Morgunblaðið - 22.09.1990, Síða 25
I
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 1990
Siguijón Krístjánsson
íForsæti - Minning
Sigurjón Kristjánsson í Forsæti
lést aðfaranótt 11. september.
Hanri var þá á áttugasta og þriðja
aldursári. Siguijón var fæddur á
Minna-Mosfelli í Mosfellssveit. Ell-
efu ára flyst hann .með fjölskyldu
sinni til Hafnarfjarðar og býr þar
í þijú ár. Þá taka foreldrar hans
sig aftur upp og fara að Forsæti í
Villingaholtshreppi, sem þá var
búið að vera í eyði um eins árs
skeið, og hefja þar búskap. Siguijón
ólst þar upp, vann ýmist í búi for-
eldra sinna eða af bæ að smíðum.
Hann kyændist Kristínu Ketilsdótt-
ur frá Álfsstöðum á Skeiðum árið
1943. Þau eignuðust fjóra drengi,
Ólaf, Kristján, Albert og Ketil. Alla
tíð hélt Siguijón áfram að stunda
smíðar jafnhliða búskap.
Ég kallaði hann Siguijón minn
þótt ég ætti lítið í honum nema
þetta sem við unnum saman síðustu
fimm árin, sem hann lifði. Þegar
undirrituð hóf störf við Byggða- og
listasafn Árnesinga fékk hún Sigur-
jón til að vera sér innan handar
með viðgerðir og aðstoð eftir því
sem á þurfti að halda. Hans augum
sá ég alla leið aftur á öldina sem
leið, þegar hann sagði mér frá
móður sinni og æsku hennar, sem
hún flutti ljóslifandi til barna sinna.
Gegnum hann, gegnum hana heyrði
ég til mjaltakvennanna þegar þær
sungu í hljómfalli við strokkhljóðið
og ómurinn umvafði dulmagnaða
kletta Hrunamannahrepps í kvöld-
blíðunni árum áður en hann fædd-
ist.
Á mótunarárum sínum í Hafnar-
firði hafði Siguijón komist í náin
kynni við margvíslega verkmennt í
vaxandi kaupstað og sjávarplássi.
Hann hafði þá áráttu að vilja vita
hvernig mætti vinna sérhvert verk.
Allt sem snerist, allt verklag var
honum svo hugleikið að undrum
sætti. Hann laðaðist að smiðum og
dreijurum. Þessi forvitni gerði hann
síðar að uppfindingamanni. Hann
bjó til rokk, sem spann eins og þrír
væru og gerði allar þær lipru hreyf-
ingar sem mannshöndin fremur.
Þennan rokk mátti tengja við raf-
magnsmótor en að öllu jöfnu var
það þar, sem Siguijón dró marka-
línu áhugasviðs síns. Var meira
njótandi þegar synir hans tókust á
við furður nútímatækni. Það voru
snögg umskipti fyrir ungan dreng
að koma úr iðandi lífi Hafnarljarðar
í fámennið á sléttum bökkum Þjórs-
ár. Hann sagði sjálfur að það hefði
verið eins og ferðast marga áratugi
aftur í tímann. En í Villingaholts-
hréppi bjuggu líka annálaðir hag-
leikmenn og af þeim hélt Siguijón
áfram að læra og með þeim byggði
hann lífsstarf sitt.
Tommustokkur, það er bara fyrir
kvenfólk, sagði hann og notaði tvo
lista sem hann lagði á misvíxl. Ég
Ráðstefna um
nýjungar í
brunafræðum
RÁÐSTEFNA til kynninga á
helstu þáttum brunafræða og
nýjustu kenningum og rann-
sóknum í Svíþjóð á því sviði
verður haldin á Hótel Sögu 18.
og 19. október næstkomandi.
Brunamálastofnun hefur um-
sjón með ráðstefnunni sem eink-
um er ætluð slökkviliðsstjórum,
eldvarnareftirlitsmönnum,
verkfræðingum og arkitektum.
Fyrirlesarar verða úr hópi ís-
lendinga sem starfa eða stunda
nám í Svíþjóð á sviði brunafræða
og brunavísinda en einnig Svíar
sem standa framarlega í þessari
grein.
Þátttaka tilkynnist Brunamála-
stofnun og þar eru veittar upplýs-
ingar um þátttökugjald, sem
greiða skal fyrir 1. október.
held að honum hafi fundist ég svo-
lítið heimsk þegar hann komst að
því að ég þekkti ekki muninn á
orgeli og harmóníum, vissi ekkí
hvernig tvöfaldur fýsibelgur virkar
eða nákvæmlega hvernig rokkurinn
vindur bandið á snælduna um leið
og hann snýr upp á lopann.
Að vísu var þetta ekki mæli-
kvarði Siguijóns á þekkingu
manna, heldur hve vel þeir voru að
sér i kvæðum Stephans G. Sú
menntastofnun, sem ekki hélt uppi
þekkingu á höfuðskáldunum átti
ekki upp á pallborðið hjá honum.
Siguijón var einu sirtni að lesa fyr-
ir mig kvæði Hannesar Hafstein,
sem flutt var við vígslu Ölfusárbrú-
arinnar 1891 og í því hann fer með
fyrsta erindið segir hann að Hannes
hafi nú breytt þessu þegar bókin
var prentuð. „Hvernig veistu það,“
spurði ég. „Það var flutt öðruvísi,"
svaraði hann. Ég hváði aftur. „Ekki
hafa þeir munað kvæðið eins og
það var flutt við vígsluna,“ sagði
ég. Siguijón sagði það ekki mikið
þótt menn næðu fyrsta erindinu,
sérstaklega ef menn bæru sig sam-
an þegar heim var komið. Og svo
fór hann með erindið eins og karl-
arnir höfðu heyrt það daginn, sem
það var flutt.
Ég held að Siguijón hafi verið
gæfumaður. Hann naut æsku
sinnar, að fá að uppgötva og hand-
fjatla og hafði þessa haldgóðu
menntun alþýðumannsins, sem lær-
ir af eigin athugun. Hann kunni
að snúa ósigrum upp í sigra í lífi
sínu. Heiðarleiki og skynsemi voru
leiðarljósin, og hann átti því láni
að fagna að sjá Ijölskyldu sína vaxa
og setjast að ailt í kring um hann
og dafna þar. Ljóðlistin, smíðar og
uppfindingar urðu til að lyfta huga
hans á flug yfir sand og mold,
amstur daganna og óumflýjanlegar
sorgir.
Ég sá Siguijón síðast nokkrum
klukkutímum áður en hann kvaddi.
Hann hafði verið sendur heim af
kartöfluakrinum og sagt að hlífa
sér. Það vár á honum að heyra að
honum fyndist það óþarfi og hann
fór með mig niður í galdrasmiðjuna
sína þar sem rokkar biðu viðgerðar
og hann sýndi mér hvernig hjólin
voru samsett. Svo stóð hann á
tröppunum og veifaði þegar ég fór.
Samt var það hann, sem var að
fara. En svo mikið er Siguijón bú-
inn að kenna mér um snúningsása
og tannhjól að ég skil af hverju
hann, sem veitti mér svo djúpa hlut-
deild í fortíðinni, er farinn á undan
mér inn í framtíðina, því tíminn
ferðast ekki beint frekar en annað.
Hildur Hákonardóttir
SKVISA
VARD OFANÁ
ÚRSUT í VERÐLAUNASAMKEPPNI VÍFILFELLS hf.
ÞESSIR UNNU GLÆSILEG
GIANT FJALLAREIÐHJÓL FRÁ MARKINU
Kristbjörn Gunnarsson, Kolgeröi 1.
Grétar Franklínsson, Maríubakka 32.
ÞESSIR UNNU COKE BAÐSTRANDARHANDKLÆÐI
Lilja Ómarsdóttir, Laugabóli 2
Þórunn Benediktsdóttir, Kleppsvegi 138
Guðmundur H. Guðmundsson, Teigaseli 7
Jónína Marteinsdóttir, Breiðvangi 20
Einar Farestveit, Hvannalundi 19
Jóhannes Ó. Jóhannesson, Blikanesi 8
Sigurbjörg Linda Ævarsdóttir, Fellsmúla 8
Ævar Guðmundsson, Fellsmúla 8
Edda Guðrún Ævarsdóttir, Fellsmúla 8
Anna Ó. Óskarsdóttir, Brekkubraut 16
Súsanna Rós Westlund, Einarsnesi 78
Hulda B. Nóadóttir, Hlíðarhvammi 3
Úlfar B. Aspar, Flyðrugranda 10
Reynir Ari Guðróðsson, Langholtsvegi 86
Katrín Atladóttir, Efstasundi 8
Júlíana S. Helgadóttir, Sæviðarsundi 27
Brynhildur Pólmarsdóttir, Álfaskeiði 117
Sigurður Haukdal, Hléskógum 6
Brynhildur Björnsdóttir, Dverghömrum 22
Árni B. Árnason, Vesturströnd 22
Jónína Brynjólfsdóttir, Brekkulæk 4
Ingi Rúnar Jónsson, Laugarbóli
Hilmar Björgvinsson, Skeiðarvogi 29
Björn Óskar Vernharðsson, Dalseli 3
Magnús Aðalbjörnsson, Ásabyggð 18
Kristín Arnardóttir, Framnesvegi 30
Árni Davíðsson, Hraunbraut 14
Þórunn Arnaldsdóttir, Veghúsastíg 1A
Thelma Ögn Sveinsdóttir, Skógarlundi 11
Vilhjólmur Karl Haraldsson, Fannafold 122
Franklín Grétarsson, Maríubakka 32
Kristín Gunnlaugsdóttir, Maríubakka 32
Tryggvi B. Davíðsson, Hjarðarhaga 26
Charlotta Karlsdóttir, Furugrund 26
Auður Jóhannsdóttir, Bórugranda 5
Hulda Guðmundsdóttir, Fiskakvísl 4
Hafdís Eyjólfsdóttir, Stekkjarhvammi 20
Auður Pólmarsdóttir, Álfaskeiði 117
Kristín R. Kristinsdóttir, Grundartanga 17
Sævar Bjarki Einarsson, Dvergholti 1
ÞESSIR UNNU IÞROTTATOSKU
Hjörleifur A. Waagfjörð, Breiðvangi 6
Jón K. Waagfjörð, Breiðvangi 6
Stefón Helgi Waagfjörð, Breiðvangi 6
Ingibjörg Ólafsdóttir, Brekkustíg 10
Árný Birgisdóttir, Dalsbyggð 9
Stefón Hreiðarsson, Fjörugranda 2
Sigurbjörg Jóhannesdóttir, Mýrarseli 6
Kristbjörg Sigurðardóttir, Grenigrund 28
Pétur Hreinsson, Langagerði
Einar Kristjónsson, Brekkubæ 39
Sigþór Magnússon, Klébergi
Viggó Þórisson, Hólabraut 13
Sólveig Sigurðardóttir, Eyrarvegi 26
Sigurbergur Kórason, Álfheimum 64
Guðný H. Sederhólm, Víðigrund 61
Harrý Kjærnested, Laugarnesvegi 118
Hreiðar Gíslason, Hjallabraut 52
Soffía Erla Stefónsdóttir, Reynimel 60
Kjartan Pétursson, Dvergholti 14
Guðmundur Björnsson, Seilugranda 6
Guðbjörg Þórisdóttir, Leifsgötu 15
Stefón Melsted, Nesvegi 47
Dagbjört Erla Einarsdóttir, Giljaseli 9
Rósa Atladóttir, Miðtúni 7
Vilhelmína Böðvarsdóttir, Miklubraut 42
Sandra Dís Steinþórsdóttir, Skjólbrekku
Skarphéðinn Freyr Ingason, Skjólbrekku
Nanna Gunnarsdóttir, Nónvörðu 1
Anna M. Guðjónsdóttir, Frakkastíg 12a
Tinna María Magnúsdóttir, Birtingakvísl 40
Magnús Loftsson, Hjallabraut 58
Haraldur Haraldsson, Hofslundi 13
Þorsteinn K. Sölvason, Efstasundi 38
Smóri Valgeirsson, Kleppsvegi 138
Þórunn Benediktsdóttir, Kleppsvegi 138
Viggó Þórisson, Hólabraut 13
Sólrún Ósk Lórusdóttir, Ingólfsstræti 12
Brynjólfur Jónsson, Brekkulæk 4
Guðný F. Árnmarsdóttir, Varmalandi
Gunnar Jónsson, Hverafold 50
A TIMABILINU SELDUST 22080 SKVISUR