Morgunblaðið - 12.10.1990, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 12.10.1990, Blaðsíða 41
41 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. OKTÓBER 1990 VESTMANNAEYJAR Eyjaís gefur 300 þúsund Vestmannaeyjum. Eyjaís hf. í Vestmannaeyjum gaf fyrir skömmu 300 þúsund krónur sem skiptust jafnt milli þriggja aðila í Eyjum. Tilefni gjafar- innar var að fyrirtækið hefur selt 100 þúsund tonn af ís, á þeim fjór- um árum sem .það hefur starfað. Stjórn Eyjaíss ákvað á fundi fyr- irtækisins 28. september sl. að gefa þremur stofnunum í. Eyjum 100 þúsund hverri í tilefni framleiðslu 100 þúsundasta tonnsins. Magnús Kristinsson, stjórnarformaður Eyja- íss, sagði í stuttu ávarpi sem hann hélt við afhendingu gjafanna að stjórnin hefði_ ákveðið að minnast þessara tímamóta hjá fyrirtækinu með því að styrkja starfsemi þriggja stofnana, sem allar þjónuðu því hlutverki að hlú að þeim er minna mættu sín og hefðu með því gert mörgum kleift að leggja sitt af mörkum til samfélagsins þrátt fyrir fötlun sína. Síðan afhenti Magnús Arnmundi Þorbjörnssyni fulltrúa Verndaðs vinnustaðar, Guðmundu Steingrímsdóttur forstöðumanni Sambýlis fatlaðra og Hrönn Krist- Morgunblaðið/Grímur Gíslason Fulltrúar gefenda og þeir er við gjöfunum tóku. F.v. Magnús Krist- insson, Guðmundur Jóhannsson, Arnmundur Þorbjörnsson, Guð- munda Steingrímsdóttir og Hrönn Kristjánsdóttir. jánsdóttur forstöðumanni Meðferð- gjafirnar sem þau sögðu að kæmu arheimilisins að Búhamri gjafirnar. sér vel í því starfi sem þau ynnu að. Fulltrúar stofnananna þökkuðu Grímur X Dags. 12.10 1990 NR. 174 VAKORT Númer eftirlýstra korta 4507 4200 0000 8391 4507 4300 0003 4784 4507 4500 0008 4274 4507 4500 0014 4003 4543 3700 0000 2678 4543 3700 0001 5415 4929 541 675 316 Kort frá Kuwait sem byrja á nr.: 4506 13** 4966 66** 4509 02** 4507 13** 4921 04** 4921 90** 4547 26** 4552 41** 4560 31** 4508 70** 4507 77** 4966 82** Afgreiðslufólk vinsamlegast takið ofangreind kort úr umferð og sendið VISA íslandi sundurklippt. VERÐLAUN kr. 5000,- fyrir að klófesta kort og vísa á vágest. VISA ÍSLAND X tilkynnti að Jón og Pía hefðu fund- ið hvort annað á ný, en það fannst mér, sem fyrr, að hefði ekki komið skýrt fram á sviðinu. Og þá fór að iíða að því að hleypa Jóni inn í himnaríki. Björgvin kom niður himnastiga og söng Elvis-lög, s.s. Welcome to my world og The Wond- er of you, Eyjólfur tók við sem Roy Orbison, þá birtist Karl með tvö lög, Stefán söng Imagine eftir John Lennon og Twist and shout og loks birtust Eva og Sigríður með lagið Baby face. Æstust nú leikar mjög og eftir mikið rokk var lokalagið, Good golly, miss Molly, flutt. Voru áhorfendur þá farnir að taka vel undir og vildu greinilega ekki hætta við svo búið, þó nærri hálfur annar klukkutími væri liðinn. Mikið er lagt upp úr því að sýn- ingin sé skrautleg, bæði í búningum og sviðssetningu. Frammistaða söngvaranna var yfirleitt góð. Björgvin var á heimavelli í þessum gömlu, góðu lögum og var sá söngvaranna, sem átti stærsta aðdáendahópinn í salnum þetta kvöld. Eyjólfur er orðinn sjóaður í slíkum sýningum og stóð sig með ágætum. Eva Ásrún hefur ekki tek- ið þátt í sýningum af þessu tagi mér vitanlega og var greinilegt að óöryggi háði henni mikið við flutn- inginn. Karl kom vel út og virtist ájcaflega afslappaður. Stefán kom niér ánægjulega á óvart. Ég var fárin að halda að hann gæti ekki losað sig við soul-skrækina, sem hann hefur tamið sér, en í þessari sýningu syngur hann skemmtilega. Sigríður var ekki að taka þátt í svona sýningu í fyrsta sinn og leysti sitt hlutverk vel af hendi að vanda. Og þó hún kynni ef til vill að þræta fyrir það sjálf, þá fer það henni mjög vel að syngja sykursætar ball- öður, líkt og Brendu Lee-lögin. Hljómsveitin er skipuð þeim Eiði Arnarsyni, bassa, Rúnar Georgs- syni, saxafón, Einari Braga Braga- syni, saxafón, Jóni Elvari Haf- steinssyni, gítar, Birgi Baldurssyni, trommur, Grétari Örvarssyni, hljómborð og Jóni Kjell Seljeseth, hljómborð. Hljóðfæraleikur var þéttur og góður og hljómburður með ágætum. Ekki er hægt að segja frá kvöldi á Hótel íslandi án þess að nefna niatinn, sem boðið er upp á fyrir sýningu. Ég hef alltaf dáðst að því hvernig kokkum skemmtistaðarins tekst að elda ofan í fleiri hundruð manns og gera það vel. Nú var boðið upp á níu rétta valmatseðil og sem fyrr tókst vel til. Og fyrir bá, sem gaman hafa af söngvasýn- ingum, er óhætt að mæla með kvöldstund á Hótel íslandi. BILDSHOFÐA10 Með lágu verði, miklu vöruúrvali og þátttöku fjölda fyrirtækja hefur stórút- sölumarkaðurinn svo sannarlega slegið í gegn og stendur undir nafni. ---------------------------------------n BILDSHOFÐI ÁRTÚNSBREKKA STORUTSOLUMARKAÐUR BÍLDSHÖFÐA 10 VESTURLANDSVEGUR straumur STEINAR hljómplötur - kassettur; KARNA- BÆR tískufatnaður herra og dömu; HUMMEL sportvörur alls konar; VINNUFATABÚÐIN fatnaður; PARTÝ tískuvörur; BOMBEY barna- fatnaður; SAUMALIST alls konar efni; SKÆÐI skófatnaður; BLÓMALIST blóm og gjafavörur; STÚDÍÓ fatpaður; THEÓDÓRA kventískufatnaður; SKÓVERSLUN FJÖL- SKYLDUNNAR skór á alla fjölskylduna; SONJA fatnaður; HENSON sportfatnaður; KAREN fatnaður; FATABÆR fatnaður;

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.