Morgunblaðið - 15.05.1990, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 15.05.1990, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MAI 1990 21 Kaupum öll álfínn aldrei þýtt að tjalda til einnar næt- ur í senn. Þær hafa þurft og tekist að gera áætlanir langt fram í tímann sem standast þrátt fyrir ýmis utanaðkomandi áhrif. Þar er þess ætíð gætt að stundargróði og skammtímasjónarmið ráði ekki al- farið ferðinni í ákvarðanatöku. I Kópavogi hefur ríkt mikið skipu- lagsleysi við framkvæmdir og á mörgum stöðum þarf að taka til hendinni. Við munum leggja til að gerðar verði áætlanir, mismunandi langar eftir umfangi verkefna, yfir þau verkefni sem setið hafa á hak- anum undanfarin ár. Það er óger- legt eftir að hafa fylgst með blaða- deilum núverandi 'meiri- og minni- hluta að gera sér nokkra hugmynd um hvað framtíðin ber í skauti sínu varðandi fjármál bæjarins, svo mik- ið ber í milli. Það fer mjög eftir því hvernig fjárhagsstaðan er hvernig við munum taka á málum. En eitt er víst að það verður áherslubreyting í þá átt að taka á þeim málum sem vanrækt hafa verið og reynt verður að sinna öll- um íbúum. Það hefur t.d. gleymst í skipulagningu bæjarins að til eru börn og unglingar sem ekki stunda keppnisíþróttir. Það vantar tilfinn- anlega græn útivistarsvæði til al- menningsafnota í flest öli hverfi. Þessu má breyta með litlum kostn- aði ef vilji er fyrir hendi. Umhverfið og Qölskyldan Umhverfismál og fjölskyldu- pólitík eru þau mál sem við kvenna- listakonur höfum borið allra mest fyrir bijósti. Þessi tvö mál eru mjög samtvinnuð þar sem umönnun og verndun eru grundvallarsjónarmið. Það er gott til þess að vita að umgengni okkar við umhverfið skuli vera orðið' eitt af baráttumái- um flestra stjórnmálahreyfinga þó það sé ennþá frekar í orði en verki. Sú dapurlega staðreynd að við sé- um komin á ystu nöf með ofnýtingu og mengun jarðarinnar veldur mörgum ugg. Það þarf að stemma stigu við taumlausri plastnotkun og einnota umbúðamenningu og sjá til þess að sorp og önnur hættu- legri efni mengi ekki náttúru okk- ar. Það vill oft gleymast í arðsemis- útreikningum að okkur ber skylda til að skilja við jörðina þannig að afkomendur okkar geti lifað um langan aldur. Við leggjum því mikla áherslu á hin smáu en mjög svo mikiivægu mál eins og viðunandi frágang sorps, mengun frá bílum og svo má lengi telja. Það þarf að bæta samgöngur innan bæjarins þannig að bílaumferð minnki, stöðva gang vélknúinna farartækja i kyrrstöðu. Það þarf að verða hug- arfarsbreyting hjá fólki varðandi umgengni við náttúruna. Bjölskyldan, hvort sem hún er einn einstaklingur eða fleiri, þarf að geta lifað góðu lífi. Það þarf að koma skóla- og dagvistunarmál- um í viðunandi horf þannig að fjöl- skyldurnar geti notið þeirra fáu samverustunda sem þær hafa. Þjónusta við aldraða þarf að vera fjölbreytt og miðast við þarfir þeirra. Það þarf að gera störfin sem unnin eru á heimilunum sýnileg og metin til jafns á við önnur störf í þjóðfélaginu. Það verður ekki gert nema að þau verði viðurkennd í verki. Það er hróplegt misrétti að húsmóðir sem komið hefur upp mörgum börnum skuli ekki fá það metið sem fullgilt vinnuframlag þegar hún síðar kemur út á vinnu- markaðinn. Það er ekki viðunandi að sú sem hefur verið í fullu starfi- við að annast og hlú að undirstöðu þjóðfélagsins skuli ekki vera talin fullgildur þjóðfélagsþegn og þurfi að óttast um afkomu sína á efri árum. Þessum og óteljandi öðrum málum munum við beita okkur fyr- ir í bæjarstjórn. Við látum okkur alla varða, börn, aldraða, konur og karla þegar við komumst til áhrifa í bæjarstjórn Kópavogs. Höfundur er veðurfræðingur og er í 3. sæti Kvennalistans í Kópavogi. eftirlnga Björn Albertsson Um helgina 19. og 20. maí verður landsmönnum boðið að kaupa Jítinn og skrítinn kall sem heitir Álfur. Þetta er gulur hnoðri með grænan hatt og undir hattin- um leynast birki- og lúpínufræ, sem við getum sáð til að græða upp landið. Með því að kaupa álf tökum við þátt í að rækta landið og fólk- ið sem í því býr. Álfur er tvöfalt átak SÁA og Landgræðslunnar. Hagnaðinum verður varið til að halda áfram mikilvægri starfsemi, sém hefur hjálpað þúsundum ís- lendinga til að takast á við sjúk- dóm sinn. Ávinningur okkar er tvöfaldur. Við hjálpumst að við að byggja upp land og byggja upp fólk. Kaupum öll álfinn. Höfundur er alþingismaður. Ingi Björn Albertsson Chevro/et Monza1988og 1989 O ÁDA ÁD\/DHZÍ oggreiðslutíminn J MnM MuYnuV jafnvelennlengri. 2 BÍLAR 1988 módel, sjálfskiptir, 2000 vél, kr. 840.000- ORfíUR BILARIBOÐI 1989 módel, Classic. Sjálfskiptir, 2000 vél, úfvarp og segulband, 1989 módel, beinskiptir, 'iffy 1989 módel, sjálfskiptir, %Æ9 ratstýrðar rúður og speglar, 1800 vél, 2000 vél, ^jjjw rafmagnslœsingar, veltistýri, kr. 895.000- kr. 986.000- ” kr. 1.135.000- BÍLAR BHAR B/LAB ALLIR BÍLARNIR ERU FRAMDRIFNIR OG MEÐ AFLSTÝRI. Komdu í bílasalirm okkar að Höfðabakka 9 f Reykjavík og taktu fjölskylduna með svo hún geti prófað bflinn með þér. SAMBAND ISLENSKRA SAMVINNUFELAGA Öll verð eru staðgrelðsluverð. Bílarnlr eru ryðvarðlr og skráölr. HÖFÐABAKKA 9 112 REYKJAVÍK SÍMI 91-670000 og 674300

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.