Morgunblaðið - 12.10.1990, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 12.10.1990, Blaðsíða 40
ík 40 ooq! :naóT>io .sr jiuoAauTaö'í aiaAjanuojioi/; MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. OKTÓBER 1990 Hanne Juul og forseti íslands, frú Vígdís Finnbogadóttir. VIÐURKENNIN G A Forseti Islands heiðrar vísnasöngkonu Vísnasöngkonan Hanne Juul tók á móti norrænum styrk úr hendi forseta íslands, Vigdísar Finnbogadóttur, við hátíðlega at- höfn í menningarmiðstöðinni „Bláa stallet" í Gautaborg í september. Hanne Juul er frá Vanersborg og hlaut norræna styrk ársins 1990, að upphæð 10.000 sænskar krónur, frá Föreningen Nordens Stiftelse, Bohusgárden. í ályktun stjórnar- innar stendur: Hanne Juul hefur í listrænu starfi sínu orðið einskonar samnefnari norræns menningar- starfs. Fáir listamenn hafa náð jafn- góðum tökum á þjóðkvæðum allra Norðurlandamála og hún hefur gert stórverk í að kynna þau á meðal allra Norðurlandaþjóðanna. Síðast en ekki síst má nefna atorku henn- ar við stofnun samtakanna Nord- visa og við norrænu vísnasöngdeild- ina við Norræna lýðháskólann í Kungálv. Þetta er í annað skiptið sem styrknum er úthlutað. í sambandi við 50 ára afmæli Föringen Nord- ens Stiftelse, Bohusgárden, 1989 var ákveðið að úthluta honum ár- lega til þeirra sem tengdir eru Vestur-Svíþjóð óg hafa gert mikið fyrir norrænt samstarf. HERRAKULDASTÍGVÉL úrleðri með rennilás Litur: Svartur Verð 4.795, - 5% staðgreiðsluafsláttur Póstsendum samdægurs Kringlunni, sími689212 Oomus Medica S. 18519. topp|| —''SKORINN VELTUSUNDI 1 21212 ffclk f fréttum ALMAL Steingrímur Hermannsson skoðar áiver Almálin er mál málanna á ís- landi í dag og brýnt fyrir ráða menn þjóðarinnar að kynna sér alla þætti málsins sem best. í því skyni heimsótti Steingrímur Hermannsson aðalstöðvar Alumax í bænum Norcross sem er í Ge- orgíu í Bandaríkjunum í lok sept- ember til viðræðna við yfírmenn álfyrirtækisins um fyrirhugaða ál- verksmiðju Atlantal-hópsins á ís-* landi. Steingrímur skoðaði einnig Mount Holly-álverksmiðju Alumax í Suður-Karólínu. Paul Drack for- stjóri Alumax sýndi Steingrími verksmiðjuna sem er hin nýtísku- legasta sinnar tegundar. Á mynd- inni er Steingrímur að ræða við tvær konur sem vinna í álverinu, en alls eru 51 kona við störf í verk- smiðjunni, þar af 16 við stjórnunar- störf. Starfsmenn alls eru hins vegar 619. Konur eru því 8 pró- sent af heildarstarfsmannafjölda Mount Holly-álversins. hoSlisland Fjör ájörðu sem á himni Skemmtanir . RagnhildurSverrisdóttir Hótel ísland býður gestum sínum í vetur sem fyrr upp á sýn- ingu, þar sem fjöldi söngvara syng- ur þekkt lög fyrri ára. I sýning- unni, sem nefnist Rokkað á himn- um, er leitað fanga í smiðju gömlu rokkaranna, þ.e. frá upphafi rokktímabils fram að Bítlatíma. Sýningin byggir á sögu um rokk- arann Jón, sem hrekkur upp af. Stúlkan hans, Pía, leggur upp með sál hans á kassettu og freistar þess að koma Jóni í gullna liðið á himn- um, þar sem látnir rokkarar halda uppi fjöri. í byijun sýningarinnar eru kynni Jóns og Píu rifjuð upp. Sex söngvarar koma fram,_ þau Eyjólfur Kristjánsson, Eva Ásrún Albertsdóttir, Karl Örvarsson, Sigríður Beinteinsdóttir, Stefán Hilmarsson og Björgvin Halldórs- son, sem jafnframt er tónlistarstjóri sýningarinnar. Sögumaður, Sig- mundur Ernir Rúnarsson, birtist á stórum skjá við sviðið. Sýningin byijar strax af fullum krafti, með rokksyrpu, þar sem allir söngvar- arnir koma fram. Því næst tekur Eyjólfur við með þekkta lagabúta Morgunblaðið/KGA Björgvin Halldórsson var á heimavelli í gömlu Platters-Iög- unum. Sigríði Beinteinsdóttur og Evu Ásrúnu Albertsdóttur var mikið niðri fyrir í dúettunum. og Eva Asrún og Sigríður fluttu þijá lagabúta saman, t.d. gamla Ronnettes-lagið Be my Baby og One fine Day, sem ég held að Ca- rol King eigi allan heiður af. Eftir þetta varð ekki aftur snúið og lögin komu hvert á eftir öðru; Great balls of fire, sem Karl söng og Stefán flutti lagasyrpu. Þegar hér var komið sýningunni var greinilegt, að hætta var á að sögu- þráðurinn glataðist. Það auðveldaði áhorfendum að fylgjast með sam- skiptum Píu og Jóns á sviðinu ef þau fengju meiri athygli en hinir dansararnir, til dæmis með því að láta ljós fylgja þeim. Sýningin varð rómantískari og rólegri á kafla, t.d. þegar Sigríður söng þijú Brendu Lee lög. Ekki kann ég að nefna nema eitt þeirra, sem heitir As usual. Eyjólfur tók við af Sigríði á rólegu nótunum og Björgvin bætti um betur, t.d. með Platters-lögunum Smoke gets in your Eyes og Great Pretender. Fjöldi dansara, sem Helena Jóns- dóttir stjórnar, kemur fram og eru þeir nokkuð misjafnir. Oft fannst mér nokkuð skorta á samhæfingu þeirra, en Helena bar af lærisvein- um sínum. Hún sýndi hvað í henni býr með sólódansi og ekki var verra að Rúnar Georgsson fór á kostum á saxafóninum á meðan. Aftur varð sýningin fjörugri og nú með „strandpartíi“. Sögumaður

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.