Morgunblaðið - 22.09.1990, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 22.09.1990, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. SEFl'EMBER 1990 29 Minning: Signrður Lúðvíks son, Neskaupstað Fæddur 21. desember 1904 Dáinn 12. september 1990 Þann 12. september sl. andaðist tengdafaðir minn Sigurður Lúðvíksson. Sigurður bjó alla sína tíð í Neskaupstað og helgaði sjón- um og störfum honum tengdum starfskrafta sína. Hann fæddist 21. desember 1904 í „Gamla Lúðvíkshúsi", sem mun vera elsta húsið í Neskaupstað sem enn stendur, upphaflega byggt 1881 af Norðmönnum. Foreldrar Sigurð- ar voru þau Ingibjörg Þorláksdótt- ir frá Þórukoti á Álftanesi og Lúðvík S. Sigurðsson útgerðar- og verslunarmaður, sem fæddur var á Djúpavogi. Lúðvík og Ingibjörg eignuðust alls 11 börn og var Sig- urður þar í miðjunni. Átti 5 systk- ini eldri og 5 yngri. Lúðvík var einn af frumkvöðlum í útgerð í Neskaupstað en árið eft- ir að Sigurður fæðist, eða 1905, koma fyrstu vélbátarnir til Norð- fjarðar og átti Lúðvik einn þeirra. Oll ijölskyldan vann saman að út- gerðinni og versluninni, sem dafn- aði vel á fyrstu áratugum aldarinn- ar. Árið 1913 reisti Lúðvík nýtt og reisulegt íbúðarhús við hlið þess gamla á Neseyrinni og hefur það ávallt síðan gengið undir nafninu „Lúðvíkshús“. Þangað fluttist fjöl- skyldan og þar bjó Sigurður það sem eftir var ævinnar eða í tæpa átta áratugi. Mál skipuðust nefni- lega þannig, að strax og Sigurður hafði aldur til gerðist hann formað- ur á bátum föður síns og tók síðar meir við útgerðinni. Að sögn kunn- ugra var Sigurður ósérhlífinn, harðsækinn og fiskinn skipstjóri. Hann var harður við sjálfan sig og aðra en ávallt vinsæll. Sigurður stundaði útgerð fram yfir 1950 en seldi þá bát sinn og fór i land. Hann hóf þá störf hjá Dráttarbrautinni og vann þar allt þar til fyrir fjói’um árum og þá nokkuð'kominn á níræðisaldurinn. Hann hélt þannig tengslum við sjó- inn, því verkefni Dráttarbrautar- innar tengdust mest útgerðinni. Þann 20. apríl 1935 gekk Sig- urður að eiga Serenu Stefánsdótt- ur frá Neskaupstað, dóttur hjón- anna Stefáns Stefánssonar kaup- manns og Önnu Karenar Stefáns- dóttur. Þau hófu búskap í Lúðvíks- húsi og bjuggu þar saman í far- sælu hjónabandi í rúm 55 ár. Oft var mannmargt í heimili hjá þeim hjónum, sérstaklega meðan út- gerðin var stunduð. Fyrstu árin voru þau í sambýli með foreldrum Sigurðar eða þar til Lúðvík dó árið 1941 en síðar komu foreldrar Ser- enu inn á heimilið. Sigurður og Serena eignuðust ijögur börn: Önnu Karen, Lúðvík Ingibjörgu og Berthu. Barnabörnin eru níu og Sigurður náði því að verða langafi rúmum mánuði áður en hann dó. Velferð fjölskyldunnar var ávallt í fyrirrúmi hjá þeim hjón- um og þeirra mesta ánægja var að geta stutt börn sín eða aðstoðað ef á þurfti að halda. Ég kom fyrst á heimili Sigurðar og Serenu fyrir 15 árum og frá þeim tíma hefur Lúðvíkshús verið mér sem annað heimili. Mér leið alltaf vel þegar ég var sestur niður með Sigurði og hann fór að ræða við mig sín hugðarefni, sem flest voru tengd sjónum. Hann talaði um gamla tímann, þegar hann gerði út. Til dæmis þegar hann gerði út á vetrarvertíðum frá Hornafirði. Og allt fram á síðustu ár fylgdist hann með fiskiríinu hjá bátum og togurum frá Norðfirði og lifði sig inn í gang mála. Að leiðarlokum vil ég þakka tengdaföður mínum þann vinar- hug, sem hann ávallt sýndi mér og aldrei bar skugga á. Fyrir mig var það mikið lán að ná að kynn- ast svo lífsreyndum, góðum og velviljuðum manni sem Sigurður Lúðvíksson var. Tengdamóður minni og börnum þeirra hjóna votta ég mína dýpstu samúð. Hermann Guðjónsson Sigurður Lúðvíksson skipstjóri og útgerðarmaður á Neskaupstað er látinn. Við sjáum þar á bak drengskaparmanni, sem allir þeir, er honum kynntust, minnast með hlýhug. Sigurður var fæddur á Neskaup- stað 1904 á þeim árum, sem sagt hefur verið, að hafi verið bezt í sögu íslensku þjóðarinnar. Þá var þjóðin að tileinka sér nýja tækni — ekki sízt við sjávarsíðuna, þar sem útgerð óx og fiskiþorp urðu til hvert af öðru. Segja má, að Sigurð- ur hafi af lífi og sál tekið þátt í þeirri framvindu allri, eins og hún gerðist á þessari öld, allt til síðasta dags. Foreldrar Sigurðar voru þau Lúðvík SigUrður Sigurðsson út- gerðarmaður og kaupmaður á Nes- kaupstað, ættaður frá Djúpavogi, og Ingibjörg Þorláksdóttir, ættuð 'af Suðurnesjum. Lúðvík hafði snemma gefið sig að útgerð, og reyndist hygginn og farsæll at- hafnamaður. Fyrst eignaðist hann árabát með segli og reiða, sem hann hafði til fiskveiða, því að síldargöngur gengu á þessum árum inn í firðina. Brátt var keypt- ur stærri bátur með glóðarhaus- vél, og þannig færði hann út kvíarnar. Þau Ingibjörg gengu í hjónaband 1897 og eignuðust stór- an hóp 11 barna. Sigurður var þar sjötti í röðinni. Útgerð Lúðvíksfjölskyldunnar óx hratt á þessum árum, hvort heldur það var fiskveiðarnar sjálfar eða landvinnan við beitingu, fiskaðgerð eða saltfiskbreiðslu í sólinni. Helzta einkenni þessarar íjölskyldu voru að líkindum vinnu- semi og samheldni. Um móður Sig- urðar, Ingibjörgu, var sagt, að hún hefði unnið á við þijá. Lúðvík Sig- urður var hins vegar hinn hyggni og hagsýni stjórnandi, sem með lagni fékk alla til að sinna verkefn- um sínum með glöðu geði. í hinu stóra Lúðvíkshúsi, sem enn gengur undir því nafni, var mikið líf, því að margt fleira fólk starfaði að útgerðinni og var þar í fæði og hafði þar húsnæði. Og þar var einnig oft glatt á hjalla, því að Lúðvík Sigurður keypti af frönsk- um sjómönnum takkaharmonikku, og spilaði gjarnan skottís og ræl fyrir heimilisfólkið í hinu stóra eld- húsi. Þegar systkinin uxu úr grasi, hurfu þau öll nema Sigurður til annarra starfa í þjóðfélaginu. Að- eins 6-7 ára hafði hann verið sett- ur upp á kassa til að stokka upp og beita ásamt systkinum sínum. Þar kepptust allir, jáfnt ungir sem gamlir, við vinnuna. Og snemma varð hann einnig hneigður fyrir sjósóknina sjálfa — einn sinna systkina, enda var hann mjög þróttmikill til allra verka. Líktist hann að því leyti afa sínum, Sig- urði Eiríkssyni skipstjóra á Eski- firði, sem hefur verið talinn einn mesti sjómaður Austijarða á síðustu öld. Hann var ekki nema 16 ára, þegar hann var orðinn for- maður á bát föður síns, mb. Gylfa. Síðar varð hann formaður á Hilmi, 23 tonna bát, og gekk sú útgerð feiknvel. Reyndist Sigurður mjög fiskinn, svo að miklar sögur fóru af. Skömmu eftir að útvarpið tók til starfa um 1930, var frá því sagt í fréttum, að Sigurður hefði aflað á Hilmi 1000 skippund þá um sumarið af þurrkuðum fiski til útflutnings á Spán. Tengsl hans við sjávarútveginn gerðu það að verkum, að hann einn kvaddi aldrei Neskaupstað, heldur bjó þar ásamt fjölskyldu sinni allt til æviloka. Nú eru öll systkinin fyrir löngu flutt suður á mölina í Reykjavík. Hin systkinin höfðu annað hvort gifzt burt eða valið sér annað lífsstarf. Kom það m.a. til af því, að afkomumöguleikarnir á Neskaupstað voru þröngir. Sig- urður tók því við útgerðinni, þegaf faðir hans andaðist upp úr 1940, og-hélt henni áfram. Árið 1935 gekk Sigurður að eiga Serenu Stefándóttur, glæsilega konu, sem lifir mann sinn. Hefur hjónaband þeirra alla tíð verið mjög gott. Faðir hennar var Stefán Stefánsson, sem ættaður var úr Loðmundarfirði. Stefán var kaup- maður á Neskaupstað. Hann átti m.a. frumkvæði að stofnun Spari- sjóðsins á Neskaupstað. Mun sá sparisjóður nú vera eini sparisjóð- urinn á Austíjörðum, sem ekki hefur verið af lagður. Móðir Serenu var Anna Karen, dóttir Knut Bakke, sem komið hafði frá Staf- angri í Noregi. Sigurður var hlýr maður í fasi — skemmtilegur, hreinskiptinn og einlægur. Hann var og bamgóður. Minnast frændur hans og frænkur af yngri kynslóðinni þess úr barn- æsku sinni, að þar var ósvikinn frændi á ferð, þegar hann bar að garði. Og hann var að því leyti líkur föður sínum, að honum hélzt nvjög vel á mannskap. Allir vildu vera í vinnu hjá honum. En Sigurður hafði einnig áhuga á grundvallar- spurningum þjóðmála. Og nokkur afskipti hafði hann því af bæjar- málum á Neskaupstað. Sem maður einstaklingsfrelsis og einkafram- taks var hann alla tíð svarinn and- stæðingur rauða meirihlutans á Norðfirði. í nokkur ár sat hann í bæjarstjórn Neskaupstaðar fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Þótti honum gerast æði þröngt fyrir dyrum, þegar atvinnulíf á staðnum var að meira eða niinna leyti komið í íjötra hins opinbera, en það aftraði honum ekki að bjóða rauðliðunum birginn. Þeim Serenu varð fjögurra barna auðið, sem öll eru uppkomin dugandi fólk. Þau eru Anna Kar- en, f. 14. febrúar 1936, sem býr í Walnut Creek í Kaliforníu, gift Arthur F. Billy vélaverkfræðingi ættuðum frá Líbanon og eiga þau tvö börn; Lúðvík, f. 23. febrúar 1940, flugstjóri, sem flogið hefur síðustu 30 árin um allan heim, en býr nú á Seltjarnarnesi og er kvæntur Brendu Isobel Mitchell, ættaðri frá Englandi. Þau eiga fjóra drengi; Ingibjörg, f. 24. febr- úar 1948, sem er gjaldkeri hjá Kaupfélaginu á Neskaupstað og á eina dóttur, Önnu Karen Símonar- dóttur, og Berta, f. 10 apríl 1948, sem er tungumálakennari, gift Hermanni Guðjónssyni vita- og hafnamálastjóra. Þau eiga tvö börn. Nú á vegamótum, þar sem leiðir skilja, vitum við, að Sigurður hefur verið mikill gæfumaður í lífinu. Hann var alltaf ánægður með sitt hlutskipti. Og síðustu árin, þegar hann hafði sjálfur sagt skilið við sjóinn og fengið sér rólegra starf hjá Dráttarbrautinni á Neskaup- stað, síðast sem lagermaður, var það hans líf og yndi að fylgjast með útveginum þar á staðnum, jafnt hjá litlu trillubátunum sem hjá stóru skuttogurunum. Við sjó- inn var hann með allan hugann. Hann bar gæfu til þess að slíta aldrei böndin við upphaf sitt. Ég votta Serenu, eiginkonu Sigurðar, börnum og tengdabörnum samúð mína á skilnaðarstundu. Sigurður Gizurarson FÉLAGSSTARF Mýrarsýsla Aðalfundur sjálfstæðisfélags Mýrarsýslu verður haldinn mánudaginn 24. septem- ber í Sjálfstæðishúsinu, Brákarbraut, Borgarnesi, kl. 20.30. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Önnur mál. Formaður. Auglýst eftir framboðum til prófkjörs á Austfjörðum Ákveðið hefur verið að prófkjör um val frambjóðenda Sjálfstæðis- flokksins I Austurlandskjördæmi við næstu alþingiskosningar fari fram 27. október nk. Val frambjóðenda fer fram með tvennum hætti: a) Gerð skal tillaga um frambjóðendur til prófkjörnefndar innan ákveðins frests, sem nefndin setur. Tillagan er þvi aðeins gild að hún sé bundin við einn flokksmann og getur enginn flokksmað- ur staðið að fleiri tillögum en 4. Tillagan skal borin fram af 20 flokksmönnum búsettum í kjördæminu. b) Prófkjörsnefnd er heimilt að tilnefna prófkjörsframbjóðendur til viðbótar frambjóðendum skv. a-lið eftir þvi sem þurfa þykir. Hér með er auglýst eftir framboðum til prófkjörs skv. a-lið hér að ofan. Skal framboðið bundið við flokksbundinn einstakling, enda liggi fyrir skriflegt samþykki hans að hann gefi kost á sér til prófkjörs. Frambjóðendur skulu vera kjörgengir í næstu alþingiskosningum. 20 flokksbundnir sjálfstæðismenn búsettir í Austurlandskjördæmi skulu standa að hverju framboði. Enginn flokksmaður getur staðið að fleiri framboðum en 4. Framboöum þessum þer að skila, ásamt mynd af viðkomandi og stuttu æviágripi, til formanns prófkjörsnefnd- ar, Jónasar Þórs Jóhannssonar, Brávöllum 9, 700 Egilsstöðum, eigi síðar en kl. 12.00 á hádegi 12. október nk. Prófskjörsnefnd Sjálfstæóisflokksins i Austurlandskjördæmi. Sjálfstæðisfélag Kópavogs Almennur félagsfundur verður haldinn i Hamraborg 1, 3. hæð mánudaginn 24. september kl. 20.30. Gestur fundarins verður Ólafur G. Einars- son, alþingismaður. Félagsmenn eru hvattir til að mæta. Stjórnin. Auglýst eftlr framboðum til prófkjörs á Vestfjörðum Ákveðið hefur verið aö prófkjör um val frambjóðenda Sjálfstæðis- flokksins í Vestfjarðarkjördæmi við næstu alþingiskosningar fari fram 27. október nk. Val frambjóöenda fer fram með tvennum hætti: a) Gerð skal tillaga um frambjóðendur til kjörnefndar innan ákveðins frests sem nefndin setur. Tillagan er því aðeins gild að hún sé hundin við einn flokksmann og getur enginn flokksmaður staðið að fleiri tillögum en 4. Tillagan skal borin fram af 20 flokksmönn- um búsettum í kjördæminu. b) Kjörnefnd er heimilt aö tilnefna prófkjörsframbjóðendur til viðbót- ar frambjóðendum skv. a-lið, eftir því sem þurfa þykir. Hér með er auglýst eftir framboðum til prófkjörs skv. a-lið hér að ofan. Skal framboð vera bundið við flokksbundinn einstakling enda liggi fyrir skriflegt samþykki hans um að hann gefi kost á sér til prófkjörs. Frambjóðendur skulu vera kjörgengir i næstu alþingiskosn- ingum. 20 flokksbundnir sjálfstæðismenn búsettir í Vestfjarðakjör- dæmi skulu standa að hverju framboði. Enginn flokksmaður getur staðið aö fleiri framboðum en 4. Framboðum þessum ber að skila, ásamt mynd af viðkomandi og stuttu æviágripi, til formanns kjörnefndar, Einars Odds Kristjánsson- ar, Sólbakka, Önundarfirði, 425 Flateyri, eigi síöar en kl. 12.00 á hádegi 12. október nk. Kjörnefnd kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins á Vestfjörðum. Garðabær Aðalfundur Hugins, FUS Aðalfundur Hugins, félags ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ, verð- ur haldinn mánudaginn 24. september kl. 20.00 í Lyngási 12. Dagskrá: 1. Skýrsla stjórnar. 2. Reikningar félagsins. 3. Lagabreytingar. 4. Kosning formanns, stjórnar, fulltrúaráðs, fulltrúa í kjördæmisráð og tveggja endurskoðenda. 5. Viktor B. Kjartansson, formaöur kjördæmasamtaka ungra sjálf- stæðismanna i Reykjaneskjördæmi ávarpar fundinn. 6. Önnur mál. Fundarstjóri Sigurður Bernhöft. Stjórn Hugins. Rangæingar Framhaldsfundur vegna stofnunar sjálfstæðisfélags í vestanverðri Rang- árvallarsýslu verður haldinn i Laufafelli á Hellu miðvikudaginn 26. september kl. 21.00. Þorsteinn Pálsson og Eggert Haukdal mæta á fundinn. Sjálfstæðisfólk úr Rangárvallarhreppi og hreppunum vestan ytri Rangár er hvatt til að mæta og gerast stofnfélagar. Undirbúningsnefndin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.