur til Þórs. Grinvíkingar hafa fengið þijá nýja leikmenn. Auk Gunnlaugs eru það Einar Davíðsson frá Val og Jón Sveinsson frá ÍBK. Þess má geta að Gunnlaugur og Einar urðu íslandsmeistarar í 2. flokki með Val undir stjórn Hauks Hafsteinssonar sem nú þjálfar Grindvíkinga. Gunnlaugur Einarsson. VEGGTENNIS / ÍSLANDSMÓTIÐ í SQUASH Amar varði titilinn Um síðustu helgi lauk íslands- mótinu í squash með keppni í A-flokki karla og kvenna, en næstu tvær helgar á undan hafði verið keppt í C- og B-flokki. Mótið sem var það fjölmennasta til þessa var haldið í Squashklúbbnum Ártúns- höfða og heppnaðist mjög vel, enda var keppni hörð í öllum flokkum. Arnar Arinbjarnar varði ís- landsmeistaratitil sinn frá síðasta ári eftir hörkuviðureignir við Sigurð Sveinsson í undanúrslitum og svo við Jökul Jöigensen í úrslitaleikn- um. í kvennaflokki bar Dís Þórðar- dóttir sigurorð af íslandsmeistaran- um frá því í fyrra, Ragnheiði Víkingsdóttur, sem einnig er fyrir- liði íslandsmeistara Vals í knatt- spyrnu, í mjög góðum úrslitaleik, en Dís kom gagngert til landsins frá Luxemborg til að taka þátt í mótinu. Úrslit A. flokkur karla: 1. Arnar Arinbjamar 2. Jökull Jörgensen 3. Sigurður Sveinsson Verðlaunahafar í A-flokki. Frá vinstri: Arnar Arinbjamar, sem sigraði, Jökull .Jörgensen, sem varð annar og Sigurður Sveinsson, sem varð þriðji. A. flokkur kvenna: 1. Dís Þórðardóttir 2. Ragnheiður Víkingsdóttir 3. Ingrid Svensson B. flokkur karla: 1. Sigurður Sveinsson 2. Hörður Þorsteinsson 3. Gunnar Guðjónsson B. flokkur kvenna: 1. Kristín Briem 2. Herdís Hallvarðsdóttir 3. María Sv. C. flokkur karla: 1. Haukur Harðarson 2. Jóhann Tómasson 3. Regin Grímsson mm FOLK ■ SJÖ sundmenn úr KR taka þátt í sterku alþjóðlegu móti í Portsmouth í Englandi um helg- ina. Birgir Magnússon, Grétar Árnason, Hildur Einarsdóttir, Kristján Eggertsson, Kristján Haukur Flosason, Kristin Guð- mundsdóttir og Sigríður Lára Guðmundsdóttir keppa á mótinu, sem fer fram um helgina. ■ GRIND VÍKINGAR, sem leika í fýrsta sinn í 2. deild í knattspyrnu í sumar, fara í tíu daga æfíngaferð til Hannover í V-Þýskalandi um páskana. Æft verð- Frá Frimanni ur að svæði félags- Ólafssyni jns og leikið gegn / Grindavík varaliði Hannover. Leikmenn hafa lagt mikið á sig til að safna fé og m.a. verið með söluskála í Kolaportinu um helgar. Þar hafa þeir selt sjávar- afurðir unnar í Grindavík, s.s. ný- flakaða ýsu, saltfísk, síld, lax og rækjur og hefur að sögn vakið mikla hrifningu. Þá hafa þeir tekið að sér að bóna bíla fýrir fólk og síðan en ekki síst jöfnuðu þeir heilt hús við jörðu! ■ FLORENCE GrifEth Joyner hefur fengið staðfestingu á því að hún er ófrísk og á að eiga í nóvemb- er n.k. FloJo setti heimsmet í 100 m og 200 m hlaupi á Ólympíuleik- unum í Seoul 1988, en hætti keppni eftir leikana. ■ ÍTALIR íhuga að knattspyrnu- dómarar í 1. og 2. deild verði at- vinnumenn frá og með tímabilinu 1993-94. ■ BRIAN Hillier, formaður Swindon, hefur með dómi hjá enska knattspyrnusambandinu ver- ið bannað að tengjast knattspyrnu á einn eða annan hátt í þijú ár. Hann má ekki vera stjórnarmaður, þjálfari eða áhorfandi svo dæmi séu tekin. Lou Macari, fyrrum þjálfari Swindon, fékk 1.600 dollara sekt, en þeir félagar voru fundnir sekir um að hafa veðjað á tap Swindon í leik í bikarkeppninni fyrir tveimur árum. SUND / INNANHUSSMEISTARAMÖT ÍSLANDS Hefna FH-ingar fyrir tapið á móti Stjörnunni í bikarúrslitaleiknum fráþvíífyrra? Lög afplötu FH-bandsins spiluð í húsinu og bæði platan og kassettan verða tilsölu á staðnum. Munið eftir leik Stjörnunnar og FH í meistara- flokki kvenna í 8 liða úrslitum í bikarkeppninni í handbolta, sem hefst sama dag kl. 18 íGarðabæ. Sparisjjödur Haf narfSarðar Strandgötu 8-10, sími 654000 Reykjavíkurvegi 66, sími 51515 GÁMAÞJÓNUSTAN HF. VATNAGARÐAR 12 SlMI 688555 Vatnagarðar 12, Reykjavík fer fram i ipronanusmu i í dag miðvikudaginn 11. apríl kl. 20.00 skyldan hlaut sjö gull Sundijölskyldan úr Þorláks- höfn var mikið í sviðsljósinu á Meistaramóti Islands í sundi sem fram fór í Vestmannaeyjum um helgina. Þau Magnús, Árnar Freyr og Bryndís unnu samtals sjö meistaratitla, þrenn silfurverð- laun og tvenn bronsverðlaun. Magnús var atkvæðamestur, vann fem gullverðlaun. Tvö íslandsmet vor sett á mót- inu og var það kvennasveit Ægis sem setti þau bæði, annars vegar í 4x100 og hins vegar í 4x200 metra skriðsundi. Morgunblaðiö/Sigfús Gunnar Guðmundsson Sundfjölskyldan úr Þorlákshöfn. Frá vinstri: Hrafnhildur Guðmunds- dóttir, sem var ein besta sundkona íslands á árum áður, er hér ásamt böm- um sínum; Bryndísi, Magnúsi Má og Arnari Frey. Morgunblaðið/Sigfús Gunnar Guðmundsson Kvennasveit Ægis setti tvö íslandsmet á mótinu. í sveitinni voru þær Hulda Rós Hákonardóttir, Arna Þórey Sveinbjömsdóttir, Ingibjörg Amardóttir og Þórann Guðmundsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.