Morgunblaðið - 15.05.1990, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MAI 1990
39
Valur Sigurðsson og Sigurður Vilhjálmsson hampa sigurverðlaun-
um sínum í Islandsmótinu í tvímenningi.
Það lá vel á Sigurði B.' Þorsteinssyni og Gylfa Baldurssyni þegar
þeir tóku á móti verðlaunum sínum fyrir 5. sætið.
Hörkuspennandi íslandsmót í tvímenningi:
Valur Signrðsson og Signrður
Vilhjálmsson Islandsmeistarar
__________Brids__________
Arrtór Ragnarsson
Valur Sigurðsson og Sigurð-
ur Vilhjálmsson urðu íslands-
meistarar í tvímenningi 1990
eftir æsispennandi lokakeppni
sem fram fór á Hótel Loftleið-
um um helgina. Hlutu Valur og
Sigurður 237 stig yfir meðal-
skor og aðeins tveimur stigum
meira en Hrólfur Hjaltason og
Asgeir Asbjörnsson sem skor-
uðu samtals 59 stig í síðustu
þremur umferðunum. Björn
Eysteinsson og Guðmundur Sv.
Hermannsson urðu þriðju eftir
að hafa hafl afgerandi forystu
eftir fyrri daginn.
Guðmundur og Björn byrjuðu
mótið mjög vel og eftir þriðjung
mótsins (11 umferðir) höfðu þeir
46 stiga forskot á næsta par.
Staðan:
Guðm. Hermannsson - Bjöm Eysteinsson 136
Jón Sigurbjömss. - Ásgrimur Sigurbjörnss. 90
Sigurður B. Þorsteinsson - Gylfi Baldursson 84
Valur Sigurðsson - Sigurður Vilhjálmsson 73
ÓlafurLárusson-HermannLárusson 67
Þegar upp var staðið að kvöldi
laugardags voru Guðmundur og
Björn komnirTfieð 55 stiga for-
skot en þegar byijað var að spila
á sunnudeginum gekk þeim allt í
óhag og eftir fjórar umferðir voru
þeir komnir í íjórða sætið. Valur
Sigurðsson og Sigurður Vil-
hjálmsson skoruðu jafnt og þétt
og Hrólfur Hjaltason og Asgeir
Ásbjömsson skoruðu mikið en
þeir höfðu verið í 17. sæti eftir
11 umferðir með 11 stig í mínus.
Staðan eftir 25 umferðir:
Hrólfur Hjaltason - Ásgeir Ásbjörnsson 174
Valur Sigurðsson - Sigurður Vilhjálmsson 170
SigurðurB. Þorsteinsson - Gylfi Baldursson 164
Morgunblaðið/Arnór Ragnarsson
Hrólfur Hjaltason og Ásgeir
Ásbjörnsson voru nálægt sigri
eftir afburðaskor síðari hluta
mótsins.
Guðm. Sv. Hermannss. - Bjöm Eysteinss. 150
MagnúsÓlafsson-JónÞorvarðarson 140
Lokaumferðirnar voru mjög
spennandi. Valur og Sigurður
náðu forystunni og fyrir síðustu
umferðina var staðan þeim afar
hagstæð. Þeir voru þá með 208
stig en einu keppendur þeirra um
efsta sætið, Ásgeir og Hrólfur,
voru með 196 stig. Valur og Sig-
urður áttu góða lokasetu en Ás-
geir og Hrólfur voru í ham og
skomðu 39 stig í síðustu umferð-
inni. Það nægði þeim þó ekki en
jafnara gat það varla orðið.
Lokastaðan:
Valur Siprðsson - Sigurður Vilhjálmsson 237
Hrólfur Hjaltason - Ásgeir Ásbjörnssn 235
Guðm. Sv. Hermannss. - Bjöm Eysteinss. 193
Guðmundur P. Amarson - Þorlákur Jónsson 156
Sigurður B. Þorsteinsson - Gylfi Baldursson 150
MagnúsÓlafsson-JónÞorvarðarson 145
Ásmundur Pálsson - Guðmundur Pétursson 133
Þrösturlngimarsson-RagnarJónsson 97
Matthías Þorvaldss. - Ragnar Hennannss. 77
Bemódus Kristinsson - Sigurður ívarsson 66
Glæsilegur árangur hjá Val og
Sigurði. Þeir em Reykjavíkur-
meistarar og voru í sigursveit
Modern Iceland sem vann Islands-
meistaratitilinn í sveitakeppni um
páskana.
Þetta var síðasta stórmót vetr-
arins. Jakob Kristinsson var
keppnisstjóri og Kristján Hauks-
son sá að venju um útreikning og
afhenti verðlaun.
Olíufélagið hf. hefur nú til
afgreiðslu CHAR-BROIL 6600
gasgrill á einstaklega hagstæðu verði
Verð kr. 17.950 án gaskúts.
CHAR-BROIL 6600 er vönduð banda
rísk framleiðsla og fæst á
ESSO bensínstöðvum um land allt.
CHAR-BROIL 6600 hefur eftirfarandi
eiginleika:
• Afkastamikill 30.000 BTU
(8,8 kW) tvöfaldur brennari.
• Neista-kveikja.
• Emaléruð grillrist sem auðveldar þrif.
• 1710 cm2 eldunarflötur.
• 1232 cm2 færanleg efri grillrist.
• Fellanleg járnhilla að framan.
• Tvær hliðarhillur úr tré.
• Glerrúða í loki og hitamælir.
CHAR-BROIL gasgrill fást
einnig minni og kosta þau
staðgreitt án gaskúts.
Gaskútar fyrir grillið fást á
ESSO bensínstöðvum um
allt land.
Skiptiþjónusta á tómum
og áfylltum kútum.
Olíufélagið hf
ii,..;,: ..,.
SIEMENS
Sjónvarpstœki
3*
I
1
I
Sjónvarps-
myndavélar
Hljómtœkja-
samstϚur
Ferðaviðtœki
Útvarpsvekjarar
Gœðatœki fyrir
þig og þína!
SMITH&
NORLAND
Nóatúni 4 - Sími 28300
.í:1:!’)T3:icjyi1 so-issdbiji 19 lUilaóiíiI