Morgunblaðið - 22.09.1990, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 22.09.1990, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. SEPTBMBER 1990 EFTA — EB: Tillögur EB um stjórn evrópska efnahagssvæðisins væntanlegar fyrir 10. október ^ Brussel, frá Krislófer Má Kristjánssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. Á SAMEIGINLEGUM fundi yfirsamninganefnda Fríverslunarbanda- lags Evrópu (EFTA) og Evrópubandalagsins (EB) um Evrópska efna- hagssvæðið (EES) sem lauk í Brussel í gær kom fram að fulltrúar EB hyggjast leggja fram tillögur um fyrirkomulag stjórnar og ákvarð- ana sem varða EES ó næstunni. Talsmenn bandalaganna beggja sögðu að samstaða væri um hveijar reglugerða EB ættu að gilda um EES en hins vegar væri ágreiningur um hvernig ætti að fara með þá fyrir- vara sem EFTA-ríkin hafa sett fram. Fulltrúar EB hafa hafnað þeirri ar innan GATT og þess vegna sé hugmynd EFTA að tengja fyrirvar- ana hugsanlegum lausnum á sam- eiginlegri stjórn EES. Ýmislegt bendir til þess að EFTA-ríkin séu tilbúin til að nota hluta af fyrirvörum sínum sem skiptimynt í viðræðum um stjórn EES. Þá mun vera ágrein- ingur á milli EFTA og EB um þátt landbúnaðarafurða í lokasamkomu- lagi. EB hyggst á næstunni leggja fram lista yfir landbúnaðarafurðir sem það krefst greiðari aðgangs fyrir inn á markaði EFTA-ríkjanna. EFTA-ríkin hafa hins vegar vísað til þess að þau mál séu til umfjöllun- VEÐUR engan veginn tímabært að fjalla um þau heldur beri að bíða niðurstaðna þeirra viðræðna. Hannes Hafstein, aðalsamninga- maður Islands, sagði að þegar litið væri á heildarmyndina væru bein tengsl á milli efnisþátta samningsins og stjómunar EES „því fleiri fyrir- varar sem verða í gildi þeim mun minna verður til að stjóma innan EES og það giidir í rauninni um reglumar í heild. Við hljótum að setja fyrirvara um þá þætti þar sem áhrif okkar eru takmörkuð". For- senda þess að hægt sé að falla frá nokkrum af fyrirvörunum er að í staðinn komi raunveraleg áhrif á fyrirkomulag og stjóm efnahags- svæðisins. Það sem liggur fyrir er að fara nánar ofan í skilgreiningar á fyrirvöranum og finna lausnir á þeim hluta þeirra sem tengjast lífshagsmunum einstakra EFTA- ríkja og ekki verða afgreidd með aðlögunartíma eða á annan hátt. „Að sjálfsögðu geta orðið um það erfiðar samningaviðræður innan EFTA hvað á að standa eftir af kröfum einstakra EFTA-ríkja þegar samn- ingurinn um EES kemst á lokastig," sagði Hannes að lokum. Vinnuhópur sem íjallar um lög og stofnanir fær væntanlega tillögur EB til umfjöllunar á fundi 10. októ- ber og líklegt er að ráðherrar EFTA-ríkjanna verði að taka afstöðu vtil þeirra á óformlegum fundi i Genf 22.-23. október. VEÐURHORFURIDAG, 22. SEPTEMBER YFIRLIT í GÆR: Við Hjatteyjar er 982 mb tægð sem þokast austur en 1030 mb hæð er yfír Norður-Grænlandi. SPÁ: Norðan- og norðaustan gola eða katdi og smá slydduél á annnesjum austan lands. Léttskýjað sunnanlands en annars að mestu skýjað, en úrkomutaust. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á SUNNDUDAG OG MÁNUDAG: Fremur hæg norðan- og norðaustanátt. Smáskúrir noröan og austanlands en víða bjart- viðri sunnan- og vestanlands. Hiti 3 til 5 stig. Hægviöri og skýjað en úrkomuiaust. Hiti 4 tíl 6 stig. TAKN: Heiðskírt Léttskýjað Halfskyjað Skyjað Alskýjað x Norðan, 4 vindstig: Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrimar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. * / * / * / » Slydda / * / * * * * * * * Snjókoma 10° Hitastig: 10 gráður á Celsius Sy Skúrir * V El = Þoka = Þokumóða ’ , ’ Súld OO Mistur —Skafrenningur [T Þrumuveður VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. hHI ve8ur 2 rlgning 6 léttskýjað 7 sk«að Helsinki 12 skýjað Kaupmannahöfn 10 skýjað Narssarssuaq 8 skýjað Nuuk 4 alskýjað Ósló 11 skýjað Stokkhóimur 11 skúr Þórshöfn 10 hálfskýjað Algarve Amsterdam Barcelona Bðdln Chicago Feneyjar Frankfurt Hamborg Las Palmas London LosAngeles Luxemborg Madríd Mallorca Montreal NewYork Orlando París Róm Vin Washington Winnipeg 25 léttskýjað 13 úrkoma 26 mlstur 12 skýjaS 18 alskýjað 22 þokumóða 13 hólfskýjað 10 úrkoma 8 skúr vantar 15 lóttskýjað 19 alskýjað 12 skýjað 27 mistur 32 helðskýrt 32 léttskýjað 12 skýjað 14 léttskýjað vantar vantar 26 skýjað 16 rign’mg 15 skýjað 8 skýjað ÍDAGkl. 12.00 HeimHch Veöursíofa íslands (Byggt á veðurspáki. 16.151 gær) Verktakar hafa notað hvern þann dag sem þurrt hefur verið að undanförnu til að ljúka við lagfæringar á Reykjanesbrautinni, en mikil úrkoma að undanförnu hefur tafið verkið verulega. Endurbætur á Reykjanesbraut: Mikil úrkoma tef- ur framkvæmdir Keflavík. MIKIL úrkoma að' undanförnu hefur tafið talsvert lokaáfanga á þeim endurbótum sem gera á í sumar á Reykjanesbrautinni. Frá því í vor hefur verið unnið við að endurnýja slitlag og þeir kafiar sem eru með dýpstu hjólförin réttir af með malbiki. Rögnvaldur Jónsson umdæmisverkfræðingur Vegagerðar rikisins sagði í samtali við Morgunblaðið að enn ætti eftir að ljúka tveim vegarköflum, við Voga og á Strandaheiði. Einnig ætti eftir að mála miðlínu og kanta. Endurbótum á Reykjanesbraut- þeirra vega sem gerðir væru í dag inni á að ljúka á fjórum árum sam- kvæmt áætlun Vegagerðarinnar. Heildarkostnaður er áætlaður um 230 milljónir og i ár verður unnið fyrir um 76 milljónir króna. Rögn- valdur Jónsson sagði að þverhalli væri 20%, en þverhalli Reykjanes- brautarinpar hefði aðeins verið um 12-15%. í sumar hefði verið unnið að því að auka hallann í 17% og á næsta ári yrði hann svo aukinn í 20%. BB ísafjörður: Lausnarbeiðni Haraldar lögð fyrir bæjarstjórn að nýju FÉLAGSMÁLARÁÐUNEYTIÐ hefur falið bæjarstjórn ísafjarð- ar að taka að nýju til umfjöllunar lausnarbeiðni Haraldar Líndals Haraldssonar, bæjarstjóra, frá störfum bæjarfulltrúa á ísafirði þar sem ekki hafi verið tilgreint hvort um endanlega eða tíma- bundna lausn frá bæjarfulltrúa- störfum væri að ræði í fyrri sam- þykkt meirihluta bæjarsljórnar- ar. Hvorki náðist í Ólaf Helga Kjartansson, fyrsta mann á lista Sjálfstæðisflokksins á ísafirði, né Harald Lindal Haraldsson til að bera umsögn ráðuneytisins undir þá, en Kolbrún Halldórs- dóttir, sem skipaði annað sæti á lista Sjáifstæðisflokksins á ísafirði, vildi ekkert láta hafa eftir sér um málið að sinni. Kæra frá fjóram minnihlutafull- trúum bæjarstjómar ísaijarðar barst ráðuneytinu 13. júlí síðastlið- inn. í henni segir að fulltrúarnir geti ekki fallist á lausnarbeiðni Haraldar Líndals Haraldssonar frá bæjarfulltrúastörfum af tveimur ástæðum. í fyrsta lagi vegna þess að ekki hafi verið um að ræða form- legt erindi með gildum rökstuðningi um ástæður lausnarbeiðninnar og, í öðru lagi, vegna þess að ekki sé tilgreint ákveðið tímabil. 1 umsögn meirihluta bæjarstjóm- ar frá 14. ágúst segir hins vegar að lausnarbeiðnin hafi verið skrifleg og tekið er fram að hún hafi verið lögð fram með formlegum hætti fyrir bæjarstjóm sem hafi fallist á hana. Einnig segir áð beiðnin hafi verið rökstudd með pólitísku sam- komulagi þeirra framboðslista sem stóðu að meirihlutamyndun, þ.e. D og I lista, en í því samkomulagi sé gert ráð fyrir að Haraldur Líndal Haraldsson verði bæjarstjóri en ekki jafnframt bæjarfulltrúi. Síðan segir orðrétt: „Bæjarstjórn sam- þykkti að ráða Harald L. Haralds- son á kjörtímabilinu 1990-1994. Ráðningunni er ætlað að standa allt kjörtímabilið." í bréfi Félagsmálaráðuneytisins til hlutaðeigandi frá 14. september segir að ráðuneytið geri ekki at- hugasemd við fyrri kæru fulltrúa minnihlutans en málið er að nýju lagt fyrir bæjarstjórnina þar sem ekki komi fram í lausnarbeiðninni hvort hún er endanleg eða tíma- bundin. Sundahöfn: Tefltá 50 metra skákborði SÉRSTÆÐUR skákviðburð- ur fer fram á athafnasvæði Eimskips við Sundahöfn í dag, laugardaginn 22. sept- ember, klukkan 13.20. Þar munu eigast við nýbak- aður Islandsmeistari, Héðinn Steingrímsson, og sterkasti stórmeistari íslendinga um þessar mundir, Helgi Olafsson. Telft verður á 50x50 metra taflborði með sérstaklega merktum lyfturum og eru tafl- mennirnir allt að 5 metrar á hæð. Eftir því sem best verður vitað verður þessi skák fyrsta vélknúna skákin sem tefld hef- ur verið í heiminum. Þannig verður hún líka að teljast „sterkasta" skákin frá upphafi því að alls er vélarafl lyftaranna nærri 1.000 kw. Til þess að skákmeistararnir hafi yfirsýn yfir hið stóra skákborð verður þeim lyft upp í 3-4 metra hæð á lyftara. Allt bendir til þess að þessi viðburður verði skráður í heimsmetabók Guinness.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.