Morgunblaðið - 18.07.1990, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. JULÍ 1990
38
Guð sameinar lýð sinn eftir
mörgum ótrúlegum leiðum
Til Velvakanda.
Þann 24. maí síðastliðinn ritaði
ég litla grein í útbreitt kristilegt
túnarit, sem gefið er út í Nashville
í Bandaríkjum Norður-Ameríku.
Tímarit þetta sem nefnist The Up-
per Room og fer út um allan heim
er byggt upp á þann skemmtilega
máta að lesendur, sem jafnframt
eru áskrifendur víðsvegar um jörð-
ina, skrifa hugleiðingu sem birt er
sem hugleiðing og íhugun einhvem
365 daga ársins.
Undanfama daga hef ég svo
fengið send í pósti mörg bréf frá
fólki víðsvegar utan úr heimi
viðvíkjandi greininni.
Hvers vegna er ég að skrifa um
það til Velvakanda, kannt þú að
spytja. Vegna þess að alókunnugt
fólk hefur tekið upp á því að skrifa
hvert öðru um óravegu til að miðla
af kristinni reynslu sinni og starfi,
vegna lítillar greinar þann 24. maí.
Til að mynda barst mér bréf frá
Flórida frá konu sem hefur helgað
líf sitt aðstoð við sjúka þó sjálf sé
hún í hjólastól. Annað bréf kom frá
Oregon-fylki á Vesturströndinni.
Kaþólskur bréfritari skrifar mér frá
Englandi og segir frá hvemig fjöl-
skyldan sigraðist á vandamálum
fyrir trúna. Methodistaprestur sendi
mér bréf frá Ástralíu um þymum
prýddan veg til prestþjónustunnar,
sem reyndist honum þungur í
skauti, og kona á svipuðum slóðum
sagði mér frá miklum kraftaverka-
lækningum sem átt hafa sér stað
að henni ásjáandi.
Jafnfi-amt þeim þökkum sem ég
hef fengið fyrir þessa litlu grein
höfum við bréfritararnir glaðst yfir
því hve Guð sameinar sinn lýð eftir
Fullmikið bruðl
mörgum ótrúlegum leiðum. Þó óra-
leiðir skilji á milli ókunnugs fólks
þá sameinar Guð lýð sinn.
Jafnvel svo langt í burtu frá
hveq'u öðm þá biðjum við til Guðs
okkar sem er hinn sami, á íslandi,
í Ameríku, Englandi eða Ástralíu.
Svo sannarlega sameinar Guð lýð
sinn á undraverðan hátt. Lýk ég
svo þessu bréfi með því að skila
bestu kveðjum frá trúsystkinunum
að utan til allra kristinna manna á
íslandi.
Einar Ingvi Magnússon
Læða
Eins árs læða fæst gefins. Upp-
lýsingar gefur Lísa í síma 623650
og 676781.
Þessir hringdu ...
þegar ég kom sl. mánudag austan
úr Klausturhólum. Ég fór aðeins
út úr bílnum á þjóðveginum, fór
síðan í Nóatún í Rofabæ og loks
í ÁTVR í Höfða. Einhvers staðar
á þessari leið hef ég tapað meninu
og bið ég þann sem fann það vin-
samlega að hringja í síma 35159.“
Kannastu við
álfa, tröll
Mái og menning undirbýr útgáfu bókar með
íslensku vættatali, þar sem gerð verður grein
fyrir nafngreindum yfimáttúrulegum verum
sem einhverjar sagnir eru til um á íslandi.
Leitað hefur verið fanga í öllum helstu
þjóðsagnasöfnum og fomsögum. Heimildir
um slíkar verur geta þó leynst ótrúlega víða,
ekki síst í munnmælum.
Því biðjum við þá sem kannast við drauga,
v huldufólk, tröll, vemdarvættir eða aðrar
yfimáttúrulegar verur, sem ekki er að.iinna í
stærri þjóðsagnasöfnum, að skrifa okkur í
draugadeildinni.
MállMlog menning
„Draugadeild“
Laugavegi 18, Reykjavík.
Aðalstöðin
veitir margar
ánægjustundir
Til Velvakanda.
Mig langar til að þakka Aðalstöð-
inni fyrir margar ánægjustundir.
Tónlistin er sérlega róleg og góð.
Og virðist dagskrárfólk vanda til
verks. Ég hef ekki nennt að hlusta
á útvarp á kvöldin í mörg ár fyrr
en nú síðustu mánuðina og þá
hlusta ég á Aðalstöðina. Bestu
þakkir fyrir frábæra útvarpsstöð.
P.S. Ég skil ekki niðurstöður
undanfarinna skoðanakannana.
Plestir ef ekki allir sem ég þekki
hlusta á Aðalstöðina.
Þakklátur hlustandi.
Sýnum hvert öðru nærgætni í
umferðinni.
- KOMUM HEIL HEIM -
Karl hringdi:
„Ég sá í fréttum sjónvarpsins
nú um helgina að tveimur milljón-
um króna hefði verið eytt þegar
homsteinn var lagður að Blöndu-
virkjun. Er þetta nú ekki fullmik-
ið bruðl? Flugvélar vora Ieigðar
undir útvalda veislugesti og kost-
aði það litlar níuhundraðþúsund
krónur og maturinn rúmlega eina
milljón króna. Var ekki hægt að
hafa aðeins minna tilstand, alla
vega eitthvað sem kostaði
minna?“
Tapaði gullhálsmeni
Áslaug hringdi:
„Ég tapaði dýrmætu gullháls-
meni með perlu og gráum steini
Blágrænt hjól
Nýlegt blágrænt Winter bama-
tvíhjól tapaðist frá Bólstaðarhlíð.
Finnandi hringi í Hrafnhildi í síma
609367 eða 16411.
Kettlingur
Nokkurra vikna svartur kettlingur
fæst gefins. Upplýsingar í síma
72961 eftir kl. 17.00.
Týndi kíki
Ungur piltur týndi kíki fimmtu-
daginn 12. júlí. Kíkirinn sem er
af Tasco-gerð týndist á leiðinni
úr Galtalækjarskógi að Hellu, far-
ið var um Heklubraut. Finnandi
hringi í síma 681990.
7
Þakka öllum þeim, sem sýndti mér hlýhug á
áttrœöisafmœli minu.
Krístin Laufey Ingólfsdóttir.
Öllum systkinum okkar, frcendfólki og vinum
þökkum við innilega allar heimsóknir, gjafir
og skeyti á 75 og 80 ára afmœlum okkar.
GuÖ blessi ykkur öll.
Lilja og Ólafur,
BræÖraborgarstig 13.
PEY5UDEILÐIN
er flutt á Laugaveg 84,
sími 10756.
tc-
HLJÓMSVHTA
MJÓMSVHTAKEPPN R0KKLHGANNA verður haldin á
BARNA- 06 FJÖLSKYUMIHÁTÍMMI í HÚSAFBISSKÓGI
LAUGARDAGMN 4. ÁGÚST 1990.
KH>PHiMR þurfa að vera YNGM Bll 16 ÁRA (fædd 1974
eða síðar). Öll hljómtæki verða á staðnum en keppendur
þurfa að hafa með sér eigin handhljóðfæri (s.s. gítar,
bassa o.s.frv.). Hver hljómsveit má spila i 10 mínútur.
DÓMNHW sem skipuð verður starfandi hljóðfæraleikur-
um og fagmönnum á sviði tónmennta mun velja
sigurvegarana.
VHtDLAUNN: Sú hljómsveit sem sigrar mun leika eitt lag
á hljómplötu ROKKLHGANNA sem kemur út fyrir jólin
1990, auk þess að fá afhentan veglegan verðlaunabikar.
ÞÁTTTAKA tilkynnist fyrir 20. júlí í síma 81-689440.