Morgunblaðið - 11.04.1990, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. APRIL 1990
13
til dags við að stríða áhyggjur af
umframeyðslu flestra ef ekki allra
ríkisstofnana, til þess að fallast á
áfiýjun slíks dóms, sem kynni að
fela í sér heimildir til handa for-
stöðumönnum ríkisstofnana til að
eyða átölulaust að heita má ríkis-
fjármunum að eigin geðþótta.
Þá er langsóttur og raunar frá-
leitur skilningur lögmannsins á nið-
urstöðu dómsins að því er varðar
samkvæmni í tilgreiningu saka í
áminningarbréfi ráðherrans og til-
greiningu saka í bréfi ráðherrans
sem hafði að geyma ákvörðun hans
um að Sturlu væri vikið úr starfi
fyrirvaralaust og að fullu. Niður-
staða dómsins var á þá lund, að
áminningunni væri ábótavant fyrir
það, að þar væri Sturla ekki áminnt-
ur fyrir þær sömu sakir og hann
seinna var rekinn fyrir. í umsögn
sinni dregur ríkislögmaður þá álykt-
un, að í niðustöðu dómsins felist,
að ..... starfsmaður ríkisins geti
endalaust brotið af sér, ef hann finn-
ur sér eitthvert nýtt tilefni til þess,
sem fyrri áminningin nær ekki
beinlínis til.“, svo vitnað sé orðrétt
í umsögnina.
Mér er með öllu fyrirmunað að
sjá stafkrók í niðurstöðum dómsins
sem réttlætir slíka ályktun.
Ennfremur koma fram í umsögn-
inni einhvetjar óljósar vangaveltur
um erfiðleika á því að skilja þá nið-
urstöðu dómsins, að hann telji heim-
ilt hafi verið að leysa Sturlu frá
störfum um stundarsakir. Hér tel
eg beinast liggja við að skilja þetta
á þann veg, að þær ávirðingar sem
dómurinn taldi Sturlu uppvísan að
við framkvæmd skyldustarfa sinna
hafí verið þess eðlis, að réttmætt
hefði verið að víkja honum úr starfi
um stundarsakir og láta þá jafn-
framt fara fram lögboðna rannsókn
á réttmæti og alvarleika sakargift-
anna, svo sem lögin bjóða. Eg held
í raun að þessi skilningur vefjist
ekkert fyrir ríkislögmanni og hans
ágætlega hæfa starfsfólki.
Guðrún Margrét Árnadóttir hrl.,
nánasti samstarfsmaður ríkislög-
manns, flutti mál þetta með þeim
hætti og með þeim tilþrifum að öll
efnis- og lagarök fyrir dómkröfum
hins opinbera í málinu komust ræki-
lega til skila svo sem glögglega má
sjá í sjálfum dómnum. Ekki verður
því með rétti við hana sakast um
hvernig fór.
Eg get með engu móti skilið hvað
rekur þessa ágætu kollega til skrifa
af því tagi sem eg hef hér gert að
umtalsefni. Eg vona að þau virði
mér það á betri veg að hafa ekki
hýst með mér þessar athugasemdir.
Hafí þau áhuga á því að koma sér
upp góðu dómsfordæmi í þessum
efnum, þá mun vera af nógu að
taka, ef marka má fréttir af halla
á ríkisfjármálunum á síðasta ári.
Eg held að ráðherrar og almenning-
ur mundi styðja þau til góðra verk
á því sviði. Sturlumálið var afleitt
dæmi í þeim efnum.
Höfundur er
hæstaréttarlögmaður.
sinn þátt, og ekki ómerkan, í því
að Kjarvalsstaðir voru byggðir á
sínum tíma með því fé sem þeir
fengu fyrir Listamannaskálann sál-
uga. Þeim peningum var reyndar
skilað, greiddir til baka, í ólundar-
kasti hér um árið. Einnig má benda
á gífurlegt starf myndlistarmanna á
Korpúlfsstöðum sem gerir það að
verkum að myndlist og Korpúlfs-
staðir er orðið samofið í hugum
Reykvíkinga. Sá staður á í fram-
tíðinni að hýsa Listasafn Errós. Þessi
tvö tiiteknu vígi myndlistar í
Reykjavík og Listasafn Ásmundar
Sveinssonar verða til og eru stofnuð
vegna gjafa listamannanna til borg-
arinnar.
Hvernig stendur á því að hugur
stjórnanda borgarinnar og ráða-
manna er slíkur sem þeir sýna í
framkomu sinni við starfandi mynd-
listarmenn, ekki síst í ljósi þess sem
nefnt var hér að framan. Listasöfnin
eru stolt Reykjavíkurborgar og
ómetanleg þjóðareign. Þau væru
ekki það sem þau eru í dag ef mynd-
listarmönnum væri ekki í raun svona
hlýtt til borgarinnar sinnar!
Nýtt happdrættisár DAS að hefiast:
Einbýlishús á jtveim-
ur hæðum í vinning
NYTT happdrættisár hjá happdrætti Dvalarheimilis aldraðra sjó-
manna er nú að hefjast, og Qölgar vinningum milli ára úr rúmlega
sjö þúsund í tæplega 14 þúsund, eða um 85%. Hjá happdrættinu er nú
á ný DAS hús á vinningaskránni, en það er einbýlishús að Reykja-
byggð 18 í Mosfellsbæ. Verðmæti hússins er um 17 milljónir króna,
og verður það dregið út í apríl á næsta ári.
Dráttur í fyrsta flokki hjá happ- uði. Boðið er upp á 1.860 ferðavinn-
drætti DAS fer fram 4. maí næst-
komandi, en þá verður meðal ann-
ars dregin út Nissan Pathfinder
jeppabifreið að andvirði 2,5 milljón-
ir króna. Þá eru þrír Subaru Station
bíiar í vinning á happdrættisárinu
og 21 bíll að eigin vali, en að auki
verður dregið um aðra vinninga
fyrir 22,5 miiljónir í hveijum mán-
inga, og lægsti vinningur hækkar
úr 10 þúsund krónum í 12 þúsund.
Hlutfall vinninga er 60% af útgefn-
um miðum.
DAS húsið að Reykjabyggð 18 í
Mosfellsbæ er á tveimur hæðum,
og er það fullbúið með öllum inn-
réttingum, blómaskála og tvöföld-
um bílskúr, samtals 253 fermetrar.
Morgunblaðið/RAX
Happdrættishús DAS að Reykjabyggð 18 í Mosfellsbæ
Húsið er byggt af Loftorku hf. í
Borgamesi, en innréttingar eru frá
Brúnás hf. á Egilsstöðum. Það verð-
ur sýnt aimenningi allar helgar í
apríl, og verður sýningartíminn
auglýstur í dagblöðum.
( ... og hejjum okkur tilflugs án tafar)
Nú er ilmur af vori á meginlandinu.
Gefðu þér tírna til að njóta þess. Með nýrri vél getum við boðið fjörutíu
viðbótarsæti. Nú er tækifæri til að taka vorið snemma.
Hafðu strax samband, fjörutíu sæti eru ekki lengi að fyllast þegar landinn er í
ferðahug og leiðin liggur til Amsterdam eða Hanrborgar.
„Vorvindar glaðir, glettnir og hraðir
gusta um nefhjól, hreyfla og stél . . .“
ARNARFLUG
— félag setn gustar um
Ilöfiindur er myndlistarmaður og
fyrrverandi formaður SÍM.