Morgunblaðið - 18.07.1990, Síða 35

Morgunblaðið - 18.07.1990, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 18. JÚLÍ 1990 35 FRJALSÍÞRÓTTIR KNATTSPYRNA / AGANEFND FATLAÐIR KSÍ sendir Fram harðorðar ávflur Dómari fær stranga aðvörun vegna frágangs á leikskýrslu Á stjórnarfundi KSÍ í gær- kvöldi var samþykkt að senda Fram harðorðar ávítur vegna framkomu leikmanna og forr- áðamanna félagsins eftir leik Vals og Fram í bikarkeppn- inni, sem Fram tapaði í víta- spyrnukeppni á dögunum. Einnig var ákveðið að verta dómara leiksins stranga að- vörun. Eftir umræddan leik áttu m.a. snarpar orðahnippingar sér stað og vönduðu Framarar dóni- ara leiksins, Braga Bergmann, ekki kveðjurnar. Hann sendi aga- nefnd KSÍ skýrslu um málið, þar sem sérstaklega var gi'eint frá þætti Péturs Ormslev, fyrirliða bikanneistaranna, en gat hans ekki á leikskýrslu. Því úrskurðaði aganefnd ekki í málinu, en vísaði því til stjórnar. Stjórnin ákvað einnig að fela dómaranefnd að veita Braga stranga aðvörun vegna frágangs á skýrslu sinni eftir leikinn. Eggert Magnússon, formaður KSÍ. sagði við Morgunblaðið að stjói-nin hefði miklar áhyggjur vegna taugatitrings á leikjum og nefndi sérstaklega foráðamenn líðanna, leikmenn og stuðnings- menn í því sambandi. Viðbrögð margra við tapi væru ógnvænleg og væri Ijóst að við svo búið mætti ekki lengur standa. Fjórir úr 1. deild í leikbann Hangir heimsmet Jans Zelezny á bláþræði? fatím FOLK Olafur Eiriksson Ólafur hreppti annað gull í gær Olafur Eiríksson gerði sér lítið fyrir og sigraði í 800 m skrið- sundi á Heimsleikum fatlaðra í Hollandi í gær. Olafur synti á 9:41,98 mín., en átti best 10:21,2 áður. Ólafur, sem sigraði einnig í 400 m skriðsundi, keppir í L5 flokki 'hreyfihamlaðra. 13 tóku þátt í flokknum og var keppnin geysilega jöfn og spennandi allan tímann. Norðmaður hafnaði í 2. sæti á 9:42,34. Á mánudag keppti Haukur Gunnarsson í 400 m hlaupi og vaarð í 2. sæti á 62,3 sekúndum. Þá varð Rut Sverrisdóttir í fjórða sæti í 100 m skriðsundi, Halldór Guðbergsson í 7. sæti í 100 m skriðsundi og Sigrún Pétursdóttir í 8. sæti í 100 m baksundi. Tímarnir lágu ekki fyrir og sagði Magnús B. Einars- son, aðalfararstjóri, að seinagangur ■C' væri á fleiru. Nefndi í þvi sambandi símamál — mjög erfitt væri að kom- ast í síma og enn erfiðara að fá samband til útlanda. Keppnin í Assen stendur til 25. júlí. Úrslit 1. deild kvenna: KA-UBK.....—................ 0:5 — Sigrún Óttarsdóttir 2, Kristrún Lilja Daðadóttir, Rósa Dögg Jónsdóttir, Vanda Sigurgeirsdóttir 3. deiid: TBA—Þróttur R.............. 0:2 — Stefán Steinsen, Haukur Magnússon BÍ—Itaukar................. 0:2 — Brvnjar Jóhannesson, Gauti A. Marinós- son Reynir Á.—Þróttur N........ 1:5 Garðar Nielsson — Kristján Svavarsson 2, Þráinn Haraldsson, Ámi Freysteinsson, Ól- afur Viggósson Einherji—ÍK..................4:1 Arnar Gestsson, Gisli Davíðsson, Ólafur ** Arraannsson, Helgi Þórdarson — Hörður Magnússon Jan Zelezny fagnar heimsmeti. Reuter Aganefndar KSÍ úrskurðaði í gær 15 leikmenn í bann vegna brottvísana í leik, þar af þijá úr fyrstu deild og einn þjáifara. Kristinn R. Jónsson, Fram, hefur reyndar þegar tekið út sitt bann. Heimir Guðntundsson ÍA verður í banni á morgun gegn KR í bikarkejtpninni. Ingi Björn Albertsson, þjálfari Vals, fékk að líta rauða spjaldið gegn IA og stjómar því ekki liði sínu gegn UBK í bikarn- um á morgun. Þá missir Sigurður Lárusson, Þórsari, af leiknum gegn ÍBV á mánudag; var rekinn af velli gegn Stjörnunni í vikunni. Tveir voru úrskurðaðir í bann vegna fjögurra gulra spjalda. Guðmundur V. Sigurðsson, FH, missir af leiknum við Víking á sunnudag og Keflvíkingurinn Óli Þór Magnússon. Hann má hins vegar leika á morgun gegn Selfyssingum í bikarkeppninni þar sem bannið tekur ekki gildi fyrr en á hádegi á föstudag. NORSKA blaðið Aftenposten gefurtil kynna í umfjöllun sinni um Bislett-leikana í Ósló sl. laugardagskvöld, að ef til vill hangi heimsmet Tékkans Jans Zeiezny í spjótkasti á blá- þræði. Zelezny endurheimti heimsmetið með því að kasta 89,66 í sjöttu og síðustu um- ferð keppninnar. Zelezny kastaði að sögn Aften- posten með svokölluðu Ne- meth-spjóti, sem dregur nafn af hönnuði og framleiðanda spjótsins, Ungveijanum Miklos Nemeth, en hann er fyrrum heimsmethafi og ólympíumeistari í spjótkasti. Nemeth-spjótin eru frábrugðin „venjulegum" spjótum þar sem skammt aftan við gripið er yfirborð þess hijúft, rétt eins og smeygt hefði verið um það grófum sand- pappír. Á það að auka svifeiginleika spjótsins. „En spjótið uppfyllir þær regiur sem í gildi eru og ég hef því' ekki ástæðu til annars en að undirrita umsókn til alþjóðafijálsíþróttasam- bandsins (IAÁF) um staðfestingu ■ metsins," hefur Aftenpost eftir Sig- mund Holme, kaststjóra á Bislett- mótinu. Blaðið bætir við að Holme hafi ekki verið kunnugt um að sett- ir hefðu verið ýmsir fyrirvarar um Nemeth-spjótið í vetur og notkun þess verði t.a.m. óheimil á Evrópu- meistaramótinu í næsta mánuði. Þá bætir blaðið við að betur hefði verið hægt að standa að mælingu metkastsins. Geislamælitæki valiar- ins séu viðurkennd til að mæla heimsmet, en gripið hefði verið til málbanda til að ganga úr skugga um lengd kastsins. Þá hafi stálband vallarins ekki reynst nógu langt og því verið gripið til málbands úr gerfiefnum sem ekki dugi til að mæla met af þessu tagi. Loks klykkir Aftenposten út með því að segja að Zelezny hafi verið heppinn að einungis sjö hafi keppt í spjótkastinu á Bislett. Þá hefði hann nefnilega fallið úr leik eftir þijár umferðir þar sem þijú fyrstu köst hans voru ógild. Hann hefði því aldrei haft tækifæri til risa- kastsins ef keppendur hefðu verið tveimur fleiri. KNATTSPYRNA KSÍ slapp með áminningu frá UEFA Knattspyrnusamband íslands fékk áminningu frá aga- nefnd Knattspyrnusambands Evr- ópu, UEFA, vegna bera manns- ins, sem hljóp inn á Laugardals- völl fyrir leik Islands og Albaníu 30. maí s.l. — þegar þjóðsöngur Albaníu var leikinn. Sams konar atvik átti sér stað fyrir leik íslands og Sovétríkjanna 30. ágúst 1988 og þá fékk KSÍ áminningu frá aganefnd Alþjóða knattspyrnusambandsins, . FIFA. Fyrri leikurinn var í forkeppni Heimsmeistaramótsins en sá seinni í forkeppni Evrópumótsins. Komi svona lagað fyrir aftur eru áminningarnar geymdar en ekki gleymdar og ef af verður má gera ráð fyrir harðari refs- ingu. Guðmundur í áfrýjunar- dómstól UEFA Guðmundur Pétursson, vara- formaður KSÍ, er lögfræðingur að mennt og var kjörinn í áfrýjun- ardómstól UEFA á síðasta árs- þingi. Hann og samnefndarmenn hans fá málið samt ekki í sínar hendur, því Eggert Magnússon, foiTnaður KSI, sagði að úrskurðin- um yrði ekki áfrýjað. „Við erum ánægðir með að þetta varð niður- staðan. Við verðum hins vegar að taka þessi mál föstum tökum og svona lagað má ekki gerast aft_ur.“ Island leikur þijá leiki í Evrópu- keppninni í haust. Frakkar koma og spila á Laugardalsvelli 5. sept- ember, síðan verður leikið ? Tékkóslóvakíu 26. september og á Spáni 10: október. Morgunblaðið/Sverrir Guðmundur Pétursson KNATTSPYRNA ■ EINAR Einnrsson, handknatt- leiksmaður úr Stjörnunni, hefur gengið til liðs við austurrískt fé- lagslið, UHC Vogelpumpen og leikur með því næsta vetur. Þá er Gylfi Birjfisson farinn úr Stjörn- unni til IBV eins og greint hefur verið frá. fl ÞRÍR sjóaðir handboltamenn úr 1. deildinni tilkynntu félaga- skipti í Stjörnuna áður en frestur- inn til þess rann út um helgina. Siggeir Magnússon úr Víkingi, Guðmundur Albertsson úr ÍBV og Magnús Teitsson og Magnús Teitsson, sem lék með Stjörnunni á árum áður en hefur í Njarðvík undanfarið. ■ BRESKI ökuþórinn Nigel Mansell, einn sá kunnasti í Form- ulu 1 kappakstrinum, tilkynnti um helgina eftir Silverstone kappakst- urinn í heimalandi sínu, að hann hygðist hætta keppni eftir þetta keppnistímabil. Sagðist vera búinn að fá nóg og ætla að gefa sér meiri tíma með ijölskyldunni. ■ ALAIN Prost hinn franski sigraði á Silverstone að þessu sinni. Þess má geta að þeir Mansell eru félagar hjá Ferrari. H GRAHAM Taylor hefur verið ráðinn þjálfari enska landsliðsins í knattspymu. Hann tekur við af Bobby Robson, sem tekur nú við stjórn PSV Eindhoven í Hollandi. Reiknað hafði verið með að Taylor tæki við liðinu og fengu þær sögu- sagnir byr undir báða vængi þegar hann hætti störfum hjá Aston Villa fyrir nokkrum dögum. Það var hins vegar ekki fyrr en í fyrradag sem tilkynnt var formlega að liann yrði næsti landsiiðsþjálfari. GOLF Húsavíkurmófið Opna Húsavíkurmótið í golfi, Landsbankamótið, verður haldið helgina 21. og 22. júlí. Keppni hefst kl. 8.00 á laugardagsmorgun og kl. 7.00 á sunnudagsmorgun. Þátt- tökutilkynningar þurfa að berast fyrir kl. 18.00 á föstudag.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.