Morgunblaðið - 18.07.1990, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. JULI 1990
27
Risaeðlan: Fame and Fossils:
Nýr tónn sem lofar góðu
Hljómplötur
Sveinn Guðjónsson
Fram til þessa nef ég lítið hlust-
að á „smekklausu jaðarböndin“
svonefndu enda haft ákveðnar
efasemdir um gæði þeirrar tóVi-
listar sem þessar hljómsveitir
flytja, þótt Sykurmolarnir séu
þar auðvitað undantekning. En
hjá mörgum hinna hefur oft vilj-
að brenna við að „tónlistin“ ein-
kennist um of af fálmkenndum
tilraunum þar sem reynt er að
breiða yfir getuleysi í hljóðfæra-
leik með einhvers konar mark-
lausu gargi og fáránlegum
hljómasamsetningum undir yfir-
varpi frumleika, sem oft hefur
þó ekki reynst annað en léleg
stæling á gömlum pönkfrösum.
Svona yfirlýsingar flokkast auð-
vitað undir fordóma og það gild-
ir það sama um jaðartónlistina
og aðra tónlist, hvort heldur um
er að ræða jass, klassík eða rokk,
að eyrað þarf ákveðinn tíma til
að venjast henni. Og í þessum
kreðsum er vissulega misjafn
sauður í mörgu fé eins og ann-
ars staðar. Risaeðlan er í hópi
þeirra hljómsveita á þessu sviði
sem skara fram úr að mínum
dómi, og ný plata með henni,
„Fame and Fossils“, tekur af öll
tvímæli um að hér er komin fram
á sjónarsviðið ein athyglisverð-
asta hljómsveit sem fram hefur
komið hér á landi í langan tíma.
Platan er gefin út á hljóm-
plötumarkað Engilsaxa í Bret-
landi og Bandaríkjunum og Risa-
eðlan kemur þar fram undir
nafninu „Reptile" og allir textar
eru á ensku. Líklega er það af
hinu góða því ég efast um að
auðvelt yrði að koma þessum
boðskap, sem á köflum er nett
geðveikislegur, yfir á ástkæra
ylhýra málið. Reyndar er sums
staðar blandað saman ensku og
íslensku, eins og í lögunum „ívar
Bongo“ og „Piece Keys“ og til
að gefa mönnum ölítinn smjörþef
af þeirri samsetningu skal hér
tilfært vers úr ívari Bongo: „íí-
ívaar/ííí...is something wrong/
ííívaaar/ ííí...is it ding dong/II-
Ivaaar bongó/Sér hver er í mér.“
Ef til vill er fullmikið að tala
um boðskap í sambandi við þessa
texta, sem margir hveijir eru
lítið annað en samhengislaust
rugl, en þannig á það líka að
vera í smekkleysunni. Og í með-
förum Risaeðlunnar verður þetta
rugl bráðskemmtilegt því í túlk-
uninni bregður fyrir leikrænni
tjáningu, sem oft á tíðum virkar
mjög sannfærandi hjá söngkröft-
unum. Tónsmíðamar eru líka
sniðnar í kringum þetta og það
eru kannski tónsmíðarnar sjálfar
sem eru sterkasta hlið Risaeðl-
unnar. Ég leyfi mér til dæmis
að fullyrða að lagið „Hope“ er
með því betra sem hér hefur
heyrst í langan tíma og einhvern
veginn hef ég á tilfinningunni
að það hafi alla burði til að ná
langt úti í hinum stóra heimi ef
rétt er á málum haldið.
Um hljóðfæraleikinn er líka
allt gott að segja og þau Magga
Stína fiðlu- og marimbaleikari,
Dóra Wonder saxafónleikari,
Siggi gítaristi, Tóti K. trommari
og Ivar bassaleikari virðast öll
með sitt á hreinu og gera stund-
um býsna vel. Að vísu finnst
mér stundum fullmikið gert úr
hlutverki saxans, sem verður á
köflum of einhæft, enda læðist
að manni sá grunur að þar séu
fulinýttir þeir hæfileikar sem
Dóra Wonder ræður yfir í blæstr-
inum. En einn mesti kostur þess-
arar plötu er einmitt sá að
tónsmíðarnar virðast sniðnar að
hæfileikum hvers og eins og í
tónlistarflutningi reynir enginn
liðsmanna sveitarinnar að reisa
sér hurðarás um öxl. Aðalatriðið
er þó vitaskuld að hér kveður
við nýjan tón, nýtt „sánd“, sem
ég hef hvergi heyrt annars stað-
ar. Og þótt framsetning texta
minni stundum á Sykurmolana
hefur Risaeðlan skapað sér stíl
sem er hennar eigin. Þegar það
fer saman við frjótt ímyndunar-
afl og ágæta tónlistarhæfileika
getur allt gerst. Risaeðlan virð-
ast vita nákvæmlega hvað hún
er að gera og ég spái því að hún
eigi eftir að ná langt.
X
Flj ótsdalshérað:
Gott samstarf oddvita
hillur fyrir
matvöruverslanir.
Einnig
afgreiðsluborð
meðfæribandi.
Upplýsingar í síma 53466 á skrifstofutíma.
Egilsstödum.
ODDVITAR á Fljótsdalshéraði
hafa í áratugi haft með sér náið
samstarf í mörgum fi-amfara-
málum Fljótsdalshéraðs. Á Hér-
aði eru 10 sveitarfélög og að
auki hefur Borgarljörður eystri
tekið virkan þátt í þessu sam-
starfi sem hófst með samstarfi
í heilbrigðismálum í upphafi
aldarinnar en tekur nú til sífellt
fleiri sviða sveitarstjórnarmál-
efna.
Þeir oddvitar sem Morgunblaðið
ræddi við telja þetta samstarf mjög
tnikilvægt því með því eflist þessi
sveitarfélög og geti komið fram
sem ein heild út á við og standi
þau því sterkari en ella.
Þrátt fyrir náið samstarf eru
ekki uppi neinar hugmyndir um
Til
sölu
Oddvitar á Fljótsdalshéraði
koma reglulega saman til funda
þar sem afgreidd eru sameiginleg
hagsmunamál þessara sveitarfé-
laga sem eru 9 sveitarhreppar á
Héraði auk Egilsstaðabæjar og
Borgarfjarðar eystri.
í byijun aldarinnar snerist þetta
samstarf einkum um heilsugæslu-
mál en er leið á öldina beittu odd-
vitar á Héraði sér fyrir stórauknu
samstarfi í fræðslu- og samgöngu-
málum.
Einnig beittu oddvitar sér fyrir
byggingu Héraðsheimilisins Vala-
skjálfar er vígt var 1966 og er í
eigu allra sveitarfélaga á Héraði.
Er það eitt stærsta og glæsileg-
asta félagsheimili landsins. Síðan
hefur verð reist hótelálma við Vala-
skjálf og er þar nú fullkomin að-
staða ti! móttöku ferðamanna og
ráðstefnuhalds.
Morgunblaðið/Björn Sveinsson
Oddvitar á Héraði og Borgarfirði eystra ásamt forseta bæjarstjórnar
á Egilsstöðum. Myndin er tekin áður en nýjar sveitarstjórnir tóku
við eftir kosningar í vor.
sameiningu þessara sveitarfélaga
í nánustu framtíð enda að mörgu
leyti erfitt nema samfara breytingu
á sýsluskipan en þessi sveitarfélög
eru hlutar af tveimur sýslufélög-
um, Norður- og Suður-Múlasýsl-
um.
- Björn
Er þessi rekstur í Valskjálf
ásamt rekstri heilsugæslustöðvar
og dvalarheimilis aldraðra allur
undir umsjón og á ábyrgð oddvita
Fljótsdalshéraðs.
og skemmtir aöeins þessa einu helgi
í Reykjavík í sumar.
Föstudags- og laugardagskvöld
frá kl. 22-3.
Mímisbar opinn frá kl. 19.
Albert og Hörður skemmta.
Útsalan byrjar á morgun, fimmtudag
Lokað í dag <JÓUntU
Útsalcm hefst 7 9/7. og lýkur 28/7.
Opiö frá kl. 9-18, laugardag frá kl. 7 0- 7 6.
verzlun v/IUesveg,
Seltjarnarnesi