Morgunblaðið - 15.05.1990, Side 44

Morgunblaðið - 15.05.1990, Side 44
44 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 1990 Eygló Viktorsdóttir söngkona - Minning Það er alltaf sárt að frétta lát einhvers, sem um lengri eða skemmri tíma hefur verið manni nákominn. Þannig varð það líka þegar ég frétti lát Eyglóar Viktors- dóttur söngkonu, en hún lést þann 6. maí sl. langt um aldur fram. Ég áttfþvi láni að fagna að vera henni samferða nokkur ár ævinnar. Ár sem eru mikil mótunarár í lífi hvers einstaklings. Ár sem svo mik- ilvægt er að eiga góða að, geta talað við og sótt til svör við áleitn- um spurningum. Þannig var Eygló mér. Minningar hrannast upp. Ég var 16 ára þegar fundum okkar bar fyrst saman. Hún kom í heimsókn til foreldra minna norður í land, ásamt eiginmanni sínum. Ég man'hve vel mér ieist á þessi hjón. Þau voru svo kát og elskuleg að mér fannst næstum eins og ég hefði þekkt þau alla tíð. Eygló kom mér fyrir sjónir sem ákaflega hlýleg kona, nett og fínleg með sinn dill- andi hlátur. Hún var líka dálítið framandi, þekkt söngkona úr Reykjavík, en það var ekki á hveij- um degi að gestir þaðan kæmu í heimsókn. Þegar þau hjón heyrðu að ég væri á leið í framhaldsskóla í Reykjavík þetta sama haust og þau skynjuðu kvíða minn gagnvart því að fara á vit hins óþekkta, í hinni stóru Reykjavík, buðu þau mér að heimsækja sig þegar ég vildi. Ekki að orðlengja það, ég tók þau á orðinu og eyddi mörgum, ljúf- um og löngum stundum á heimili þeirra næstu árin. Ávallt var ég velkomin og aldrei fann ég fyrir aldursmuninum þótt hann væri yfir 20 ár. Við Eygló töluðum mikið saman, föndruðum og útbjuggum jólagjafír. Það lék allt í höndunum á henni. Makalaust hugmyndaflug hafði hún og mikið gat hún oft gert fallega hluti úr litlu. Einnig var hún góð saumakona og sérlega vandvirk. Eygló vann lengi í Feldin- um og margar skemmtilegar sögur sagði hún mér frá þeim tíma. Annars var söngurinn hennar líf og yndi alla tíð og starfaði hún sem söngkona meðan kraftar leyfðu. Eygló var gift miklu ágætismanni, Aðalsteini Guðlaugssyni skrifstofu- stjóra og áttu þau eina dóttur, Sól- veigu. Þótt samverustundir okkar hafí verið fáar hin síðari ár hefur Eygló ávallt skipað stóran sess í huga mér. Ég kveð hana með þakklæti og virðingu og sendi Steina og Sól- veigu mína innilegustu samúðar- kveðjur. Bergþóra Blómastofa Riðfinm Suðuriandsbraut 10 108 Reykjavík. Sími 31099 Opið öli kvöld tii ki. 22,- einnig um helgar. Skreytingar við öil tilefni. Gjafavörur. % Á morgun, mánudaginn 14. maí, verður útför Eyglóar Viktorsdóttur söngkonu gerð frá Fríkirkjunni í Reykjavík. Með örfáum og fátæk- legum orðum viljum við Fóst- bræðrakonur kveðja elskulega vin- konu. Flestir þekktu Eygló vegna hinn- ar einstaklegu fögru söngraddar hennar. Við urðum aftur á móti þeirrar gæfu aðnjótandi að kynnast manneskjunni sjálfri, þessari síkátu ljúfu konu, sem ekkert mátti aumt sjá án þess að vera þá boðin og búin til hjálpar. Já, margs er að minnast frá liðn-— um árum, minningarnar líða um hugann, allar ljúfar, hlýjar og góð- ar. Þrátt fyrir að ailar vissum við um sjúkdóminn ógnvekjandi, sem hetjaði á líkama Eyglóar, óraði okkur ekki fyrir að svo stutt yrði í skilnaðarstundina. í söngför Fóstbræðra í sumar um Kanada var Eygló með í för, eins og reyndar alltaf þegar kórinn fór eitthvað. í þeirri ferð var Eygló hress og kát, hrókur alls fagnaðar eins og jafnan, þótt eflaust hafí hún þá verið farin að kenna lasleika. Eygló var ein af stofnendum kvenfélags Fóstbræðrakvenna. Strax frá upphafí var hún aðal drif- fjöðurin í starfí félagsins. Tilgangur þess er fyrst og fremst að styðja við bakið á Fóstbræðrum og Eygló lét svo sannarlega ekki sitt eftir liggja á því sviði, hugmyndir henn- ar hvað varðaði fjáröflun fyrir kór- inn voru oft og tíðum bráðsnjallar og djarfar. Hún æfði söng, lék og dansaði og það sem meira var, hún fékk okkur hinar sem aldrei höfðum stigið á svið, til að gera slíkt hið sama. Hún var óþreytandi. Eygló var sannkölluð listakona, ekki ein- asta á sviði sönglistarinnar, hún var fatahönnuður af guðsnáð, bráð- snjöll saumakona og skreytingar hennar ýmsar voru ótrúlegar. Hún þurfti ekki dagpart til að breyta sal Fóstbræðraheimilisins í sannkall- aða ævintýrahöll með skreytingum sínum, þessum eiginleikum Eyglóar fengum við Fóstbræðrakonur og Fóstbræður að kynnast í ríkum mæli, og á engan er hallað þó við fuliyrðum að eiska hennar til Fóst- bræðra var slík, að Ííkja mætti því við að kórinn væri hennar annað bam. Eygló kynntist eftirlifandi eigin- manni sínum, Aðalsteini Guðlaugs- syni, þegar þau á unga aldri sungu bæði í Þjóðleikhúskórnum. Þau sungu sig inn í hjörtu hvors annars í bókstaflegri merkingu, og söngur- inn hefur verið þeirra sameiginlega áhugamál alla tfð, lífsakkeri þeirra trúum við. Að kynnast elsku og umhyggju þeirra hjóna fyrir hvort öðru hefur í raun verið mannbæt- andi fyrir okkur. Hh'jan og hóg- værðin sat í fyrirrúmi en svo skemmtilega stutt í græskulausan húmorinn. Yið þökkum í hljóðri bæn Guði fyrir gæsku hans. Við þökkum hon- um fyrir að hafa fengið að kynnast manngæsku Eyglóar, frá henni streymdi hlýja, mildi og hógværð, hinn sanni tónn, sem svo margir leita en fínna eigi. Við erum þess fullvissar að engl- ar Guðs syngja nú með meiri og tærari hljóm en áður, þar sem rödd Eyglóar hefur bæst í hóp hinna himnésku herskara. Elsku Aðalsteinn og Sólveig, við sendum ykkur innilegar samúðar- kveðjur og biðjum Guð að styrkja ykkur í hinni þungu sorg. Megi minningin um elskulega eiginkonu LEGSTEINAR MOSAIK H.F. Hamarshöfða 4 — sími 681960 og móður sefa sárasta tregann. Blessuð sé minninggóðrar konu. Fóstbræðrakonur Við minnumst hennar sem vinar. Allt frá sjötta áratugnum er leiðir okkar bar saman. Við minnumst hennar sem félaga. í ferðalögum og félagsstarfi þar sem hún með sinni ósérhlífni og samviskusemi var driffjöður og hrókur alls fagn- aðar. Við minnumst hennar sem lista- konu, sérstaklega í hlutverki brúð- unnar í Ævintýrum Hoffmanns, í fyrri uppfærslu Þjóðleikhússins, sem við fáum ekki gleymt. Við minnumst þess hve gott var að leita til hennar í hveijum þeim tilvikum semn krefjast vinnu og iðulega upp koma í félagsstarfí. Við minnumst þess hve gott var að fá hennar sanngjörnu og heiðar- legu gagnrýni á söngstarfíð. Við minnumst hennar sem hetju sem tók örlögum sínum með æðru- leysi og reisn. Við minnumst hennar með þakk- læti í huga. Herdís og Einar Ekki eru liðnir nema um það bil fímm mánuðir frá því að Eygló vin- kona mín og söngfélagi til margra ára hringdi til mín og sagði mér niðurstöður rannsóknar sem hún hafði undirgengist. Ég verð að játa að ég var til lítillar hjálpar eða hughreystingar, en hún átti orð og styrk mér til handa þá og oftar á þessum erfiða tíma. Eygló sýndi þama, og allan tímann sem liðinn er síðan, fádæma stillingu og kjark. Innilega þakklát var hún í garð iækna og hjúkrunarfólks sem hún blessaði mikið fyrir kærleika þeirra og fórnfýsi hvenær sem á þurfti að halda. Þó vissi hún að ekkert öruggt lyf eða læknismeðferð væri líklegt til bjargar í hennar tilviki. Mikið erum við Eygló búnar að eiga langan tíma saman og fjöl- skyldur okkar í raun líka þar sem feður okkar Eyglóar voru stofnfé- lagar í Lúðrasveit — og Hljómsveit Reykjavíkur. Einnig störfuðu faðir minn og Reynir Gíslason, móður- bróðir Eyglóar, mikið saman í tón- Iist áður en hann héit til Danmerk- ur þar sem hann settist að. Heyrði ég í bemsku oft minnst á Reyni og hve mikil eftirsjá væri að honum úr tónlistarlífi bæjarins. Við Eygló höfum verið söngsyst- ur í áratugi, bæði í kómm og í alls- konar öðrum söng sem til féll. Ég nefni m.a. bl. kór á vegum Fóst- bræðra, Kammerkórinn, Fríkirkju- kórinn um tíma, Árnesingakórinn að ógleymdum Ljóðakómum nú samfleytt um 15-20 ára skeið. Átt- um við í þessum söng öllum og kórum ógleymanlegar samveru- stundir, enda um margt svipaðar aðstæður í uppvexti hjá okkur Eygló hvað tónlist varðar og tónlist- arsmekkur líkur. I söng og hljóðfæraleik er óvenju- legt, en gleðilegt, að finna sömu tilfinningar og skilning á verkefn- um, eins og við Eygló gerðum í gegnum allan okkar söngtíma, hvort sem við sungum við sorgarat- hafnir í kirkjum landsins eða á gleðistundum. Af þessu leiddu auð- vitað samverustundir margar og yndislegar sem kannske of langt yrði upp að telja. Má þó nefna með bömum okkar jafnaldra eða þegar við náðum í heimilisdýrin okkar agnarsmá, hann Bangsa og hana Perlu; þegar við þvældumst hvað eftir annað í sumarbústaðinn minn á Stokkseyri, sem var óþijótandi uppspretta hláturs og gleði. Ekki er nema ár liðið, einmitt núna í maí, að við fómm saman vinkonum- ar austur og settum niður sumar- blóm í allt sem við fundum af pott- um og keijum. Eygló var forkur dugleg, „energísk“, og minnist ég þess þegar hún og Sólveig dóttir hennar voru hjá mér og sonum mínum í sumarbústaðnum, sem þá var í byggingu, að hún lá ekki á liði sínu. Tók hún til við hreinsun á lóðinni og vakti mikla aðdáun hjá smiðnum okkar sem undraðist það að svona fíngerð söngkona úr Reykjavík tæki svo rösklega til hendi. Eða þegar við Eygló tókum að okkur búningagerð til styrktar ísl. óperanni við framraun hennar fyrir rétt um 10 árum á óperunni I Pagliacci í Háskólabíói við allfá- tæklegan aðbúnað og allsleysi hvað fjárráð snerti. Þessi vetur var með afbrigðum snjóþungur og fundum við eðlilega mikið fyrir því í erfiðri færð um allan bæ í „Grána“ hennar Eyglóar, sem hélt varla vatni eða vindi, betlandi efni og allt það sem til þurfti milli þess sem við sungum við allskonar athafnir vítt og breitt Kveðjuorð: Sigríður H. Sigurð- ardóttir kennari Fædd 17. júlí 1932 Dáin 5. maí 1990 Laugardagskvöldið 5. maí rann upp eins og.hvert annað laugar- dagskvöld. Ég og vinur minn höfð- um komið okkur fyrir framan sjón- varpið og ætluðum að njóta dag- skrárinnar. Um klukkan níu hringdi síminn, það var afí. Hann virtist hress og við gerðum að gamni okk- ar eins og við geram oft, en þá spurði hann hvort foreldrar mínir væru heima. Ég sagði, eins og var, að þau hefðu farið út að borða, afí hikaði aðeins en sagði svo: „Það er slæmt að ég skuli ekki hitta á þau heima, því að hún Sissa amma þín dó fyrir hálftíma síðan.“ Ég kvaddi afa og á örskammri stund flugu gegnum hugskot mér allar þær góðu stundir sem ég hafði átt með ömmu. Þegar ég var yngri bjuggum við á Höfn í Hornafírði og því ekki mikið um samverustundir hjá mér og ömmu, en þegar þær vora urðu þær ævinlega langar og skemmti- legar. Eftirminnilegar stundir. Mér er minnisstætt þegar mamma, syst- ir mín og ég fylgdum pabba út á flugvöll, er hann var á leið til Reykjavíkur. Mig hafði lengi langað að heimsækja ömmu og afa og þeg- ar ég var kominn svona nálægt markinu, lét ég tækifærið ekki úr hendi sleppa. Eg heimtaði að fá að koma með og það hafðist að lokum og tæpum tveim tímum síðar stóð ég fyrir utan húsið hennar ömmu. Ég dinglaði og hljóp upp tröppumar og á stigapallinum stóð amma undr- andi og glöð að sjá mig, „ertu kom- inn, litli ömmustrákurinn, hvenær komstu, en hvað þú ert orðinn stór“, voru spurningar sem dundu á mér og ég fann þá og hef alltaf fundið hve hjartanlega velkominn maður var hjá henni. Pabbi talaði við ömmu og það kom ekki annað til greina af henanr hálfu en það að ég yrði hjá henni. Ég á margar fleiri góðar minningar með ömmu sem of langan tíma tæki að telja upp. Eftir að ég fluttist til Reykjavík- ur var amma orðin heilsuveil og oft á spítala. Ég heimsótti hana oft og þá kynntist ég nýrri hlið á ömmu. um bæinn. Alltaf var glatt á sál og sinni og allir erfiðleikar léttvæg- ir. Mörg minningabrot gæti ég nefnt hér sem of löng yrðu upp að telja en Eyglóar minnar vil ég minn- ast með gleði og bjartsýni á lífið og tilveruna. Allt það skemmtilega og góða og þær stundir sem við fundum að kannske hefðum við áorkað einhveiju, glatt og kannske huggað syrgjendur með framlagi okkar í athöfnum í kirkjum víðsveg- ar. Ég vil fyrir hönd Ljóðakórsins, allra sem þar hafa komið við sögu frá fyrstu tíð, þakka henni ómetan- lega þátttöku í hópnum okkar fyrr og síðar. Verður hennar minnst þar svo lengi sem Ljóðakórinn er við líði. Sólveigu minni og Steina og öll- um ættingjum og venslamönnum bið ég allrar blessunar nú og á komandi áram. Sýn mér sólarfaðir sjónir hærri en þessar málið mitt er síðast miklar þig og blessar. Sýn mér sætt í anda sæla vini mína • blessun minna bama burtför mina krýna. (M. Joch.) Margrét Eggertsdóttir Kveðja frá saumaklúbbi Fyrir hartnær 30 árum stofnuðu 10 Fóstbræðrakonur saumaklúbb. Varð það til þess að enn nánari kynni mynduðust og leiddi til ein- lægrar og traustrar vináttu. En á síðustu árum hefur fækkað í hópnum og nú minnumst við með þakklæti og virðingu fjórðu vinkon- unnar, Eyglóar Viktorsdóttur, sem lést aðfaranótt 6. maí sl. Eygló var góður félagi, músik- ölsk mjög og söngkona með ágæt- um. Hún hafði ríka tilfinningu fyrir texta og tóni og var einstaklega vandvirk og traust í söng sínum. Hún var í senn viðkvæm í list sinni og kraftmikil. Eygló lagði mikið af mörkum til stuðnings við starf Fóstbræðra um áratugi með framkvæði sínu, gleði og ósérhlífni. Fóstbræður, eldri og yngri, sem og vandamenn þeirra og vinir eru í mikilli þakkarskuld við Eygló. Við í saumaklúbbnum minnumst nú Eyglóar. í harðri og óvæginni baráttu síðustu vikur var hin fíngerða og viðkvæma vinkona okk- ar yfirveguð og sterk. Sálarró henn- ar og andlegt þrek er okkur ógleym- anlegt og lærdómsríkt. Við sendum nú okkar elskulega og góða vini Aðalsteini, og dóttur- inni, Sólveigu, okkar einlægustu samúðarkveðjur og þökkum vin- konu okkar samfylgdina og ógleym- anlegar samverustundir og dýr- mætar minningar. Við töluðum saman eins og fullorð- ið fólk. Hún sagði mér frá ýmsu sem hún hafði upplifað bæði sem unglingur og fullorðin kona. Ég var ekki lengur litli ömmustrákurinn sem ég hafði verið, en samt fann ég sömu hlýjuna og hún var alltaf hress í anda, þótt líkaminn væri farinn að bila. Og fyrir það á ég eftir að muna hana alla tíð sem góða, hlýja og síðast en ekki síst hressa ömmu, sem maður gat talað við og var alltaf reiðubúin að gera allt fyrir. Guð blessi ömmu mína Sigríði Höllu Sigurðardóttur. Bói

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.