Morgunblaðið - 18.07.1990, Side 14

Morgunblaðið - 18.07.1990, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MÍÐVIKUDAGUR 18. JULI 1990 Teg. 1854 LitÍR Ljósbrúnt, mocca- brúnt, Ijósgrátt eða svart leður Stærðin 41-47 Verð kr. 5.995,- Ath.: M/loftpúða í sóla Úrvalsskór í miklu úrvali Laugavegi41,s. 13570. Skóverslun Þórðar, Kirkjustræti 8, sími 14181. ÓDÝRT Flug og bíll í Þýskalandi aðeins kr. 25.875,-* í 1 viku. Vegna hagstæðra samninga getum við boðið upp á flug og bíl í 1 - 4 vikurtil Dusseldorf og/eða Stuttgart BROTTFARIR 22.07 05.08 12.08 Þú getur valið um flug og bíl > flug og hótel - flug og gistihús flug og tjald - flug og húsbíl. * (miðað við 4 íullorðna í bíl.) Bankastræti 2, Sími: 62 71 44 T * Rætt við stjómarformann Alusuisse og forstjóra Isal: Keppt að aukinni fram- leiðslu í Straumsvík og verðmeiri afiirðum Morgunblaðið/Börkur Pius Binkert, stjórnarformaður Alusuisse-Lonza, og Christian Roth, forstjóri Isal. SVISSNESKA fyrirtækjasam- steypan Alusuisse-Lonza hefur ákveðið að veija dijúgu fé til Qár- festinga í dótturfyrirtæki sínu ísal. Að sögn Piusar Binkerts, stjórnarformanns Alusuisse- Lonza, nema fjárfestingarnar 100 milljónum svissneskra franka á fímm ára timabili eða rúmlega fjórum milljörðum íslenskra króna. Binkert segir að Alusuisse sjái sér hins vegar ekki hag i eig- inlegri stækkun álversins hvað þá í byggingu nýs álvers. Að sögn Christians Roths, forstjóra Isals, munu fjárfestingarnar fram til ársins 1994 leiða til þess að fram- leiðslan eykst um 10%, úr 89.000 tonnum á ári í tæp 96.000. Sam- hliða stendur til að fækka starfs- fólki í Straumsvík en þar starfa nú tæplega 600 manns. Roth nefii- ir sem dæmi að 129 starfsmenn séu eldri en 61 árs og gerir hann sér vonir um að ekki þurfí að ráða í stöður þeirra þegar þeir fara á eftirlaun. Pius Binkert, stjómarformaður Alusuisse-Lonza, kom hingað til lands á fimmtudag í síðustu viku en hélt aftur utan í gærmorgun. Binkert sem er hagfræðingur að mennt hefur gegnt formennskunni í sfjóm Alusuisse frá því í byijun árs 1987. í samtali við Morgunblað- ið kom fram að þetta er í fyrsta skipti sem hann kemur til landsins. „í starfi mínu hef ég lagt áherslu á að heimsækja öll helstu fyrirtæki samsteypunnar til þess að kynnast starfseminni og ræða við stjómend- ur þeirra." Einnig segist hann freista þess að kynnast fulltrúum atvinnulífsins og stjómvalda á hveijum stað „því í hveiju landi lítum við á okkur sem gesti“. Bin- kert segir að skoða eigi heimsókn sína í þessu ljósi þótt því verði ekki neitað að álframleiðsla sé mjög í fréttum á íslandi þessa stundina og þannig hittist á að Alusuisse-Lonza hafi ákveðið að ráðast í miklar fjár- festingar í Isal. Umskipti hjá Alusuisse Þegar Binkert kom til starfa hjá Alusuisse var fyrirtækið illa statt og hafði verið rekið með tapi um skeið. Nú rúmum þremur áram síðar blasir við allt önnur og bjartari mynd. Binkert er spurður hveiju þetta sæti. „Það er rétt, fyrirtækið stóð mjög illa. Því varð að grípa til róttækra aðgerða. Á fyrri hluta ársins 1987 minnkuðum við hlutafé um helming og afskrifuðum skuldir á móti. I framhaldinu seldum við eða lögðum niður fyrirtæki sem virtist erfitt að bjarga úr hallarekstrinum og eins þau fyrirtæki sem við töldum að væra fyrir utan okkar eiginlega verksvið. Við einbeittum okkur t.d. að fullvinnslu sérvamings úr áh' í stað þess að selja hálfimna vöm. AIusuisse-Lonza leggur nú einnig mikla áherslu á hvers kyns umbúða- framleiðslu og þá skiptir okkur ekki máli hvort þær em úr áli eða öðram efnum, þarfir kaupandans ráða úr- slitum. Við drógum semsagt saman seglin og þannig tókst okkur að stöðva hallareksturinn og með sölu fyrirtækja að útvega fé til frekari þróunar. Meðal þeirra fyrirtækja sem við hættum afskiptum af vom stór álver í Bandaríkjunum sem við töldum að væra ekki samkeppnis- fær. Einnig ákváðum við að stefna að því að framleiða sjálfir einungis 70% af því hrááii sem við þurfum. Það er sem sagt hluti af stefnu okkar að vera kaupendur á hrááli. Við viljum ekki vera sjálfum okkur nógir. Fyrir vikið emm við ekki eins háðir sveiflum á álmarkaðnum sem era talsverðar. Við notum sjálfir það hráál sem við framleiðum en kaup- um þau 30% sem á vantar á fijálsum markaði. Samhliða þessum aðgerð- um hefur verið gripið til mjög vlðtækra aðhaldsaðgerða á öllum sviðum stjómunar innan samsteyp- unnar. Hin jákvæða efnahagsþróun í Evrópu og Bandaríkjunum hefur heldur ekki sakað. Sumarið 1988 til haustsins 1989 var verð á álvör- um mjög gott en hefur reyndar lækkað á ný, því miður.“ Fjárfestingarnar hjá ísal Að sögn Binkerts hafa breyting- araar einnig tekið til álversins í Straumsvík og er markmiðið að gera það samkeppnishæfara en fyrr. í þeim tilgangi hafi verið ákveðið að veija 100 milljónum svissneskra franka (rúmlega flórum milljörðum ísl. króna) á tímabilinu 1989-93 í fjárfestingar hjá ísal. Christian Roth, forstjóri Isals, segir að hægt verði að auka framleiðsluna um 10% á næstu fimm til sex árum. „Ég vil nefna tvö höfuðverkefni. í fyrsta lagi stækkun og endurbætur á steypuskála. í öðru lagi verða gerðar endurbætur á rafgreiningunni í ker- skála. Má þar nefiia að vélvæddar þekjur koma á kerin í stað handknú- inna. Með endurbótunum getum við aukið ftamleiðsluna úr 89.000 tonn- um í 96.000 tonn á ári. Auk þess verður framleiðslan verðmeiri. Núna eru um tveir þriðju framleiðslunnar völsunarbarrar og einn þriðji málm- hleifar sem eru verðminni. Að þessu loknu verður öll okkar framleiðsla á formi völsunarbarra. Þegar þessu verður lokið í byijun árs 1994 verð- ur ísal nútímaálver sem stenst sam- anburð við álver í Mið-Evrópu. Auk þess höfum við gripið til ýmissa aðgerða sem draga úr mengun. Skólpleiðsla frá álverinu liggur ekki lengur út í höfnina í Straumsvík svo dæmi sé tekið heldur hefur hún ver- ið lengd og liggur nú á haf út.“ Fækkun starfsmanna Að sögn Christians Roths felst í þessum Qárfestingum að unnt verð- ur að draga úr yfírmönnun í álver- inu. Talið berst að verkfallinu í ísal f marsmánuði. Var Roth ánægður með þá lausn sem þar fannst en í henni fólst m.a. að fækkun í álver- inu um 22 störf skyldi lokið 15. september. „Ég var að því leytí óánægður með lausnina að hún kom til vegna verkfalls. Það hefði verið betra að ekki hefði komið til þess.“ Roth er þvínæst spurður hver hann telji að verði afstaða verkalýðsfélag- anna til hagræðingaraðgerðanna sem hann minntist á. „Eg tel að verkalýðsfélögin standi við það sem þau hafa skrifað undir. Núna erum við að fækka um þann fjölda sem SPRENGI - MARKADSTORGIÐ Meiriháttar markaður með allan fatnað - Laugavegi25 Verðdæmi: Sportskór.................. frákr. 100 Uppháir strigaskór............frá kr. 300 Stuttbuxur....................frá kr. 500 Bolir Jogginggallar Opið virka daga kl. 9-18. Laugardaga kl. 10 -14. Komið og lítið á eitt-hundrað-krónu markaðinn þar sem 100 kailinn er í fullu verðgildi. Sprengi-markaðstorgið Laugavegi 25 Sími 132 85. 1

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.