Morgunblaðið - 11.04.1990, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 11.04.1990, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUÉ 11. APRÍL 1990 35 Ægir Ingi Her- bertsson — Kveðja Fæddur 9. nóvember 1988 Dáinn 1. apríl 1990 Hví fölnar jurtin fríða og fellir blöð svo skjótt? Hví sveipar barnið blíða svo brátt hin dimma nótt? Hví verður von og yndi svo varpað niður í gröf? Hví berst svo burt í skyndi hin bezta lífsins gjöf? (Björn Halldórsson frá Laufási.) Það var hamingjuríkur dagur þeg- ar hann Ægir Ingi' litli fæddist. Við vorum viðstaddaf fæðinguna og fengum að deila gleðinni með móður hans. Ekki grunaði okkur þá, að aðeins einu og hálfu ári seinna mynd- um við þurfa að fylgja litla sólargeis- lanum okkar til grafar. Ægir Ingi dafnaði einstaklega vel. Hann var hvers manns hugljúfi, svo glaðlyndur og blíður að öllum sem kynntust honum þótti vænt um hann. Allt virtist vera í lagi og framt- íðin björt. En fljótt skipast veður í lofti. Litli drengurinn sofnaði að kvöldi. Hann vaknaði ekki að morgni. Fátækleg orð duga skammt til að lýsa þeim harmi er nú nístir hjörtu aðstandenda litla drengsins og sárust er sorg foreldra hans og systkina. Elsku hjartans Hafdís systir, Mar- íanna, Ágúst og Hebbi, megi algóður Guð gefa ykkur styrk. Ægir Ingi fékk ekki að dvelja hjá okkur nema stutta stund, en minnin- garnar um yndislegan dreng munu ylja um ókomna tíð. Við bjóðum Ægi Inga litla, góða nótt. Anna Karen og Sonja María Leiddu mína litlu hendi Ijúfi Jesús, þér ég sendi bæn frá mínu brjósti, sjáðu blíði Jesús, að mér gáðu. Ég vil biðja guð að blessa hana og leiðbeina henni í tómleikanum. Elsku Kristjana mín, orð geta ekki bætt þér upp þinn mikla missi. Eins og einhver sagði við þig, við eigum ekki börnin, við erum bara með þau í láni, þú þurftir að skila þínu til ein- hverra starfa sem bíður eftir honurn hjá guði. Tilganginn skiljum við ekki, en hann hlýtur að vera góður. Því að þú tókst mikla áhættu þegar þú ákvaðst að eignast hann, vegna heilsu þinnar, og þér tókst það með miklum sóma, og hann var vel þess virði sagðir þú alltaf sjálf. Hans skarð verður aldrei fyllt, tvö systkini skilur hann eftir með margar spurn- ingar sem við getum ekki svarað, en við vitum að litla Ægi Inga líður vel. Elsku Kristjana, Maríanna, Ágúst Hilmar, Marta, Hreiðar, Anna Karen og Hilmar. Guð veiti ykkur styrk og krafta til að horfast í augu við lífíð að nýju. Til þín, Herbert, sendi ég samúðarkveðju. Elsku litla sólargeislanum, Ægi Inga, þakka ég samveruna. Hvíli hann í friði. Fjóla Sigurðardóttir Kaliið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaður viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. (Vald.Briem.) Þegar móðursystir og vinkona okkar eignaðist lítinn dreng, kom hún að máli við okkur og sagðist ætla að skíra hann í höfuðið á systur- syni sínum og bróður. Ægir Ingi var hann svo skírður og varð hann strax mjög vinsæll meðal allra, fyrir það hversu glaður og einstaklega skemmtilegur hann var. Sérstaklega er okkur minnisstætt þegar hann stóð með boltann sinn á miðju stofugólfi og henti honum í körfu sem bróðir hans hafði útbúið. Þegar Ægir Ingi hafði svo hitt í körfuna, horfði hann á okkur og klappaði saman lófunum, og gaf til kynna að við skyldum gera það líka. Laugardaginn 31. mars vorum við stödd í heimsókn hjá þeinr mæðgin- um og vorum að hjálpa til við ferm- ingarundirbúning, því daginn eftir átti að ferma systur Ægis. Ægir Ingi var ekkert á því að fara að sofa um kvöldið því hann heyrði í okkur frammi. Á leið okkar út, löbbuðum við framhjá herberginu og hann rétti út hendurnar. á móti okkur og viidi láta leika við sig. Svo lét hann sig detta á bossann og skellihló. Þegar við svo kysstum hann góða nótt og kvöddum hann að sinni, gát- um við ekki með nokkru móti vitað að þetta væri í hinsta sinn sem við sæjum þennan yndisleg engil okkar. Enginn veit sína ævi fyrr en öll er. Ekki er hægt með orðum að lýsa þeirri sorg sem Hafdís, Maríanna, Ágúst Hilmar og Herbert hafa orðið fyrir. Á stundu sem þessari er fátt hægt að segja og biðjum við Guð almáttugan um að hjálpa þeim og veita þeim styrk. Friðrik Ingi og Anna Þórunn LAUSBLAÐA- MÖPPUR frá Múlalundi... § . þær duga sem besta bók. | Múlalundur SÍMI: 62 84 50 . OPIÐ MÁN.—FÖSTUD. 7—23, LAUGARD. 7-20, SUNNUD. 10—20 • (0 NY OG GLÆSILEG E ; SOLBAÐSSTOFA ^ faxafen 5 skeifunni rqnas • tíiNNaavspn diNwoxnnd oo uian.vqvisov oansanD Hafðu gát á hjarta mínu, ' halt mér fast í spori þínu að ég fari atdrei frá þér alltaf, Jesús, vertu hjá mér. (Söngbók KFUK og KFUM) Hugheilar samúðarkveðjur ást- vina sem syrgja. Afi, amma og föðursystkini. Þegar Ægir Ingi fæddist var ég í fríi úti í Hollandi með mínar litlu stelpur, eina þriggja ára og eina 3ja mánaða. Við mamma hans unnum saman og upplifðum því meðgönguna saman. Eg hringdi heim til að fylgj- ast með og svo komu fréttirnar að Kristjana væri uppi á spítala, þar fékk ég að vita að lítill drengur væri fæddur og allt var í lagi og svo bjart, en núna, 17 mánuðum seinna, er allt breytt, allt er svo svart í kring- um okkur öll sem að þessum yndis- lega dreng stöndum á einn og annan hátt. Hugurinn reikar til baka, við Kristjana deildum öllu saman sem snerti börnin okkar. Ég man þegar Ægir Ingi fékk eyrnabólgur, þegar hann fékk hita- bólgur, þegar hann fékk ofnæmi fyr- ir lyfjum sem hann þurfti að taka við kvefi. Hann var því mjög eðlileg- ur á allan hátt. Hann var mjög hress og svo blíður og svo góður alltaf og orkan sem þessi elska hafði var al- veg ótrúleg. Hann var alltaf á ferð- inni. Það var alveg frábært að sjá þennan litla stubb sitja á gólfinu með bolta og henda í stóra dós sem var staðsett svona í eins metra fjarlægð frá honum og ánægjuna sem skein úr litla andlitinu þegar hann hitti. Hann var sko svo sannarlega gott efni í kröfuboltann sem svo sannar- lega skipar stóran sess í fjölskyldu hans. Svo er allt í einu allt búið. Nóttina fyrir fermingardag stóru systur hans, hennar Maríönnu sem alltaf hafði passað hann frá því að hann fæddist, sofnaði hann eins og venjulega, en hann vaknaði ekki aft- ur. Þetta átti að vera stór dagur, allt var tilbúið fyrir hinn langþráða fermingardag. Maríanna svo full af gleði og tillhlökkun, svo var allt búið, hvað gerðist, þetta er svo óréttlátt. Vio kaup á þessum páskaeggjum styrkir þu barnaspítalasjóð Hringsins. Pau eru auðkennd með merki Barnaspítalans. Þessi _ bragðgóðu páskaegg eru til í tveimur gerðum og fjórum stærðum. Að sjálfsögðu er (3) íslenskur málsháttur og leikföng í eggjunum. í þeim er svissneskt hágœðasúkkulaði frá Chocolate Bernraine. Athugið að önnur páskaegg eru um 50% dýrari. vm Islensk dretfíng simi 68 73 74 9CTRAD us JK'u. j • w wa »1111, w»ni«aw - I YDOA F5.41/SÍA TÖKUM UPP DÓSIR £gib - að sjálfsögðu! . „

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.