Morgunblaðið - 12.10.1990, Blaðsíða 1
72 SIÐUR B/C/D
STOFNAÐ 1913
231. tbl. 78. árg.
FOSTUDAGUR 12. OKTOBER 1990
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Reuter
Kommúnismanum mótmæltíPrag
Tugþúsundir manna söfnuðust saman í miðborg Prag í gær til að krefjast þess að kommúnistaflokkur
landsins yrði bannaður og þingmönnum hans vikið af þingi. Verkamenn og verkalýðsfélög skipulögðu
mótmælin eftir að Vasil Mohorita, leiðtogi kommúnista, hafði lagt til að stofnaðar yrðu að nýju flokkssellur
í verksmiðjum landsins. Á spjaldinu á myndinni stendur: Vaknið og beijist eða vaknið dauðir!“ og „Til
fjandans með kommúnismann!11.
Spenna magnast
enn í Jerúsalem
Öryggisráð SÞ frestar atkvæða-
greiðslu um fordæmingu á Israela
Sameinuðu þjóðunum, Jerúsalem. Reuter, dpa.
PALESTÍNSK ungmenni áttu í átökum við lögreglu í Jerúsalem
í gær ér spenna magnaðist enn við Musterishæðina í borginni,
helgistað þriggja af helstu trúarbrögðum heims. Um tvö hundruð
palestínskar konur gengu með hvíta klúta um hálsinn um hæðina
þar sem réraelskar öryggissveitir drápu 21 Palestínumann á
mánudag. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna reyndi enn að ná sam-
komulagi um fordæmingu á manndrápin sem arabaríkin gætu
sætt sig við.
Hundruð Palestínumanna efndu
til mótmæla við Kirkju hinnar heil-
ögu grafar í Jerúsalem, einn' af
helgustu stöðum kristinna manna.
Um 2-300 ungmenni tóku að hrópa
vígorð í kirkjunni og gengu síðan
að innganginum að Musterishæð-
inni. Átök brutust út þegar lögregl-
an meinaði þeim inngöngu. Á sama
tíma söfnuðust þúsundir gyðinga
saman við Grátmúrinn.
Samkomulag um fordæmingu á
Sameining Þýskalands leiðir í ljós stórfelldar njósnir kommúnista:
Yfirvöld hafa hendur í
hári fleiri Stasi-manna
Bonn. Reuter, dpa.
SKÝRT var frá því í Bonn í gær að njósnararnir átta sem handtekn-
ir voru í Þýskalandi á miðvikudag, hefðu fengið austur-þýskum og
sovéskum leyniþjónustumönnum í hendur hernaðarleyndarmál og
margvíslegar leynilegar upplýsingar, einkum á sviði varnarmála.
Voru þeir sagðir hafa verið á mála hjá austur-þýsku öryggislögregl-
unni Stasi í áratugi, sá elsti í 30 ár. Sérfræðingar telja þetta eitt
alvarlegasta lyósnamál í sögu Þýskalands eftir síðari heimsstyijöld-
ina. Tveir njósnarar til viðbótar voru handteknir í gær og hafa þá
alls tólf njósnarar verið teknir höndum í Þýskalandi á tveimur vikum.
Rannsókn málsins hefur vakið
grunsemdir um að njósnarar Stasi
hafi farið í felur eftir fall kommún-
ista í Austur-Þýskalandi til að halda
áfram njósnum sínum. „Svo virðist
sem þessir menn hafi ekki aðeins
tekið með sér mikilvæg skjöl úr
safni Stasi heldur einnig ýmsar
eignir og fjármuni," sagði í dagblað-
inu Frankfurter Rundschau. Talið
er að þeir hafi safnað miklum upp-
lýsingum um vestur-þýska stjórn-
málamenn og geti jafnvel beitt þá
fjárkúgunum. Samelnuðu Þýska-
landi stafi því mikil hætta af njósn-
urunum.
I yfirlýsingu frá ríkissaksóknara
Þýskalands sagði að njósnárarnir
átta hefðu m.a. komið áætlunum
um smíði skriðdreka, herþyrlna og
Tornado-sprengjuþotunnar yfir til
Austur-Þýskalands og þaðan til
Moskvu auk þess sem ýmsár skýrsl-
ur og greinargerðir varðandi örygg-
is- og varnarmál hefðu með þessu
móti komist í hendur leyniþjónustu-
manna í ríkjum þéssum.
I tilkynningu saksóknarans sagði
að njósnarnir, fjórar konur og fjórir
karlar, væru grunaðir um að hafa
starfað fyrir Stasi í 10 til 30 ár.
Einn þeirra, verkfræðingurinn
Karlheinz K., hefði til að mynda
látið austur-þýska leyniþjónustu-
menn fá upplýsingar á míkrófilmum
er vörðuðu tilraunir sem gerðar
höfðu verið hjá fyrirtækinu Mot-
oren-und-Turbinen Union en það
sérhæfir sig í smíði þotuhreyfla.
Hann var sagður hafa unnið fyrir
Stasi í 18 ár. Vitað væri að hann
hefði boðið sovésku öryggislögregl-
unni, KGB, þjónustu sína í maímán-
uði og vera kynni að hann hefði
fengið Sovétmönnum í hendur hern-
aðarleyndarmál er vörðuðu smíði
nýs skriðdreka.
Annar verkfræðingur, Franz M.,
hefði hins vegar smyglað úr landi
upplýsingum er vörðuðu nýja her-
þyrlu, sem sérfræðingar á vegum
Messerschmidt-Bölkow-Blohm fyr-
irtækisins unnu að. Hjónin Dieter
og Kerstin F. væru aftur á móti
grunuð um að hafa látið Austur-
Þjóðverjum í té upplýsingar um
Tornado-sprengjuþotuna, sem Bret-
ar, Italir og Vestur-Þjóðveijar
smíðuðu í sameiningu. 63 ára göm-
ul móðir Dieters, Gerlinde, hefði
verið handtekin vegna gruns um
að hafa aðstoðað þau hjónin og
komið á fundum þeirra og útsend-
ara Stasi. Hún var sögð hafa verið
liðsmaður öryggislögreglunnar
austur-þýsku í 30 ár.
ísraela virtist í sjónmáli í öryggis-
ráði Sameinuðu þjóðanna í gær-
morgun en fundi var hins vegar _
frestað án þess að tekin væri
ákvörðun í málinu. Sjö af aðild-
arríkjunum fimmtán - Kúba, Kól-
umbía, Fílabeinsströndin, Eþiópía,
Malasía, Jemen og Zaire - vilja
harðorða ályktun, sem heimilar
nefnd Sameinuðu þjóðanna að
leggja fram tillögur um „leiðir til
að tryggja öryggi palestínskra
borgara". Evrópuþingið fordæmdi
ísraela fyrir manndrápin í Jerúsal-
em og „skipulega kúgun á palest-
ínsku þjóðinni".
Douglas Hurd, utanríkisráð-
herra Bretlands, sagði í sjónvarps-
viðtali að meta þyrfti á næstu vik-
um hvort refsiaðgerðir Sameinuðu
þjóðanna nægðu til að koma íraks-
her frá Kúvæt, ella þyrfti að beita
hervaldi.
Edward Heath, fyrrum forsætis-
ráðherra Bretlands, skýrði frá því
að hann hygðist ræða við Saddam
Hussein íraksforseta í Bagdad á
sunnudag og reyna að fá vestræna
gísla í landinu lausa. Yusuf Islam,
áður poppsöngvarinn Cat Stevens,
greindi frá því að írösk stjórnvöld
hefðu fallist á að’ láta fjóra breska
gisla lausa um helgina.
Vangaveltur um að stríð brytist
út við Persaflóa urðu til þess að
olíverð hækkaði enn á heimsmark-
aði í gær. Verðlækkanir urðu á
verðbréfamörkuðum.
Sjáj_ „Tímabært að meta ...“
á bls. 22.
Octavio Paz hlýtur bók-
menntaverðlaun Nóbels
Stokkhólmi. Frá Eric Lidcn, fréttaritara Morgiinblaósins. Reuter.
OCTAVIO 'Paz, eitt af virtustu skáldum Mexíkó og úmdeildur
ritgerðahöfundur, hlaut bókmenntaverðlaun Nóbels í ár. Hann
er fyrsti Mexíkómaðurinn sem hlýtur þessi eftirsóttu verðlaun
og er líklega þekktastur fyrir ritgerðir sinar um stjórnmál og
heimspeki. Skáldið sagði eftir að sænska bókmcnntaakademian
liafði tilkynnt ákvörðun sína að hún hefði komið sér álgjörlega
á óvart en þessi viðurkenning væri afar mikilvæg fyrir bókmennt-
ir spænskumælandi þjóða.
Paz er 76 ára að aldri og fyrsta
ljóðabók hans kom út þegar hann
var sautján ára. Þekktasta bók
hans er „E1 laberinto de la
soledad“ (Völundarhús einsemd-
arinnar, 1958), þar sem hann lýs-
ir Mexíkó nútímans og þjóðarein-
kennum landa sinna á einkar
umdeildan hátt. Á meðal nýjustu
bóka hans er „Pintura de Juan
Soriano“ (Mynd af Juan Soriano),
sem kom út í fyrra.
Paz nam yið Ríkisháskóla Mex-
íkó og gerðist síðan stjórnarerind-
reki en stundaði ritstörf í frístund-
um. Hann var skipaður sendiherra
í Indlandi 1962 en sagði af sér
1968 eftir að lögreglan í Mexíkó-
borg hafði myrt hundruð ung-
menna sem mótmæltu harðræði
lögreglu og háum útgjöldum til.
Ólympíuleikanna í borginni.
Paz hreifst ungur af sósíalism-
anum en kastaði trúnni á marx-
ismann eftir að hafa gert sér grein
fyrir pólitískri og menningarlegri
kúgun í Sovétríkjunum og á Kúbu.
Hann varaði oft við útþenslu-
stefnu Sovétmanna og Kúbveija
í Rómönsku Ameríku og gagn-
rýndi harðlega stjórn sandinista í
Nicaragua. Fyrir vikið varð hann
óvinsæll á meðal margra mennta-
og listamanna í Rómönsku
Ameríku.
Verðlaunaféð nemur fjórum
milljónum sænskra króna, eða
tæpum 40 milljónum íslenskra.
Reuter
Nóbelskáldið Octavio Paz á
blaðamannafundi í New York í
gær.
Verðlaunin verða afhent í Stokk-
hólmi 10. desember.
Sjá grein um Nóbelsverð-
launahafann á miðopnu.