Morgunblaðið - 15.05.1990, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 15.05.1990, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 1990 % Námskeið fyrir sumarið TIL ÚTLANDA í SUMAR? Hraðnámskeið í tungumálum fyrir byrjendur og fyrir þá sem vilja dusta rykið af fyrri kunnáttu. Kennd verður danska, enska, franska, gríska, ítalska, spænska, sænska, rússneska og þýska. FERÐASTU Á BÍLNUM? Á námskeiðinu „Að gera við bílinn sinn" lærirðu að fylgjast með bílnum og halda honum við, skipta um platínur, kerti, viftureim og bremsuklossa og annast minni viðgerðir. Elías Arnlaugsson kennir í bifvéladeild Iðnskólans 21., 23. og 24. maí. VORÞREYTA? Námskeiðið „Hollusta, hreyfing og heilbrigði" miðarað heilbrigðara lífi án öfga. Kennt inni og úti um streitu, slökun og hreyfingu, tengsl andlegrar og líkamlegrar heilbrigði og hollt mataræði. Skokkað saman í lokin. „Do-ln sjálfsnudd og slökun“ 15.-23. maí er námskeið í japanskri aðferð við sjálfsnudd sem felst í banki á orkurásir líkamans. Tilgangurinn er jafnvægi og betri líðan. Leiðbeinandi Sigrún Olsen. ÞEKKIRÐU REYKJAVÍK? Á námskeiðinu „Reykjavíkurrölt" í lok maí skoðarðu bæinn á kvöldgöngu með Páli Líndal og fræðist um sögu gömlu Reykjavíkur, íbúa hennar, götur og hús og færð yfirlit yfir stækkunina og nýju hverfin. Börn velkomin í fylgd fullorðinna þátttakenda. Hefst 29. maí. UMHVERFISVERND VIÐ BÆJARDYRNAR OG VÍTTUMHEIM Heigarnámskeið um umhverfismál í samvinnu við Landvernd. Hvað er að gerast á hnettinum okkar? Hvernig er ástandið á íslandi? Hvað getum við sjálf lagt af mörkum til verndar umhverfinu? Fyrirlestrar, umræðurog útivist. Haldiðá Alviðru í Ölfusi 9.-10. júní. Tilvalið námskeið fyrir alla fjölskylduna. VILLTAR JURTIR OG GRÖS EinarLogi Einarsson kennirtínslu, verkun, geymsluog notkun jurta á 3ja kvölda námskeiði. Grasaferð í júní. Nánari upplýsingar um námskeiðin, stað- og tímasetningu og verð á skrifstofunni. TÓMSTUNDA SKOUNN Skólavöróustig 28 Sími 621488 Þú svalar lestrarþörf dagsins áskíum Moggans! Fyrirtæki Kaupfélag Árnesinga með 36,4 m.kr. tap * Askoran til Landsbankans um að Samvinnubankaafgreiðslan verði rekin áfram UM 36,4 milljón kr. halli varð á rekstri Kaupfélags Árnesinga á sl. ári, að því er fram kom á aðalfundi félagsins, sem var haldinn á Selfossi 8. maí sl. Fundinn sóttu um 120 manns. I skýrslum stjórnarformanns og kaupfélagsstjóra kom fram að kaupfélagið var rekið með nokkrum halla en þó minnkandi á árinu 1989. Nam halli ársins .36,4 milljónum, eins og áður segir en án hagnaðar af sölu eigna voru reksturstölur um 42,7 millj. tap árið 1989 á móti 47,4 millj. tapi árið 1988. Heildar- velta kaupfélagsins var um 2.306 millj. á móti 1.612 millj. árið áður, sem er aukning upp á 43% þannig að tapið sem hlutfall af veltu minnk- aði úr 2,94% árið 1988 í 1,86% árið 1989. Bókfærðar afskriftir eigna voru um 42,6 millj. og fyrir fjármagnskostnað batnaði reksturs- afkoman um 20 millj. milli ára. Fjárfest var fyrir 81,3 millj. árið 1989 og var aðalframkvæmdin nýj- ar skrifstofur KÁ á 2. hæð í Vöru- húsi KÁ. Þessar framkvæmdir voru að hluta til þess valdandi að fjár- magnskostnaður var meiri en við eðlilegar aðstæður og hækkaði um 52% frá árinu 1988. í veltu Kaupfélagsins vegur mest vörusalan sem var 1..854 millj. og hafði aukist um 46% frá fyrra ári en samanburður er síður raunhæfur vegna þess að rekstur búða í V-Skaftafellssýslu og Vestmanna- eyjum hófst síðari hluta ársins 1988 og árið 1989 er fýrsta heila rekst- ursárið fyrir þessar verslanir á veg- um Kaupfélags Árnesinga. Mest var sala í Vöruhúsi KÁ eða um 812,7 millj. sem var um 20% aukning. Af öðrum verslunum var salan mest í verslun KÁ í Þorlákshöfn eða 117 millj., í aðalbúð Kirkjubæj- arklaustri 106 millj. og í verslun- inni á Goðahrauni 1 í Vestmanna- eyjum 104,7 millj. Sala iðnaðar- og þjónust^ideilda var um 393,5 millj. sem er um 25% aukning frá árinu á undan. Sölu- hæstu deildir eru bifreiðasmiðjur með 81,4 millj., lyfjaverslunin með 90,5 millj., kjötvinnsla KÁ 64,2 millj. og trésmiðja KA með 62 millj. Aðalfundurinn var óvenjulegur að því leyti að á honum var minnst þess að Kaupfélag Árnesinga verð- ur 60 ára á yfirstandandi ári. Gest- ir aðalfundarins voru þeir Guðjón B. Ólafsson forstjóri Sambands ísl. samvinnufélaga, Steinþór Skúlason forstjóri Sláturfélags Suðurlands, Birgir Guðmundsson mjólkurbús- stjóri Kaupfélags Rangæinga. Gest- irnir ýmist tilkynntu eða færðu kaupfélaginu veglegar gjafir í til- efni afmælisársins. Kaupfélag Ár- nesinga mun gefa út bók á árinu, sem er saga kaupfélagsins skráð af Erlingi Brynjólfssyni. Á aðalfundi komu til umræðu sameiningarmál kaupfélaganna á Suðurlandi í framhaldi af fyrri aðal- fundi, þar sem samþykkt var að heimila stjórn KÁ að semja um samstarf eða sameiningu við starf- andi Sambandskaupfélög í Suður- landskjördæmi. Nú var samþykkt eftirfarandi tillaga frá stjórn kaup- félagsins. „Aðalfundur Kaupfélags Árnes- inga, haldinn á Selfossi 8. maí_1990, heimilar stjórn Kaupfélags Árnes- inga að semja um samstarf eða sameiningu við starfandi Sam- bandskaupfélög í Suðurlandskjör- dæmi. Telst heimild þessi vera end- anlegt samþykki félagsmanna Kaupfélags Árnesinga fyrir hugs- anlegri sameiningu Kaupfélags Skaftfellinga, Kaupfélags Vest- mannaeyja og Kaupfélags Árnes- inga, þannig að eigi þarf frekar að leggja væntanlega samninga stjórnar Kaupfélags Árnesinga varðandi þessi sameiningarmál að nýju fyrir félagsfund.“ Samþykkt voru tilmæli til stjórn- enda Landsbanka íslands, þess efn- is að afgreiðsla Samvinnubankans á Selfossi yrði starfrækt áfram. Þá kom fram tillaga og var samþykkt varðandi starfsmannamál, en því var beint til stjórnar kaupfélagsins að gerð yrði jafnréttisáætlun sem unnin yrði í samstarfi við Starfs- mannafélag KÁ og viðkomandi verkalýðsfélög. Einnig var ályktað að fela stjórn KÁ og framkvæmda- stjóra að kanna möguleika á því að veita viðskiptamönnum stað- greiðsluafslátt í verslunum félags- ins^ Úr aðalstjórn KÁ áttu að ganga Þorleifur Björgvinsson og Arndís Erlingsdóttir, en þau voru bæði endurkjörin. Garðar Hannesson, annar endurskoðandi félagsins, gaf ekki kost á sér til endurkjörs og var í hans stað kosinn Arnór Karls- son og varaendurskoðandi var kosin Hansína Stefánsdóttir. Á MARKAÐI Bjarni Sigtryggsson Er ísland að dragast aftur úr kommúnistaríkjunum ? Frá því söluskattur var tekinn upp hér á iandi í upphafi sjöunda áratug- arins hafa allir fjármálaráðherrar án undantekningar verið haldnir grund- vallarmisskilningi á eðli þessa skatts. Þeir hafa allir haldið því fram að um væri að ræða skatt sem verslanir innheimtu og varðveittu fyrir ríkið. Þetta væri því skattur á neytendur en ekki skattur á verslunina. Þetta er í meginatriðum rangur skilningur, þótt frá því séu til nokkrar undan- tekningar. Þar sem frjáls markaður ríkir, eins og hér á landi hefur gerst í vaxandi mæli, er verðmyndun jafnan með þeim hætti að eftirspurn ræður meiru um útsöluverð en kostnaðarþættir. Þetta skýrir góða afkomu verslunar á þenslutímum. Verð er jafn hátt og kaupendur eru reiðubúnir að greiða fýrir það. Hvorki hærra né lægra. Tiltekin tískuvara getur orðið nokkr- um sinnum dýrari en önnur hliðstæð sem þjqnar einungis brýnustu gagn- semi en fullnægir engum óskum um stöðutákn. nindola VenbAxia LOFTRÆSIVIFTUR Gallabuxur í kílóatali Þegar samkeppni er svo næg á markaði myndast fljótt það verð sem er „rétt“ miðað við óskir og þarfir kaupenda og framboð seljenda. Af GLUGGAVIFTUR - VEGGVIFTUR BORÐVIFTUR - LOFTVIFTUR Ensk og hollensk gæðavara. Veitum tæknilega ráðgjöf við val á loftræsiviftum. Það borgar sig að nota það besta. Þekking Reynsla Þjónusta (FALKINN SUÐURLANDSBRAUT 8 SlMI 84670 „VASK-urinn er ekki vörslufé ríkis- sjóös heldur skattlagning á viðskiptalífið í landinu...“ þessu verði greiðist söluskattur — án.tillits til kostnaðarþátta. Þannig getur ríkissjóður nú leikandi haft tvö þúsund krónur í virðisaukaskatt af rifnum gallabuxum frá tískubúðinni „13“ en aðeins tvö hundruð krónur af stráheilum en lítilsháttar gamal- dags gallabuxum frá versluninni „Sparigarði".
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.