Morgunblaðið - 22.09.1990, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 1990
41
Óréttlátur dómur
Til Velvakanda.
Það er ekki að tvöfalda siðgæðinu
að spyija. Þegar lúsþægu og hund-
hlýðnu hundgreyi verður á að hlýða
kúgara sínum, sem því hafði verið
kennt alla tíð frá fæðingu með bar-
smíðum og öðrum góðum siðum af
hálfu „góðs hundaeigenda", þá er
sem sagt hundurinn aflífaður en eig-
andinn (?) aðeins áminntur fyrir til-
tæki sitt.
Ekki svo að skilja að mér finnist
bara ágætt að siga hundum á lög-
regluna þegar þessir dónar sumir
hveijir eru að kássast upp á borgar-
ana að óþörfu (sem þúsund dæmi
eru um), þá samt er það hræsni í
hæsta máta af löggæslu og dóms-
kerfinu að aflífa hundinn þegar sann-
að þótti að vesalings málleysinginn
var aðeins að hlýðnast skipunum eig-
enda sinna (kúgara oftast — einkum
og sér í lagi séð frá sjónarhóli hunds-
ins).
Fram kom einnig í fréttum að
hundurinn hafi verið hið mesta mein-
leysisgrey og verið þægur og hlýðinn
húsbónda sínum í hvívetna. Þess
undarlegra eru þessar ofstopaað-
gerðir lögreglunnar.
Samkvæmt þessu á að setja allar
bifreiðir sem valda manntjóni í um-
ferðinni í bræðslupottinni hið snar-
asta, en ökumenn þeirra aðeins að
Köttur í óskilum
á Seilugranda
Þessi högni hefur verið í óskilum
á Seilugranda sl. tvær vikur. Hann
fannst ómerktur en með bláa hálsól.
Ef einhver kannast við köttinn sinn
á myndinni, vinsamlegast hringið í
síma 627227.
áminna í mesta lagi. Ekki verður
annað séð af þessu.
Auðvitað átti því að svæfa hund-
eigandann en ekki hundinn úr því
dómskerfíð þarf á annað borð alltaf
að vera að svaefa einhveija.
Eg mótmæli þessari hræsni fyrir
hönd allra hunda og málleysingja
heimsins. Það er hætt við að löggjöf
heimsins væri ekki svona tvöföld ef
ekki kæmi til þessi aðskilnaðarstefna
mannsins gagnvart hinum dýrunum.
Eða hvar eru stjórnmálamenn hinna
dýranna og málfrelsi þeirra? Ég hef
ekki rekist á þá í sölum heimsins þar
sem löggjöf heimsins er rædd og sett.
Að lokum legg ég til að hætt verði
að nota orðið hundur og hundingi í
neikvæðri merkingu nema yfir
hundaeigendana sjálfa. Einkum þeg-
ar þeir rækja húsbóndahlutverk sitt
í stíl við þennan dóna sem sigaði
blásaklausa og undirgefna hundinum
sínum á löggúna í eigin fylleríi og
svínaríi. (Það er nú annars móðgun
líka við svínin að bendla svona dóna
við þau.)
Magnús H. Skarphéðinsson
Sjómenn: Á neyðarstundu er ekki tími til lesninga. Kynnið
ykkur því í tíma hvar neyðarmerki og björgunartæki eru
geymd. Lærið meðferð þeirra.
Þú
spaiar
meó
= HEÐINN =
VÉLAVERSLUN, SÍMI 624260
SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA-LAGER
9-1100 hestófl
YANMAR vélarnar eru ein-
staklega léttar og fyrir-
ferðarlitlar og þekktar fyrir
vandaða hönnun og mikla
endingu.
Eigum á lager og væntan-
legar.
Gerd 4LH: 110,140 og
170 hö.
Gerð4JH:41,52,63og74hö.
Hagstætt verð.
Sala- Ráðgjöf - Þjónusta
MERKÚR HE
Wesper h itabl.ásarar
SnyderGeoerol Corporotion
í rúman aldarfjórðung hafa WESPER hitablásarar verið í fararbroddi
hér á landi végna gæða og hagstæðs verðs.
Þeir eru sérhannaðir fyrir hitaveitu.
Pípur í elementum eru
nú smíðaðar úr nýrri málm-
blöndu, sem er snöggt um
sterkari en áður.
Eftirtaldar stærðir eru nú fyrirliggjandi:
6235 8775 k.cal. 900 sn./mfn. 220V 1 fasa
15401 / 12670 k.cal. 1400/900 sn./mín. 380V 3ja fasa
20727/ 16370
22384/ 18358
30104/24180
WESPER UMBOÐIÐ,
Sólheimum 26,104 Reykjavík. Sími 91-34932.
Piannjatí^ þakstðl
Aðrír helstu sölu- og
þjónustuaðilar:
Blikksmiðjan Funi sf, Kópavogi,
simi 78733.
Blikkrás hf, Akureyri,
sími 96-26524.
VélaverkstaBði Bjöms og Kristjáns,
Reyðarfirði, sími 97-41271.
Véiaverkstæðið Þór,
Vestmannaeyjum, sími 98-12111
Hjáokkurfænðuallar
nýjustu gerðir hins vinsæla
og vandaða þakstáls
ftó Hannja. Clrval lita
og mynstra, m.a. Ptannja
jiakstál með mattri iitaáferð,
svartri eða tígulrauðri.
ÍSX/ÖFA HF.
Dalvegur 20 Kópavogur
Pósthólt 435 • 202 Kópavogur
Sími 91-670455 • Fax 670467