Morgunblaðið - 22.09.1990, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 1990
Velkomin
á opnunarfagnað
íslandsbanka
að Skipagötu 14
mánudaginn 24.
Ujlug pjonusta a einum stao
Vegna sameiningar afgreibslustaöa Islandsbanka
á Akureyri hefur verib unnib ab endurskipulagningu og
breytingum á húsnœbi bankans vib Skipagötu. Því starfi
er nú lokib.
Tilgangurinn meb sameining- ) ■.. ..
unni er ab ná fram aukinni hagrœb-
ingu og bjóba betri fjármálaþjónustu
í öflugum ísiandsbanka á Akureyri.
Bankinn mun áfram starfrœkja
afgreibsiu ab Hrísalundi la.
Af þessu tilefni bjóbum vib
núverandi og nýja vibskiptavini vel-
komna á opnunarfagnab mánudaginn
24. september.
Vib verbum meb ýmislegt á bobstólum. Veitingar
fyrir alla, Óskar og.Emma verba á stabnum milli kl.
13.00 og 15.00. Starfsfólk íslandsbanka gefur stunda-
skrár, límmiba og veggspjöld og svo
geta allir tekib þátt íiaufléttum
spurningaleik þar sem í verblaun eru
fimm 10.000 króno innlegg á
Sparileib I /' íslandsbanka.
Cerbu þér dagamun á mánudaginn
og láttu sjá þig milli kl. 9.15 og 16 ab Skipagötu 14!
ISLANDSBANKI
- í takt við nýja tíma!
MelsölMaö á hvetjum degi!
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Þrengingar settar á Skarðshlíð
Verið er að gera breytingar á Skarðshlíðinni, en hiuti götunnar verð-
ur þrengdur þannig að eftir að framkvæmdum lýkur verður ekki
hægt að leggja bifreiðum við götuna. Gunnar Jóhannesson deildar-
verkfræðingur hjá Akureyrarbæ sagði að með þessum aðgerðum
væri verið að koma til móts við óskir íbúa götunnar, sem sendu á
síðasta ári undirskriftalista til forráðamanna bæjarins. Þar var þess
farið á leit að stórum bifreiðum yrði ekki heimilt að leggja við göt-
una og að dregið yrði úr hraðakstri. Þá verða einnig settar upp þijár
hraðahindranir á svokölluðum Skarðshlíðarhring, við stíg austan
raðhúsa við Litluhlíð, á gangbraut við verslunarmiðstöðina Sunnuhlíð
og á gangbraut við hús númer 17 við Höfðahlíð. íbúar í Hlíðahverfi
höfðu óskað eftir úrbótum í gangbrautamálum.
Flugtak hf:
Flugvélakaup á döfirmi
FLUGTAK hf. hefur hug á að
bæta einni flugvél við flota sinn,
en ekki er ákveðið hvort af kaup-
um verður fyrir áramót eða næsta
surnar.
Skúli Agústsson hjá Heldi hf. sem
á Flugtak sagði fyrirsjáanlegt að
bæta þyrfti við flugvél. Flugrekstur-
inn hefði gengið mjög vel í sumar
og nýting sæta verið afar góð. „Það
er ljóst að við þurfum að bæta við
okkur vél, en hvort af kaupum verð-
ur núna fyrir áramót, eða við bíðum
fram að næsta sumri um það höfum
við ekki tekið ákvörðun."
Skúli sagði að mikið hefði verið
að gera í flugi á vegum félagins
síðasta sumar, fyrst og fremst leigu-
flugi með ferðamenn. Fyrirtækið rek-
ur bílaleigu og sagði hann að mikið
væri um að ferðamenn leigðu bíl og
kaupi þá dagsferð í flugi út um
landið.
„Það var ágæt nýting hjá okkur
í sumar og það gefur okkur vísbend-
ingu um framhaldið, þannig að fyrir-
sjáanlegt er að við munum bæta við
okkur flugvél,“ sagði Skúii. Flugtak
á ellefu flugvélar, þar af sex kennslu-
vélar, en þær vélar sem notaðar eru
í leiguflugi er frá fimm sæta upp í
fimmtán.
Bæjarráð:
Sótt um bygg-
ingu 66 félags-
legra íbúða
BÆJARRÁÐ Akureyrar sam-
þykkti á fundi í fyrradag að sækja
um heimild til byggingar 66 fé-
lagslegra íbúða á næsta ári, en
það er sama magn og byggt, er á
þessu ári.
Sigurður J. Sigurðsson formaður
bæjarráðs sagði að miðað við eðlilega
þróun teldu menn að byggja þyrfti
þennan ij'ölda íbúða. „Ibúðarbygg-
ingar virðast fyrst og fremst vera á
þessu sviði og því ástæða til að halda
þar eins öflugum framkvæmdum og
mögulegt er,“ sagði Sigurður.
Nýr og betri
fjölnýtiketill
til kyndingar með rafmagni,
olíu eða timbri.
Margar gerðir.
Mjög góó hitanýting og
möguleiki ó stýrikerfum, til
að fá jafnara hitastig.
C.T.C Regent er öflugur nýr
ketill fyrir rafmagn, timbur
og olíu með innbyggðu
álagsstýrikerfi, sem nýtir vel
rafmagnió fyrir þá sem
kaupa árskílóvött.
Dæmi: C.T.C. Regent
kw
Rafmagn...........15,75
Viður.............15-20
Olía..............15-20
LJOSGJAFINN HF.
Akureyri,
Gránufélagsgötu 49
sími 96-23723.
Einar Farestveit&Co.hf.
Borgartúni 28, símar: (91)622900 og 622901 - Næg bílastæði