Morgunblaðið - 12.10.1990, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 12.10.1990, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 12. OKTÓBER 1990 51 Rúnar fékk engan leik Var ekki rétt að nota hann í leik 21 árs liðsins? Brann vill fá níu milljónir fynrTeít Teitur byrjar að þjálfa Lyn í næstu viku Forráðamenn Brann em ekki ánægðir með framkomu for- ráðamanna Lyn og sögðu í gær að þeir hafi komið aftan að sér þegar þeir fengu Teit Þórðarson tilliðs við sig. Teitur er samnings- bundinn Brann til 1991, en féiag- ið getur þó ekki stöðvað hann. Samkvæmt norskum lögum getur Teitur sagt starfi sínu lausu með þriggja mánaða fyrirvara. Forráðamenn Brann segja að forráðamenn Lyn verði að kortia til þeirra og gera hreint fyrir sínum dyrum, en Teitur mun byija að þjálfa Lyn í næstu viku - og mun hann ferðast frá Bergen til Oslóar til að stjórna æfíngum. Brann fer fram á 9,3 millj. fsl. króna frá Lyn fyrir að Teitur ger- ist þjálfari liðsins og vissu for- ráðamenn Lyn að þeir yrðu að greiða Brann skaðabætur. Leeds vill fá Amór! ARNÓR Guðjohnsen er að öll- um líkindum á leið til Englands. Hann hefur fengið tilboð f rá 1. deildarliðí, þar í landi og út- sendari þess fylgdist með leiknum í Sevilla ífyrrakvöld. Arnór vildi ekki gefa upp hvaða lið væri hér um að ræða; sam- komulag væri á þessu stigi málsins milli sín og viðkomandi félags að gefa það ekki upp Valur strax, en Morgun- Jónatansson blaðið hefur heim- . ildir fyrir því að það fraSpanl sé Leeds United. Félagið, sem hefur alla tfð verið fjársterkt og talið meðal þeirra „stóru“ á Englandi, vann sig upp í 1. deild á ný á síðastliðnu vori eftir MSIGURLÁS Þorleifsson hefur skrifað undir nýjan samning sem þjálfari 1. deildarliðs ÍBV í knatt- spymu. Hann mun einnig leik% áfram með Eyjaliðinu. í samningn- um er gert ráð fyrir því að Sigurl- ás fari utan í vetur til að fylgjast með þjálfun, og hefur portúgalska félagið Benfica verið nefnt í því sambandi. Þar er við stjórnvölinn sænski 'þjálfarinn Sven Göran Eriksson. ■ ÍSLENSKA landsliðinu í knatt- spymu hefur verið boðið á mót á Kýpúr í janúar. Færeyingum, Luxemborgarmönnum og Möltubúum hefur einnig verið boð- ið á mótið. ■ KR-ingar hafa átt í viðræðum við Ian Ross um að hann verði áfram þjálfari KR-liðsins. ■ FORRÁÐAMENN héraðssam- bandsins Skarphéðins hafa skorað á Guðmund Kr. Jónsson að gefa kost á sér til embættis varafor§eta íþróttasambands íslands á sam- bandsþingi ÍSÍ síðar í mánuðinum. Guðmundur á sæti í framkvæmda- stjórn ÍSÍ. ■ ÓLI Olsen, milliríkjadómari í knattspyrnu, dæmir leik And- erlecht og Omonía frá Kýpur í 2. umferð Evrópukeppni bikar- hafa, sem fer fram 27. október. Tveir línuverðir fara með honum til Briissel. “ ■ ÞÓRARINN Ingólfsson hefur verið ráðinn þjálfari 2. deildarlið Selfoss í knattspyrnu. Hann lék um árabil með liði Selfyssinga; var fyrirliði þess um tíma, en hætti að leika fyrir tveimur árum. ■ EYJÓLFUR Ólafsson dæmdi landsleik Norðmanna og Hollend- inga, liða 18 ára og yngri, í Nor- egi í fyrrakvöld. Norðmenn sigr- uðu 4:1. ■ BJARNI Benediktsson, leik- maður 21 árs landsliðsins, meiddist á hné f leiknum gegn Spánverjum. Hann gengur nú með hækjur. Pét- ur Pétursson, sem meiddist á ökkla, er einnig um með hækjurv ■ PÉTUR Guðmundsson, kúlu- varpari, sem varð i 12. sæti í úrslita- keppni Evrópumeistaramótsins í Split í Júgóslavíu í lok ágúst, fær- ist upp um eitf sæti. Bronshafmn frá Sovétríkjunum, Vjatsjeslav Lykho, féll á lyfjaprófí og hefur verið dæmdur úr leik. Tveir aðrir keppendur féllu á lyfjaprófinu, en 158 gengust undir það. átta ára dvöl í 2. deild. „Forráðamenn félagsins í Eng- landi hafa rætt við mig og spurt hvort ég hafi áhuga. Þeir sögðust myndu senda mann til Spánar til að fylgjast með leiknum. Þetta mun skýrast á næstu dögum,“ sagði Arnór. „Ég er orðinn hálf þreyttur á þessu ástandi og það verður að fara að gerast eitthvað í mínum málum. Ef þetta dæmi gengur ekki fer ég til Belgíu til að ræða alvar- lega við forráðamenn Anderlecht,“ sagði landsliðsmaðurinn. Þess má geta að stjóri Leeds United er Howard Wilkinson, sem áður var hjá Sheffield Wednesday. Þar lék Sigurður Jónsson undir stjórn hans. Arnór Guðjohnsen til Elland Road? Rúnar Kristinsson. Sigurlás. Óli O. Mm FOLK Bo Johansson, landsliðsþjálfari. Bo Johansson, landsliðsþjálfari, sagðist alltaf velja sextán bestu leikmennina hveiju sinni og að Rúnar væri í þeim hópi. „Það er aldrei hægt að sjá það fyrr en á leikdag hvaða ellefu leikmenn byija. Það verður að taka mið af æfingum fram, að leik og hvernig menn kom- ast frá þeim. Meiðsli og annað til- fallandi geta komið upp á síðustu æfingunni. Þessi staða getur alltaf komið upp og það er ekki hægt að sjá hana fyrirfram. Rúnar er mjög góður leikmaður og hann á sama möguleika og aðrir í hópnum," sagði landsliðsþjálfarinn. „Bo var áður búinn að lýsa því yfir að ég hefði rétt á að nota leik- mann í 21 árs liðið ef sá hinn sami væri ekki í byijunarliðinu hjá hon- um. Þessi mál verða rædd er við komum heim, en ég sætti mig ekki við þetta enda skýtur það skökku við það sem áður var rætt um,“ sagði Marteinn geirsson, þjálfari 21 árs landsliðsins. „Ég vil ræða um þetta mál í okkar hópi áður en ég fer að gefa út yfirlýsingar," sagði Sveinn Sveinsson, formaður landsliðs- nefndar 21 árs liðsins. ÞAÐ vakti athygli að Rúnar Kristinsson fékk ekki að leika á Spáni, hvorki með 21 árs lið- inu eða a-landsliðinu. Svipuð staða kom upp hér í Sevilla 1985, er Guðni bergsson var varamaður í a-liðinu, en gjald- gengur í 21 árs liðið. „Ég er mjög svekktur yfir því að hafa ekki fengið að spila. Ég hefði heldur vilja leika með 21 árs liðinu en vera varmaður hjá a-liðinu,“ sagði Rúnarvið Morgunblaðið f gær. Rúnar sagði að þetta væri ekki hans mál heldur landsliðs- nefndar KSÍ og þjálfarans. „Þetta sama mál kom upp eftir Frakkaleik- inn heima. Þá var ég varamaður og kom inn á. Að mínu mati eiga þeir að geta gert það upp við sig með hvoru liðinu eru meiri not fyr- ir mig. En auðvitað er það mikill heiður að komast í sextán manna a-landsliðshópinn og hlýtur að vera metnaður allra knattspyrnumanna. Það var þó sárt að fá engan leik.“ Bo mun dvelja hjá Arsenal og Tottenham Bo Johansson, þjálfari íslenska landsliðsins, hélt í gær frá Sevilla til Svíþjóðar, þar sem hann er búsettur í Kalmar. Bo mun fylgj- ast með atvinnumönnum okkar í vetur og er ákveðið að hann dveljist hjá Arsenal og Tottenham - viku hjá hvoru félagi, þar sem hann mun kynna sér æfingar og undirbúning félaganna, jafnframt því að ræða við framkvæmdastjóra félaganna um Sigurð Jónsson og Guðna Bergs- son. KNATTSPYRNA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.