Morgunblaðið - 18.07.1990, Page 34
34
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 18. JÚLÍ 1990
KA (1)
Sveinbjorn
Hákonarson
Stjörnunni (3)
Guðmundur
Steinssun
Fram (2)
Hlynur
stefánsson
IBV (3)
Tömas Ingi
Jómasson
IBV (1)
LIÐ10. UMFERÐAR
■■3
Það verður ekki annað sagt en að miklu sóknarliði sé stillt
upp að þessu sinni, enda 21 mark skorað í leikjunum fimm,
sem er það mesta í einni umferð í sumar. Enda beitum við
nýrri leikaðferð að þessu sinni; 2-4-4! Með allir virðingu fyrir
Jóni Braga og Sævari yrði ef til vill lítið um varnir, en þá
væntanlega meiri líkur að á að þessu Morgunblaðsliði tækist
að skora talsvert ef það fengi að spreyta sig á vellinum...
■5»
Ekki eyða sumarfríinu
á salerninu,
taktu Symbioplex
með í fríið!
Með breyttum matarvenjum sem oft fylgja
ferðalögum getur meltingin farið illilega úr
skorðum.
SYMBIOPLEX
sem er blanda frost-
þurrkaðra meltingargerla, byggir upp heil-
brigða þarmaflóru og stuðlar að bættri melt-
ingu. Virkar og er fyrirbyggjandi gegn harð-
lífi, uppþembu, andremmu og niðurgangi.
— góður ferðafélagi
Fæst í apótekum og í verslun okkar.
SKEIFAN 19 • SlMI: 681717
Guðmundur Haraldsson milliríkjadómari:
„Búinn að skila mínu“
Hættir að dæma um næstu áramót eftir 30 ára starf
Guðmundur Haraldsson hefur margoft verið verð-
launaður fyrir frammistöðuna. Hér er hann með bikar
sem hann fékk frá Morgunblaðinu fyrir að vera kjörinn
besti dómari 1. deildar.
GUÐMUNDUR Haraldsson, milliríkjadómari í
knattspyrnu, tilkynnti Knattspyrnudómara-
sambandi íslands og dómaranefnd Knatt-
spyrnusambandi íslands í gær að hann hefði
ákveðið að hætta að dæma að loknu yfirstand-
andi tímabili. Guðmundur hefur dæmt í 30
ár, á lengsta feril að baki í Evrópu sem
milliríkjadómari og aðeins einn annar í heimin-
um hefur starfað eins lengi sem slíkur.
Guðmundur sagði við Morgunblaðið að hann
hefði gælt við þessa ákvörðun undanfarin tvö
ár. „Ég byrjaði ungur að dæma og hef hreinlega
fengið mig fullsaddan eftir 30 ára starf enda tel ég
mig vera búinn að skila mínu.“
Hann tók dómarapróf árið 1961 og dæmdi í fyrsta
sinn í meistaraflokki árið 1963. „Baldur Þórðarson
kom mér af stað og fékk mig til að dæma_ úrslita-
leik Fram og Vals í Reykjavíkurmótinu. Ég fékk
góða dóma, sem gáfu mér mikið og efldu og ég hef
haft góðan meðbyr síðan,“ sagði Guðmundur.
Það er ekki ofsögum sagt, því Guðmundur hefur
almennt verið talinn besti dómari landsins undan-
farna áratugi og margoft verið verðlaunaður fyrir
frammistöðuna. Hann varð milliríkjadómari aðeins
24 ára gamall og hefur enginn leikið það eftir, en
fyrsti milliríkjaleikurinn var viðureign Manchester
City og Linfield í Evrópukeppni bikarhafa 1969.
Dómarastörfin innanlands eru tæplega 1.000, en
milliríkjaleikirnir um 70 til 80 alls.
Sé öðrum skilyrðum fullnægt geta menn starfað
sem milliríkjadómarar þar til þeir verða 50 ára og
hefði Guðmundur því getað sinnt milliríkjastörfum
í ijögur ár til viðbótar. Af því verður ekki — ljóst er
að hann dæmir knattspyrnuleik í síðasta sinn í haust.
foám
FOLK
■ THOMAS Brolin, hinn ungi
sóknarmaður sænska landsliðsins í
knattspyrnu, vakti mikla eftirtekt
fyrir góða frammistöðu á nýafstað-
ínni heimsmeistarakeppni á Italíu.
Hann hefur nú gert samning við
ítalska félagið Parma.
■ BROLIN er ekki eini erlendi
leikmaðurinn sem Parma hefur
keypt því þangað er einnig kominn
Taffarell, markvörður Brasilíu-
manna, sem einnig stóð sig mjög
vel á HM.
■ GRÍSKA félagið Olympiakos
Piraeus hefur keypt sovéska
landsliðsframheijann Oleg Prot-
assov frá Dynamo Kiev. Félagið
lét reyndar ekki þar við sitja heldur
keypti þrjá sovéska leikmenn í ein-
um pakka! Til Piraeus fara einnig
landsliðsmaðurinn Igor Dobrovol-
sky, sem er miðvallarleikmaður, frá
Dynamo Moskvu, og framheijinn
Júrí Savícev frá Torpedo
Moskvu.
■ LAJOS Detari, hinn frábæri
ungverski framherji, sem verið
hefur hjá OlympiakdS undanfarin
ár, er hins vegar farinn til ítalska
1. deildarliðsins Bologna.
■ REAL Madrid hefur keypt
júgóslavneska varnarmanninn
Predrag Spasic frá Partizan
Belgrad. Hann lék mjög vel í HM;
var með í öllum leikjum Júgóslava.
■ OSCAR Ruggeri, varnarmað-
urinn argentínski, sem verið hefur
hjá Real Madrid undanfarin ár,
þarf því líklega að fara að leita sér
að öðru félagi. Þrír útlendingar
mega vera í hverju spönsku liði í
hverjum leik; félagið er nýbúið að
fjárfesta í rúmenska snillingnum
Gheorge Hagi og fyrir er marka-
maskínan Hugo Sanchez frá Mex-
íkó, sem ólíkegt er að félagið sé
tilbúið að láta fara.
■ DANSKI knattspyrnumaðurinn
Flemming Povlsen er kóminn til
Borussia Dortmund. Þessi snjalli
framheiji var síðasta vetur með
hollenska liðinu PSV Eindhoven,
en þar áður hjá 1. FC Köln í V-
Þýskalandi.
■ SOVÉSKI landsliðsmaðurinn
snjalli Alexandr Míkhaílítsjenkó
er farinn frá Dynamo Kíev til
ítalska félagsins Sampdoria. Þessi
frábæri miðvallarleikmaður var
ekki með á HM vegna meiðsla og
saknaði sovéska landsliðið hans
greinilega.
■ TONY Coton, markvörður
Watford, hefur verið seldur til
Manchester City fyrir eina milljón
sterlingspunda. Hann er fjórði
markvörðurinn á Englandi sem
seldur er fyrir svo háa upphæð
síðasta árið.
■ CHELSEA hefur gert stærsta
auglýsingasamning sem um getur
í sögu ensku knattspyrnunnar. Fé-
lagið samdi áfram við tölvufyrir-
tækið Commodore, nú til fimm ára
og er samningurinn 2 milljóna
punda virði.
■ CHELSEA keypti leikmenn
fyrir 2,7 milljónir punda á dögun-
um; Andy Townsend frá Norwich
og Dennis Wise frá Wimbledon.
„Chelsea verður lið tíunda áratug-
arins,“ var haft eftir Townsend í
einu ensku blaðanna í síðustu viku.
■ NORWICH notaði hluta af pen-
ingunum sem félagið fékk fyrir
Townsend og Andy Linigan, sem
fór til Arsenal, og keypti 21 árs
varnarmann frá Chester. Sá heitir
Colin Woodthorpe og hefur spilað
150 leiki fyrir 3. deildarliðið.
■ WIMBLEDON bauð eina millj-
ón punda í framherjann kröftuga
Mickey Quinn hjá Newcastle í
síðustu viku. Boðinu var hafnað en
Lundúnaliðið hækkaði það þá í 1,2
milljónir.
■ KENYA verður með sterkt
fijálsíþróttalið á Priðarleikunum í
Seattle, en í níu manna hópi eru
fjórir fyrrverandi Olympíumeistar-
ar. Þessar stjörnur eru Paul Ereng
(800 m), Peter Rono (1.500), Jul-
ius Kariuki (3.000 hindrunar-
hlaup) og John Ngugi (5.000). Þá
er í liðinu einn silfurverðlaunahafi
frá síðustu Ólympíuleikum og
heimsmethafi í 3.000 metra hindr-
unarhlaupi, Peter Koech.
ÚRSUT
Úrslit í tveimur greinum á Landsmóti
UMFÍ um helgina vantaði í blaðið í gær.
Um leið og beðist er velvirðingar á því birt-
ast þau hér að neðan:
Starfshlaup
1. Kristján Þorsteinsson, UMSE....5.30
2. Ármann Ketilsson, UMSE.........5.40
3. Sveinn Valdemarsson, UMFK......5.59
4. GuðmundurHallgrímsson, UÍA.....6,04
5. Kristján Sigurðsson, UMSE......6.07
6. Ingólfur Kjartansson, UMFD.....6.10
7. Pétur Bjarnason, UMSS..........6.20
8. GuðmundurMagnússon, UlA........6.22
9. Finnbogi Harðarsson, UDN.......6.28
10. Guðmundur Ingvarsson, HSK.....6.35
11. Garðar Sigurðsson, UGS........6.36
12. Sigurður Jónsson, HSK.........6.37
13. Gunnar Valdemarsson, UMFK.....6.39
14. Jón Fr. Benónýsson, HSÞ.......6,40
15. GunnarGuðmundsson, UMFN.......6.46
16. -17.Snorri Steinsson, UMSS....6.48
16.-17.Kristján Yngvason, HSÞ......6.48
18. Steindór Gunnarsson, HSS......6.52
19. Ásgeir Gunnar Jónsson, HSH....6.54
20. Böðvar Bjarnason, UMSK........6.55
21. Arnór Erlingsson, HSÞ.........7.00
22. Gauti Gunnarsson, HSK.........7.01
23. Geir Þorsteinsson, USÚ........7.03
24. Jóhannes Ottósson, UFA........7.06
25. Pálmar Hreinsson, USÚ.........7.07
26. Lúðvík Björgvinsson, UMSK.....7.10
27. Einar P. Guðmundsson, UFA.....7.19
28. EinarPétursson, HSB...........7.20
29. Jón Ólafsson, HSS.............7.34
30. Kristinn Sigurðsson, USVH.....7.36
31. Margrét Ingibergsdóttir, UMSB.7.42
32. Kristján Auðunsson, HSB.......7.46
33. Halldór Daðason, HSB..........7.47
34. Sigurður Magnússon, UFA.......7.51
35. Eiín Blöndal, UMSB............7.52
36. Skúli Sigurðsson, USVH........7.57
37. Eiríkur Ragnarsson, UGS.......8.08
Boccia
1. sæti.......................A sveit ÍFR
2. sæti.....................AsveitGnýs
3. sæti...................A sveitGáska
4. sæti..................A sveit Hlyns
5. sæti..................B sveit Hlyns
6. sæti..................B sveit Gáska
GOLF
EfnherjaraðJaðri
Hín árlega Einhetjakeppni í golfi fer fram
á Jaðarsvelli á Akureyri mánudaginn 30.
júlí næstkomandi. Þeir íslensku kylfingar
sem hafa unnið það afrek að fara „holu í
höggi" og eru meðlimir í Einhetjaklúbb ís-
lands, munu hittast fyrir norðan og reyna
með sér. Einheijakeppnin er jafnan haldin
I tengslum við Landsmótið í golfi, sem að
þessu sinni fer fram að Jaðri dagana 26.
til 4. ágúst. Golfklúbbur Akureyrar sér um
að skrá þátttakendur í Einheijakeppnina.