Morgunblaðið - 15.05.1990, Síða 38

Morgunblaðið - 15.05.1990, Síða 38
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MAI 1990 Framtíð og fegurð eftir Rannveigu Guðmundsdóttur Það er óhætt að fullyrða að í framtíðarsýn flestra okkar tengj- ast þessi tvö orð sterkum böndum. Hvei’jar svo sem áherslur okkar eru í því lífsmunstri sem við. búum við, eða viljum vera með í að skapa, þá tengjast þær á einn eða annan 'Íátt orðinu fagurt. Blómstrandi menningarlíf, fjölbrejdtir mögu- leikar til íþróttaiðkunar, verndun og fegrun umhverfis, uppbygging atvinnulífs, öryggi barna og stuðn- ingur við aldraða, ijölskyldupólitík. Alla þessa þætti, og fleiri mætti telja, getum við sett undir eina yfirskrift: „Fagurt mannlíf." Um þetta getum við öll verið sammála en þegar kemur að áherslum og umræðum um hver þessara þátta sé öðrum mikilvægari koma í ljós mismunandi viðhorf. Fyrir kosn- ingar verður það sérstaklega áber- andi og hve fyrirheit og fram- kvæmdir fara oft lítt saman. Þá /gjynir á kjósandann. Hlustar hann? Metur hann? Kosningavor í þessum mánuði göngum við til sveitarstjórnarkosninga. Kosn- ingavorið hefur verið heldur dauft og málefnaleg umræða farið fyrir lítið. Hátt hefur farið hversu Sjálf- stæðisflokkurinn sé mikið yfir- burðaafl í höfuðborginni, þó á það eigi eftir að reyna í komandi kosn- ingum. Minna hefur farið fyrir því hve áhrifalaus sá flokkur er í öðru "stærsta kjördæmi landsins, Reykjanesi. Á Reykjanesi er Alþýðuflokkur- inn hið sterka afl og má þar nefna Kópavog, Hafnarfjörð, Grindavík, Njarðvík, Keflavík og Sandgerði. eftir Sigurjón Pétursson J** Þau gömiu, góðu og sígildu sannindi að enginn hafi úr meiru að spila en því sem hann aflar verða vist seint of oft kveðin. Þessi sannindi eiga jafnt við um émstaklinga, fyrirtæki sem og sveitarfélög og þjóðir. Framleiðsla hvers konar verð- mæta er undirstaða allrar okkar velferðar, og hún stendur jafnt undir skólakerfinu, heilbrigðiskerf- inu, vegagerð sem og stjórnsýslu, verslun og bönkum. Takist ekki að framleiða nóg fyrir þeim þjónustukostnaði sem ákveðinn er á hverjum tíma þá er bilið brúað með lántökum, sem er raun aðeins ákvörðun um það að framtíðin skuli greiða kostnað samtíðar; börnin gjaldi syndir feðr- anna. Þjónusta — framleiðsla Reykjavík er, og mun verða um ófyrirsjáanlega framtíð, miðstöð verslunar, þjónustu og samgangna í landinu. Sem slík er borgin mjög háð velgengni atvinnulífs á allri landsbyggðinni. Samdráttur sem verður í landbúnaði, iðnaði, fisk- veiðum eða fiskvinnslu, hvar sem er á landinu, bitnar fyrr eða síðar á þjónustustörfum í Reykjavík. Þjónustustörfin eru vissulega mikilvæg og raunar ómissandi stuðningur við framleiðsluatvinnu- greinarnar, en það má aldrei gleymast að þjónustustörfin eru aldrei verðmætaskapandi í sjálfu sér. " “* í framleiðsluatvinnugreinum er alltaf auðvelt að sjá hvenær fram- leiðslan er arðbær og hvenær ekki. í þessum og fleiri sveitarfélögum hafa íbúarnir valið að fagurt mannlíf sé ijölskyldan í fyrirrúmi og kosið Alþýðuflokkinn til áhrifa. Kosningamálin Kratabæirnir á Reykjanesi eiga það allir sammerkt að þar hafa farið saman fyrirheit og fram- kvæmdir. Það er líka í samræmi við þær væntingar sem kjósendur hafa til okkar, fólksins sem þeir kjósa til áhrifa, að við segjum það sem við meinum og gerum það sem við segjum, að við látum verkin tala og getum óhrædd hveiju sinni lagt þau undir dóm kjósenda. Sjálfstæðismenn á Reykjanesi vilja ekki tala um fyrirheit og fram- kvæmdir. Sjálfstæðismenn á Reykjanesi virðast hræddir við hve vel verk Alþýðuflokksins tala. Sjálfstæðismenn á Reykjanesi virð- ast hafa komið saman og spurt hver annan: „Hvað getum við gert svo fólk taki ekki eftir að við höf- um engan málefnagrundvöll í þess- um bæjum?“ Og niðurstaðan virð- ist hafa orðið þessi: „Tölum um annað, eitthvað sem fólk á erfitt með að meta hvort er rétt, ráð1 umst á þau allstaðar með sama vopninu, ráðumst á þau fyrir skuld- ir og höfum hátt því tilgangurinn helgar meðalið." Ofrægingarherferð í þessa átt hefur nefnilega dunið á kratabæj- unum, en minna hefur farið fyrir málefnalegri umræðu og því hlýt ég að spyija þig kjósandi góður — hlustar þú? — metur þú? Fjölskyldustefiia í öllum kratabæjunum hefur áherslan verið lögð á fagurt mannlíf. Fjölskyldustefna hefur verið í fyrirrúmi á sama tíma og Þegar framleiðslan selst á verði" sem greiðir allan kostnað við hana og skilar jafnframt nokkrum arði þá er hún arðbær en nái hún ekki að standa undir kostnaði þá hverf- ur hún óhjákvæmilega af markaði eða verður eigendum sinum byrði. í þjónustuatvinnugreinum er arðsemi ekki með sama hætti auðsæ. Ef þjónustugrein er illa rekin, ofmönnuð og/eða með of mikla fjárfestingu þá er langlíkleg- ast að gjaldið fyrir þjónustuna ein- faldlega hækki, að kostnaðurinn sé fyrst reiknaður út og gjaldskrá- in síðan sett til samræmis við kostnaðinn. Óþarflega mikill kostnaður við þjónustugreinar bitnar því beint á framleiðslunni og skerðir kjör allra þjóðarinnar. Því er mikilvægt að vöxtur í þjónustugreinum sé í sem bestu samræmi við þarfír framleiðsluat- vinnugreinanna og fólksins sem þjónustunnar á að njóta. Ofvöxtur þjónustugreina Því miður er full ástæða til þess að halda að þessa hafi lítt verið gætt á liðnum árum. Ef skoðuð er atvinnuþróun í Reykjavík annars vegar og landsins alls utan Reykjavíkur hins vegar þá kemur í Ijós að lítil aukning verður í fram- leiðslugreinum í Reykjavík en gífurieg aukning í þjónustugrein- um. Viðmiðunartíminn er tíu ár 1978-87 (nýrritölur eru ekki hand- bærar) og samanburðurinn er gerður í ársverkum. Heimild er Arbók Reykjavíkur 1989. Samtals Qölgar ársverkum um: í Reykjavík 16.050 ársverkum. UtanRay-kjavíkur 13.274ársverk, áhersla hefur veirð lögð á menn- ingar-, íþrótta- og umhverfismál. í þessum bæjum kom Alþýðuflokk- urinn að stjórnvelinum við mis- munandi aðstæður íjárhagslega og framkvæmdalega. í þessum bæjum er staða ungra sem aldraðra gjör- breytt. Kópavogur Kópavogsbúar muna að í tíð sjálfstæðismanna sat varanleg gatnagerð á hakanum, nýjum stór- um hverfum var úthlutað, svo sem Snælandshverfi, án þess að gatna- gerðargjöld færu_ í fullnaðarfrá- gang hverfanna. Á þeim tíma sem Alþýðuflokkurinn hefur verið við völd undir styrkri stjórn Guðmund- ar Oddssonar, hafa gatnagerðar- gjöld staðið undir fuilnaðarfrá- gangi nýrra hverfa og þar með klippt á þann langa hala sem myndast hafði, samhliða því að hægt og sígandi hefur verið unnið að úrbótum í eldri hverfum. Þeir sem vel þekkja til þess hvernig Kópavogur byggðist upp vita jafn- framt að það er ósanngjarnt að bera hann saman við aðra bæi í þessum efnum. Mikil áhersla hefur verið lögð á umhverfismál og hefur bærinn gjörbreyst á einum áratug. Fjölskyldustefnan er þó það sem Kópavogsbúar geta verið stoltastir af, því Kópavogur hefur verið í fararbroddi í velferðarmálum og getið sér orðstír sem félagsmála- bær. Hafnarfjörður Það var deyfð yfir Hafnarfirði í tíð sjálfstæðismeirihlutans þar. Fyrir fjórum árum vann Alþýðu- flokkurinn stórsigur og engum dylst sem þar þekkir til að staðið hefur verið við þau fyrirheit sem Fjölgun starfa í framleiðsluat- vinnugreinum: Reykjavík 1.896 ársverk. Utan Reykjavíkur 3.465 ársverk. Fjölgun í þjónustuatvinnugrein- um: Reykjavík 14.155 ársverk. Utan Reykjavíkur 9.080 ársverk. Þar af fjölgun í verslun: Reykjavík 3.421 ársverk. Utan Reykjavíkur 2.075 ársverk. Fjölgun við bankastörf: Reykjavík 1.463 ársverk. Utan Reykjavíkur 378 ársverk. Fjölgun við störf við skemmtan- ir og íþróttir: Reykjavík 695 árs- verk. Utan Reykjavíkur 143 árs- verk. Þessar tölur sýna betur en flest annað að verulega vantar á að Reykjavík. haldi sínum hlut hvað varðar störf að framleiðsluatvinnu- greinum en þjónustustörfin safnast hér saman. Ekkert gert Þessi atvinnuþróun veldur mér áhyggjum. Til þessa hefur ekkert verið gert af hálfu borgaryfirvalda til að hafa áhrif á þessa þróun. Stjórnendur borgarinnar horfa á hana eins og áhorfendur að leikriti; líkar sumt, annað miður en reyna ékkert til þess að hafa áhrif á gang mála. Það er mín skoðun að Reykjavík- urborg eigi að beita fjármunum sínum til þess að efla og auka veg framleiðsluatvinnugreina í borg- inni, bæði til þess að auka ijöl- breytni í atvinnulífinu sem og til að styrkja atvinnuöryggi í borginni og auka verðmætasköpun í þjóðfé- laginu. Atvinnueflingarsjóður JVlín tillaga er sú að settur verði_ þá voru gefin. Guðmundur Árni Stefánsson bæjarstjóri er oddviti Alþýðuflokksins í Hafnarfirði og honum og hans liði hefur tekist að koma því vel til skila að á fjór- um árum hefur nánast gerst kraftaverk í Hafnarfirði í dagvist- ar-, skóla-, unglinga-, húsnæðis- og menningarmálum. Engum dylst að þar hefur fjölskyldustefna verið sett í öndvegi. Keflavík Glæsilegur sigur Alþýðuflokks- ■ns í Keflavík vakti athygli um allt land í síðustu kosningum. Þar eru kratarnir í algjörum meirihluta og Guðfinnur Sigurvinsson bæjar- stjóri og oddviti þeirra. í Keflavík hefur vörn verið snúið í sókn í fjöl- skyldumálum á skömmum tíma. Ibúðir fyrir aldraða hafa risið af grunni, glæsileg sundlaug tekin í notkun, átak gert í dagvistarmál- um og eins og í öðrum bæjum þar sem Alþýðuflokkurinn hefur áhrif er stórátak í gangi í byggingu fé- lagslegs húsnæðis. Hlustar þú? Metur þú? Eg hef stiklað á stóru og ein- göngu nefnt stærstu bæina. Sömu sögu er að segja annars staðar þar sem Alþýðuflokkurinn hefur áhrif í stjórn sveitarfélags. Alþýðuflokk- urinn leggur óhræddur verk sín undir kjósendur og í hveiju sveitar- félagi býður samhent lið kvenna og karla fram krafta sína við áframhaldandi uppbyggingu eða að heijast handa á nýjum stöðum. Þetta fólk hefur framtíð og fegurð að leiðarijósi. Undrar þig að þeir sem áhrifa- lausir eru. setjist á rökstóla og spyiji: „Hvað getum við gert, hvaða aðferð getum við notað til á fót á vegum Reykjavíkurborgar atvinnueflingarsjóður sem láni eða styrki nýjar atvinnugreinar á sviði framleiðslu. Styrki tilraunir sem miða að sama marki og aðstoði einstaklinga eða félög við að stofn- setja slíka starfsemi. Auðvitað er ljóst að slíkur sjóður mun óhjákvæmilga tapa einhveiju fé. Fráleitt er að ætla að öll þau fyrirtæki sem lán kunna að fá muni standast samkeppnina eða verða með markaðshæfa vöru. Sjóðurinn verður einnig að vera reiðubúinn að lána fé þótt ekki séu til tryggingar í öðru en snjallri hugmynd, vel undirbúinni áætlun um nýtt fyrirtækL og bjartsýni, vinnusemi og áhuga þeirra sem hlut eiga að máli. Hvert fyrirtæki í framleiðslu, hvert nýtt ársverk í framleiðslu, skapar ekki aðeins þeim vinpu, sem við það vinna, heldur sparar það einnig gjaldeyri og styrkir þjón- ustugreinarnar; eykur verðmæta- sköpun íþjóðfélaginu og bætir kjör almennings. Það er því að miklu að vinna. Slíkur lánasjóður ætti að fá til ráðstöfunar 5% af aðstöðugjöldum I garinnar ár hvert eða rúmlega íuu milljónir á ári. Það er verðugt verkefni að nota aðstöðugjöldin til þess að efla ný- sköpun í atvinnulífi og efla þannig hag þjóðarinnar allrar, ekki hvað síst nú þegar umræðu hefur verið komið af stað um það að rétt sé að svipta Reykjavík tekjum af að- stöðugjöldum. Allar slíkar hugmyndir eru til þess fallnar að skipta þjóðinni í stríðandi fylkingar þéttbýlis og dreifbýlis en á flestu er meiri þörf en að auka á úlfúð milli landshluta. - Ég hef ákveðið að flytja tillögu Rannveig Guðmundsdóttir „Á Reykjanesi er Al- þýðuflokkurinn hið sterka afl og má þar nefna Kópavog, Hafn- arflörð, Grindavík, Njarðvík, Keflavík og Sandgerði. I þessum og fleiri sveitarfélögum hafa íbúarnir valið að fagurt mannlíf sé Qöl- skyldan í fyrirrúmi og kosið Alþýðuflokkinn til áhrifa.“ að bola þeim frá?“ Mig undrar það ekki en nú reynir á þig kjósandi góður. Hlustar þú? Metur þú? Ilöfundur er alþingismaður fyrir Alþýðuflokk í Reykjaneskjördæmi. Sigurjón Pétursson „Mín tillaga er sú að settur verði á fót á veg- um Reykjavíkurborgar atvinnueflingarsjóður sem láni eða styrki nýj- ar atvinnugreinar á sviði framleiðslu." um stofnun atvinnueflingarsjóðs á næsta borgarstjórnarfundi í þeirri fullvissu að borgarfulltrúar í Reykjavík muni setja hagsmuni Reykjavíkur og stuðning við at- vinnulífið ofar öðru, hvar á pólitískum vettvangi, sem þéir kunna að vera. Höfundur er einn af borgarfulitrúum Alþýðubandalagsins í Reykja vík. Tryggjum atviimuöryggi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.