Morgunblaðið - 15.05.1990, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 15.05.1990, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MAI 1990 Radial stimpildælur = HEÐINN = VÉLAVERSLUN SÍMI 624260 o SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA - LAGER < U mh verfismál í Reykjavík eftir Júlíus Hafstein Náttúra Islands er viðkvæm og gróðurlendi landsins aðeins lítill hluti þess sem áður var. Skilningur á umhverfis- og verndunarmálum hefur stóraukist á liðnum árum. Þar hefur Sjálfstæðisflokkurinn haft afgerandi forustu í Reykjavík og hefur aldrei verið jafn miklum ijármunum varið til umhverfismála eins og á yfirstandandi kjörtíma- bili. Við samþykkt á aðalskipulagi Reykjavíkur 1984-2004 var m.a. mörkuð sú stefna að borgarvernda sérstök svæði vegna sérstæðrar náttúru, landslags, umhverfis eða útivistargildis. Áhugi almennings á útivist fer vaxandi. Ástæður þess eru margar, en þar má nefna t.d. styttri vinnu- tími, lengra orlof, almenna fræðslu í skólum og í fjölmiðlum um nauð- syn á hollu líferni. Allt þetta leiðir til að kröfur um almenn útivistar- svæði fara vaxandi og á það ekki síður við svæði innan byggðar. Sjálfstæðisflokkurinn hefur lagt áherslu á þessi atriði og má þar benda á Elliðaárdalinn, Laugarnes- ið, Laugardalinn og Öskjuhlíð innan byggðar og utan byggðar Heið- mörk, Bláfjallasvæðið og nú síðast Ölfusvatnssvæðið þar sem þegar er hafin trjárækt og ýmsar fram- kvæmdir til að auðvelda fólki að koma til svæðisins og dvelja þar. Á undanförnum árum hefur meirihluti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík lagt höfuðáherslu á eftir- talin verkefni: Trjárækt í upphafi kjörtímabilsins voru árlega gróðursett á vegum borgar- innar milli 250-300 þúsund trjá- plöntur. Á þessu ári munu þær verða milli 550-600 þúsund. Al- mennt hefur hlutur tijáræktar inn- an þéttbýlis vaxið mikið á undan- förnum árum en enginn einn aðili hefur lagt jafn mikið af mörkum sem Reykjavíkurborg og fyrirtæki hennar. Þessir aðilar eru stærstu skógræktendur á Islandi í dag og má nú þegar sjá árangur af þessu starfi víða í borginni og nágrenni hennar. Hreinsun strandlengjunnar Stærsta umhverfisverndunin sem Reykjavíkurborg hefur lagt í er hreinsun strandlengjunnar. Nú hef- ur þetta verk staðið í 6-7 ár og kostað um 700 millj. kr. Reiknað er með að því Ijúki um eða eftir næstu aldamót og verði heildar- kostnaður reiknaður á núvirði á milli 3,5 og 4 milljarðar. Sorpeyðing Annað mikilvægt verndunarmál er framtíðarmeðferð sorps. Reykjavíkurborg hefur haft forustu um sameiginlegt átak sveitarfélag- anna á höfuðborgarsvæðinu um lausnir á sorpeyðingarmálum. Nú mun móttöku og flokkunarstöð taka til starfa í maímánuði á næsta ári og við það mun gjörbreytast til batnaðar meðferð á öllu sorpi og hættulegum úrgangsefnum. Hverfabækistöðvar Á þessu kjörtímabili varð sú breyting á viðhalds og rekstrarmál- um á opnum svæðum og meðfram akbrautum að borginni er skipt upp í hverfí sem hvert hefur sína hverf- isbækistöð. Þetta nýja skipulag hefur leitt til meiri virkni í öllum viðhaldsmálum borgarinnar utan- dyra og skapast hafa góð tengsl milli hverfisbúa og viðkomandi bækistöðvar. Hverfabækistöðvar ná þó ekki til útivistarsvæða eða skrúð- garða borgarinnar sem áfram heyra undir embætti garðyrkjustjóra. Húsaverndun Friðun einstakra húsa á rétt á ser, þegar um er að ræða hús sem hafa verulega þýðingu af söguleg- um og/eða byggingarlegum ástæð- um. Á þessu kjörtímabili var stofn- aður húsverndunarsjóður, sem hef- ur m.a. það markmið að aðstoða einstaklinga sem eiga húseignir sem hafa sérstakt verndunargildi. Stígar og gönguleiðir Á undanförnum árum hefur markvisst verið unnið eftir sam- þykktri áætlun að lagningu stíga Hlutverk þess sem valdið hefiir minna Lítiö inn til okkar og skoðið vönduð vestur-þýsk heimilistœki! Hjá SIEMENS eru gœði, ending og fallegt útlit ávallt sett á oddinn! SMITH&NORLAND NÓATÚNI 4 • SfMI 28300 Þú svalar lestrarþörf dagsins á„síöum Moggans! ii eftir Wincie Jóhannsdóttur í nýlegri skoðanakönnun vegna komandi sveitastjórnarkosninga voru þeir sem tóku afstöðu nær eingöngu stuðningsmenn Sjálf- stæðisflokksins. Samkvæmt þeirri skoðanakönnun yrði einn borgar- stjórnarfulltrúi úr öðrum flokki. Þar sem tugir prósenta tóku ekki afstöðu er ástæðulaust að ætlað úrslit kosninga verði í takt við þessa skoðanakönnun. Samt varð hún til þess að ég fór að hugleiða bæði völd og kosningar almennt, tilgang þeirra og áhrif. Við búum við lýðræði, og öll skiljum við hvað það merkir, eða hvað? Jú, í lýðræði eru fijálsar kosningar um menn, flokka eða málefni, og sá flokkur sem fær flest atkvæði myndar meirihluta (stjórn), einn eða eftir samkomu- lagi með öðrum flokkum. Ef hann MURRAY Metsöluhjól Glæsilegt úrval reiðhjóla fyrir alla fjölskylduna, m.a. fjallareiðhjól frá kr. 16.950.- Sterkir, kraftmiklir gæðingar. Póstsendum um land allt. Opið frá kl. 10-4 á laugard. cb rs Sláttuvéla- & Hjólamarkaöur Hvellur Smiðjuvegi 4c, Kóp. S: 689699 og 688658 fær hreinan meirihluta atkvæða, þá stjórnar hann og ræður. En það er ekki svona einfalt. Minni- hlutinn (stjórnarandstaðan) er nefnilega grundvöllur lýðræðisins, og ekki síður mikilvæg en meiri- hlutinn. í Bretlandi, þar sem löng- um hefur verið einn flokkur í einu í stjórn landsins, er þetta jafnvægi undirstrikað með heiti stjórnarand- stöðunnar sem útleggst: „Hin trygga andstaða hennar hátignar." Sá flokkur sem stjórnar í krafti hreins meirihluta getur að sjálf- sögðu ráðið miklu eins og við höf- um upplifað undanfarin ár í Reykjavík. Ef hann ræður öllu þegjandi og hljóðalaust er ekki lengur um lýðræði að ræða, heldur einræði. Það kemur til kasta minni- hlutaflokkanna að halda uppi merkjum lýðræðisins með ýmsu móti. Þeir veita aðhald í daglegum störfum borgarstjórnar. Þeir skipa fulltrúa í nefndir og ráð, sem fylgj- ast með rekstri borgarinnar, gera tillögur og taka þátt í ákvarðana- töku. Þeir gera almenningi viðvart þegar upp koma mikilvæg ný mál sem kjósendur höfðu ekki tækifæri til að taka afstöðu til þegar kosið var eða þegar útlit er fyrir ein- hveija misbeitingu valdsins hjá meirihlutanum. Sá sem valdið hef- ur er alltaf í hættu: „Valdið spillir; algert vald spillir algerlega," eins og sagt hefur verið. Þeir sem ekki hafa valdið, svo sem stéttarfélög opinberra starfsmanna og pólit- ískir minnihlutar, en sem starfa á sama vettvangi og valdhafar, hafa þannig mikilvægu hlutverki að gegna. Virkur minnihluti í lýðræð- isstjórn er lykillinn að pólitískri heilsu meirihlutans og stjórnkerfis- ins alls. Því kem ég þessum hugleiðing- um á prent núna að viðbrögð vina og kunningja við títtnefndri skoð- Wincie Jóhannsdóttir „Virkur minnihluti í lýðræðisstjórn er lykill- inn að pólitískri heilsu meirihlutans og stjórn- kerfisins alls.“ anakönnun hafa valdið mér áhyggjum. Það hefur verið að heyra á mönnum að það taki því ekki að vera að kjósa í borgar- stjórnarkosningum í þetta sinn þar sem meginúrslitin virðast augljós. Þvert á móti. Ef eitthvað er að marka þessa skoðanakönnun er einmitt mikilvægast núna að neyta kosningaréttar síns og hafa það að leiðarljósi að forðast einræðið en tryggja lýðræðið. Höfundur er framhaldsskólnkennnri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.