Morgunblaðið - 15.05.1990, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MAI 1990
27
Vaclav Klaus, ljármálaráðherra Tékkóslóvakíu:
Ríkisfyrirtæki verði seld
almenningi fyrir ávísanir
Ztírich. Frá Önnu Bjarnadóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
EINKAVÆÐING ríkisfyrirtækja
er eitt af mikilvægustu skrefum
mið- og austur evrópskra stjórn-
valda á leið þeirra að markaðsbú-
skap. Vaclav Klaus, fjármálaráð-
herra Tékkóslóvakíu, leggur til
að sá vandi verði leystur með því
að öllum íbúum landsins verði
gefnar ávísanir á eina milljón
koruna sem einungis gildi til
kaupa á hlutabréfum. Þannig
myndu allir hafa jafn mikla
möguleika á að flárfesta í fyrir-
tækjunum ojg verðgildi þeirra
akvarðað. Avísanirnar myndu
ekki ganga kaupum og sölum en
einstaklingar gætu verslað með
hlutabréf sín á frjálsum markaði
eftir að fyrirtækin yrðu komin
úr höndum rikisins.
Klaus er annar vinsælasti maður
Tékkóslóvakíu á eftir Vaclav Hav-
el, forseta, samkvæmt skoðana-
könnunum. Hann hélt nýlega fyrir-
lestur í Ziirich þar sem það kom
skýrt fram að hann hefur enga trú
á umbótum á sósíalíska hagkerfinu.
Hann sagði að umbætur væru álíka
óljóst hugtak og snjór í tungumáli
eskimóa en þeir hefðu um fimmtíu
mismunandi heiti yfir hvítu, krist-
ölluðu kornin. Hann sagði að í
Tékkóslóvakíu vildu menn ekki gera
neinar tilraunir með nýjar leiðir
heldur fara hina stystu og örug-
gustu í átt að vestrænu markað-
skerfi.
Hann viðurkenndi að ekki lægi
ljóst fyrir í hvaða röð væri best að
framkvæma hlutina, til dæmis hvort
það ætti að einkavæða fyrirtæki
og leyfa frjálsa samkeppni áður en
verð yrði gefið fijálst, og hvort losa
ætti um utanríkisviðskipti áður eða
á eftir að fijálst verðlag kæmi til
sögunnar. Hann sagði að margt
lægi þó ljóst fyrir og Tékkóslóva-
kakar gætu lært af erfiðleikum
Pólveija, Ungveija og Júgóslavía.
Það yrði til dæmis að gæta þess
að hafa strangt aðhald í peninga-
og fjármálastefnu ríkisins til að
sporna við verðbólgu og ekki þýddi
að breyta kerfinu smátt og smátt
heldur yrði að framkvæma sem
flesta hluti á sem skemmstum tíma
án nákvæmrar áætlunar. Það hefði
komið Sovétmönnum í koll að þeir
væru enn að bíða eftir nákvæmri
áætlunargerð.
Fjármálaráðherrann líkti end-
urnýjunartímabilinu við skák. Unnt
væri að hugsa nokkra leiki fram í
Sameiningin var ákveðin
skömmu fyrir 1. maí og var hefð-
bundin kröfuganga kommúnista á
baráttudegi verkalýðsins undir
merkjum bandalagsins. Athygli
vakti að formaður nýja flokksins,
Claes Andersson, skáld og geðlækn-
ir, ávarpaði viðstadda með orðunum
„kæru vinir!“ í stað „kæru félagar!“
Á stríðsárunum var Kommún-
istaflokkurinn áberandi stjórnmála-
afl í Finnlandi og í lok fimmta ára-
tímann en menn gætu ekki séð fyr-
ir um hvaða stefnu leikurinn tæki.
Tékkóslóvakar yrðu að treysta því
að ráðamenn þeirra kynnu að tefia.
Sjálfur er Klaus góður taflmaður
og vann unglingamót í Prag á yngri
árum.
tugarins óttuðust margir að komm-
únistar myndu reyna að bijótast til
valda eins og skoðanabræður þeirra
í Austur-Evrópuríkjum. Flokkurinn
hefur klofnað tvisvar á síðustu
árum, fyrst gengu félagar hallir
undir Moskvustjórnina úr honum
og síðar stofnuðu stalínistar nýjan
flokk. Flokkar kommúnista hafa
samanlagt fengið innan við 10%
atkvæða að jafnaði í síðustu kosn-
ingum.
Reuter
Anatoli Gorbunov, forseti Lettlands (t.v.), og Vytautas Landsbergis,
forseti Litháens takast í hendur á fundi leiðtoga Eystrasaltsríkjanna
í Tallin í Eistlandi á laugardag. Milli þeirra stendur Arnold Ruutel,
forseti Eistlands.
Kommúnistar sam-
einast í Finnlandi
Helsinki. Frá Lars Lundsten, fréttaritara Morgunblaðsins.
KOMMÚNISTAR og vinstri sósíalistar í Finnlandi, sem hafa átt í
vök að veijast að undanfornu, hafa ákveðið að sameinast óháðum
vinstrimönnum í nýjum flokki sem nefnist Bandalag vinstrimanna.
Leiðtogar Eystrasaltsríkja stoftia eftiahagsbandalag:
Skora á Gorbatsj o v að
mæta til sanuiingafimdar
Moskvu. Daily Telegraph. x *
LEIÐTOGAR Eystrasaltsríkjanna þriggja mynduðu með sér banda-
lag á fundi sl. laugardag. I sameiginlegu skeyti til Míkhaíls Gor-
batsjovs forseta Sovétríkjanna óskuðu þeir eftir viðræðum við hann
um endurreisn sjálfstæðis rikjanna sem innlimuð voru í Sovétríkin
með leynisamningum Adolfs Hitlers, kanslara Þýskalands, og Jó-
sefs Stalíns Sovétleiðtoga 1940.
Á fundi sínum ákváðu leiðtog-
arnir, Vytautas Landsbergis, Ana-
tolí Gorbunov og Arnold Ruutel,
að endurreisa samstarfssáttmála
Eystrasaltsríkjanna frá 1934.
Munu þeir auka efnahagssamvinnu
ríkjanna og koma á reglulegum
fundum í framtíðinni um þau mál.
Leiðtogarnir þrír skoruðu á þjóð-
ir um heim allan að styðja sjálf-
stæðisbaráttu sína og leggja að
Sovétstjórninni að ganga til samn-
inga um aðskilnað ríkjanna frá
Sovétríkjunum. Hvöttu þeir til þess
að sjálfstæðismál ríkjanna yrðu
tekin fyrir á leiðtogafundi risaveld-
anna í Washington í næsta mán-
uði. Jafnframt ákváðu leiðtogar
Eystrasaltsríkjanna að sækja um
aðild af ráðstefnunni um öryggi
og samvinnu í Evrópu (RÖSE).
I skeytinu til Gorbatsjovs óskuðu
leiðtogar Eystrasaltsríkjanna eftir
því að Sovétforsetinn nefndi stað
og stund fyrir samningaviðræður
um sjálfstæði ríkjanna.
Gorbatsjov hefur ekki verið til
umræðu um samninga um aðskiln-
að Eystrasaltsríkjanna og hefur
m.a. gripið til efnahagslegra
þvingunaraðgerða gegn Litháum.
Óttast leiðtogar Lettlands og
Eystrasalts slíkar aðgerðir gegn
ríkjunum tveimur.
\ ÞEGAR VELJA Á EKTA PARKET
LÍTTU Á VERÐIÐ!
Gegnheilt 20 mm stafaparket
---- VERÐ Á m2 ----
NATUR HLYNUR. Kr. 2.987,-
RUSTIK HLYNUR.... Kr. 1.894,- g
VALINN HLYNUR... Kr. 3.257,-
Auk þess er fjöldi annarra
viðartegunda í boði.
\ ^nϒprM \
gyyyj Skútuvogi 11 S 31717
SUMARHJOLBARÐAR
Hágæða hjólbarðar
HANKOOK frá KÓREU
Á lágu verði.
Mjög mjúkir
og sterkir.
Hraðar
hjólbarðaskiptingar.
Barðinn h.f„ Skutuvogi 2,
símar 30501 og 84844
Vinningstölur laugardaginn l ma^
11
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af5 2 5.719.523
4af5^p 14 73.070
3. 4 af 5 391 4.513
4. 3af 5 11.032 373
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
18.341.545 kr.
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002
afsláttar af öllum tröttum
H€RRflRÍKI
SNORRABRAUT 56 SÍMI 1 35 05