Morgunblaðið - 11.04.1990, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. APRIL 1990
21
,,Fiskur úr firðinum"
Skerið 500 g rauðsprettu- eða ýsuflök í stykki.
Þeytið saman 1 egg og 2 msk mjólk.
Blandið saman 8 msk brauðmylsnu, 1 tsk. salti og 'U
tsk. pipar og veltið fiskstykkjunum upp úr
blöndunni.
Bræðið 200 g Flóru smjörlíki á pönnu og brúnið
fiskinn á báðum hliðum, steikið áfram við minni hita
í 3-4 mín.
Berið fram með soðnum kartöflum og hrásalati.
Verði ykkur að góðu!
ígóðan mat!
sm
SMJÖRLÍKISGERÐ
Akureyri
Útgáfa vísindarit-
gerða dr.Bjöms
Sigurðssonar kynnt
SÍÐASTLIÐINN laugardag kom út safn vísindaritgerða dr. Björns
Sigurðssonar læknis, fyrsta forstöðumanns Tilraunastöðvar Há-
skólans í meinafræði að Keldum. Af þvi tilefni buðu synir Björns,
læknarnir Jóhannes og Sigurður Bjömssynir, til athafiiar í bóka-
safhi Tiraunastöðvarinnar að Keldum þar sem útgáfan var kynnt.
Viðstaddir athöfnina voru ekkja
Bjöms, Una Jóhannesdóttir, og
gamlir samstarfsmenn hans og
vinir, auk annarra gesta. Ávörp
fluttu Jóhannes og Sigurður
Bjömssynir, en auk þeirra töluðu
Páll Agnar Pálsson, fyrrverandi
yfirdýralæknir og Sigmundur
Guðbjarnason háskólarektor.
Meginhluti vísindastarfa dr.
Björns Sigurðssonar snerist um
rannsóknir á veirusjúkdómum, en
hann var einnig afkastamikill á
sviði annarra smitsjúkdóma. Hann
setti fram byltingarkenndar hug-
myndir um sérstök afbrigði veiru-
sýkinga, og kom fljótlega í ljós
að tilgátur hans stóðust og stand-
ast þær enn. Hafa kenningar hans
skýrt mörg atriði í gangi þessara
sýkinga, og meðal annars flýtt
fyrir og auðveldað rannsóknir á
alnæmi.
Útgefendur vísindaritgerða dr.
Bjöms Sigurðssonar era synir
hans, Jóhannes og Sigurður, en
Margrét Guðnadóttir prófessor rit-
stýrði útgáfunni. Ritverkin í bók-
inni eru 103 að tölu og er ritið
830 blaðsíður.
Þorskeldi er
raunhæfur
möguleiki
- segir Friðrik
Sigurðsson, fram-
kvæmdasljóri LFH
„MÉR þykja viðbrögð þeirra
Krisljáns Ragnarssonar og Jóns
Ingvarssonar við þeim orðum
minum, að forystumenn í sjávar-
útvegi sýni lítinn áhuga frekara
eldi sjávarfiska, vera full harka-
leg og að miklum hluta til byggð
á misskilningi. Ég var ekki að
gagnrýna stuðning Fiskveiða-
sjóðs og SH við Iaxeldi, heldur
benda á lítinn áhuga á eldi sjáv-
arfiska eins og þorsks,“ sagði
Friðrik Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Landsambands
fiskeldis- og hafbeitarstöðva, í
samtali við Morgunblaðið.
Friðrik sagði, að sér þætti það
einkennilegt að ekki væri meira
um það talað hér, sem raunhæfan
möguleika eins og í Noregi, að
auka til dæmis þorskeldi meðal
annars með hafbeit á stöðum eins
og í Eyjafirði og ísafjarðardjúpi.
Væri farið út 5 slíkt eldi, kæmi
upp sú spurning hver ætti að eiga
þann fisk, sem aflaðist þannig og
hveijir ættu að leggja í kostnað
við hafbeitina. Eðlilegast væri að
útgerðin og vinnslan ættu þann
fisk og legðu því fram fé til eldis-
ins.
„Mér þykir það hart, ætli menn
sér að afskrifa alla möguleika á
frekari þróun í eldi sjávarfiska
vegna tímabundinna erfiðleika í
laxeldinu. Magnús __ Gunnarsson,
framkvæmdastjóri SÍF, hefur sagt
að hann reikni með auknu eldi
sjávarfiska er líður að aldamótum
og ég fagna því að hann skuli
vera þeirrar skoðunar, en um leið
finnst mér aðrir hugsa lítið um
þennan möguleika. Mér þykir líka
miður, að þessir menn virðast hafa
misskilið orð mín sem svo að ég
væri að kvarta undan áhugaleysi
Fiskveiðasjóðs eða SH. Báðir þess-
ir aðilar hafa stuðlað að fiskeldi
og samstarfið við SH í laxeldinu,
einkum sölumálum, hefur verið
mjög gott,“ sagði Friðrik Sigurðs-
son.
Þú svalar lestraiþörf dagsins
ásídum Moggans!____________x
f ,, Fiskur úr firðinum “
Notið FLORU
smjörlíki og ljúfmetið verður
enn ijúffengara!
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Frá athöfiiinni þar sem útgáfa vísindaritgerða dr. Björns Sigurðssonar var kynnt. Jóhannes Björnsson er
í ræðustól.
ARGUS/SlA