Morgunblaðið - 15.05.1990, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 15.05.1990, Qupperneq 40
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 1990 Krisljana Ragnars- dóttír - Minning Fædd 24. október 1930 Dáin 6. maí 1990 Með þessum fáu orðum viljum við minnast ömmu okkar, Kristjönu Ragnarsdóttur, sem lést 6'. maí sl. Amma Kidda eða ömmudraumur eins og við systurnar kölluðum hana, var nokkurs konar tengiliður milli kynslóða í þessari stóru fjölskyldu. Alltaf vorum við velkomnar til henn- ■mf og ávallt var hún tilbúin að gæta okkar. Minningin um góða ömmu verður alltaf hjá okkkur og sú mikla gleði og þökk að hafa átt slíka -að. Elsku afi okkar, Guð styrki þig í sorg þinni. Við vitum að Guð mun passa ömmu okkar og láta henni líða vel hjá sér. Aldís og Ingibjörg Við viljum minnast Kiddu með nokkrum orðum. Við kynntumst henni- fyrst árið 1980, þegar leiðir okkar og Haddýar dóttur hennar iágu saman í 7. bekk í Réttarholts- skóia. Kidda tók okkur opnum örmum, i2g. upp frá því stóð heimili hennar okkur alltaf opið. Asgarðurinn varð því eins og okkar annað heimili á unglingsárunum. Hún var merk manneskja, og er- um við þakklátar fyrir að hafa kynnst henni, og viljum í lokin biðja góðan Guð að blessa hana. Elsku Haddý og aðrir ástvinir megi Guð styrkja ykkur í sorg ykkar. Beggý og Elsa Hrönn. í dag er til moldar borin elskuleg •■“^ngdamóðir mín, Kristjana Ragn- arsdóttir, Klyfjaseli 5 í Reykjavík. Það er svo erfitt að trúa því að hún skuli vera farin frá okkur, hún sem var öllum svo kær og hjartfólgin. Kidda var dóttir Önnu Guðmunds- dóttur sem lifir dóttur sína og Ragn- ars Þorkels Guðmundssonar skip- stjóra, en hann lést árið 1969. Kidd- ar var einkadóttir þeirra hjóna en þrjá bræður átti hún. Ung að árum giftist hún eftirlifandi manni sínum, Stefáni Guðmundssyni leigubíl- stjóra. Kidda og Dengsi eignuðust 10 börn em öll eru á lífi. Barnabörn- in voru 17, en eitt þeirra, Anna Lísa, lést 1986 aðeins 4 ára gömul og var hún öllum harmdauði. ^Það er yndislegt'að hafa kynnst Kíddu, hún var sterkur persónuleiki og hafði góð áhrif á alla þá sem henni kynntust. Hún unni fjölskyldu sinni og heimili mjög mikið enda sú kona sem allir leituðu til og treystu vel. Kidda veiktist alvarlega á sumar- daginn fyrsta og var mikið veik. Ekki var það hún sem kvartaði, held- ur hughreysti hún okkur og bað okkur að vera sterk. Þannig var hennar manngerð. Ég bið Guð að gefa tengdaföður mínum og íjölskyldu hans styrk í þeirra sorg. Ernu Jónsdóttur, æskuvinkonu Kiddu, vil ég þakka þann styrk og þá hlýju sem hún gaf okkur þann '*iSna sem Kidda var á spítalanum. Einnig vil ég þakka starfsfólki á Borgarspítalanum, deild 6A, inni- lega fyrir hlýju þeirra og aðstoð í veikindum hennar. Guð blessi Kiddu og hvíli hún í friði. Bertha Biering Mig langar í fáeinum orðum til að minnast Kristjönu Ragnarsdóttur sem lést sunnudaginn 6. maí. Þegar ég líl til baka rifjast upp svo marg- ar góðar minningar. Ég minnist þess þr-gar Dengsi og Kidda bjuggu í Ásgarði 151, við hliðina á ömmu og afa, og var ég daglegur gestur hjá bestu vinkonu minni Hoffu. Alltaf var fullt hús af fólki hjá Kiddu og henni leið best með börnunum sínum tíu og barnabörnunum. Hún lifði fyrir þau. Árið 1982 flutti fjölskyld- an í Klyfjasel og var ég lengi að -venjast því að hlaupa ekki yfir í kaffi og, spjall. Það var alltaf svo heimilislegt og notalegt hjá henni Kiddu. í síðustu viku fór ég í heimsókn eftir langan tíma og fann ég strax hvað ég hafði saknað þeirra allra mikið. Það hvarflaði aldrei að mér að Kidda myndi fara frá okkur svona fljótt. Lífið er svo skrýtið. Elsku vinkona Hoffa, Haddý, amma Bjargey, Dengsi og systkini. Megi Guð styrkja ykkur í þessari miklu sorg og sendi ég mínar inni- legu samúðarkveðjur. Bjargey Aðalsteinsdóttir Hun amma mín er dáin. Það er erfitt að þurfa að sætta sig við það að hún sem alltaf var til staðar fyr- ir mig, skuli vera farin. Nú þegar ég sest niður og skrifa þessar fátæk- legu línur, hellast yfir mig allar góðu minningarnar um ömmu. Aldrei mun ég gleyma því þegar ég var að byija í skóla og neitaði að fara, þá gerði amma sér lítið fyrir og sat með mér í heila viku, minn fyrsta vetur í skóla. Oft var hlegið að þessari vit- leysu í mér en amma sagðist bara hafa haft gaman af þessu. Og hvað það er stutt síðan amma mín kom á Hótel Borg að horfa á mig í keppni og hve stolt hún var þegar ég bar sigur úr býtum. Daginn eftir þegar ég var spurð að því í útvarpsviðtali hvað væri eftirlætismaturinn minn, svaraði ég því að heimatilbúnu fiski- bollurnar hennar ömmu væru það besta sem ég fengi. Amma var ekki sein á sér að hringja í mig rígmont- in og bjóða mér í ömmubollur. En núna er amma mín komin til Önnu Lísu systur minnar og veit ég að það hafa verið miklir fagnaðar- fundir þegar þær hittust. Það er með mikilli sorg sem ég kveð ömmu mína í dag en minningarnar á ég og til þeirra get ég leitað þegar ég verð sorgmædd. Ollu starfsfólki á deild 6A Borgarspítalans vil ég þakka fyrir góða umönnun þann tíma sem amma dvaldist þar. Elsku besti afi minn, megi Guð styrkja þig í þinni miklu sorg. Ég vil kveðja ömmu með þessu versi sem hún kenndi mér og fór yfír með mér á kvöldin þegar ég var yngri. Vertu nú yfir og allt um kring í eilifri blessun þinni. Sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. Megi elsku amma mín hvíla í friði. Eygló Að kvöldi 6. maí sl. andaðist móð- ir mín, Kristjana Ragnarsdóttir, á Borgarspítalanum, eftir mikil veik- indi og verður hennar sárt saknað. Síðasta mánuðinn sem hún lá veik heima, áttum við tvær margar góðar stundir saman á morgnana áður en ég hélt af stað til vinnu minnar. Móðir mín var vinmörg kona enda góðhjörtuð og blíð. Alltaf þegar mér leið illa var hún ávallt tilbúin að setjast niður með mér og gat ég þá létt á hjarta mínu við hana, og allt- af stóð ég upp frá henni og leit bjart- ari augum á lífið og framtíðina. Hún var min besta vinkona og mun hún skilja eftir sig stórt skarð sem aldr- ei verður uppfyllt. Móðir mín hafði yndi af því að vinna í garðinum sínum á sumrin, og gera hann eins fallegan og hún gat. En við getum huggað okkur við það að nú er hún komin til hennar Ónnu Lísu litlu frænku minnar sem lést árið 1986, tæplega fimm ára að aldri. Með þessum fáu orðum vil ég kveðja móður mína og þakka starfsfólki á deiid 6A Borgarspítal- ans fyrir alla þá hjálp og hlýhug þann tíma sem móðir mín dvaldist hjá þeim. Vil ég biðja algóðan Guð að styrkja föður minn og systkini í þessari miklu sorg. Með þessum orðum kveð ég móð- ur mína og segi, ég mun ávallt elska hana. Haddý Ég vil þakka mömmu minni fyrir alla hjálpina sem hún veitti mér við áð túikaifýrir mig, þar sem‘ég heyri Avo illa. Ég man þegar ég var lítil stelpa hvað hún var dugleg og góð að að- stoða mig og Haddý yngstu systur mína. Mamma vakti okkur systurnar alltaf snemma á sunnudagsmorgn- um því við fórum í barnamessu í kirkjunni. Okkur þótti svo gaman af því við fengum svo fallegar Jesú- myndir og geymdum þær vel. Mamma hjálpaði mér svo mikið þegar ég fermdist því hún fór með og túlkaði fyrir mig. Ég mun alltaf elska hana mömmu mína og hún verður alltaf í huga mínum. Hun var góð og trúuð kona. Hvíli hún í friði. Hóffa Nú er elsku amma Kidda farin og mun hennar verða sárt saknað. Það var alltaf svo gaman að koma til ömmu og afa á jólunum, þegar öll fjölskyldan kom saman í mat, alltaf var fullt hús af fólki og það var talað, hlegið og spilað, þetta er góð minning sem við munum alltaf eiga um jólaboðin hjá ömmu og afa. Amma var kjarnakona og dugieg var hún, hún var farin að hlakka svo til vorsins, þá gæti hún nú farið að vinna i garðinum þeirra, þar gat hún alltaf unað sér á sumrin. Amma og afi eiga 10 börn og 17 barnabörn, en þar af er Anna Lísa litla dáin, svo að nú fær amma loks- ins að hitta ömmuljúfuna sína og verða þar miklir fagnaðarfundir. Það má svo sannarlega segja að amma hafi skilið eftir sig stóran hóp af börnum og barnabörnum. Blessuð sé minning elsku ömmu og megi hún hvíla í friði. Elsku afi, börn, tengdabörn og barnabörn. Megi Guð vera með ykk- ur. Nú legg ég aftur augun mín en öndin hvarflar, Guð til þín þinn almáttugan ástarvæng lát yfirskyggja mína sæng. Kristjana, Stefán, Eðvarð Hlynur og Sveinbjörn. Heilsa, máttur, fegurð, íjör flýgur burt sem elding snör. Hvað er lífið? Logi veikur, lítil bóla, hverfull reykur. (Sr. Bjöm Halldórsson, Laufási.) Fæddur 26. maí 1943 Dáinn 7. maí 1990 Okkur langar með fáum orðum að minnast föðurbróður okkar Kristjáns Ingólfssonar. Hann fædd- ist á Hofsósi 26. maí 1943 og ólst þar upp ásamt yngri bróður sínum Sigurði, en foreldrar þeirra eru Halldóra Márusdóttir og Ingólfur Sigmarsson. Árið 1965 kvæntist hann Lindu Steingrímsdóttur frá Svalbarðs- strönd og hófu þau búskap fyrst í Keflavík, en fluttu síðan á Sval- barðseyri. Þau slitu samvistir. Þau eignuðust 4 börn. Dóra, fædd 1965, býr á Svalbarðseyri með unn- usta sínum Ársæli Kristjánssyni, þau eiga eina dóttur, Lindu. Ingólfur Haukur, fæddur 1966, búsettur í Vestmannaeyjum. Hann á eina dótt- ur, Elísabetu Lind. Gunnar Örn, fáeddur 1968 og Snorra Valdimar, Skjótt skipast veður í lofti. Gleð- in, sem lifnar í bijósti við komu sum- arsins, þegar dásamlegt kraftaverk Skaparans, ljósið, vinúur bug á myr- krinu og öll náttúran vaknar til lífsins, víkur í einni andrá. Sorgin, þegar ástvinur er hrifinn á brott, tekur völdin og yfir hvelfist hyldjúp- ur og nákaldur skammdegisskuggi dauðans. En öll él styttir upp um síðir. Þeir sem trúa á Guð almáttugan, skapara alheimsins, og hans einget- inn son, Jesúm Krist, trúa því að horfnir ástvinir fyrirfarist ekki held- ur hafi eilíft líf. Og tíminn sem í dagsins önn og amstri virðist aldrei nægur, græðir sár gærdagsins fyrr en varir. Hún systir mín, og allir henni nákomnir, héldu að hún ætti í stríði við sjúkdóm, sem að vísu gat verið kvalafullur, en væri læknanlegur. Annað kom á daginn. Hún var hel- tekin sjúkdómi sem orðinn var ban- vænn og kominn á lokastig. Tæpum mánuði eftir að hún lagðist inn á sjúkrahús og sjúkdómurinn var greindur, var hún látin. Hún tók örlögum sínum með æðruleysi og stillingu. Hún reyndist fær um að miðla öðrum af staðfestu sinni og huggunarríkum orðum. Þegar grannt er skoðað, var ekki við öðru að búast af henni. Allt frá barnæsku var það hlutskipti hennar að hlúa að öðrum, hugga smáfólk og sefa sorgir þess. Hún var elsta barn Önnu M. Guð- mundsdóttur og Ragnars Þ. Guð- mundssonar. Þegar foreldrar okkar slitu samvistir, árið 1943, kom það í hennar hlut að hjálpa móður sinni, sem þá gekk með fjórða barn sitt, að annast tvo yngri bræður, 7 ára og 11 ára. Á öndverðu ári 1944 bættist síðan þriðji bróðirinn í hóp- inn. Mæðgurnar skiptust á að ann- ast heimilið og vinna úti, og 13 ára gamall fór elsti bróðirinn á sjóinn til þess að draga björg í bú. Allt blessaðist þetta og þar átti faðir okkar eflaust hlut að máli, en hann lét sér annt um fjölskylduna þótt fjarverandi væri. Strákar lenda í ýmsum eijum ein- sog gengur og gerist. Þannig var það einnig með okkur bræður. Ef maður beið ósigur í orrustu var gott að leita í huggandi faðm systurinnar biíðu sem var hláturmild svo af bar. Oftast gleymdust þá allar eijur á skammri stundu. Árið 1946 urðu þáttaskil í lífi systur minnar. Ungur og myndarleg- ur maður, Stefán Guðmundsson, tók að venja komur sínar á heimilið og innan tíðar var hann sestur þar að, öllu heimilisfólki til óblandinnar ánægju þótt ekki væri húsrýmið mikið. Fjölskyldan eignaðist þar kát- an, kraftmikinn og skemmtilegan meðlim sem reyndist tengdamóður sinni og mágum sem hinn besti son- ur og bróðir. Það ár stofnuðu systir mín og mágur til sambúðar sem entist til æviloka hennar eða í 44 ár. Mér er enn í fersku minni hát- íðleg stund í litlu stofunni á æsku- heimilinu, kvöldið á þrettándanum 1947, þegarþau opinberuðu trúlofun sína. Þau gengu í hjónaband fjórum árum síðar. fæddan 1974. Þeir búa báðir hjá móður sinni á Hnífsdal. Eftir skilnaðinn flutti Kiddi eins og hann var ávallt kallaður til Akur- eyrar og bjó þar ásamt Dóru dóttur sinni. Kiddi keyrði mjólkurbíl á Sval- barðsströnd, en í mörg ár keyrði hann vöruflutningabíl milli Akur- eyrar og Reykjavíkur og talaði hann oft um hvað það gat verið erfitt að keyra á veturna. Voru þeir oft marga daga á leiðinni við hin erfiðustu skil- yrði, en okkur krökkunum var það mikið tilhlökkunarefni þegar hann var að koma suður þá var oftast ópalpakki í vasanum eða eitthvað álíka. Kiddi átti við mikla vanheilsu að stríða hin síðustu ár og árið 1986 flutti hann til Hafnarfjarðar aðallega vegna veikinda sinna. Að hugsa um dauðann er svo fjarri okkur sem erum ung, þó höfum við fengið mörg högg núna undanfarið. En þegar veíkindi eru svo mikil eins og hjá Minning: Krislján S. Ingólfson Sambúð þeirra bar ríkulegan ávöxt. Á 19 árum, eða á árunum 1948 til 1966, eignuðust þau 10 börn sem öll eru mannvænleg, og virkir og góðir þjóðfélagsþegnar. Einnig ólu þau upp 2 barnabörn. Þótt margir væru munnarnir að metta, komust þau af og fremur voru þau veitendur en þiggjendur. Af litlum efnum hófu þau búskap sinn en með dugnaði og fyrirhyggju komust þau í ágætar álnir. Börnin 10 voru öll vaxin úr grasi og höfðu flest stofnað eigið heimili. Garðurinn stóð í blóma og fram undan virtist vera sú tíð er ávaxt- anna skyldi notið. En þá kom kallið sem enginn fær umflúið. Ég votta öllum ástvinum hennar samúð mína og bið Guð að styrkja þau í söknuðinum. Látinni systur votta ég virðingu mína. Hafi hún þökk fyrir umhyggju og ástúð ssem hún ávallt sýndi mér. Guð geymi hana. Ragnar Ásgeir Ragnarsson Með þessum fáu orðum langar okkur að minnast móður okkar og tengdamóður, Kristjönu Ragnars- dóttur, sem lést á Borgarspítalanum 6. maí sl. Það er ekki auðvelt að lýsa með orðum þeim harmi sem sló okkur þegar við gerðum okkur grein fyrir veikindum hennar, en eins og henni var líkt var það hún sem veitti okkur styrk og huggun þessa síðustu daga í lífi sínu. Söknuðurinn er sár en allar góðu minningarnar munu lifa með okkur og veita okkur styrk. Það var oftast flölmennt á heim- ili foreldra okkar, systkinin tíu, tengdabörnin átta og barnabörnin sextán en alltaf hafði hún tíma fyrir hvert og eitt okkar, þegar eitthvað bjátaði á áttum við öruggt skjól hjá henni, sem okkur þótti svo vænt um. Og mömmu fannst við aldrei of mörg, þó að heimilið í Ásgarðinum væri ekki stórt var alltaf pláss fyrir fleiri, það var ekkert vandamál að útbúa svefnpláss og bæta við matar- diski, þó að ættingjar okkar og aðr- ir vinir bættust í hópinn. Mamma hafði unun af því að ferð- ast og skoða landið sitt og einu sinni á ári tók hún sér viku frí, það var þegar hún fór í ferðalag með konun- um sínum úr kvenfélagi Bústaða- sóknar. Þegar mamma átti aðeins fáa daga eftir var hugsunin ennþá skýr og með því síðasta sem hún sagði okkur var að þegar hún væri komin yfir móðuna miklu mundi hún taka Ónnu Lísu litlu að sér, litlu dótturdóttur sína sem hún missti fyrir nokkrum árum. Öllu starfsfólki á deild 6a á Borg- arspítalanum viljum við senda þakk- arkveðjur fyrir sérstaklega góða umönnun og veittan styrk. Að lokum langar okkur að láta fylgja hér með versið sem hún kenndi okkur öllum. Vertu guð faðir, faðir minn í frelsarans Jesú nafni. Hönd þín leiði mig út og inn svo allri synd ég hafni. Börn og tengdabörn Kidda frænda okkar sjáum við að hann er lausn og þá er gott að fá að hvílast. Við kveðjum Kidda og biðjum honum Guðs ble'Ssunar. Ótnmu og afa, börnum Kidda og pabba okkar vottum við okkar innil'egustu samúð. Erlingur, Vigdís og Halldér.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.