Morgunblaðið - 15.05.1990, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 15.05.1990, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MAI 1990 Þarf að hafa metn- að og hugmyndir eftir Þórarin Egil Sveinsson Nú líður óðfluga að því að þið, góðir Akureyringar, gangið til bæjarstjórnarkosninga. Tími er kominn til að velja forystu í bæjar- málum til næstu fjögurra ára. Þú þarft að gera upp við þig hvaða fólki þú treystir best og hvað það er sem skiptir máli í okkar annars ágæta bæjarfélagi. Þegar svo stór og mikilvæg ákvörðun er tekin er ef til vill hollt að líta á hvernig núverandi meirihluta hefur til tek- ist. Ef leitað er að einu orði tii að lýsa árangri núverandi meirihluta hentar orðið metnaðarleysi mun betur en flest önnur. Er ég þá búinn að útiloka orð eins og sið- leysi, mistök í stjórnun, stjórn- leysi, spillingu og fleiri og fleiri orð af svipuðum gæða- og hug- myndaflokki. Ég segi ekki orð um mannaráðningar í flokkslitum, inn- antóma starfsmannastefnu, ein- tómt leynimakk í öllum ákvörðun- um, t.d. álversmálum, og staðsetn- ingu slökkvistöðvar. Allt þetta hjálpar þér vonandi við ákvarðana- tökuna. Það verður að refsa þessu krata-íhaldi og hefja nýja fram- sókn sem byggist á bjartsýni. Um það á þessi pistill að snúast. Nýja sókn byggða á bjartsýni og sam- starfi, en ekki baktjaldamakki og getuleysi. Við sem búum á Akur- eyri teljum þetta miðdepil alheims- ins. Hér er gott mannlíf, menning og listir og félagsleg þjónust með ágætum. Þessa þætti þarf að styðja og styrkja, auka sveigjan- leikann þannig að hæfi samfélag- inu og atvinnulífinu á hveijum tíma. Það er einmitt öflugt atvinn- ulíf sem er nauðsynlegt til að sam- félagið geti sinnt skyldum sínum og verið alvöru samfélag. Það er skylda bæjaryfirvalda að halda uppi sem bestum almennum skil- yrðum fyrir fjölbreytt atvinnulíf. Stuðla að hæfilegri blöndu félags- legs- og/eða samvinnurekstrar annars vegar og einkareksturs hins vegar. Á erfiðum tímum getur ver- ið nauðsynlegt að taka lán og veita því gegnum Framkvæmdasjóð til nýsköpunar atvinnu. Bæjarstjórn á að vera kjölfestan, passa blönduna og aðstoða á réttum tíma. Bærinn á og þarf ekki að vasast í öllum atvinnurekstri. En á erfiðum tímum, eins og t.d. nú í bygginga- riðnaði, á bærinn að taka í útréttar Þórarinn Egill Sveinsson framkvæmdahendur eins og bygg- ingu húss Náttúrulækningafélags- ins í Kjarnaskógi, byggingu KA- íþróttahúss við Lundaskóla, Til að leysa atvinnumál unglinga og skólafólks mætti virkja betur um- hverfisframkvæmdir og gróður- setningu ■ í bæjarlandinu. Svona 35 mætti lengi telja. En þá þarf að hafa metnað og hugmyndir. Til að ná áfanga þurfa menn að vita hvað þeir vilja. Það þarf að hafa markmið. Þeim þarf síðan að framfylgja af festu og dugna,ði. Ferðamannabærinn Akureyri þarf nýtt líf og fleiri valkosti studda af velviljuðum bæjarjrfirvöldum. Sama er með skólabæinn Akur- eyri, þar sem KEA leysti húsnæðis- vanda háskólans. Iðnaðarbæinn Akureyri þarf að styrkja til að standa áfram undir nafni. Stofnan- ir þarf að flytja o.s.frv. o.s.frv. Verkin eru mörg. Auðvitað á bær- inn og bæjarstjórn ekki að gera þetta allt. En bæjarstjórn á að horfa fram og sækja á brattann, styðja einstaklinga og félagasany tök til dáða. Þetta er ekki spurning” um álver eða ekki, þetta er spurn- ing um álver og allt hitt. Álver stöðvar vonandi strauminn. Hitt allt viljum við eiga þátt í að byggja upp. Til þess þurfum við að vinna saman. Sú samvinna á að byija ekki síðar en 26. maí þar sem þú „exxar við Bé-ið“. Höfnndur skipar 2. sæti á Iista Frarnsóknarflokksins á Akureyri. Kjósa Akurnesingar um þögn meirihlutans? eftir Guðmund Guðjónsson Akurnesingar, nú göngum við til bæjarstjórnarkosninga eftir tæpan hálfan mánuð. Þegar svo stutt er til kosninga ætti kynning á stefnumálum allra flokka sem bjóða fram, að vera komin vel á veg. Þegar þetta er skrifað er aðeins stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins komin í hendur kjósenda. Þessi seinagangur hinna flokk- anna þriggja hefur vakið undrun og spurningar um hvort þögnin sé þeirra stefnuskrá. Úr óreiðu í stöðugleika Er þögn meirihiutanokkánna §f til vill flótti frá því að ræða þær 56 milljónir króna sem vantar upp á tekjuhlið fjárhagsáætlunar Akranesbæjar fyrir árið 1990? Vilja sömu flokkar ekki ræða hina slæmu skuldastöðu Akranes- bæjar, en um síðustu áramót voru skuldir 340 milljónir króna á móti 400 milljónum króna í tekjur á síðasta ári? Sjálfstæðisflokkurinn hefur þegar lagt fram tillögu um endur- skoðun fjárhagsáætlunar en sú tillaga var felld af meirihlutanum. Ekki seinna en strax verður að taka rösklega á hinum mikla íjár- hagsvanda bæjarsjóðs. Skuldir verða að iækka og traust og ábyrg fjánnálastjórn verður að komast á undir stjórn Sjálfstæðisflokksins. Gæta verður ýtrustu hagsýni og sparnaðar, án skerðingar á þjón- ustu. Atvinna er undirstaðan Á síðasta kjörtímabili hefur at- vinnuleysi á Akranesi aukist jafnt og þétt sem afleiðing samdráttar í atvinnurekstri í bænum. Ætlar Framsóknarflokkurinp að sitia aðgerðarlítill og horfa á vaxandi atvinnuleysi og samdrátt í atvinn- ulífinu? í Magna er því lýst yfir að at- vinnumál séu ekki á valdi bæjar- stjórnarinnar og málinu síðan vísað á snyrtilegan hátt til ríkis- stjórnarinnar. Það hlýtur að vera krafa bæj- arbúa að kjörnir bæjarfulltrúar taki á slíkum vanda, þar sem at- vinnumálin eru undirstaða allra annarra þátta bæjarlífsins. Þá ábyrgð eru frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins tilbúnir til að axla næsta kjörtímabil. Núverandi vandi atvinnulífsins verður því best leystur með for- ystu Sjálfstæðisflokksins, sem einn hefur lagt fram í sinni stefnu- skrá tillögur að atvinnuþróun og nýsköpun í atvinnumálum. Jafiirétti í bæjarmálum Hlutfallsleg skipting milli kynja á að vera sem jöfnust í stjórnun bæjarins. Með því að tryggja Sjálfstæðis- flokknum 4 fulltrúa í komandi kosningum verða 4 konur í bæjar- stjórn Akraness næsta kjörtíma- bil, ef Framsóknarflokknum tekst að halda 2 fulltrúum. Festa og frumkvæði Kjósendur, í þessum kosningum verður kosið um stefnufestu og frumkvæði Sjálfstæðisflokksins annars vegar og þagnarstefnu hinna flokkanna hins vegar. Guðmundur Guðjónsson „Er þögn meirihluta- flokkanna ef til vill flótti frá því að ræða þær 56 milljónir króna sem vantar upp á tekju- hlið Qárhagsáætlunar Ákranesbæjar íyrir árið 1990?“ GIIISdNð Ginsana G115 veitir fólki aukinn þrótt til að standast líkamlegt og anHlpni ál.pf} Það eflir einbeitingu og vinnur gegn streitu. Kosningasigur Sjálfstæðis- flokksins er sigur allra Akurnes- inga. Höfundur er framkvæmdastjóri og skipar 5. sæti D-listans á Akrancsi. Úh Póstsendum leilsuhúsið Kringlan a 689266 Skólavörðustig S 22966 DREGIÐ ÍAUKALEIKNUM Á MORGUN Takirðu þótt f ibihapptSrsðit. Landssambands Hjólpar- sveita skáta fyrir 1.000 kr. eda meira - tekurðu einnig þátt í Aukaleiknum. Dreginn verður út vinningur, bifreið af gerðinni Mitsubishi Colt 1300 6L, á hverjum miðviku- degi uns dregið verður um aðalvinningana þann 8. júní. Mundu því að greiða gíróseðilinn sem fyrst til að eiga kost á aukavinn- ingi í hverri viku! SPA HISJÚÐUR V ÉLSTJÚRA hriuruf stórlitig styrkt fn'ttu hupfxlnvtti. Björgum við þínulífi nœst? D| LANDSSAMBAND IHJÁLPARSVEITA SKÁTA ÍUJ'JIM!! •tl'iilOUi.' -'JB 1A- HIJMI. eni; •>!!!, J.iviru jri'j V f .i
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.