Morgunblaðið - 15.05.1990, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 15.05.1990, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MAI 1990 31 Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson Árni Kópsson vakti lukku áhorfenda á nýrri heimasmíðaðri keppnis- grind og vann nokkuð örugglega. Torfærukeppni: Meistarinn sigraði NÝ skrautleg grind Árna Kópssonar vakti verulega athygli þeirra tæplega fjögur þúsund áhorfenda, sem fylgdust með torfærukeppni Jeppaklúbbs Reykjavíkur og Bílanausts sl. laugardag við Grindavík. Árni náði strax forystu í keppninni í nýsmíðaðri „Heimasætu" sinni í flokki sérútbúinna jeppa. Sömu sögu má segja um Þórð Gunnarsson í flokki götujeppa, sem þurfti lítið að hafa fyrir sigri. Þrautirnar buðu ekki upp á mikil tilþrif framan af, en síðan hitnaði mönnum í hamsi og áhorfendur fengu að sjá líflega takta á köflum, þó endaspretturinn væri í daufara lagi, enda keppnin haldin á svæði sem Jeppaklúbburinn hefur enga reynslu af. En Árni Kópsson hafði tögl og hagldir í keppni þeirra sérút- búnu, en Guðbergur Guðbergsson á Jeepster veitti honum mesta keppni. Er líklegt að þeir sláist um meistara- titilinn í ár, en margir keppenda komu á vanbúnum tækjum til keppni. Er þó líklegt að úr rætist í næstu keppni sem fram fer á Hellu í júní. Lokastaðan í flokki sérútbúinna: 1. Árni Kópsson „Heimasætan" 1882 stig, 2. Guðbergur Guðbergs- son Jeepster 1703, 3. Gunnar Guð- mundsson Jeepster 1610. Flokkur götujeppa: 1. Þórður Gunnarsson Ford 42 1392 stig, 2. Sigurður Ólafsson Willy’s 1276, 3. Steingrím- ur Thorsteinsson Willy’s 1134 stig. - G.R. FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM - HEIMA 14. maí. FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar- verð verð verð (lestir) verð (kr.) Þorskur 81,00 40,00 74,69 59,170 4.419,421 Þorskur(óst) 73,00 40,00 66,03 7,983 527.076 Þorskur(stór) 74,00 64,00 70,82 2,025 143.417 Þorskur(smár) 39,00 39,00 39,00 3,128 121.975 Ýsa 88,00 66,00 80,59 6,195 499.254 Ýsa(ósl.) 85,00 63,00 76,50 1,398 106.949 Karfi 42,00 28,00 40,75 7,065 287.854 Ufsi 36,00 24,00 35,85 2,133 76.476 Ufsi(smár) 29,00 26,00 28,34 2,817 79.839 Steinbítur 35,00 35,00 35,00 1,322 46.253 Steinbítur(óst) 46,00 35,00 36,09 0,779 28.096 Langa 40,00 39,00 39,33 0,122 4.779 Lúða 295,00 150,00 239,84 0,274 65.595 Grálúða 66,00 63,00 64,83 41,969 2.720.977 Koli 34,00 27,00 27,61 0,773 21.327 Keila 20, Ö0 20,00 20,00 0,180 3.590 Skata 40,00 40,00 40,00 0,008 300 Gellur 280,00 240,00 260,00 0,022 5.538 Samtals 66,68 137,357 9.158.716 FAXAMARKAÐU R hf. í Reykjavík Þorskur 75,00 63,00 70,66 40,322 2.849.077 Þorskur(ósL) 68,00 50,00 55,77 7,084 395.072 Ýsa 111,00 75,00 97,89 4,150 406.255 Ýsa(ósl.) 88,00 66,00 84,69 1,745 148.130 Karfi 20,00 20,00 20,00 0,548 10.960 Ufsi 42,00 34,00 40,25 28,061 1.129.509 Steinbítur 36,00 29,00 29,71 0,868 25.788 Langa 37,00 37,00 37,00 0,106 3.922 Lúða 360,00 160,00 227,35 0,187 42.515 Skarkoli 36,00 20,00 24,55 0,137 3.364 Keila 12,00 12,00 12,00 0,320 3.840 Skötuselur 115,00 115,00 115,00 0,012 1.380 Rauðmagi 170,00 15,00 56,08 0,083 4.655 Hrogn 30,00 30,00 30,00 0,012 360 Undirmál 35,00 25,00 34,44 2,014 69.369 Blandað 80,00 15,00 49,98 0,102 5.098 Samtals 59,47 85,751 5.099.294 FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf. Þorskur 101,50 50,00 71,67 25,866 1.853.807 Þorskur(ósL) 87,00 32,00 58,30 65,276 3.805.363 Ýsa 79,00 30,00 71,52 31,180 2.229.867 Ýsa(ósL) 84,50 26,00 70,17 80,340 5.637.442 Karfi 30,00 23,00 28,48 5,417 154.268 Ufsi 35,50 1Q.00 27,51 13,717 377.390 Steinbítur 27,00 20,00 25,04 3,221 80.652 Langa 37,00 23,00 28,38 2,804 ' 79.590 Lúða 230,00 100,00 195,23 0,329 64.230 Skarkoli 37,00 30,00 34,27 0,308 10.556 Keila 18,00 10,00 11,58 2,748 31.818 Skata 66,00 66,00 66,00 0,016 1.056 Skötuselur 82,00 82,00 82,00 0,014 1.148 Hrogn 57,00 57,00 57,00 0,030 1.710 Undirmál 23,00 15,00 19,71 0,282 5.558 Blandað 5,00 5,00 5,00 0,472 2.360 Samtals 61,79 232,020 14.336.815 Selt var úr Katrínu VE og dagróðrabátum. í dag verða meðal annars seld 45 tonn af þorski og 4 tonn af steinbít úr Skarfi GK og dagróðrabátum. FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM - YTRA VESTUR-ÞÝSKALAND 14. maí. Hæstaverö Lægstaverð (kr.) (kr.) Þorskur 116,04 90,65 Ýsa 160,27 159,55 Ufsi 79,05 41,34 Karfi 145,05- 74;70 ÚR DAGBÓK LÖGREGLUNNAR í REYKJAVÍK: Helgin 11.-13. maí Mikil ölvun fólks var á starfs- svæðinu um helgina. Lögreglan varð 120 sinnum að hafa afskipti af ölvun. 73 voru vistaðir í fanga- geymslunum vegna ölvunaróláta, innbrota, þjófnaða, skemmdar- verka og líkamsmeiðinga. 15 voru færðir fyrir dómara til syndaaf- lausnar og aðrir voru færðir til frekari skýrslutöku, en mál þeirra verða síðan send_ ríkissaksóknara til meðferðar. Áfengisvarnafull- trúi embættisins þurfti að sinna nokkrum einstaklingum vegna undanfarandi áfengisneyslu og vandamála henni lútandi. 10 ein- staklingar gistu sjálfviljugir fangageymslurnar þar eð þeir áttu hvergi annars staðar höfði sínu að halla. Mikil ölvun var meðal fólks í miðborginni og varð að handtaka allnokkra, sem létu ófriðlega. Flestir þeirra voru færðir fyrir dómara að morgni og var gert að greiða 4—10 þúsund krónur í sektir. 6 ungir menn voru handteknir aðfaranótt laugardags vegna skemmdarverka við Grímsbæ á Bústaðavegi. Þá voru einnig 3 ungir menn handteknir vegna skemmdarverka á bifreið í Aust- urbergi. Um nóttin'a var ölvaður maður handtekinn í Austurstræti við Lækjartorg eftir að hafa veist þar að lögreglumanni. Á laugar- dagsmorgun voru 3 ungir menn handteknir við Landspítalann þar sem þeir voru í önnum við að vinna skemmdarverk á skiltum. Aðfara- nótt mánudags voru 3 ungir menn handteknir við að reyna að brjót- ast inn í verslun í Selási. Fjögur umferðarslys urðu um helgina. Á föstudag meiddist stúlka eftir að hafa hjólað á bif- reið á Laugalæk. Þann dag meidd- ist ökumaður eftir árekstur tveggja bifreiða á gatnamótum Borgartúns og Nóatúns. Aðfara- nótt laugardags var ekið yfir fót á manni á Hótel íslandsplani og þá lenti einnig gangandi vegfar- andi yfir bifreið í Ármúla. 62 voru kærðir fyrir of hraðan akstur um helgina og 12 eru grun- aðir um ölvun við akstur. Einn ökumaður enn, sem grunaður er um ölvun við akstur, lenti í um- ferðaróhappi. Tilkynnt var jom 11 rúðubrot og 9 skemmdarverk. Enn er til fólk, sem lýtur svo lágt að bijóta rúður og vinna skemmdarverk á eigum annarra. Flestir hafa þó þroska til þess að sjá neikvæðan tilgang þeirra verknaða. 9 innbrot og 18 þjófnaðir voru tilkynntir til lögreglunnar. í flest- um tilvikum var um þjófnaði á reiðhjólum að ræða og er fólk enn hvatt til þess að gæta þeirra bet- ur. Það sem af er árinu hefur verið tilkynnt um stuld á rúmlega 70 reiðhjólum. Þá var stolið verð- mætum og skilríkjum úr yfirhöfn- um fólks á vinnustöðum. Timbri var stolið við Hallgrímskirkju, fólksbílakerru, blárri með svöitu beisli og rauðum brettum, var stolið frá Suðurlandsvegi við Rauðhóla og Combi Camp tjald- vagni var stolið frá húsi við Sævið- arsund. Tilkynningar um sinuelda eru algengar á þessum árstíma. Fólk er beðið um að gæta þess að börn og unglingar hafi ekki eldfæri undir höndum. Þá ber að geta þess að óheimilt er að kveikja elda í lögsagnarumdæmi lögreglunnar í Reykjavík nema með sérstöku leyfi. Bannað er að brenna sinu eftir 1. maí. Ar Jasshátíð- inni lokið JASSHÁTÍÐ Ríkisútvarpsins og norrænum útvarpsjassdögum lauk síðastliðið sunnudagskvöld er norræna stórsveitin lék fyrir fullu húsi áheyrenda í Borgar- leikhúsinu. Hátíðin stóð frá 6. maí til 13. maí og voru um 40 tónleikar á þessu tímabili. Leikið var á veitingastöð- um í miðbæ Reykjavíkur og í Kringlukránni auk fyrrgreindra tónleika í Borgarleikhúsi. Fjöldi norrænna gesta lék á hátíðinni. Mikill áhugi var á meðal borg- arbúa á þessari jasshátíð og á tón- leikum á Hótel Borg sl. laugardags- kvöld komust færri að en vildu. Morgunblaðið/KGA Á innfeldu myndinni sést Markko Johans- en, trompetleikari hljómsveitar Jukka Linkola leika fyrir gesti á Hótel Borg, en á þeirri stærri sést yfir salinn á meðan á því stóð Píturallmótið: Sigur í fyrstu ferð á Metro 6R4 Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson Ásgeir Sigurðsson og Bragi Guðmundsson ásamt syni sínum við nýja Metro 6R4 rallbílinn. Þeir unnu í sinni fyrstu keppni á bílnum, sem er fjórhjóladrifinn. EFTIR tveggja ára hlé og bið eft- ir að komast í rallkeppni á nýjum Metro 6R4 rallbíl hrósuðu félag- arnir Ásgeir Sigurðsson og Bragi Guðmundsson sigri í fyrstu keppni á bílnum, þegar þeir unnu rallkeppni Pítunnar og BÍKR á laugardaginn. Þeir hafa unnið að undirbúningi bílsins í langan tíma og unnu í jómfi'úrferðinni, þrátt fyrir hörkuakstur feðganna Rúnars Jónssonar og Jóns Ragn- arssonar á Ford Escort RS, sem veittu þeim mesta keppni um sig- urlauninn. „Við vorum búnir að vera í elt- ingaleik í 12 ár við toppbílana og ákváðum því að gera hlé og koma svo með verulega góðan keppnisbíl. Við biðum því má segja í vegkantin- um eftir því að komast af stað á ný og síðustu daga fyrir keppni var unnið dag og nótt við að koma nýja bílnum í keppnishæft ástand,“ sagði Ásgeir Sigurðsson í samtali við Morgunblaðið. Metro bíllinn er sérsmíðaður rallbíll, fjórhjóladrifinn og með 300 hestafla vél. Koma hans er í raun stórt stökk framávið og ljóst að aðrir verða að fylgja í kjölfar- ið með svipaðan búnað, ef þeir ætla að verða samkeppnisfærir. „Þó þetta væri frumraun bílsins gekk allt vandræðalaust. Bretinn Joe Short gerði kraftaverk með því að vinna í bílnum síðustu dagana fyrir keppni, án háns héfðum við 'áldref komist af stað,“ sagði Ásgeir. „Það er margt sem við getum betur um bætt í bílnum, en við ákváðum að byija í þessari keppni og skoða svo framhaidið. Ég þurfti að hafa fyrir sigrunum, þó bíllinn sé góður og tók verulega á í baráttunni við Rúnar,“ sagði Asgeir. Sautján keppendur lögðu af stað í Píturrallið, en aðeins sex þeirra komust í mark. Meðal þeirra sem féllu úr leik voru íslandsmeistararn- ir Ólafur og Halldór Sigurjónssynir, ' sem " ákváðu " á ‘ síðustU" ’stúhdu að keppa, en stýrisbúnaður í bíl þeirra fór fljótlega úr sambandi. Lokastaðan: 1. Ásgeir Sigurðsson- / Bragi Guðmundsson Metro 6R4, 49,04 mínútur í refsingu. 2. Rúnar Jónsson / Jón Ragnarsson Ford Es- cort RS, 49,42. 3. Páll Harðarson / Witek Bogdanski Ford Escort RS, 55,01. 4. Guðmundur Guðmundsson / Elías Jóhannsson Toyota, 58,39. 5. Úlfar Eysteinsson / Guðmundur Gíslason Camaro 1,07,21. 6. Konráð Valsson / Ásgrímur Jósefsson Lada 1600....................- G.R.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.